Morgunblaðið - 07.09.1986, Síða 64

Morgunblaðið - 07.09.1986, Síða 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986 Minning: * Arni K. Dungal Friðriksson Fæddur 31. maí 1983 Dáinn 2. september 1986 Hann Ami Kristinn var aðeins þriggja ára þegar hann var burt- kallaður úr þessum heimi. Hann var sonur hjónanna Ámýj- ar Richardsdóttur og Friðriks Dungal. Hann átti einn bróður, Ric- hard Þór, sem er fimm ára. Þegar bróðir minn hringdi í mig ■og sagði mér að Ámi Kristinn lægi alvarlega slasaður eftir umferðar- slys, setti mig hljóða. Ein löng vika leið, þá var hringt aftur og nú var mér sagt að Árni Kristinn væri dáinn. Þrjú ár eru ekki löng ævi. En samt eru margar minningar til. Eg fékk að kynnast honum þegar mamma hans gerðist dagmamma fyrir son minn sem er ári eldri en hann, þessum litla snáða sem var svo vel skapaður, fullur af lífskrafti og gleði. Þegar hann kom skríðandi á móti mér með sitt blíða bros, er ég kom til að sækja soninn minn. Síðan fékk ég að fylgjast með fyrstu sporunum hans. Þá hvarflaði ekki að manni að þau myndu ekki verða svo ýkja mörg í þessu lífi. En það er þó svo gott að vita til þess að hann er orðinn frískur aftur heima hjá guði á himnum. Við munum einnig sakna hans úr afmælisveislunum hjá Gunnari bróður mínum og konu hans Guð- rúnu, sem er móðursystir Áma litla. Og ekki kemur hann heldur oftar að heimsækja okkur út á Álftanes. En við Oli Geir munum geyma þessar góðu minningar í hjörtum okkar um þennan litla dreng. Elsku Ámý og Friðrik, ég bið góðan guð að styrkja ykkur í ykkar mikla missi. Og stóra bróður sem hefur misst bæði vin og leikfélaga, en þeir voru sérlega samrýndir. Guð styrki líka afana og ömm- umar svo og aðra ættingja. Gréta LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 681960 KENWuOD UMBOÐSMENN KENWOOD UM LAND ALLT JL-HÚSIÐ, Hringbraut 121, Reykjavík RAFHA HF., Austurveri, Reykjavík RAFÞIÓNUSTA SIGURD., Skagabraut 6, Akranesi HÚSPRÝÐI, Borgarnesi HÚSIÐ, Stykkishólmi VERSLUN EINARS STEFÁNSSONAR, Búðardal KAUPFÉLAG SAURBÆINGA, Skriðulandi, Dalasýslu PÓLLINN HF„ ísafirði VERSLUN EINARS GUÐFINNSSONAR, Bolungarvík VERSLUN SIGURÐAR PÁLMASONAR, Hvammstanga KAUPFÉLAG HÚNVETNINGA, Blönduósi KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA, Sauðárkróki RAFSJÁ HF„ Sauðárkróki KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA, Akureyri GRÍMUR OG ÁRNI, Húsavík VERSLUN SVEINS GUÐMUNDSSONAR, Egilsstöðum ENNCO SF„ Neskaupstað MOSFELL, Hellu KAUPFÉLAG ÁRNESINGA, Selfossi RADÍÓ- OG SJÓNVARPSÞJÓNUSTAN, Selfossi KJARNI, Vestmannaeyjum RAFVÖRUR, Þorlákshöfn VERSLUNIN BÁRA, Grindavík STAPAFELL HF„ Keflavík HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD HEKIAHF LAUGAVEG1170-172 Sími 695550 Ingibergur Vilmundar- son — Minningarorð Fæddur 15. október 1918 Dáinn 29. ágúst 1986 Á morgun verður til grafar bor- inn móðurbróðir minn, Ingibergur Vilmundarson, og langar mig að minnast hans nokkrum orðum. Nú þegar ég lít til baka til sam- leiða okkar frænda míns, koma mér í hug margar ljúfar og litríkar minn- ingar. Ingibergur var ákaflega lífsglaður, vinamargur og skraf- hreifinn og mikill vinnuþjarkur. Lengst af vann hann hjá Eimskipa- félagi íslands hf. og þá lengst af til sjós. Ingibergur fæddist 15. október 1918 í Vestmannaeyjum, sonur Vil- mundar Friðrikssonar og Þuríðar Pálsdóttur. Ingibergur var áttundi í röðinni af ellefu systkinum. Fjögur þeirra eru nú eftirlifandi. Ingibergur var tvíkvæntur. Fyrri eiginkona hans var Kristín Krist- jánsdóttir og eignuðust þau tvö böm, Þuríði hjúkrunarkonu og Kristján skrifstofustjóra. Síðar kvæntist hann eftirlifandi eigin- konu sinni, Margréti Tómasardótt- ur. Fyrir mér ungum var Ingibergur ákaflega góður frændi og minnist ég ferðalaga með honum í bænum og út úr bænum. Var ég ákaflega ’ ændur að honum og tengslin sterk. Ofáar voru heimsóknir mínar til Margrétar og Ingibergs og var allt- af gott að koma til þeirra og njóta góðrar gestrisni þeirra, þegar ég stundaði nám í Fjölbrautaskólanum og snæddi ég ófáar máltíðimar í Stigahlíðinni hjá þeim og fékk mér síðan blund á sófanum á eftir. Heimili þeirra var sem mitt ann- að heimili og leið mér ávallt vel hjá þeim hjónum. Mannkostir Margrétar koma mjög skýrt fram eftir að Ingibergur missti heilsuna og starfsgetu, en þá varð hún að sjá heimilinu far- borða, jafiiframt að vera honum ástrik og styrk stoð í hans erfíðu veikindum. Begga, en svo var hann jafnframt nefndur af vinum og kunningjum, minnist ég með söknuði og vil færa eiginkonu, bömum, tengdabömum og bamabömum samúðarkveðjur. Vor ævi stuttrar stundar, er stefna til drott- ins fundar, að heyja lífs og liðinn dóm. En mannsins sonur mildi skal máttur standa í gildi. Hún boðar oss í engils róm. (Einar Benediktsson) Einar Þór Jónsson Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val legsteina. S.HELGASON HF STEINSívÍIÐJA SKaWUÆGI 48 SiMI 76677 Námskeið í karate eru að hefjast í glæsi- legri aðstöðu félagsins í Árseli i Arbæ. • Byrjendur 10—16 ára. • Byrjendur 16 ára og eldri. • Framhaldsf lokkar. Innritun og upplýsingar í síma 78944 eftir kl. 18.00 alla virka daga. Einnig er velkomið að Irta inn á æfingu hjá okkur þriðjud. og fimmtud. kl. 19.00—21.00. Karate er alhliða líkamsrækt jafnt fyrir konur sem karla áöllumaldri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.