Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 219. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsina Daniloff á heimleið Bandaríski blaðamaðurinn Nic- holas DanUoff um borð í þotu Lufthansa á leið frá Moskvu til Frankfurt í Vestur-Þýzkalandi í gær. Daniloff bregður á loft stuttermabol, sem á er prentuð krafan um að hann skuli látinn laus. Hann var látinn laus í Moskvu í gær, mánuði eftir hand- töku og ásakanir um njósnir. „Þakklátur að vera aftur fríáls maður“ U/ocIiinnt An M/idlnm 1P ■ Frankfurt, Washington, Moskvu, AP. „ÉG ER þakklátur Bandarikjaforseta að ég skuli vera aftur frjáls maður og kominn til Vesturlanda,“ sagði bandariski blaðamaðurinn Nicholas Daniloff er hann kom í gærkvöldi til Frankfurt í Vestur-Þýzkalandi frá Moskvu. Hann var handtekinn í Moskvu fyrir tæpum mánuðí og sakaður um njósnir. Daniloff dvaldist í nótt í Frankfurt en heldur til Bandaríkjanna í dag. Við brottförina frá Moskvu sagðist Daniloff fremur fullur trega en reiði. Málið gegn honum hefði verið tilbúningur og sovézka leyniþjónustan, KGB, hefði hlaupið illa á sig. Hann var hins vegar alsæll við komuna til Frankfurt og kona hans, Ruth, geislaði af gleði, þegar Richard Burt, sendiherra í Vestur-Þýzka- landi, tók á móti þeim hjónum. Þegar Daniloff yfirgaf banda- ríska sendiráðið í Moskvu í gær veifaði hann til viðstaddra með sigurmerki. Fljótlega spurðist út hvað í vændum væri og fór fregn- in sem eldur í sinu um Banda- ríkin, þar sem frelsi hans var fagnað um land allt. Reagan forseti og bandarískir embættismenn sögðu að staða hins meinta sovézka njósnara, sendifulltrúans Gennadiy Zakh- arov, sem handtekinn var í New York viku á undan Daniloff, væri óbreytt. Heimildir hjá Sameinuðu þjóðunum fullyrtu þó að Zakh- arov yrði látinn laus í skiptum fyrir Daniloff og að utanríkisráð- herrar stórveldanna, Shultz og Shevardnadze, hefðu samið um lyktir máls þeirra á sunnudags- kvöld. Sjá ennfremur um Danil- off-málið á bls. 29 og for- ystugrein á bls. 32. Eins dags verk- fall í Færeyjum Þórshöfn. Frá Hilmari Jan Hanscn, fréttarítara Morgunbladsins. VERKFALLINU, sem 14 stærstu launþegasamtök Fær- eyja hófu í gærmorgun, var aflýst síðdegis. Efnt var til þess í mótmælaskyni við áform landsstjórnarinnar um tolla- og skattahækkanir, sem lands- þingið samþykkti um hádegis- bilið í gær. Launþegasamtökin halda því fram að hinir nýju skattar stjóm- arinnar eigi eftir að hafa í för með sér mikla aukningu heimilis- útgjalda. Gerðar voru breytingar á frumvarpinu í meðförum þingsins til þess að koma að einhveiju leyti til móts við launþegasam- tökin og varð það m.a. til þess að þau afléttu verkfallinu. Ýmsir foiystumenn samtakanna vora þó þeirrar skoðunar að eðlilegra hefði verið fyrir stjórnina að ijúfa þing og efna til kosninga svo að landsmenn gætu látið í ljós álit sitt á frumvarpinu. Vestur-Þýzkaland: Eru 27.000 flótta- menn á leiðíimí? Bonn, AP. VESTUR-ÞÝZK yfirvöld reyna nú eftir pólitískum leiðum að koma í veg fyrir að 27.000 flótta- menn frá Tyrklandi og íran, sem sagðir eru á leið til Austur- Þýzkalands, komist til áfanga- staðar, sem mun vera i Vestur-Berlín. Brezkí Verkamannaflokkurinn: Gremja út í Weinberger Blackpool, AP. LEIÐTOGAR brezka Verka- mannaflokksins sökuðu Banda- ríkjamenn um leynimakk með Margaret Thatcher, forsætis- ráðherra, og tilraunir til að skemma fyrir flokknum f næstu konsingum með árásum á stefnu hans í kjarnorkumálum. Flokkurinn hefur heitið þvf að eyðileggja brezk kjamorku- vopn komist hann f stjóm. Denis Healey, talsmaður flokksins í utanrikismálum, var harðorður í garð Bandaríkja- manna fyrir ummæli þess efnis að líf Atlantshafsbandalagsins kynni að vera í veði ef Verka- mannaflokkurinn yrði við sljóm- völinn eftir næstu kosningar. Healey sakaði Caspar Wein- berger, vamarmálaráðherra, og Richard Perle, aðstoðarráðherra, um afskipti af brezkum innanrík- ismálum. í gær samþykkti flokksþing Verkamannaflokksins að reka átta trotskyista, flesta þeirra frá Liverpool, úr flokknum. FVam- kvæmdastjóm flokksins visaði þeim úr flokknum í sumar. Átta- menningamir ruku í fússi út af þinginu í gærmorgun og sögðu ástandið þar minna meira á Stalínstímann í Sovétríkjunum en þing í flokki, sem kenndi sig við lýðræði. Lundúnablaðið Standard birti í dag nýja skoðanakönnun um stöðu stjómmálaflokkanna og samkvæmt henni hlyti Verka- mannaflokkurinn 37% atkvæða, ef kosið yrði í dag, eða tveggja prósenta meira fylgi en íhalds- flokkurinn. Þá segir að kosningabandalag Frjálslynda flokksins og Jafnaðar- mannaflokksins hlyti 26% at- kvæða. Að sögn embættismanns í utan ríkisráðuneytinu í Bonn eru 600 langferðabifreiðar á leið frá Istan- búl til Austur-Berlín með flótta- mennina. Yfirvöld í Vestur-Þýzka- landi telja sig hafa vissu fyrir því að fólkið ætli að fara yfir í Vestur- Berlín þegar til borgarinnar tvískiptu kemur áður en ný austur- þýzk lög um flóttamenn ganga í gildi á miðvikudag. Embættismenn í Búlgaríu skýra frá því að mörgum bifreiðum hafi verið snúið þaðan aftur til Týrk- lands. Borgarstjóri landamæra- borgarinnar Edime í Tyrklandi vísaði því á bug að 27.000 flótta- menn væru á leið þaðan. Hann staðfesti að 550 íranir hefðu farið yfir landamærin til Evrópulanda frá 20.-26. september og sagði hina töluna hugarburð. Hafa yfirvöld í ríkjum kommún- ista heitið þvi að snúa til baka öllum flóttamönnum, sem ekki hafa vega- bréfsáritun til dvalar í Vestur- Þýzkalandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.