Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 Walesa ráðgast við neðan- jarðarleiðtoga Samstöðu Hyggjast móta stefnu í kjölfar sakaruppgjafarinnar Gdansk, AP. LECH WALESA hitti í gær að máli helstu leiðtoga hinnar bönn- uðu verkalýðshreyfingar, Sam- stöðu. Meðal þeirra sem komu til fundar við hann var Zbigniew Bujak, en honum var sleppt úr haldi í síðasta mánuði. Auk hans voru níu aðrir leiðtogar hreyf- Þurrkasvæðin í Súdan: Samkomulag um matvælaflutninga Khartoum, AP. MATVÆLAAÐSTOÐ við fólk á þurrkasvæðunum í suðurhluta Súdan mun hefjast á miðvikudag, að því er fulltrúar alþjóðlegra hjálparstofnana sögðu á sunnu- Knattspyrna: Óeirðir og handtökur í Hollandi Eindhoven, HolIandi.AP. ÓEIRÐALÖGREGLA handtók fjölda manns um sl. helgi i bæn- um Eindhoven í Hollandi. Voru það stuðningsmenn tveggja knattspyrnuliða og er þetta í þriðja sinn f septembermánuði sem slíkir aðilar valda óspekt- Sjötíu og tveir voru handteknir og þrir meiddust í óspektum er hófust á laugardagskvöld er stuðningsmenn Feyenoord frá Rotterdam komu til Eindhoven. Óspektimar urðu fyrir kappleikinn á sunnudag, milli Feyenoord og PSV frá Eindhoven.á meðan á honum stóð og eftir að honum lauk. Stuðningsmenn Feyenoord veittust að vegfarendum og brutu gluggarúður í miðbæ Eindhoven, strax eftir komuna þangað. Var óeirðalögregla þá kvödd til. Þegar hleypt var inn á leikvanginn á sunnudag, tók lögreglan í sínar vörslur litla heimagerða sprengju, tvær reyksprengjur og flölda bar- efla. Helgina 20-21 sept. voru 64 handteknir í bænum, Den Bosch, í átökum milli stuðningsmanna tveggja knattspymuliða. Þá fann lögreglan tvær eldsprengjur. Þann 7. sept. særðust 14 manns og 21 var handtekinn vegna átaka í tengslum við knattspymuleiki í Eindhoven og Haag. dag. Neyðaráætlunin, sem nefn- ist Bifröst, felst í því að matvælum og lyfjum verður flog- ið á neyðarsvæðin. Fyrsta kastið verður flogið til bæjanna Juba og Malakal og verða Herkúles-vélar notaðar til þess ama. Samkomulag hefur náðst við uppreisnarmenn um að flugvélarnar og starfsmenn hjálparstofnananna verði látnir óáreittir við störf sín. Samskonar samkomulag náðist við þá í síðustu viku um flug til bæjanna Wau og Yirol, en ríkis- stjóm Súdan bannaði flug til Yirol á þeirri forsendu að bærinn væri á hemaðarsvæði, en flugbrautin í Wau var lokuð. ingarinnar víðsvegar af Póllandi viðstaddir fundinn. Leiðtogar Samstöðu, sem var bönnuð árið 1982 í samræmi við herlögin, sem þá vora í gildi, hafa að undanfömu rætt hvemig koma eigi til móts við sakarappgjöf stjómvalda. Meðal leiða, sem rædd- ar hafa verið, era stofnun nefndar, sem hefði það að markmiði að koma á frelsi innan hinnan opinbera verkalýðsfélaga. Með þeim hætti telja sumir að hægt væri að endur- vekja fijálsa verkalýðshreyfingu í Póllandi og að koma í stað neðan- jarðarhreyfingarinnar, sem hefur átt erfitt uppdráttar að undanfömu. „Við viljum vinna að velferð landsins fyrir opnum tjöldum og í samkvæmt landslögum", sagði Walesa, en hann varð 43 ára í gær. Samkvæmt ónefndum heimilda- mönnum innan Samstöðu væri tilgangurinn með því að stofna slíka nefnd sá að reyna á samningsvilja stjómarinnar eftir sakarappgjöfina, en með henni var 225 pólítískum föngum sleppt úr haldi. Ef stjóm- völd viðurkenndu nefndina kynni neðanjarðarhreyfingin að vera leyst upp, en hún var stofnuð eftir setn- ingu herlaga árið 1981. Walesa tók þó skýrt fram að ekki hefðu neinar ákvarðanir verið teknar í þá átt að leggja neðanjarð- arhreyfinguna niður. Sprenging íBrussel AP/Símamynd SNEMMA í gærmorgun sprakk sprengja fyrir framan aðalstöðvar Frímúrarareglunnar í miðborg Brassel. Nokkuð tjón varð á bílum og mannvirkjum en engin slys urðu á mönnum. Skattalögin samþykkt í bandarísku öldungadeildinni: Skattamir lækka hjá flestum launþegum -en auðugt f ólk og fyrirtæki munu greiða meira Washingfton, AP. BANDARÍSKA öldungadeildin gaf á laugardag lokasamþykki sitt við einhverjum mestu skatta- Iagabreytingum, sem orðið hafa í landinu í langan tíma. Sam- kvæmt þeim munu skattar almennt lækka á launþegum en skattbyrði fyrirtækja aukast. í öldungadeildinni vora nýju skattalögin samþykkt með 74 at- kvæðum gegn 23 og er sá munur meiri en í fúlltrúadeildinni, sem samnþykkti lögin sl. fimmtudag með 292 atkvæðum gegn 136. Búist er við, að Reagan, forseti, staðfesti lögin um miðjan október. „Það geta allir verið stoltir af því að styðja þessi lög,“ sagði Bob Packwood, öldungadeildarþingmað- ur, sem átti mikinn þátt í að semja lögin. „Við getum borið höfuðið hátt gagnvart fólki og sagt, sem satt er, að við höfum gert eitthvað fyrir almenning í þessu landi." Packwood sagði, að með nýju lögunum myndu skattar lækka hjá öðram en þeim, sem notað hefðu alls kjms lagakróka til að koma sér hjá eðlilegum gjöldum. Sagði hann, að þetta atriði eitt væra lögunum nóg réttlæting. Við umræður á þingi urðu þó margir til að velta því fyrir sér hvort lögin yrðu e.t.v. til að draga enn úr efnahagsvextin- um, einkum með því að gera samkeppnisaðstöðu bandarískra fyrirtækja enn verri en nú er. Lögin koma til framkvæmda á árinu 1988 og munu almennt lækka skatta einstaklinga um 6,1%. Rúm- lega 20 milljónir hjóna og einstakl- inga munu greiða meira í gjöld og Deilt á spænska þing- inu um NATO-aðild Barcelona, frá Jóni Friðríki Arasyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Utanríkisráðherra Spánar, Francisco Fernandez Ordonez, fuUyrti i gær, að Spánverjar væru ekki fullgildur aðili í hern- aðarlegu samstarfi Atlantshafs- bandalagsríkjanna og að stjórnin hefði og væri tilbúin til að standa við þau skilyrði, sem sett voru við þjóðaratkvæðagreiðsluna um Nato fyrr á þessu ári. Kom þetta fram hjá Ordonez á þingi í gær þegar hann svaraði fyr- irspum stjómarandstöðunnar um stöðu Spánverja í Nato og lagði hann áherslu á, að enginn hefði neytt stjómina til að setja þau skil- yrði við þjóðaratkvæðagreiðsluna, að Spánverjar stæðu utan hemað- arsamstarfsins að nokkru leyti. Það hefði hún gert sjálf af því hún ætl- aði sér að standa við þau. Andstæðingar stjómarinnar á þingi saka hana um að halda upp- lýsingum leyndum og fullyrða, að Spánveijar séu í raun famir að taka fullan þátt í hemaðarlegu sam- starfi Natoríkjanna. Ordonez bar á móti þessu og vitnaði m.a. í forsæt- isráðherra máli sínu til stuðnings. í síðustu viku neitaði stjómin að afhenda þingdeild skjal, sem skýrir nánar þátttöku Spánverja innan Nato og bar því við, að það væri flokkað sem „leynilegt" innan bandalagsins. Talsmenn stjómar- andstöðunnar vitna aftur til stjóm- arskrárinnar þar sem segir, að leyniskjöl megi ekki halda frá þing- deildum. Einn benti á, að þekktu ráðgjafar Nato, fulltrúar allra þátt- tökuríkjanna, til skjalsins væri það fáránlegt, að spænska þingið fengi ekki hugmynd um innihald þess. Filippseyjar: Vopnahlé í vændum? Manila, AP. S AMNIN G AMAÐUR stjóm- valda á Filippseyjum segist vera bjartsýnn um að samkomulag náist við skæruliða kommúnista um vopnahlé. Kommúnistar hafa þegar lagt fram drög að samkomulagi um að binda endi á átökin. Ramon Mitra, sem einnig gegn- ir starfi landbúnaðaráðherra, sagðist í gær telja að samningar myndu nást í lok þessarar viku. Kvaðst hann sannfærður um að kommúnistar vildu ná samkomu- lagi um vopnahlé. Fyrr í þessum mánuði höfnuðu skæuliðar tilboði stjónar Corazon Aquino. Um helgina lögðu stjónar- andstæðingar hins vegar fram tilboð þar sem kveðið var á um að þegar í stað yrði lýst yfir mán- aðarlöngu vopnahléi. Skæraliðar hafa jafnframt krafist þess að sérstakar nefndir fylgist með því að ákvæði samningsins verði virt. Ramon Mitra gaf í skyn að stjóm- völd hefðu nú þegar fallist á þessa kröfu. rúmlega sex milljónir fátækra fjöl- skyldna munu engan tekjuskatt greiða. Ýmsir frádráttarliðir verða afnumdir og nú á að nást til auð- ugra fjárfestenda, sem engan skatt hafa borið. í því sambandi era nefndir til 30.000 skattleysingjar, sem þó hafa meira en 250.000 doll- ara í árstekjur. Auðugu fólki og arðsömum fyrirtækjum verður gert að greiða skatt hvað sem líður lög- legum frádrætti. Á næstu fimm áram munu fyrir- tækin greiða 120 milljarða dollara í skatt aukalega vegna laganna og nýjar fjárfestingar verða ekki leng- ur frádráttarbærar. Nýju skattalögin má rekja til til- lögu tveggja þingmanna demókrata árið 1982 um lægri skattstiga og færri frádráttarliði en í maí árið 1985 tók Reagan, forseti, undir þessar hugmyndir og lagði fram áætlun um gagngera uppstokkun. Bangladesh: Mannfall eykst 50.000 heimilislausír Dhaka i Bangladesh, AP. TILKYNNT var um sex dauðsföll af völdum flóðanna I vesturhluta Bangladesh á mánudag og er tala látinna þá orðin tíu. Embættismenn í hjálparbúðum í Dhaka sögðu að fimm hefðu farist í Jessore, sem er um 274 km frá Jess- ore, en einn hefði látist í Kushita, skammt frá. Dauða fólksins bar þann- ig til að hús hrundu ofan á íbúa þeirra með ofangreindum afleiðingum. Fram hefur komið að um 50.000 manns eru talin heimilislaus, en um hálf milljón hefur orðið fyrir barðinu á flóðunum. í Jessore einni eyðilögðust um 37.000 hús úr leir og strái.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.