Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐH), ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 17 Einn og peninga laus í Soho Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Eftir miðnætti (After Hours). Sýnd í Bíóhöllinni. Stjömugjöf: ★ ★ ★ Bandarísk. Lcikstjóri: Martin Scorsese. Handrit: Joseph Mini- on. Framleiðendur: Amy Robinson, Griffin Dunne og Robert F. Colesberry. Tónlist: Howard Shore. Kvikmynda- taka: Michael Ballhaus. Helstu hlutverk: Griffin Dunne, Rosanna Arquette, Teri Garr, John Heard, Veraa Bloom, Linda Fiorentino og Cheech og Chong. Nýjasta mynd Martins Scorsese (Raging Bull) og sú sem hann hreppti leikstjóraverðlaunin á Cannes fyrir sl. vor, heitir Eftir miðnætti (After Hours) og er í stuttu máli um mann sem fer út á lífíð seint um kvöld og þegar hann kynnist smám saman fólkinu og næturlífinu í Soho á Manhatt- an, einn og peningalaus á hann enga ósk heitari í lífinu en að komast aftur heim í öryggi og hlýju heimilisins. Eftir miðnætti ' er furðuferð tölvuforritarans Pauls Hackett (Griffin Dunne) um ókunnuga og undarlega heima mannfélagsins á Manhattan þar sem enginn er eins og hann sýn- ist, flestir eru pínulítið skrýtnir og sumir stórskrýtnir. Hackett leiðist starf sitt sem tölyuforritari og lífið yfirleitt kannski vegna þess að það gerist aldrei neitt hjá honum. Hann er hæglátur og einmana og þegar hann hittir Marcy (Rosanna Ar- quette) á einmanalegri kaffistofu vill hann að þau skiptist á síma- númerum. Þegar heim kemur getur hann ekki stillt sig um að hringja og hún biður hann að líta við hjá sér í Soho. Þar með hefst martröð Hack- etts. Hún byijar á því að hann missir peningana sína úr leigubflnum á leið í Soho og endar á því að morðþyrstir íbúar hverfis- ins leita hans þvi þeir halda, ranglega auðvitað, aið hann sé alræmdur innbrotsþjófur sem heimsótt hefur íbúðir hverfisins undanfarið og hreinsað út nýti- lega hluti. í millitíðinni fremur Marcy sjálfsmorð (hún var alltaf frekar þunglynd) og Hackett flækist frá einum til annars í von- lausri baráttu við að koma sér heim aftur. En það er sama hvað hann reynir, ekkert gengur. Scorsese og handritshöfundur- inn Joseph Minion passa sig að taka ekkert of hátíðlega í þessari svörtu kómedíu. Húmorinn er kaldhæðnislegur og óskammfeil- inn en alitaf grafalvarlegur og um hræðileg eftii svo maður veit ekki hvort það er i rauninni við hæfi að hlæja. Gott dæmi um þetta er þegar Paul kemur á barinn þar sem barþjónninn (John Heard) er sá eini sem sýnir honum einhvem skilning á vandamálum hans og Hackett segir honum að hann verði að halda stefnumót sem hann lofaði að eiga við gengil- beinu barsins (Teri Gerr), sem býður uppi í íbúðinni sinni. „Held- ur þú að hún fremji sjálfsmorð ef þú kemur ekki?“, segir bar- þjónninn kæruleysislega. Síminn hringir, barþjónninn tekur hann upp og hlustar. Hann leggur á niðurbrotinn. „Kærastan mín framdi sjálfsmorð," segir hann. Á meðan þessu fer fram eru leður- klæddir hommar í ástúðlegum sleik í bakgrunninum. Það var þetta skrýtilega hand- rit sem laðaði Scorsese að myndinni en höfundurinn Minion skrifaði það á námskeiði um hand- ritagerð við Kólumíuháskóla. Það er óhætt að segja að hann lofi góðu með handriti sínu barma- fullu af sérkennilegheitum og persónum sem hegða sér yfirleitt eins og fólk í slæmum draumi. Allt getur gerst og gerist og kem- ur jafnflatt upp á okkur og ferðalanginn Hackett. Kvenfólk, sem hann var á hött- unum eftir í byijun, verða hans verstu óvinir. Gengilbeinan, sem lifir í sjöunda áratugnum og hlust- ar á The Monkeys, teiknar af honum mynd sem sýnir hann eftir- lýstan fyrir innbrotin í hverfinu og fjölfaldar hana (hún vinnur á Ijósritunarstofu á hæðinni fyrir neðan) þegar hann vill ekkert með hana hafa, kona sem hann hittir seinna og keyrir ísbíl verður æst- ust í að klófesta hann þegar hún sér eina af þessum myndum og þriðja konan steypir hann í mót eins og listaverk og er ekkert á því að losa hann úr því. Það er ekki fyrr en hinir raunverulegu innbrotsþjófar (Cheech og Chong) ræna honum í mótinu að hann sleppur. Scorsese leikstýrir þessu öllu með glæsibrag og hefiir sérlega gaman af því að setja bæði háal- varleg mál og lítilfjörug í kóm- ískar kringumstæður. Smáræði eins og peningalaus maður í Soho verður að hrikalegu vandamáli upp á líf og dauða. Griffín Dunne sýnir stjömuleik í hlutverki hins ráðvillta Hacketts, Rosanne Ar- quette er Qarska leið Marcy, John Heard er sérlega ljúfur í hlutverki barþjónsins og Teri Garr er bráð- sniðug í hlutverki gengilbeinunn- ar sem hlustar á The Monkeys. Kvikmyndataka Michaels Ball- haus (fyrrum samstarfsmaður Fassbinders) er mjög vönduð óg á stóran þátt í því að gera Soho- hverfið að stað sem best er að forðast. Háskóli íslands: um framtíðarþróun í tölvutækni Spástefna REIKNISTOFNUN Háskólans og tölvunarfræðinemar gangast fyrir spástefnu um framtfðar- þróun tölvutækninnar, 8. október n.k. að Hótel Sögu. Spástefnan er í tenglsum við sýningu tölvun- arfræðinema „Tölvur og þjóðlíf“ og munu fjórir erlendir fyrirles- arar flytja þar erindi. Á spástefnunni verður Qallað um helstu nýjungar í tölvutækni og áhrif þeirra í náinni framtíð. Tvö megin efni verða sérstaklega rædd, „Tölvunet og gagnabankar" og „Gervigreind og tölvutal". Fýrirlesaramir era allir sérfræðing- ar á þessum sviðum hjá helstu tölvuframleiðendum heims og hafa viðkomandi fyrirtæki greitt fyrir því að þeir kæmust hingað til lands. Stephen Mallison er sérfræðing- ur í fjarskiptatækni hjá IBM í Englandi og mun hann fjalla um helstu nýjungar á sviði tölvuneta. Bjöm Tuft er sérfræðingra í tölvu- netum hjá Hewlett Packard í Frakklandi og mun hann fjalla um tölvunet og þá sérstaklega um IS- DN-tæknina. Hans Eske Sindby er verkefnastjóri í þróun gervigreindar hjá Digital Equip- ment Corperation í Danmörku og mun hann fjalla um gervigreind, þekkingarkerfi og uppbyggingu þeirra og tölvutal. Michele Pracchi er deildarstjóri hjá Hewlett Packard Labaratorium í Bristol í Englandi og fjallar hann um 5. kynslóð tölva, þróun dreifðra tölvukerfa, „rök for- ritun" og „fals forritun". Fyrir- spumir og fijálsar umræður verða að loknum hveijum fyrirlestri. Fundarstjóri er Páll Jensson for- stöðumaður. (Úr fréttatilkynningu) LOW POWER FYRIR PC EINKATÖLVUR “ 29.800 ÍSETNING INNIFALIN, 1 ÁRS ÁBYRGÐ EINNIG SEGULBANDSSTÖÐVAR FYRIR ÖRYGGISAFRIT. AUÐVELDAR í NOTKUN, HANDHÆGAR. GÍSLI J. JOHNSEN m Nýfeýfewegi 16, simi 641222. Gieratgptti 20. VLT HRAÐABREYTAR fyrir: dælustýringar, færibönd, loftræstingar, hraðfrystibúnað o.fl. Danfoss VLT hraöa- breytar fyrir þriggja fasa rafmótora allt aö150 hö. Hraðabreytingin er stiglaus frá 0-200% og mótorinn heldur afli viö minnsta snúningshraða. Leitið frekari upplýsinga í söludeild. = HEÐINN = VÉLAVERSIllN, SÍMI 24260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER Þú sparar með = HÉÐINN = VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER STEYPIBAÐ Þú stillir vatnshitann með einu handtaki á hitastýrða baðblöndunartækinu frá Danfess, og nýtursíðan stéýþibaðsinsvel óg lengí. sslfPHIMkf == aw—ww -O-lttf fcÁ 'j mwmmm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.