Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 13 Reykjavíkur- kvartettinn Þriðju tónleikar Norrænu tón- listardaganna fóru fram í Áskirkju og flutti Reykjavíkurkvartettinn verk eftir Aulis Sallinen, Bent Sörensen, Kenneth Sivertsen og Jouni Kaipainen. I Reykjavíkur kvartettinum eru Rut Ingólfsdóttir, Júlíana Elín Kjartansdóttir, Elizabeth Dean og Arnþór Jónsson. Tónleikamir hóf- ust á Strengjakvartett nr. 5 eftir Sallinen. Sallinen (f. 1935) lærði hjá Kokkonen og Mericanto. Hann er víðfrægur fyrir óperur sínar og var skipaður prófessor án kennsluskyldu fyrir um það bil áratug og hefur á þeim tíma stað- ið skil á fjölda tónsmíða, er borið hafa hróður Finnlands víða um heim. Undirtitill strengjakvart- ettsins er „pieces of Mosaic" og er verkið í sextán stuttum þáttum. Þættirnir eru ýmist sem tónrænar andstæður eða samstæður og margir hverjir frábærlega fallegir í gerð. Annað verkið er eftir Bent Sörensen (1958). Hann stundar tónsmíðanám hjá Ib Nörholm og nefnir verk sitt Alman sem sótt er í virginalbók Fitzwilliams. Verkið ber þess merki að höfund- urinn leitar sér lærdóms og því mjög vel unnið samkvæmt „aka- demískum" kokkabókum. Þriðja verkið er eftir Kenneth Sivertsen (1961). Hann stundaði gítamám hjá Torbjöm Wiberg og tónsmíðar hjá Magnari Ám og hefur starfað við flutning á samtímatónlist, jazz og þjóðlögum. í efnisskrá segir: „Hann forðast stílfestu, leggur áherslu á lagferli og hiynjandi í verkum sínum.“ Verkið nefnir hann For ope hav og er það sa- mið fyrir tenorsaxófón og kvart- ett. Það er rétt að tónskáldið leggur áherslu á lagferli, því verk- ið er eitt lag og á köflum mjög fallega unnið og líklegt til að hæfa vel sem kvikmyndatónlist, eins og ætlast er til, því það er samið fyrir sjónvarpið á Hörðal- andi og er verið að ganga frá myndefni því sem fella á að tón- listinni. Síðasta verkið á efnis- skránni, Kvartett nr. 3 op. 25, eftir Jouni Kaipainen, er feikna erfitt, einkum hljóðfallslega og í samhljómun, vegna tíðra tvígripa í öllum röddum. Einnig er leikið með blíðlegri blæbrigði og er þessi fjögurra þátta kvartett feikna áhrifamikil tónsmíð. Reykjavíkur- kvartettinn lék öll verkin mjög vel og einkum var aðdáunarvert hversu vel síðasti kvartettinn var leikinn, samfelldur og sterkur í túlkun og sérdeilislega hiynskýr. í efnisskrá er nafnið Reykjavík- urkvartettinn og væri vel, ef hér hefúr verið stofnaður sérstakur kvartett en slíkir leikhópar hafa því miður ekki starfað samfellt hér á landi síðan kvartett Bjöms Ólafssonar var við lýði. Það er sannarlega kominn tími til þess að hér starfí strengjakvartett og er trúlega nóg fyrir hann að gera. Leikur Reykjavíkurkvartettsins var svo góður, að ekki verður annað hægt en að harma það ef slíkur leikhópur fær ekki að skóla sig í þeirri strengjalist, sem einna mikilfenglegust er og þar sem tónlist nær mestri reisn og fegurð. Jón Ásgeirsson Við seljum síðustu FORD ESCORT bílana af árgerð 1986 Aætlað verö FORDESCORT C 1300 3ja dyra 4 gíra m/útv. FORDESCORT CL 1100 3ja dyra 5 gíra m/útv. FORDESCORT CL1300 5 dyra 5 gíra m/útv. FORDESCORT CL1600 5 dyra sjálfsk. m/útv. FORD ESCORT CL 1600 STATION 5 dr. 5 g. m/útv r «S9S lu| . MÍÉL " i einkum í þriðju gerðinni, vom ágætlega útfærð en samvirkni mynda og hljóða var ekki nema að litlu leyti samstæð og hvort sem það átti eða átti ekki að vera svo, þá var endurtekningu mynd- formanna ofgert og ekki um myndrænar andstæður að ræða, svo nemi, nema þá helst í þriðju hljóðmyndinni. Á margan hátt er þetta athyglisverð tilraun sem þó er ekki frumlegri en það að um árabil hafa þessar aðferðir verið notaðar, þar sem tölvutæknin hef- ur náð útbreiðslu, t.d. í Banda- ríkjunum. Hommage á Jules Veme heitir þriðja verkið og er það eftir Jarmo Sermilá (f. 1939), fyrrum jazzista sem lærði hjá Kokkonen og síðar í Prag. Efnið er að mestu upptökur, sem síðar em „mixaðar" saman. Þessi smíðamáti rekur„ sögu sína til „konkrete" vinnubragða og þykir af raftækniaðferðum vera minnst í ætt við tónsmíði, með einstaka undantekningum sérlega vel gerðra verka. í þessu verki var tónsmíðin varla meira en samsetn- ingin og ekki mikið unnið úr hljóðefninu og það sem var skemmtilegt við verkið, var það sem hélst hreint af frummynd- inni. Síðasta verkið er eftir Þorstein Hauksson og nefnist það tvær etýður. Verkið er unnið í stúdíói í París og er hreint raf- verk. Þrátt fyrir að verk etýðunn- ar sé undirbúningur undir gerð stærra verks, er margt fallega unnið í þessum tónsmíðaetýðum. • 1000 watta kraftmikill mótor • Afkastar 54 sekúndulítrum • Lyftir 2400 mm vatnssúlu • 7 lítra poki • 4 fylgihlutir í innbyggðri geymslu • Stillanleg lengd á röri • Mjög hljóðlát (66 db. A) • Fislétt, aðeins 8,8 kg • Þreföld ryksía • Hægt að láta blása • 9,7 m vinnuradíus • Sjálfvirkur snúruinndráttur • Teppabankari fáanlegur • Taupoki fáanlegur • Rómuð ending • Hagstætt verð Reyndu hana á næsta útsölustað: Míele RYKSUGAN Hún er vönduð og vinnur vel Mikligarður v/Sund JL-húsið, rafdeild Rafha, Austurveri Gellir, Skipholti Teppabúðin, Suðurlandsbraut Raforka, Akureyri KB, Borgarnesi Rafbúð RÓ, Keflavík KHB, Egilsstöðum Árvirkinn, Selfossi Verzl. Sig. Pálma, Hvammstanga Kjarni, Vestmannaeyjum KH, Blönduósi Rafþj. Sigurd., Akranesi Straumur, ísafirði Grímur og Árni, Húsavík KASK, Höfn Rafborg, Patreksfirði 1 JÓHANN ÓLAFSSON & CO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.