Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐDO, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 ekki kominn? Verður hann þá lagð- ur inn á reikninginn síðar í dag? Jæja, það er gott.“ Kaffíð var komið á borðið. Mað- urinn með farsímann drakk úr kaffíbolla. Hringdi í Húsnæðismála- stjóm og síðan í leigubfl. Allt fór þetta fram á tæpum klukkutíma þarna við matarborðið í veitinga- húsinu og geri aðrir betur. Þess em dæmi að á tækniöld fari menn rólega í að endumýja tækniáhöld. Að minnsta kosti veit ég um mann sem um daginn var loks að skipta yfír úr svarthvítu sjnvarpstæki í litasjónvarp eftir að hafa átt svarthvíta tækið síðan sjón- varpið hóf göngu sína fyrir nákvæmlega tuttugu ámm síðan. Hann er sæll og glaður yfír að fá nú loks að sjá veröldina í lit. Skáktalva er ein tækninýjungin sem er komin á markað nokkmm ámm áður en farsíminn kom til sögunnar. Notagildi skáktölvu er ef til vill ekki eins mikið og farsíma, eigi að síður má hafa gaman af skáktölvunni og sem tómstunda- gaman er hún kannski í sérflokki. Þannig vill til að rithöfundur sem ég þekki hefur átt skáktölvu í nokk- ur ár og teflir við hana að jafnaði tvisvar til þrisvar í viku þó árangur- inn hafí enn sem komið er ekki verið nógu góður að áliti rithöfund- arins. Undantekningarlaust tapar hann skákum fyrir skáktölvunni og er hann þó enginn byijandi, hefur meira að segja teflt á skákþingi Reykjavíkur, í fyrsta flokki og náð öðm sæti. Þetta undratæki er frá Japan eins og farsímamir. Þrisvar hefur rithöfundurinn náð jafntefli við skáktölvuna en aldrei unnið hana. Það er farið að fara í taugam- ar á honum og um daginn sagði hann mér i trúnaði að hann hefði lokað skáktölvuna inni f læstum skáp, hann þyldi ekki lengur að sjá hana fram í stofu. Hann ætlar að sjá hvemig hún bregst við refsivist- inni og taka hana út úr skápnum einhvem tímann í októbermánuði og gera þá heiðarlega tilraun til að sigra hana með óvæntu sóknaraf- brigði sem hann hefur nýlega rannsakað og veit fyrir víst að skák- talvan á ekki að hafa hugmynd um. Það gæti orðið skemmtileg viður- eign. Frá Ítalíu skrifar 24 ára karlmað- ur með áhuga á náttúmlífí o.fl. Mario Zacchini, Via Lamponi 28, 40137 Bologna, Italia. Frá Bandaríkjunum skrifar 39 ára einhleypur verkfræðingur með áhuga á ljósmyndun, útivist o.fl. Morgan Kizer, 1326 3 Abbey Pl., Charlotte, N.C. 28209, USA. Fimmtán ára vestur-þýzk stúlka með áhuga á íþróttum, frímerkjum, píanóleik o.fl. Hún á heima í litlu þorpi rétt fyrir utan Liineburg, sem er skammt frá Hamborg. Skrifar á ensku. Claudia Benecke, Nicolaus-Harms-Ring 4, D-2121 Deutsch Evem, Deutschland. Frá Bandaríkjunum skrifar ein- hleyp kona, sem getur ekki um aldur en hún vill skrifast á við 30-45 ára karlmenn. Fe Alaan Watkins, P.O.Box 59140 N.W. Washington, DC 20012, USA. Fertug austurrísk húsmóðir, safnar þjóðbúningadúkkum, póst- kortum og frímerkjum, svo og minjagripaskeiðum. Er hjúkrunar- kona. Brigitte Fröhlich, 1100 Wien, Geissfussgasse 65, Austria. Rannsóknastofnun uppeldismála: Fyrirlestur um hugmyndir skólabarna um eigin athafnir Á VEGUM Rannsóknastofnunar uppeldismála flytur Sigrún Aðal- bjamardóttir, MA og kennari, fyrirlestur i kvöld, þriðjudaginn 30. september, er nefnist „Hug- myndir skólabarna um eigin athafnir í samskiptum við kenn- ara og bekkjarfélaga". Sigrún mun kynna rannsókn, sem hún hefur unnið að f doktors- námi sínu í uppeldis- og þroskasál- arfræði við Harvard háskóla í Bandaríkjunum. í rannsókninni voru tekin viðtöl við 60 íslensk böm á aldrinum 7 til 12 ára. Kannað var hvemig bömin líta á eigin sam- skipti við kennara og bekkjarfélaga. Tilgangur rannsóknarinnar er m.a. sá að stuðla að því að auka skilning kennara og annarra uppalenda á hugsun og samskiptahæftii bama við ýmsar aðstæður í skólanum. Fyrirlesturinn verður haldinn í Kennaraskólahúsinu við Laufásveg og hefst kl. 16.30. Öllum er heim- ill aðgangur. 43 Trésmiðjan Viðja hóf nýlega framleiðslu á vönduðum og sterkum fataskápum sem eru afrakstur áralangrar þróunar og reynslu starfsmanna fyrirtækisins. Þeir byggjast á einingakerfi sem gerir kaupendunum kleift að ráða stærð, innréttingum og útliti, innan ákveðinna marka. Hægt er að fá skápana í beyki, eik eða hvítu, með sléttum hurðum. Auk þess eru hvítu skáparnir fáanlegir með fræstum hurðum (sjá mynd). Einingaskáparnir frá Viðju eru auðveldir í uppsetningu og hafa nánastóend- anlega uppröðunar- og innréttingamöguleika. Þeir einkennast af góðri nútímalegri hönnun og sígildu útliti sem stenst tímans tönn. Stærðir: hæð: 197 cm eða 247 cm breidd: 40 cm - 50 cm - 60 cm o.s.frv. dýpt: 60 cm. 20% útborgun 12 mánaða greiðslukjör. Trésmiðjan viðja Smiðjuvegi 2 Kópavogi stmi 44444 þar sem góðu kaupin gerast. FALJLEGIR FATASKÁPAR Á SÓSIAKLEGA GÓÐU VBÍÐI Viðja býður nú nýja gerð af fataskápum sem settir eru saman úr einingum eftir óskum viðskiptavinanna sjálfra 4. IH Allar bflaperur þokuljós í úrvali Aðalluktir, aukaluktir, vinnuljós, Ijós, samlokur og kastarar Síðumúla 7-9, “S* 82722
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.