Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
Svar við grein dr.Gunn-
laugs Þórðarsonar
eftir Hilmar
Þorbjömsson
Þann 23. sept. sl. rakst undirritað-
ur á grein þína í Morgunblaðinu,
undir fyrirsögninni Drengskapur í
gapastokk.
Ég hef haft það fyrir vana að lesa
skrif þín í blöðum, mér til gagns og
gamans oft. í upphafí vil ég geta
þess að ég hef litið upp til þín dr.
Gunnlaugur og talið þig mann rétt-
lætis og drengskapar, manns sem
ég sér það að leiðarljósi að koma á
betri heimi.
Dr. Gunnlaugun Eftir að hafa les-
ið grein þína í Morgunblaðinu varð
ég hissa og mér fannst kominn tími
til að festa á blað til þín fáeinar línur.
í grein þinni talar þú um þrískipt
vald, dr. Gunnlaugur, framkvæmda-
vald, löggjafarvald og dómsvald og
bætir síðan við fjölmiðlavaldi og
rannsóknarvaldi, og telur tvö s.n.
vera að sigla þjóð okkar inn í myrk-
ur lögregluríkis. Auðvitað er vald
ijölmiðla mikið í tæknivæddum heimi
og oft hafa íjölmiðlar komið möigu
góðu af stað og einnig hefur þeim
orðið á. Um hið síðamefnda ætla ég
ekki að fyalla því að ég er ekki viss
um hvað vakir fyrir þér með orðinu
rannsóknarvald. Þú talar um morg-
unverk rannsóknarmanna í svoköll-
uðu Hafskipsmáli, hreint eins og þér
sé ekki fullkomlega ljóst, að þar fóru
þeir í skjóli sprenglærðra lögmanna
og starfsfélaga þinna. Þú leikur þér
að því í grein þinni, dr. Gunnlaugur,
að gera rannsóknarmenn tortryggi-
lega í augum fólks með því að gefa
í skyn, að þeir komi boðum til fjöl-
miðla í því augnamiði að þeir taki
myndir af grunuðum til þess að gera
hina grunuðu enn tortryggilegri í
Hilmar Þorbjömsson
augum fólks. Þvílík smekkleysa, dr.
Gunnlaugur. Hinsvegar get ég verið
þér sammála um að þessar mynda-
Þegar System/36 tekur við
aðajhhitverkinu af
PC einmemiingstölvunm
Farsæl tölvuuppbygging
Hagkvæm stækkun
Algengt er að fyrirtæki sem nota IBM einmennings-
tölvurnar vaxi skjótt. Þegar einmenningstölvurnar anna
ekki lengur umsvifunum er komið að því að taka IBM
SYSTEM/36 í þjónustuna. Stækkunin er auðveld og
hagkvæm, ekki síst fyrir þær sakir að einmennings-
tölvurnar nýtast áfram sem slíkar eða sem skjástöðvar við
SYSTEM/36 tölvuna.
Stækkunarkostir
Nú selur IBM þrenns konar SYSTEM/36 tölvur.
SYSTEM/36 PC er þeirra minnst og þess vegna er hentugt
að hefja SYSTEM/36-tölvuvæðinguna með henni. Þú
stækkar hana eftir því sem þörfin eykst og þegar fyrirtækið
er loks vaxið upp úr henni kemur „litla“ SYSTEM/36 í
staðinn. Við hana má svo auka smám saman þar til stóra
SYSTEM/36 leysir hana af hólmi í fyllingu tímans.
Þegar þú skiptir um vél notar þú sama hugbúnað, sömu
skjástöovar og sömu prentara. Fjárfestingin í námi starfs-
fólksins nýtist að fullu og engin töf verður á rekstrinum. Þú
kaupir einungis tölvuna sjálfa og færð gott endursöluverð
fyrir fyrirrennarann!
Þegar fjárfest er í verðmætum tölvubúnaði má ekki leika
nokkur vafi á gæðum búnaðar, þjónustu seljanda né öryggi
framleiðanda. Það er óþarfi að fjölyrða um slíkt þegar
IBM á í hlut, þú getur hreinlega reitt þig á styrk og vand-
virkni í hvívetna.
Aðgengilegt verð og vildarkjör
Verðið á SYSTEM/36 er okkur mikið ánægjuefni. Það er
afar hagstætt, hvernig sem á það er litið.
Dæmi:
Ef þú átt PC einmenningstölvu og prentara getur þú
fengið SYSTEM/36 PC tölvu ásamt nauðsynlegum stjórn-
hugbúnaði á verði frá 426.000 kr.
Ekki sakar að greiðsluskilmálar á SYSTEM/36 eru marg-
víslegir. Sölumenn okkar eru vísir til að finna þá lausn
sem hentar þínu fyrirtæki. ^
Hringdu eða líttu inn hjá okkur. Þú ert aufúsugestur hjá 5
IBM.
VANDVIRKNI í HVÍVETNA
Skaftahlíð 24 105 Reykjavík • Sími 27700
Það ætti að vera gagn-
stætt siðareglum lög-
manna og óbrjótanleg
regla, að skrifa ekki um
mál á dómstigi.
tökur voru siðlausar og blaðamönn-
um til vansæmdar.
Þú talar dr. Gunnlaugur um uppá-
komu Landssambands lögreglu-
manna og rannsóknarmanna í
sambandi við ráðningu Boga Nflsson-
ar í stöðu Rannsóknarlögreglustjóra
ríkisins og mótmæli af þeirra hálfu.
Þvflíkt bull. Hið sanna í máli þessu
er, dr. Gunnlaugur, að nefndir aðilar
leituðu umsagnar Lögmannafélags
íslands í máli þessu og stjórn þess
annars ágæta félags, treysti sér ekki
til að gefa umsögn í málinu. Hér var
einfaldlega verið að biðja um túlkun
á lögum nr. 108/1967. Ég er hrædd-
ur um, dr. Gunnlaugur, að þú hafir
ekki fylgst með þessu máli, hafír
aðeins heyrt á spjall manna í sund-
laugunum. Landssamband lögreglu-
manna þarf ekki að biðja afsökunar
opinberlega á því sem að lögreglu-
menn hafa ekki gert. Það bæri þér
að gera fyrir að fara með rangt mál.
Umsækjendur um nefnt starf
rannsóknarlögreghistjóra voru að
mínu viti allir hæfíistu menn og
ástæðulaust að öfunda herra dóms-
málaráðherra Jón Helgason af því
að þurfa að velja. Það hefur hann
gert og þar við situr.
Hinsvegar er ég hissa á þér, dr.
Gunnlaugur, að halda því fram í grein
þinni, að ráðherar lands okkar séu
hafnir yfír gagnrýni í störfum sínum
og gerðum, þú virðist hafa gleymt
því að þessir ágætu menn eru
pólitískt kjömir og eiga ekki að vera
neinir hálfguðir, hamingjunni sé lof.
Síðar í grein þinni talar þú um
kaffibaunamál þeirra Sambands-
manna og ferð á kostum að vanda
en lítilli fyrirhyggju. Ég nenni varla
að skamma þig fyrir þau skrif, en
þar sem þú hefur þar sest í stól þess
er alla hluti veit, þá vil ég gera svo-
hljóðandi athugasemd:
Dr. Gunnlaugur. Það ætti að vera
gagnstætt siðareglum lögmanna og
óbijótanleg regla, að skrifa ekki um
mál á dómstigi. Við skulum eftiriáta
dómstólum að §alla um þetta mál
og bíða átekta. Þegar svo málið hef-
ur fengið sína meðferð fyrir rétti og
við höfum eitthvað um það að skrifa
þá gerum við það. Að lokum vil ég
segja við þig. dr. Gunnlaugur. Vand-
aðu til skrifa þinna eins og þú hefur
oftlega gert og hafðu alltaf sannleik-
ann, og það sem rétt er, að leiðarljósi.
Hittumst svo hressir í kaffistof-
unni á Hverfisgötu 113.
Höfundur er lögregluvarðstjóri í
Reykjavík.
Bandarískur verkfræðingur, frá-
skilinn og kominn á eftirlaun, vill
skrifast á við þroskaðar og róman-
tískar konur, eins og hann orðar
það:
Charlie Burwell,
33170 Aurora Road,
Solon-Ohio 44139,
USA
Átján ára sænsk stúlka með
áhuga á dýrum, tónlist, bflum o.fl.
Safnar póstkortum og Andrés önd-
blöðum:
Asa Lindqvist,
PI 11537 Yttervik,
931 91 Skellefteá,
Sweden.