Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐŒ), ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 Kasparov stímdi beint á jafnteflið Margeir Pétursson TILÞRIFIN í tuttugu einvígis- skák þeirra Kasparovs og Karpovs í gærkvöldi voru ekki mikil, eftir þijú töp I röð þvingaði heimsmeistarinn strax fram jafnteflislega stöðu með hvítu. Staðan í ein- viginu er þar með orðin 10—10 og aðeins fjórar skákir eftir. Það er að sjálfsögðu ógerlegt að spá neinu um úr- slit í þeim en ef dæma má af talfmennsku Kaskarpvs í gærkvöldi gerir hann vart miklar tilraunir til að vinna einvigið, eftir það sem á und- an er gengið má hann þakka fyrir að halda titlinum á jöfnu, 12—12. Það er jafnan sagt frá því í frettum að Karpov þurfí 12V2 vinning til að vinna titilinn til baka, en Kasparov nægi 12 vinningar til að halda honum. Það gleymdist hins vegar að geta þess að sá er sigurvegari sem fyrr vinnur sex skákir. Hvor hefur nú unnið Qórar skák- ir og náði t.d. Karpov að vinna tvær næstu skákir er einvíginu þá þegar lokið. Kasparov mætti til leiks í nýjum fötum en að sögn frétta- ritara AP í Leningrad er það nú orðin hefð að þeir skipti um föt eftir ósigur. Þrátt fyrir þetta var meira klappað fyrir Karpov enda bjó hann í borginni á námsárum sínum. Næsta skák verður tefld á morgun, þá hefur Karpov hvítt: 20. einvígisskákin Hvítt: Garry Kasparov Svart: Anatoly Karpov Katalónsk byrjun 1. d4 - Rf6,2. c4 - e6,3. g3 Nú er bleik brugðið, Kasparov snýr sér aftur að hinni traustu katalónsku byijun sem hann hefur ekki beitt gegn Karpov gegn 1984. Karpov er sérfraeð- ingur í að mæta þessari byijun, en hún hefur litlar hættur í för með sér fyrir hvít. - d5, 4. Bg2 - Bd7, 5. Rf3 - 0-0, 6. 0-0 — dxc4, 7. Dc2 — a6, 8. Dxc4 — b5, 9. Dc2 — Bb7, 10. Bg5 - Rdb7, 11. Bxf6 - Rxf6, 12. Rdb2 - Hc8, 13. Rb3 - c5!, 14. dxc5 - Bd5, 15. Hfdl - Bxb3, 16. Dxb3 Svartur nær einnig að jafna taflið eftir 16. axb3 — Hzc5! - Dc7, 17. a4 - Dxzc5, 178. axb5 — axb5, 19. Rd4 — b4, 20. e3 - Hfd8,21. Hd2 - Db6 í þessari stöðu var samið jafn- tefli. Morgunblaðia/Ámi Sœberg Herbert H. Áirústsson. Anders Nilson og Arne Mellnas eru höfundar verka, sem flutt verða á tónleikunum í kvöld, sópransöngkonan Hona Maros syngur og maður hennar, miklós Maros stjórnar. Norrænir tónlistardagar: Frumflutningnr á kvintett eftir Herbert H. Agústsson KVINTETT eftir Herbert H. Ágústsson verður frumfluttur á tónleikum Norrænna tónlistardaga í Langholtskirkju f kvöld, þriðju- dagskvöld, sem hefíast klukkan 20:30. Önnur verk á efnisskrá tónleik- anna verða eftir Anders Nilsson, Ame Mellnas og Jan Sandström. Flytjendur eru Kammersveit Reylgavíkur, Blásarakvintett Reykjavíkur og Musica Nova og sópransöngkona Ilona Maros, sem syngur í tveimur verkanna. Stjóm- andi er Miklós Maros. Forsætisráðherra um fjárlagafrumvarp: „Fullt samkomu- lag um frum- varpið eins og það stendur nú.“ STEINGRÍMUR HERMANNS- SON forsætisráðherra segir fullt samkomulag vera um fjárlaga- frumvarpið eins og það stendur nú, og það hafl verið afgreitt endanlega á ríkisstjórnarfundi sl. fimmtudag með fullu sam- komulagi. Forsætisráðherra sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær, að tillögur Sverris Hermanns- sonar menntamálaráðherra um niðurskurð hefðu verið felldar út úr frumvarpinu. „í staðinn, þá var sett inn 200 milljón króna lækkun á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, en þó með þeim fyrirvara að það verði skoðað nánar, hvort einhver verk- efni sem ríkissjóður greiðir fyrir, verði í staðinn felld út,“ sagði Steingrímur. Menntamálaráðherra hefur lýst því yfír, að hann sé ekki fallinn frá niðurskurðarhugmyndum sínum, og muni beita sér fyrir þeim, þegar fíárlagagerðin kemur til kasta þingsins. Forsætisráðherra var spurður álits á þessari ákvörðun Sverris Hermannssonar: „Það er auðvitað hans mál, ef hann ætlar að beijast fyrir því. Vitanlega er það Alþingi, sem ákveður að lokum, hvemig fíárlög verða," sagði for- sætisráðherra. Frá blaðamannafundi menntamálaráðherra Norðurlandanna og fulltrúa menningarmálanefndar Norðurlandaráðs f gær. Frá vinstri: Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra, Bengt Göransson menningarmálaráðherra Svíþjóðar, Gustav Björkstran menningar- og viðskiptaráðherra Finnlands, Eiður Guðnason formaður menningarmálanefndar, Kirsti Kolle-Gröndal kennslumálaráðherra Noregs og Lennart Bodström menntamálaráðherra Svíþjóðar. Árlegnr fundur menningarmálanefndar Norðurlandaráðs og menntamálaráðherra: „Hef lítinn áhuga á Tele-X sjón- varpssamstarfi Norðurlanda“ - segir Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra MENNINGARMÁLANÉFND Norðurlandaráðs og menningar- og menntamálaráðherrar Norðurlanda héldu sinn árlega fund í Reykjavík í gær. Helstu mál á dagskrá voru fjárveitingar til norræns menningarmálasamstarfs árið 1987, fyrirhuguð starfs- áætlun um menningarmálasamstarf Norðurlanda og norrænt samstarf á sviði hljóðvarps- og sjónvarpsmála. Norrænu menningarmálafíár- lögin fyrir árið 1987 hafa þegar verið samþykkt og eru þau að upphæð rúmlega 900 milljónir króna. Til að unnt verði að hrinda í framkvæmd tillögum, sem menningarmálanefnd hefur lagt fram, m.a. um að æskulýðssam- starf á Norðurlöndum verði styrkt, að nemenda- og kennara- skipti á Norðurlöndum verði aukin, að stuðningur við farand- myndlistasýningar verði aukinn, og að Bókmenntaverðlaun Norð- urlandaráðs verði hækkuð í 15.000 danskar krónur, þarf að hækka fjárveitingar til menning- armálasamstarfsins um 13 millj- ónir króna. Að tillögu menningarmála- nefndar samþykkti Norðurlanda- ráð árið 1986 tilmæli til Norrænu ráðherranefndarinnar um nor- ræna starfsáætlun um menning- armálasamstarf Norðurlanda. Menningarmálanefnd leggur ríka áherslu á að drög að starfsáætlun þessari verði lögð fyrir næsta þing Norðurlandaráðs í lok febrúar 1987, til samþykktar. Menningarmálanefnd leggur og ríka áherslu á að Danir gerist aðilar að fyrirhuguðu samstarfi um Tele-X sjónvarpshnöttinn og að fundin verði án tafar lausn á því hvemig útvarps- og sjónvarps- sendingum Tele-X hnattarins til og frá íslandi verði háttað. Nefndin telur það vera megin- atriði í samstarfi Norðurlanda á sviði sjónvarpsmála að veruleg aukning verði á gerð innlends dagskrárefnis á Norðurlöndum og að löndin auki samstarf sín á milli á þessu sviði. Eiður Guðnason, formaður menningarmálanefndar Norður- landaráðs, sagði í samtali við Morgunblaðið að samþykkt hefði verið á fundinum að hækka veru- lega íjárveitingar til þróunar hugbúnaðar fyrir skóla og verða þær 2,1 milljónir danskar krónur á næsta ári. Hann sagði að ákveð- ið hefði verið að taka ekki afstöðu til sjónvarpssamstarfsins hér á íslandi fyrr en þær tillögur lægju fyrir um hvemig hægt væri að koma efninu til íslands. Norræn embættismannanefnd hefur fíall- að um tillögumar, en ekki hefur enn verið fjallað um þær af hér- lendum stjómvöldum. Sverrir Hermannsson, mennta- málaráðherra, sagði að hann hefði enn þær óskir sínar að íslenskar bókmenntir fengju að njóta sín á íslensku máli í samkeppni um bókmenntaverðlaun Norðurlanda- ráðs, en hingað til hefur þurft að þýða öll verk yfír á sænsku eða dönsku í tengslum við bókmennta- verðlaunin. Hinsvegar sagðist Sverrir ekki vera mjög hrifinn af Tele-X hugmyndinni. Lennart Bodström, mennta- málaráðherra Svíþjóðar, sagði í samtali við Morgunblaðið að þar sem Norðurlandabúar, aðrir en íslendingar, skildu ekki íslensku, væri óæskilegt að bækur yrðu sendar á íslensku í samkeppni um bókmenntaverðlaun Norðurlanda- ráðs. „Norðurlandamálin hafa þróast frá sömu rótum, en íslensk- an er svo frábrugðin hinum málunum að Norðurlandabúar skilja hana einfaldlega ekki. Við verðum að binda vonir okkar við að fleiri Norðurlandabúar leggja sig fram um að læra íslensku." Bodström sagði viðvíkjandi sjónvarpssamstarfinu að áætlun- um um Tele-X hnöttinn hefði seinkað vegna tæknivandamála, en það gæfí nefndinni nú aukinn tíma í dagskrárskipulagningu. Hugmyndin nú er að hefia útsend- ingar í gegnum Tele-X árið 1988. Hann sagði að ef íslendingar tækju þátt í samstarfínu, gæti íslenskt mál orðið þekktara á hin- um Norðurlöndunum en það er í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.