Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 30.09.1986, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRUXTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 48 Frá málþingi þroskaheftra Rætt við nokkra leiðbeinendur og þátttak- endur i málþingi þroskaheftra sem haldið var í Hveragerði dagana 19. og 20. sept. sl. MÁLÞING þroskaheftra var haldið á Hótel Ljósbrá í Hvera- gerði dagana 19. og 20. september sl. Þátttakendur voru 14 og leiðbeinendur fimm. Málþingið var haldið á vegum Lands- samtakanna Þroskahjálpar og skipulagt af Astu Baldvins- dóttur og Halldóru Sigurgeirsdóttur. Að sögn þeirra Ástu og Hall- dóru var tilgangurinn með mál- þinginu sá að veita þroskaheftum tækifæri til að hittast og ræða sín mál og ekki síst til að þeir fengju æfíngu í fundahöldum og hóp- starfí. Þær töldu að málþing sem þetta hefði sannað tilgang sinn, starfíð hefði gengið mjög vel. Flestir þátttakendúr höfðu verið mjög virkir. Þær kváðu málþingið á Hótel Ljósbrá sprottið upp af hópstarfí með þroskaheftum sem þær hefðu stjómað. Landssamtökin Þroska- hjálp byijuðu upphaflega með slíkt hópstarf sem var þannig skipulagt að 6-8 þroskaheftir hitt- ust með leiðbeinanda í sex skipti og ræddu sín málefni. Markmiðið með slíku starfí er að efla sjálfsvit- und hinna þroskaheftu, til þess að þeir geti haft aukin áhrif á ákvarðanir er varða þeirra eigið líf, til dæmis hvað snertir búsetu, vinnu og frítíma. Þátttakendur í málþinginu komust að þeirri nið- urstöðu að mikilvægt væri að halda fleiri slík þing, ef til vill árlega. Blaðamaður Morgunblaðsins fór til Hveragerðis á málþing þroskaheftra og ræddi við, auk þeirra Ástu Baldvinsdóttur og Halldóru Sigurgeirsdóttur leið- beinenda, þau Birgi Bjömsson, Hafþór Snorrason og Maríu Jónu Geirsdóttur, sem vom meðal 14 þátttakenda á málþinginu. Birgir Bjömsson Birgir Bjömsson er 24 ára gam- all, fæddur á Akureyri en fluttist til Reykjavíkur bamungur ágamt foreldmm sínum og stundaði nám við Öskjuhlíðarskólann. Hann er kvæntur Ingibjörgu Sæmunds- dóttur og búa þau í Árbæjarhverfi í Reykjavík. Birgir vinnur hjá Bíla- ryðvöm í Skeifunni. í samtali við blaðamann kvað Birgir þau hjón búa í einbýlishúsi og sjá algerlega um sitt heimili sjálf. Kona hans vinnur hjá Múlalundi. Og nú gef- um við Birgi orðið: „Það var voða HRAÐLESTUR Vilt þú margfalda lestrarhraða þinn? Vilt þú lesa meira af fagurbókmenntum? Vilt þú auðvelda þér námið með auknum lestrarhraða og námstækni? Svarir þú játandi, skaltu drífa þig á næsta hraðlestrarnámskeið, sem hefst miðviku- daginn 8. október nk. Síðast komust færri að en vildu, svo þú skalt skrá þig snemma. Skráning öll kvöld kl. 20:00 — 22:00 í síma 611096. HRAÐLESTRARSKÓLINN KBVGTEL Símamir, 6bm«í* Sterklegir og vandaðir borðsímar á frábæru verði. 14 minni (3 hraðminni) endurval á síðasta númeri tónval / púlsaval elektronisk hringing ítölsk hönnun stöðu ljós þagnar hnappur viðurkenndír aí Pósti oq síma ■ íaánJegir í sexiiturh M wasta] Leiðbeinendur og þátttakendur á málþingi þroskaheftra fyrir utan Hótel Ljósbrá i Hveragerði. gaman á málþinginu, það er svo margt í okkar málum sem þarf að laga. Sumt fólk skilur okkur illa og margir spyija mig: „Ertu þroskaheftur?" Eg segi að ég sé það ekkert mikið sjálfur. Konan mín er það svolítið, en ekkert mikið. Hún er heldur eldri en ég og hafði búið lengi í sambýli. Við höfum mikið samband við krakk- ana á sambýlinu. Við erum mjög ánægð með lífíð, bæði hjónin, við höfum verið gift í tvö ár. Ég talaði ekki mikið á mál- þinginu, ég hlustaði mest og svo ræddum við saman í hópum, við skiptum okkur í hópa og töluðum saman, um margt, um lífíð." Hafþór Snorrason Hafþór Snorrason fæddist í Hafnarfirði í nóvember 1954, en ólst upp hjá móður sinni í Reykjavík þar til hann fluttist á Selfoss, þar sem hann býr enn. Hann stundaði nám í Höfðaskóla. Hann er á sambýli á Selfossi og líkar orðið vel. „Mér fannst það stórt stökk að fara frá mömmu og á sambýlið," segir Hafþór við blaðamann og heldur svo áfram, „en nú er ég orðinn vanur. Sam- bandið milli mín og mömmu er mjög gott og ég má fara í bæinn að heimsækja hana þegar hún getur tekið á móti mér. Ég var að vinna í frystihúsi í Þorláks- höfn, en er að byija að vinna í sundlauginni á Selfossi. Ég vil heldur vinna á staðnum, það var erfítt að fara að vinna eldsnemma á vetuma, vinna frá kl 7 á morgn- ana til kl 7 um kvöldið. Þá þurfti ég að vakna mjög snemma. Við erum sex á sambýlinu núna. Það er mjög gott að búa á sam- býli og fólkið er mjög gott. Við tökum öll þátt í að taka húsið í gegn á laugardögum og sá sem er á vaktinni skipar mönnum í verk. Það er misjafnt hvaða verki maður lendir í. Ég tók þátt í fund- um á Selfossi í vor og mér fínnst þetta málþing hafa verið svipað og starfíð á fundunum á Selfossi. Það hefur verið rætt um frítímann og skemmtanir. Ég fer oft út að skemmta mér á Inghól og Hótel Selfoss og víðar. I kvöld á hljóm- sveitin Upplyfting að spila á Selfossi og ég ætla að fara. Upp- lyfting er mín uppáhaldshljóm- sveit, og svo Þrívídd, sem áður var Kaktus. Ég er ánægður með lífið, ég hef veikst voðalega sjald- an.“ María Jóna Geirsdóttir María Jóna Geirsdóttir býr hjá mömmu sinni. Hún var stuttan Ásta Baldvinsdóttir tíma á sambýli í fyrra. „Ég þekki fullt af krökkum á sambýlum. Mamma reynir að styðja Þroska- hjálp eins og hún getur. Ég var í Oskjuhlíðarskóla, ég byijaði í almennum skóla, en varð svo að fá sérkennslu, en náði ekki prófum og varð síðan að fara í Öskjuhlíð- arskóla. Það er besti skóli sem ég hef verið í. Ég vinn sem ganga- stúlka á Reykjalundi. Það er ALLT í RÖÐ OG REGLU! Ef þú ert þreytt(ur) á óreiðunni og uppvaskinu í kaffistofunni þá er Duni kaffibarinn lausn á vandanum. Duni er ódýrasti barínn í bænum Duni kaffibarinn sparar bæði tíma og pláss. Hann getur staðið á borði eða hangið á vegg. CHICAGO PNEUMATIC LOFT VERKFÆRI TOPPVARA GÓÐ ÞJÓNUSTA © MARKADSWÓNUSTAH SKIPHOLTI 19-105-REYKJAVÍK-S.269n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.