Morgunblaðið - 30.09.1986, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
Grænland:
Skurðsjúklingar
fluttir til Hafnar
Kaupmannahöfn, frá Nils Jörgen Bruun, Gnenlandsfréttaritara Morgunblaðsins.
VEGNA deilna við Félag danskra hjúkrunarkvenna, sem neita að
taka að sér störf á Grænlandi, verður nú að loka skurðdeildinni á
graenlenska landspítalanum og senda sjúklinga til Danmerkur.
Dönsku hjúkrunarkonumar vilja neyslu. Slíkum sjúklingum verði hér
fá launauppbót vegna „útlegðarinn-
ar“ á Grænlandi og annarra
hlunninda og fyrr en orðið verður
við þessum kröfum ætla þær ekki
að taka að sér laus störf í landinu.
Af þessum sökum verður frá og
með miðvikudegi í næstu viku að
flytja alla skurðsjúklinga á
nkisspítalann í Kaupmannahöfn.
Talið er, að um verði að ræða 50
sjúklinga á mánuði og aðeins far-
gjöldin á sama tíma munu kosta
danska ríkið eina milljón danskra
króna.
Það er ekki aðeins, að yfirvöldin
standi í stímabraki við hjúkrunar-
konumar heldur hafa tannlæknar
einnig bæst í hópinn. Axel Tulinius,
formaður í Félagi grænlenskra
tannlækna, sem telur 32 manns,
hefur lýst því yfir fyrir hönd stéttar-
bræðra sinna, að framvegis muni
þeir ekki fást við alvarleg kjálka-
brot ef rekja megi þau til áfengis-
ERLENT
eftir vísað til Kaupmannahafnar.
Tulinius tekur raunar fram, að
þessi ákvörðun sé tengd kjarasamn-
ingum tannlækna við danska ríkið
en segir, að auk þess vilji þeir vekja
meiri umræður um áfengisvanda-
málið á Grænlandi. Kom það fram
hjá honum, að árlega yrðu græn-
lenskir tannlæknar að eiga við 100
mjög alvarleg og erfið kjálkabrot
eftir slagsmál ofurölvi manna.
AF/Simamynd
James Fletcher, yfirmaður NASA, útskýrir nýja áætlun um smíði geimstöðvar. Er hann með líkan af
stöðinni fyrir framan sig.
NASA kynnir nýja geimstöð
Washington, AP.
JAMES C. Fletcher, yfirmaður
bandarísku geimvisindastofnun-
arinnar, NASA, kynnti nýja
áætlun um byggingu rannsókna-
stöðvar í geimnum. Er ráðgert
að hún verði tilbúin til notkunar
árið 1994.
Nýja stöðin verður frábrugðin
þeirri sem hingað til hefur verið
ráðgert að smíða og verður allri
starfsemi um borð stjómað frá einni
og sömu stöðinni í Houston í stað
þess að ýmsar deildir stofnunarinn-
ar stjómi henni, eins og áður var
ætlunin.
Hönnun geimstöðvarinnar hefur
verið breytt verulega og verður
smíði hennar og allt viðhald ódýr-
ara og mun auðveldara og einfald-
ara. Var reiknað með að geimfarar
þyrftu að vera 700 stundir „utan-
djn'a0 við samsetningu fyrri stöðv-
arinnar, en við smíði nýju
stöðvarinnar þurfi þeir aðeins að
vera rúmlega 300 stundir á geim-
göngu.
Samkvæmt áætlunum NASA
verður samsetning stöðvarinnar
hafin árið 1993 og lýkur ári seinna.
Verða hlutar hennar sendir upp
með geimfeijunum og þarf 17 ferð-
ir til. Áætlað er að sveitir vísinda-
og rannsóknarmanna dvelji 90 daga
í einu í stöðinni og þarf geimferjan
því að fara a.m.k. átta ferðir á ári
með mannskap og vistir.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti í gær fjárveitingar til
smíði nýrrar geimfeiju í stað Chal-
lenger, sem splundraðist skömmu
eftir geimskot í ársbyijun. Verður
ekki skorið af framlögum til NASA
til að fjármagna smíðina, en vonast
er til að ný feija verði tilbúin þegar
hafízt verður handa við að reisa
geimstöðina. Jafnframt samþykkti
deildin með 407 atkvæðum gegn 8
fjárveitingu til NASA fyrir næsta
ár að upphæð 7,7 milljarða dollara,
eða jafnvirði 31 milljarðs ísl. kr.
Noregur:
Fangar
stunduðu
Bretland:
Flugfélag Líbýumanna sak-
að um hryðjuverkastarfsemi
Lundúnaborg, AP.
BRESKA utanríkisráðuneytið til-
kynnti á laugardag að Líbýsk-
arabíska flugfélagið ætti
„augljósa hlutdeild" að hryðju-
verkastarfsemi og að nú væri í
athugun að stöðva allt flug fé-
lagsins til Bretlandseyja. Þessi
yfirlýsing siglir í kjölfar dóms-
uppkvaðningar yfir palestínsk-
um lækni, Ramsi Awad, sem var
sekur fundinn um að hafa tekið
við fjórum handsprengjum, sem
maður í einkennisbúningi flugfé-
lagsins smyglaði til Bretlands.
Breskir íjölmiðlar sögðu að ör-
yggiseftirlit lögreglu og skyldra
stofnana hefði verið eflt af ótta við
hefndaraðgerðir vegna dómsins yfir
Rasmi Awad, en hann var dæmdur
í 25 ára fangelsi fyrir aðild að
hryðjuverkastarfsemi. •
í tilkynningu utanríkisráðuneyt-
isins sagði m.a.: „Ríkisstjómin
hefur þungar áhyggjur af þeirri
staðreynd að Líbýsk-arabíska flug-
félagið á augljósa aðild að hryðju-
verkum". Talið er að málið verði
tekið upp á ríkisstjómarfundi í
vikunni. Peter Bruinevels, þingmað-
ur Ihaldsflokksins, hvatti Sir
Geoffrey Howe, innanríkisráðherra,
til þess að banna allt flug flugfé-
lagsins. „Ástandið er svo alvarlegt
að engan tíma má missa við fjas
um hvort baniia eigi flug félagsins
eða ekki. - Það á að banna það nú
þegar og það á að senda alla starfs-
menn Líbýsk-arabíska flugfélagsins
heim án frekari umsvifa", sagði
Bruinevels í bréfí sínu til Howe.
Ennfremur sagði Bruinevels að líta
bæri á alla starfsmenn flugfélagsins
sem strengjabrúður Gadhafis.
Breskir embættismenn hafa tekið
fram að verði gripið til slíkra að-
gerða beri ekki að líta á það sem
hluta af sameiginlegum aðgerðum
vestrænna ríkja gegn Líbýu, heldur
sem sérstakar aðgerðir Breta til
þess að stemma stigu við hryðju-
verkum á breskri grund.
Bretar slitu stjómmálasambandi
við Líbýumenn árið 1984, eftir að
líbýskur sendiráðsmaður skaut
breskan lögregluþjón til bana út um
glugga á sendiráðsbyggingu lands-
ins í Lundúnum. Þessi harðorða
yfirlýsing utanríkisráðuneytisins nú
er talin vera í tengslum við neyðar-
fund innanríkisráðherra Evrópu-
bandalagsins á fimmtudag.
innbrot
Osló, frá Jan Erik Laure, fréttaritara
Moivunbladsins.
ÓSVIFNIN á sér engin takmörk,
a.m.k. ekki hjá föngunum tveim-
ur sem stunduðu það að læðast
úr sjálfu fangelsinu að næturlagi
til að stela.
Það var nótt eina fyrr í þessum
mánuði, að fangamir létu sig síga
úr klefaglugganum niður í fangels-
isgarðinn og notuðu við það
rúmlökin, sem þeir höfðu hnýtt
saman. Síðan klifruðu þeir yfir girð-
inguna án nokkurra erfiðleika og
brutust inn í verslun í bænum
Arendal við Oslóarfjörð. Tókst þeim
að bijóta upp peningaskápinn og
hafa á brott með sér 25.000 n.kr.
Snem þeir nú aftur heim í klefann
og grófii þýfið í fangelsisgarðinum.
Lögregluna grunar, að fangamir
hafi áður leikið þennan leik enda
hefur verið mikið um sams konar
afbrot í Arendal. Upp um þá félag-
ana komst þegar þeim fannst vera
komið nóg af fangavistinni og hurfu
á brott með þýfið í stolnum bíl. Þá
var lögreglan vel á verði og hafði
fljótt uppi á þeim.
England:
Gagntekinn
af golfinu
Totnes, Englandi. AP.
WALLY Edwards var ástríðu-
fullur golfleikari og aUt, sem
tengdist þessari göfugu íþrótt,
var heilagt í hans augum.
Nú er hann látinn og erfingj-
arair farnir að skipta með sér
reitunum, m.a. 6.000 golfkúlum.
Að útförinni lokinni lék ættingj-
unum forvitni á að vita hvað
Edwards hafði átt í pokahominu.
Það reyndust vera golfkúlur, 6.000
talsins í kössum og kimum, skápum
og skjólum um allt hús. Sonur hans,
Frankie, segir, að faðir sinn hafi
verið gagntekinn af golfíþróttinni
■og ávallt séð ofsjónum yfir öllum
kúlunum sem týndust á vellinum.
Þess vegna hafi hann síðustu 20
árin þjálfað marga hunda til þess
að finna glataðar kúlur.
1