Morgunblaðið - 30.09.1986, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 30.09.1986, Qupperneq 33
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 33 IWtrgw Otgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri HaraldurSveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 50 kr. eintakiö. Horfur í afvopnunarmálum Horfur í afvopnunarmál- um virðast nú bjartari en oft áður. Fulltrúar stórveld- anna, Bandaríkjanna og Sovétrílganna, hafa setið á rökstólum um nokkurt skeið og þær fregnir sem af þessum fundum hafa borist benda til þess að grundvöllur sé að skapast fyrir samkomulagi um verulega takmörkun kjam- orkuvígbúnaðar og kjamorku- vopnatilrauna, bann við framleiðslu efnavopna og frestun geimvamaáætlunar- innar í nokkur ár. Mörg ljón em enn í vegi samkomulags og atvik sem kunna að virðast lítilflörleg í samanburði við slíkt samkomulag geta breytt horfunum á skammri stundu. Ástæða er hins vegar til að ætla að bæði sé raunverulegur áhugi á samningum fyrir hendi í Washington og Moskvu og ráðamenn stórveldanna telji hagsmuni sína bjóða að sam- komulag náist hið fyrsta. Öryggismálaráðstefnunni í Stokkhólmi lauk á mánudag í vikunni sem leið með fyrsta samkomulagi sem ríki austurs og vesturs hafa gert með sér um hemaðarleg efni frá því SALT-II samningurinn var undirritaður árið 1979. Sam- komulagið í Stokkhólmi kveður á um tilkynningaskyldu og eftirlit með heræfíngum og af því er mikill ávinningur í sjálfu sér til að minnka líkur á styrjaldarátökum fyrir slysni. Það skapar líka aukið traust milli austurs og vesturs og stuðlar með þeim hætti að því að undirbúa jarðveg fyrir umfangsmikið samkomulag í afvopnunarmálum. Um nokkurt skeið hefur fundur Reagans, forseta Bandaríkjanna, og Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna, verið í undirbúningi. Vonir hafa stað- ið til að á þeim fundi gæti tekist samkomulag um einhver þau atriði sem fyrr vom nefnd, eða fundurinn gæti a.m.k. flýtt verulega fyrir lausn þeirra ágreiningsmála, sem enn hindra afvopnunarsamkomu- lag. Hið svonefnda Daniloff- mál, sem rakið hefur verið hér í blaðinu, vakti um hríð ugg um að leiðtogafundurinn færi út um þúfur. Margir spurðu, hvort ekki væri rétt að gefa eftir í þessu máli til að hindra að svo yrði. í gær var Daniloff látinn laus og ágreiningurinn um hann mun því ekki koma í veg fyrir fund Reagans og Gorbachevs. En harka Reag- an-stjómarinnar í þessu máli var bæði skiljanleg og réttlæt- anleg. Daniloff var án nokkurs vafa leiddur í gildru sovésku leyniþjónustunnar og það framferði vakti upp efasemdir um raunveruleg áform Sovét- stjómarinnar og um það, hver ræður ferðinni í Kreml. Við slíkar aðstæður er ákaflega hæpið, að reyna samninga um takmörkun vígbúnaðar. Nú þegar Daniloff-málið er að baki kemst samband stór- veldanna væntanlega í eðli- legra horf. Engin ástæða er til að ætla annað en að haldið verði áfram af fullum krafti að fínna leiðir til að yfírstíga þann ágreining sem enn kemur í veg fyrir afvopnunarsamn- inga. Það tækifæri sem nú er fyrir hendi verður að nota. Orlög mannkyns velta á því að skynsemin ráði ferðinni. Konungs- bók Eddu- kvæða Astæða er til að vekja athygli á fyrirhugaðri viðhafnarútgáfu Konungs- bókar Eddukvæða, fyrstu ljósprentuninni í litum á þessu sögufræga handriti. Þetta er þörf útgáfa og tilefnið, 75 ára afmæli Háskóla íslands, er vissulega við hæfí. Hinar fomu bókmenntir em eitt af akkerum þjóðartilveru okkar og hvers kyns útgáfa er miðar að því að færa þær nær okkur og gera þær að- gengilegri á skilið hvatningu og lof. Konungsbók Eddu- kvæða er einn af gimsteinum þessara bókmennta og hugur þjóðarinnar til hennar birtist eftirminnilega er tugir þús- unda íslendinga fögnuðu komu hennar hingað fyrir hálfum öðrum áratug. I upphafi nýs leikárs Nú er sumarið enn á förum og má heita að verið hafi gott ískarii af norðurslóðum, sem jafnan óskar sér að kominn væri október á ný þegar líður fram í maí. Undanfam- ar þtjár til fjórar vikur hefur hitinn til dæmis verið svo hófstilltur að ég hef getað látið loftkælingu lönd og leið. Slíkt lækkar rafmagns- reikninginn, léttir skapið og lífgar sporið. Annars er september oft nærri jafnheitur og ágúst og seinna koma stundum hitaskorpur, jafnvel fram í nóvember. Það kalla þeir indíánazsumar hér um slóðir, en ekki veit ég af hveijum sökum það er svo nefnt. Jafnvel lærðustu orðabækur hafa enga skýringu á uppruna þeirrar nafngiftar. Straumurinn á Broadway Já, haustið er um það bil að kveðja dyra og þá hefst nýtt leik- húsár, enda hafa sýningar verið sem óðast að streyma inn í borgina und- anfamar vikur. Þetta stafar af því að meirihluti nýrra verka sem bókuð eru í leikhúsin kringum Broadway er að jafnaði „pmfukeyrður" utan höfuðborgarinnar, í „sveitabæjum" eins og Boston, Ffladelfíu og þaðan af smærri plássum. Jafnvel eftir að til New York er komið eru aðstand- endur sýninga oft svo taugaóstyrkir að þeir þurfa að hafa „forsýningar" hér líka áður en þeir hafa kjark í sér til að hafa „frumsýningu". Og stundum er fiðringurinn í maganum raunar ekki að ástæðulausu. Stórar fíárfúlgur eru í húfi og sum þeirra verka sem mikið hefur verið til kostað að koma á svið deyja drottni sínum jafnskjótt og þau líta ljósin á Broadway — komin, séð og sigr- uð. Eitt þeirra sem þegar hafa hlotið þessi örlög, þótt leikárið sé tæplega hafið, er söngleikurinn Rags — Tuskur — sem gekk ekki nema tvo daga áður en sýningum var hætt. Þó vom síst neinar tusk- ur að honum nautamir. Ópemsöng- konan Teresa Stratas, sem mörgum er að góðu kunn úr kvikmynd Zef- ferellis, La Traviata,var í aðal- hlutverkinu. Tónskáldið var Charles Strouse, þrefaldur Tony-verðlauna- maður, sem kannski er þekktastur fyrir músíkina í Annie en samdi einnig tónlistina íBye Bye Birdie og Applause, auk fjöldamargs ann- ars. Joseph Stein, sem samdi talað mál íFiðlaranum á þakinu gerði hið sama fýrirTuskur. Og textahöf- undur var Stephen Schwartz, sem samið hefur texta (og stundum músík líka) fyrir margar sýningar, m.a. Pippin og Godspeed. En leik- urinn barðist í bökkum frá upphafi. Fregnir bámst af utanbæjaræfing- um um uppsagnir, gagngerðar breytingar og alls kyns aðrar uppá- komur, og loks vék hinn upphaflegi leikstjóri fyrir leik-„lækninum“ Gene Saks. En jafnvel sá ágæti hæfileikamaður gat ekki forðað feigum. Leikurinn fíallaði um inn- flytjendur af gyðingaættum um og eftir aldamótin og lýsti þeim sám vonbrigðum, basli og eymd sem beið þeirra í fyrirheitna landinu. í þeirri mynd sem upp var dregin virðast hafa verið fáir ljósir litir og áhorfendum ku hafa þótt þetta efni svo þjakandi, þrátt fyrir margt gott, að það hafi beinlínis deytt leikinn. Eins og James O’Neill sagði við son sinn, Eugene, þegar hinn síðar- nefndi fór að rita harmleiki: Fólk fer í leikhús til að lyfta sér upp, ekki til að verða dapurt. Og það á sennilega við um söngleiki fremur en nokkur önnur leikhúsverk. Eftir því sem mér er tjáð vissu öll munn- vik niður um það er lauk og það kann ekki góðri söngleikjalukku að stýra. Nýtt stórstirni Öðmm hefur famast betur. Gam- Loraa Patterson, Vicki Lewis, Carolyn Casanave, og Camille Saviola era, sem sjá má, Heiftugar húsmæður. Teresa Stratas I hlutverki sinu I Tuskum, sem ekki var sýnt nema tvo daga. all breskur uppvakningur, söngleik- ur frá því fyrir heimsstyrjöldina síðari, hefur þegar gert stórstimi úr breskum leikara sem áður var lítt þekktur og þá helst í alvarlegum hlutverkum. Sá heitir Robert Lindsay, en leikurinn nefnistMe and My Girl — Ég og stúlkan mín — og er um enskan lágstéttarmann, Cockney frá Lambeth-borgarhiut- anum í London — sem uppgötvar að hann er enginn annar en jarlinn af Hereford, týndur frá bamæsku og verður nú að læra heldri manna mál og siði ef hann vill erfa titil og auð. Þetta minnir óneitanlega nokkuð á sjónleik G.B. Shaws, Pyg- malion.sem söngleikurinn My Fair Lady var saminn upp úr og mikill hluti Mín og stúlkunnar minnar skilst mér séu fremur grófir og tvíræðir brandarar á kostnað hinna svokölluðu æðri stétta, sem og önn- ur hót- og heimskufyndni. En Lindsay fer á slíkum kostum að hann sléttar flestar misfellur sem á gerð verksins eru og hann er dyggilega aðstoðaður af Maryann Plunkett, amerískri leikkonu sem síðast sást hér í Sunnudögum í garðinum með Georg. Eins og Lindsay, hefur hún heldur en ekki aukið hróður sinn með frammistöð- unni í þessum leik. Mörg lögin f leiknum eru gamlir kunningjar þeirra sem komnir eru á minn ald- ur, svo sem „Lambeth Walk“ („Allir eru að puða í pólitík ...“.) Svo er að sjá sem þessi söngleikur hafí þegar búið um sig til frambúðar á fíölum Broadways. Þrautir Nikulásar En gæfunni er misskipt. Annar breskur uppvakningur, nú til sýnis fyrir hundrað dali, takk, er átta og hálfs tíma leikgerð (í tveim hlutum) á skáldsögu Dickens, Nikulás NIckleby.Þetta sjónarspil var fyrst sýnt hér í mjög takmarkaðan tíma fyrir einum fíórum eða fimm árum (og fyrir sama verð) en var síðan sýnt í sjónvarpi þar sem ég sá það. Því er ekki að neita að þetta var áhrifamikil og bráðvel gerð sýning en þó varð ég meira en lítið hissa þegar það fréttist, að Bretar ætluðu að endurtaka þetta strandhögg sitt. Sú sýning sem nú er á ferðinni er skipuð öðrum leikurum en sú fyrri og túlkunin er þar af leiðandi öðruvísi. Hún hefur líka fengið ágæta dóma eins óg sú fyrri, en nú er samt svo komið að talað er um að stytta enn hipn takmarkaða 'sýningartíma vegna dræmrar að- sóknar. Tapið er sagt að nemi þegar tæpum tveim milljónum dala. Vafalaust stafar hin dræma að- sókn nú af sýningh leiksins í sjónvarpinu fyrir tiltölulega skömmum tíma. Sú upptaka var beint úr leikhúsinu svo að þar gat fólk að heita má farið í leikhús fyr- ir ekki neitt í stað þess að borga of fjár fyrir. Að koma svo á ný með sýninguna svo skömmu eftir útsendingu var eins og að storka örlögunum. Enda virðist nú raunin sú að þarna hafi eitthvað verið skakkt reiknað. Fyrir nokkru settist annar upp- vakningur að á Broadway, sem eldri borgarar í Reykjavík munu kannast við. Þetta er farsinnArsenic and Old Lace eftir Joseph Kesselring sem á íslensku var kallaður Blúnd- ur og blásýra, ef ég man rétt. Margir kunna líka að muna eftir kvikmynd sem eftir leiknum var gerð með Gary Grant í aðalhlut- verkinu. Þessi endursýning hlaut ekki góða dóma, þótti bera með sér ærin ellimörk. En þótt þunn sé hefur hún ekki ennþá lekið niður á milli fíal- anna. Sýningartími fer ekki alltént eftir áliti leikhúsgagnrýnenda og leikurinn hefur á að skipa allgóðum leikurum eins og Jean Stapleton og William Hickey. Eins var hann svið- settur af Bryan Murray sem stjóm- aði HeysóttNoéls Coward hér svo afbragðsvel sl. vetur. Á leiðinni Af leiksýningum sem innan skamms munu húsaðar við Broad- way má nefna Broadway Bound, eða Á leið til Broadway, eftir þann sífijóa brandarakarl Neil Simon. Þetta verður þriðjji leikurinn í svo- kallaðri BB-syrpu (hinir fyrri voru Bríghton Beach Memoirs og Biloxi Blues), sem er að mestu byggð á sjálfsævisögu höfundarins. Leikir Simons eru ævinlega vel sótt- ir, og svo verður sjálfsagt enn. Ég sá þó ekki hina tvo fyrri og býst varla við að öðruvísi verði um þann nýja. Þótt Simon sé yfirleitt bráð- fýndinn og skemmtilegur hefur hann oftast skilið eftir einhvers konar tómarúm eða óbrúað bil innra með mér, kannski vegna þess að hann kemst stundum glettilega nærri því að stíga yfir mörkin milli þess sem einungis höfðar til hlátur- tauganna og hins sem snertir mann dýpra. En hann virðist alltaf veigra sér við að taka lokastökkið. Það er eins og hann þori ekki að bera sig tilfinningalega. Miklu seinna í vetur er von á söngleik (eða kannski ætti að kalla það óperu, þar sem ekki mun vera eitt einasta talað orð) gerðum eftir Vesalingum Victors Hugo. Leikur þessi verður fluttur inn frá Lundún- um, þar sem hann hefur verið afar vinsæll, en er með amerískri söng- leikkonu í aðalhlutverkinu. Sú heitir Patti LuPone og varð fyrst fræg Frá vinstrí: Aubrey Radebe, Sidney Khumalo, og Aubrey Molefe Moalosi eins og þeir koma fram i Bopha!, eftir Percy Mtwa. Patti LuPone leikur Fantine i óperugerð Vesalinganna eftir Victok- Hugo. Myndin er frá Lundúnasýningu verksins. Sviðsmynd úr Asinamalil, eftír Mbongeni Ngema. fyrir hlutverk Evu Perón í söng- leiknum Evitu fyrir fárum árum. Ef marka má af fýrirframsölu miða hér fyrir um 2,5 milljónir dala, jafn- vel þótt sýningar hefíist ekki fyrr en í mars ’87, virðist svo sem leikn- um muni vegna vel héma megin hafsins líka. Kynlífsráð og- kalstjörnur Utan Broadway er og mun úr fleiri kostum að moða. Olympus on My Mind, sem ef til vill mætti kalla Með Olympus á heilanum á íslensku, heitir nýr söngleikur og svo er það Sex Tips for Modera Girls, eða Kynlífsráð handa nútímastúlkum, söngleikur frá Vancouver á vesturströndinni sem nú er um það bil að taka sér ból- festu hér í borg. Á heimaslóðum sínum hefur hann að sögn gengið f tvö ár samfleytt, en ekki mundi ég af þeim sökum veðja á gengi hans í New York. Mjög um sama leyti er von á nýja söngleiknum Back in the Big Time, sem kannski mætti kalla Auðnan brosir aftur við á íslensku. Þetta mun vera nokkurs konar inn- hverf athugun á leikhúslífi fyrr og nú, og í aðalhlutverki verður gömul dansstjarna frá Ziegfeld Follies 1936, Harald Nicholas að nafni. Fleira gamalt „show business“-fólk verður einnig með. Aðeins reynslan mun úr því skera hvort hægt er að fá slíkar kalstjömur til að tindra á ný. Ekki er heldur hörgull á leikritum sem komast vilja á svið þrátt fýrir stuttan meðalaldur. Það sem helst hefur vakið athygli mína fyrirfram er The Hands of Its Enemy, eða í beinni þýðingu Hendur óvinar þess. Höfundur þessa verks er Mark hefur hlotið mjög þokkalegar við- tökur. Hann virðist vera kominn yfír erfíðasta hjallann og ætlar líklega að ganga eitthvað fram eft- ir vetri að minnsta kosti. Annar heitir Angry Housewives — Heift- ugar húsmæður — og fíallar um fjórar mannlausar kvensur, sem stofna rokkhljómsveit. Ekki líst mér svo á þá sýningu að ég muni eyða í hana tíma og fé. Öllu betur líst mér á Lady Day at Emerson Bar and Grill, sem ekki fer vel í beinni þýðingu á íslensku en fjallar um „blues“-söngkonuna Billie Holiday; hún var oft kölluð Lady Day. Og Medoff, sá hinn sami og ritaði Guð gaf mér eyra fyrir nokkrum árum. Phyllis Frelich, daufdumba Ieikkon- an sem mesta lukku gerði í þeim leik, mun aftur fara með aðalhlut- verk hins nýja, enda leikurinn beinlínis skrifaður fyrir hana, ef mínar upplýsingar eru réttar. Annað leikrit, sem reynst gæti þess virði að sjá er Coastal Dis- turbances — Strandhræringar — hvað sem það á að merkja. Höfund- ur þess, Tina Howe, hefur áður skrifað meðal annars Painting Churches, sem ég minntist ein- hveiju sinni á í gömlu bréfi. Þótt mér hafi ekki alls kostar líkað það leikrit, fannst mér hún skrifa listi- lega vel, og þetta er fyrsta nýja, verkið sem hún hefur látið frá sér fara síðan. Sami leikhópurinn mun sfðar sýna Division Street — Klofhings- götu — eftir Steve Tesich, sem áður var sýnt hér 1979 en entist þá mjög skamma hríð. Höfundurinn hefur síðan gert gagngerar breytingar á verkinu, og vonandi til bóta. Einnig ráðgerir þessi hópur að vekja upp Little Murders — Smámorð — eft- ir skopteiknarann Jules Feiffer, sem gekk á annað ár hér í lok sjöunda áratugarins og hefur sfðan verið sýnt víða. Sú sýning verður undir handleiðslu Johns Tillinger, sem ég gat um í síðasta bréfi að leikstýrt hefði Loot eftir Joe Orton. (Meðal annarra orða: Ég þýddi þann titil eins og beint lá við, Þýfi, en hef nú fengið þær upplýsingar að heiti leiksins á íslensku sé raunar Illur fengur. Þá það.) Að lokum Ekki má ég svo skiljast við þessa upptalningu að ég minnist ekki á Woza Afrika!, sem er syrpa fimm suður-afrískra sjónleikja eftir þar- lenda höfunda, sem verið er að sýna hér í borg um þessar mundir. Þessi verk hafa verið sýnd sína vikuna hvert siðan snemma í þessum mán- uði. Asinamali!, sem mun leggjast út Við erum blankir, eftir Mbongeni Ngema, er söng- og dansleikur um fimm blökkumenn sem hittast í fangelsi. Bopha! (merking mér ókunn) eftir Percy Mtwa fjallar um átök innan blökkufjölskyldu, þar sem faðirinn er lögreglumaður en dóttir hans athafnasöm í and- spyrnuhreyfíngunni. Children of Asazi (Bömin í Asazi) eftir Matse- mela Manaka er ástarsaga úr blökkumannabæ. Gangsters (Bóf- ar) eftir Maishe Maponya mun vera innblásið af dauða Stephens Biko, sem drepinn var meðan hann var í haldi hjá suður-afrísku öryggislög- reglunni. Og Bora in the RSA, eða Fæddur f Suður-Afríkulýðveldinu eftir Bamey Simon, sem er eini hvíti höfundurinn í hópnum, fjallar um viðbrögð svartra manna og hvítra á örlagatímum. Þessi syrpa virðist með því at- hyglisverðasta sem nú er á fjölunum hér í borg, en því miður eru sýning- ar svo takmarkaðar að ég fæ sennilega ekki komist til að sjá eitt eða tvö þessara verka — ef nokk- urt þeirra. Hér hefur auðvitað fátt eitt verið ,talið af því sem verða mun — og þegar er — á boðstólum í leikhúsum New York-borgar. Sumt af því verð- ur sennilega skammlíft, en annað kann að hafa f sér lffsanda. Þá mun ég ef til vill skrifa um það aftur sejnna. Við sjáum til. New York, 18. september 1986 New York-bréf frá Hallberg Hallmundssyni:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.