Morgunblaðið - 30.09.1986, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
Farymann
Smádíselvélar
5.4 hö viö 3000 SN.
8.5 hö viö 3000 SN.
Dísel-rafstöðvar
3.5 KVA
SöMíKliKLögjtyir
Veaturgötu 16,
8Ími 14680.
CB FORHITARAR
MIÐSTÖÐVARHITARAR
og
N EYSLU VATNSHITARAR
Mest seldu FORHITARAR
landsins
ÁVALLT TIL Á LAGER.
OJ’ LANDSSMIÐJAN HF.
r SOLVHOLSGÖTU 13 — 101 REYKJAVÍK
SÍMI (91) 20680
VERSLUN: ÁRMÚLA 23.
Svipmyndir úr borginni/Ólafur Ormsson
Það gæti orð-
ið skemmti-
leg viðureign
Við lifum á tækniöld þar sem
allt er meira eða minna breytingum
háð og skýrasta dæmið er sú bylt-
ing sem nú á sér stað í fjölmiðla-
heiminum með tilkomu nýrrar
útvarpsstöðvar og nýrrar sjón-
varpssstöðvar. Það er á fleiri
sviðum sem tækninýjunga er vart
og það svo um munar. Ekki er
lengra síðan en fyrir um það bil
einu og hálfu ári að japönsku far-
símamir komu til sögunnar og nú
þegar eru allnokkrir í notkun hér á
landi og vinsældir þeirra fara stöð-
ugt vaxandi. Þeir eru á stærð við
seðlaveski og fer ekki meira fyrir
þeim en svo að hægt er að hafa þá
í jakkavasa og vera með þá á sér
nánast hvar sem er nema kannski
ekki í sundi og í sturtu. Þeir koma
að góðum notum t.d. í ferðalögum
í óbyggðum, í sumarbústöðum og
án þess að mér sé það kunnugt þá
tel ég samt líklegt að hægt sé að
tala úr þeim í flugvél, í um þrjátíu
þúsund feta hæð. Það er ljóst að
farsímar eru engin venjuleg tæki
og koma svo sannarlega að góðum
notum fyrir þá sem hafa efni á að
kaupa, verð þeirra mun verða um
60—70 þúsund krónur að því er
fróður maður sagði mér nýlega.
Farsímar eru nú þegar talsvert í
notkun í bifreiðum og ekki ósjaldan
að hringt er úr bílasíma í útvarps-
stöðvamar og beðið um óskalag.
Ekki alls fyrir löngu kom ég inn
á matsölustað í borginni í þeim til-
gangi að snæða nýjan fisk. Það var
skömmu eftir hádegi í miðri viku
og þar var nokkur hópur matar-
gesta, ýmist að snæða eða að bíða
eftir afgreiðslu. Fékk ég sæti við
borð út við glugga og við borð ekki
langt frá þar sem ég sat var ungur
maður, á að giska um þrítugt, í ljós-
#
bláum teinóttum sparifötum, í hvítri
skyrtu og með bindi og á borðinu
fyrir framan hann, innan um matar-
diska og glös var japanskur farsími
sem eigandinn sýndi greinilega enn
meiri áhuga en matnum sem hann
var að snæða.
Pilturinn lauk við að borða for-
réttinn og súpuna og áður en
þjónninn kom með aðalréttinn að
borðinu var hann kominn í símann.
Á meðan ég beið eftir steiktri smá-
lúðu komst ég ekki hjá því að heyra
að maðurinn með farsímann var að
bjarga ýmsum brýnum málum.
Hann var í sambandi við ólíklegustu
aðila varðandi gögn er þurfa að
fylgja með umsókn um lán frá
Húsnæðismálastjóm. Lá greinilega
mikið á að koma umsókn inn fyrir
mánaðamótin, september-október
og á honum að skilja að hann væri
í hinum svokallaða forgangshóp
hvað lán varðar. Hafði ekki áður
keypt íbúð og auk þess fráskilinn.
Hann var skyndilega í sambandi
við einhvem endurskoðanda í
símanum: Það fór ekki á milli mála:
„Ég má þá koma á morgun og
sækja gögnin? Já, þú ert þá bara
búinn að fara ofan í saumana á
þessu. Þú ert ekki lengi að því sem
tekur venjulegan mann þijár vikur
að vinna úr. Já. Þakka þér fyrir.
Ég geri þá upp við þig á morgun.
Já og ég skal muna eftir því að
koma með skattaskýrsluna frá
1984.“
Maðurinn með farsímann lauk
samtalinu sem stóð í nokkrar
mínútur. Þá var þjónninn kominn
með aðalréttinn, grillaðan kjúkling
sem pilturinn borðaði með góðri
lyst. Áður en þjónninn kom með
eftirréttinn, ís með súkkulaðidýfu
var maðurinn með farsímann búinn
að velja nýtt símanúmer og ég
heyrði að hann var í sambandi við
einhvem lífeyrissjóð.
„Mig langar að fá upplýsingar.
Það er í sambandi við greiðslur i
lífeyrissjóðinn. Ég hef verið í sjóðn-
um undanfarin ár. Hef þó ekki
borgað neitt í sjóðinn allt síðastliðið
ár. Ég vinn sjálfstætt. Hvað seg-
irðu? Á ég að hafa samband við
Söfnunarsjóð Ufeyrisréttinda. Hvar
er hann til húsa? Hvað segirðu?
Laugavegi 13, á þriðju hæð. Þakka
þér fyrir."
Þjónninn var kominn með súkk-
ulaðiísinn og maðurinn með farsím-
ann bað um reikninginn og gerði
síðan upp við þjóninn og bað um
kaffi. Þjónninn kom með kaffið og
þá var maðurinn farinn að tala í
farsímann og kominn í samband
við banka vegna stöðu á ávísana-
reikningi sínum:
„En gaman. Á ég tuttugu og
fimm þúsund krónur inn á reikn-
ingnum? Það er meira en ég hélt.
Er víxillinn kominn? Hvað er hann
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
r 1
REGGIANA
RIDUTTORI
Drifbúnaóur
fyrirspilo.fi
= HEÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LÆER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA
ÓTRÚLEGA
LÁGT VERD
kr. 17.800 staðgreiðsla
Afborgunarskilmálar
/O ITVEGGJA DYRA #1
oolcroK
KÆLI- OG FRYSTISKÁPAR
Samt. stærö: 275 1.
Frystihólf: 45 I.
Hæö: 145 sm. Breidd 57 sm.
Dýpt: 60 sm.
Vinstri eöa hægri opnun
Fullkomin viðgerða-
og varahlutaþjónusta.
Heimilis- og raftækjadeild.
HEKLAHF
LAUGAVEGI170 ■ 172 SlMI: 696650