Morgunblaðið - 30.09.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjömuspekingur. Ég
stend á krossgötum þar sem
ég hef nýlega hafíð störf hjá
nýju fyrirtæki. Mig langar
að fá upplýsingar, almennt
um persönuleika minn og
sérstaklega um mögulega
hæfileika mína á viðskipta-
sviðinu. Ég er fæddur 02.02
1944 kl. 23.52 á Vestflörð-
um. Kærar þakkir."
Svar:
Þú hefur Sól í Vatnsbera,
Tungl, Úranus og Mars sam-
an í Tvíbura í áttunda húsi,
Merkúr og Venus í Steingeit
og Vog Rísandi.
Yfirvegaður
Um persónuleika þinn má
almennt segja að þú ert yfir-
vegaður og jafnframt þægi-
legur í umgengni. Þú ert
glaðlyndur í fasi ogjákvæður
í viðhorfum og átt auðvelt
með að umgangast flest allt
fólk. Þú ert diplómat, en bak
við ljúft og sveigjanlegt yfir-
borð (Vog) leynist staðfastur
og ákveðinn persónuleiki
(Vatnsberi). Þú átt til, þegar
grunnhugmyndir þínar eru
annars vegar, að vera
ósveigjanlegur og óhaggan-
legur. Þar sem þú ert ekki
mikill tilfinningamaður (ekk-
ert vatn) og leggur metnað
þinn í að blanda ekki per-
sónulegum tilfinningum eða
óskum í störf þín, getur þú
hins vegar hlustað á skyn-
samlegar röksemdafærslur.
Kaldur
rökhyggjumaður
Það að hafa allar persónuleg-
ar plánetur í lofti og jörð,
táknar að þú ert jarðbundinn
og vitsmunalega sinnaður.
Þú lætur tilfinningar ekki
stjóma þér, heldur bláköld
rök og vitsmuni. Fyrir vikið
getur þú átt til að vera kald-
ur og ívið ópersónulegur,
jafnvel ómannlegur. Það
síðasttalda vfsar m.a. til þess
að þér er illa við að sýna á
þér veika hlið eða að láta til-
finningar og aðra mannlega
„veikleika" stjóma þér. Þessi
kaldi þáttur er hins vegar
ekki áberandi og er falinn
bak við vingjamlega og
þægilega framkomu. Þessi
þáttur ætti að reynast þér
vel í viðskiptum.
Fjármálastjórn
Staða margra pláneta í 8.
húsi þýðir að þér fellur vel
að sýsla með fjármál. 8. hús
er hins vegar táknrænt fyrir
Qármál annarra og þvi bend-
ir allt til þú sækist ekki eftir
auði fyrir sjálfan þig, heldur
hafir fyrst og fremst hæfi-
leika til að stjóma fjármálum
sem em ekki þín eigin. Við-
skiptahæfileikar þínir em
fyrst og fremst í samninga-
gerð og á skipulagssviðum.
Þú ert einnig hugmyndaríkur
og opinn fyrir nýjum mögu-
leikum.
Skipulagður
Ilugsun þín og máltjáning
er skipulögð og yfirveguð.
Þú ert jarðbundin og raunsær
í hugsun, en getur átt til að
vera stífiir og krefjast 100%
vandvirkni og fullkomnunar
í útfærslu hugmynda og þess
sem þú vinnur að.
Engin kyrrstaÖa
Hugsanlegur veikleiki er sá
að þú þarft á tilbreytingu og
spennu að halda í daglegu
lifi, þ.e. þér leiðist kyrrstaða
og lognmolla. Þú getur þvf
átt til að vera eirðarlaus,
sérstaklega ef daglegt líf þitt
er rólegt og í föstum skorð-
um. Þú getur þá orðið leiður
og fengið innilokunarkennd.
Ef starf þitt felur í sér hreyf-
ingu, Qölbreytileika og
spennu færist ró yfir þig. Þú
þarft því á ákveðnum hama-
gangi að halda í daglegu lífí.
JÆ.TA.OPPI, í PA6 ViRÆÐUM V/lP
PÓSTMANNINN - • GRETTU þlG !
TOMMI OG JENNI
UÓSKA
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
l*
Vöm vesturs í spilinu hér að
neðan virtist striða gegn öllum
náttúmlögmálum. En þegar upp
var staðið var það eina vömin
sem banaði samningnum.
Suður gefur; enginn á hættu.
Vestur
♦ Á3
♦ ÁKD7
♦ 652
♦ D1083
Norður
♦ 76
♦ G952
♦ ÁD84
♦ ÁK7
II
Austur
♦ 94
♦ 1063
♦ KG1073
♦ 954
Suður
♦ KDG10852
♦ 84
♦ 9
♦ G62
Vestur Nordur Austur Suður
— — — 3 spaðar
Pass 4 spaðar Pass Pass
Pass
Gegn fjórum spöðum suðurs
byijaði vestur á því að taka ÁK
í hjarta og fékk upp þrílit hjá
makker. Sérðu hveiju hann spil-
aði í þriðja slag?
Það er kannski ekki mjög erf-^_
itt að koma auga á vömina á
opnu borði. Og þó, vömin er það
„ónáttúrleg". Hann spilaði
hj artadrottningunni!
Með því fríaði vestur auðvitað
hjartagosa blinds um stundar-
sakir en hann var fljótur að
eyðileggja þann slag þegar hann
komst inn á spaðaás. Hann spil-
aði fjórða hjartanu og makker
hann trompaði.
Vestur sá fyrir sér að spilið
hlyti að tapast ef suður ætti tvo
hunda f tígli. Sagnhafi kæmist^
aldrei hjá því að gefa þar slag.
Hins vegar var sá möguleiki
fyrir hendi að suður ætti einn
tfgul og laufgosa þriðja, en þá
vofði yfir vestri kastþröng í
hjarta og laufi ef ekkert yrði að
gert. Því ákvað vestur að nota
tempóið til að eyðileggja hjarta-
hótunina og þar með kastþröng-
ina.
Hvað var þetta? Hljómaði
eins og fallbyssuskot!
Við vissum ekki að hún
var hlaðin.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á skákþingi íslands f Gmndar-
firði kom eftirfarandi staða upp í'
skák Þrastar Árnasonar og Karls
i Þorsteins f 7. umferð:
Karl lék illa af sér. 26. — Kg7?
en eftir 26. Bf8, 27. Bxf6 - Dd7
hefði skákinni líklega lokið með*-
jafiitefli. Þröstur finnur nú fallega
vinningsleið: 27. Bxf6+ — Hxf6.
Eða 27. - Kh6, 28. Dh3 mát.
28. Hg8+ - Kh6, 29. Dxf6 og
hvítur vann 6 leikjum síðar.
Þröstur fékk sinn fyrsta vinning
í mótinu í þessari skák, en mögu-
leikar Karls til að vinna mótið
minnkuðu mikið.