Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 59

Morgunblaðið - 30.09.1986, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1986 59 Hugsaðu málið betur, framhaldsskólanemi Lokaorð útvarpshlutanda Útvarpshlustandi skrifar: Það gleður mig að „framhalds- skólanemi" hafði gaman af vinsam- legum leiðbendingum mínum varðandi svar hans við bréfstúfí mínum. Sérstaklega gleður það mig að hann tekur sumar ábendingamar til greina og segir sig hafa lært eitthvað af þessum orðaskiptum okkar. Hann hefur t.d. fallist á það, að deilan snúist um „hlutverk ríkisins og hvort það eigi að reka útvarpsstöðvar með gróðasjónarmið í huga eða menningarleg". Því miður verður honum enn á ný hált á ísnum í röksemdarfærslu sinni. Annarsvegar segir hann að rás 2 eigi að lúta markaðslögmálum en er síðan eins og fyrr andvígur því að rásin verði færð úr ríkiseign út á almennan markað þar sem hún yrði hlutafélagjafnvel í eigu starfs- fólks rásar 2. Það er leiðinlegt að þurfa enn á ný að spyija sömu spumingar og í síðasta bréfí til nemans: Hvaða rök em fyrir því að rás þessi sé í ríkiseign ef við erum sammála um að hún eigi að lúta markaðslögmálum? Það getur ekki verið markmið í Þessir hringdu .. . Omaklega veist að Hjálp- arstofnun kirkjunnar Kona á Norðurlandi hringdi: Mér finnst ómaklegt að veitast svona að Hjálparstofnun kirkj- unnar þó að þeir geti ekki gefíð upp hámákvæmt bókhald. Þeir hafa stutt dyggilega við bakið á fátækum hérlendis og persónu- lega veit ég um tvö dæmi þar sem Hjálparstofnunin hefur séð um að greiða fyrir jarðarfarir. Ég er þakklát Hjálparstofnun kirkjunn- ar fyrir það. Af hveiju eru svona menn ekki vanaðir? Læknisdóttir hafði samband: Yelvakandi! Ég vil fyrst þakka Svölu Thorlacius, lögmanni, fyrir grein hennar um kynferðisafbrot. Það var komin tími til þess að einhver hefði orð á þessu. Eftir lestur þessarar óhugnanlegu lýsingar á misnotkun á bömum er ljóst að hér verður að taka alvarlega á málum. N.N. sem getið er í greininni varð fyrir kynferðislegri áreitni sem bam og leitar sjálfur á böm. Heyrt hef ég fleiri dæmi um slíkt. Hvers vegna em svona menn ekki vanaðir eftir ítrekuð, eða jafnvel fyrsta, nauðgunarbrotið? Þeir mundu missa löngun til kynmaka, sem væri gott fyrir þá sjálfa, að mínu mati lausn, þvi það skal engin segja mér að þeim Iíði vel eftir atburðina. Er ekki réttlætanlegra að vana menn fyrir kynferðisafbrot heldur en að sálarheill margra bama sé stefnt í hættu og leiði jafnvel til þess að þau lendi f sömu aðstöðu sem fullorðin Takk Svala Thorlacius Margreí hringdi: Ég vil þakka Svölu Thorlacius fyrir grein hennar í Morgunblað- inu s.l. fostudag. Það verður fróðlegt að fá að fylgjast með framgangi málsins. Reykskynjarar Vegna fyrirspumar um hvar hægt væri að kaupa reykskynjara hafa nokkrir aðilar haft samband við Velvakanda og viljað koma þvf á framfæri að hjá þeim fengust reykskynjarar. Þeir fást t.d. í búð- um BYKO, bæði í Kópavogi og Hafnarfírði, hjá Eldvömum sf. í Hafnarfirði og Hagkaup, Skeif- unni, í Reykjavík. Rallakstur á Fífu- hvammsvegi Maria hringdi: Ég hef oft furðað mig á því hversu margir keyra greitt á Fífú- hvammsveginum í Kópavogi. Sérstaklega á þetta við ökumenn stærri bifreiða s.s. vörubíla. Það em engar gangstéttir við götuna og bflum oft lagt við götukantinn. Þetta skapar enn meiri hættu þar sem bömin neyðast, af þessum sökum, í mörgum tilvikum til að ganga á götunni sjálfri. Það keyrði þó um þverbak s.l. fimmtu- dag þegar rallökumenn voru ræstir þama í grenndinni og keyrðu síðan Fífuhvammsveginn á fullum hraða. Það kemur manni nokkuð furðulega fyrir sjónir að leyfí skuli vera gefíð fyrir rall- askstri í íbúðargötu og ekki einu sinni haft fyrir því að vara íbúana við Ranghermi Jón Gunnar hringdí: Ég held að það sé alveg ljóst, að engin úr Procul Hamm samdi lagið Whiter Shade of Pale, því það líkist mjög Bach-yerki. Það er svítu nr. 3, „Air“. En sjálfsagt er það rétt hjá Halldóri að þeir Booker og Reed séu skráðir fyrir þjófnaðinum. Leikrit Solzhenitsyns 0348-3940 hringdi: Hvers vegna biður Þjóðviljinn ekki um að leikrit Solzhenitsyns verði sýnd hér? Er það af því að Þjóðviljinn hefur sama listasmekk og listaakademfan í Sovét? Það var þá smekkur. Frakki tekinn í misgripum Ágúst hringdi. Frakkinn minn var tekinn í mis- gripum í móttöku Röntgendeildar Landspftalans 29/9. Þetta er nýleg- ur frakki og vil ég biðja þann sem var þama á ferð vinsamlega að hafa samband við Ágúst Ottó Jóns- son í síma 50594. sjálfu sér að hún sé ríkisfyrirtæki. Það hefur alltof oft sýnt sig að ríkis- fyrirtæki verða ekki gjaldþrota þó að reksturinn beri sig ekki. Ef nem- inn vill vera trúr þeirri sannfæringu sinni að rás 2 eigi að fara á haus- inn ef hún verður halloka í sam- keppninni hvevmig í ósköpunum getur hann samtfmis barist gegn því að hún verði tekin úr ríkiseign? Þetta er svo mikil þversögn að það tekur ekki nokkru tali. Það sýndi sig í síðasta bréfí að þú vilt hafa það sem sannara reynist svo ég bið þig um að íhuga þetta aðeins. Ríkisrekstur er í eðli sínu öðruví- si en einkarekstur. Ríkisfyrirtæki lúta ekki sömu lögmálum og einka- fyrirtæki, og ef þau gerðu það væru ekki lengur nein rök fyrir því að þau væru ríkisfyrirtæki. Ekki satt? Þetta er hlutur sem þú getur sannreynt með því að líta á þróun- ina á Vesturlöndum, en það er einn af fáum heimshlutum þar sem þessi rekstrarform fínr.ast hlið við hlið. Hvaða ríkisfyrirtæki, hvar sem er, hefur farið á hausinn ef reksturinn bar sig ekki? Ég bið bara um eitt dæmi en held að það verði vand- fundið. Aftur á móti em dæmin um hið gagnstæða óteljandi. Og hverjir eru það sem borga brúsann? Jú, við skattgreiðendumir að sjálfsögðu. Og það er einmitt þetta sem ég er hræddur um að muni gerast ef rás 2 stenst ekki samkeppnina, sem er nokkur hætta á að hún geri ekki. Ég, eins og þú, hef engan áhuga á að mínir skattpeningar fari í að greiða taprekstur stöðvar sem ég hlusta aldrei á. Ástæðan fyrir því að ég er svona svartsýnn á framtíð rásar 2 er ein- mitt sú staðreynd að það er ríkis- fyrirtæki. Reynslan hefur sýnt okkur að þau eru ekki nema í und- antekningartilfellum rekin með sömu hagkvæmnissjónarmið í huga og einkafyrirtæki. Rás 2 er gott dæmi þar um, húsnæði rásarinnar er líklega einhver veglegasti minni- svarði um sóun á almannafé sem fyrirfinnst hér á landi og munum líka, að þegar hún var sett á lag- gimar var talið að hún hefði kostað þrefalt á við það sem „venjuleg" útvarpsstöð ( eins og t.d. Bylgjan) mundi kosta, og þá var dreifíkerfið ekki talið með. Nei, það yrði líklega öllum til góðs, hlustendum, skattgreiðendum og ekki síst rás 2, að hún yrði tek- in úr ríkiseign enda tilveruréttur hennar sem ríkisfyrirtæki brostin sama dag og fyrsta einkastöðin tók til starfa. Látum ríkisútvarpið ein- beita sér að rás 1 og því hlutverki sem hún á að gegna en látum mark- aðinn sjá um dægurflugumar. Að lokum vil ég þakka fram- haldsskólanema fyrir að sýna þessum málum áhuga og vona að hann sé ekki það mikill áhugamað- ur um ríkisrekstur án tilgangs að hann sjái ekki að sér. VÍSAVIKUNNAR Með Halldóri og Palla P. er pirringur á sveimi. Flokks í dilkinn dregst ei fé og Denni er úti í heimi, Denni er með hugann úti I heimi. Hákur rJ límtré sparar fyrir þig 1T Límtré íEyrirliggjandi úr furu, eik og brenni. Tilvalið efhi fyrir þig til að smíða úr sjálfum þér til ánægju - og svo sparar þú stórfé um leið! Hringdu í síma 621566 og vid veitum Sovéskir dagar 1986 með þátttöku listafólks frá Sovétlýð- veldinu Úzbekistan Nokkur dagskráratriði: Föstudagur 3. okt. Laugardagur 4. okt. Sunnudagur S. okt. Mánudagur 6. okt. Þriðjudagur 7. okt. Fimmtudagur 8. okt. Föstudagur 9. okt. Laugardagur 10. okt. Kl. 20.30: Opnuö svartlistarsýning í MÍR-húsinu, Vatnsstíg 10. Kl. 14: Opnuö sýning á listmunum frá Úzbekistan aö Kjarvalsstöðum. Kl. 16: Opiö hús aö Vatnsstíg 10, fyrirlestrar, kvikmyndasýning, kaffiveitingar. Kl. 14: Tónleikar og danssýning Söng- og þjóö- dansaflokksins „Lazgí“ í Þjóðleikhúsinu. Miöa- saia í leikhúsinu. Tónleikar og danssýning á ísafiröi. Tónleikarog danssýning i Bolun garvik. Kl. 20.30: Fyrirlestur dr. Einars Siggeirssonar að Vatnsstíg 10. Efni: „Vísindaleg og atvinnuleg áhrif, ættuö frá Úzbekistan, á fslenskar fram- farir“. Kl. 20.30: Tónleikar og danssýning aö Hlógaröi, Mosfellssveit. Kl. 15: Tónleikar og danssýning i félagsheimilinu Gunnarshólma, Austur-Landeyjum. MÍR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.