Morgunblaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.12.1986, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 286. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986 Prentsmiðja MorgTinblaðsins Reagan forseti í skurðaðgerð Washington, AP. RONALD REAGAN Bandaríkja- forseti mun í næsta mánuði gangast undir blöðruhálskirtils- aðgerð, að því er talsmaður hans, Larry Speakes, sagði í gær.Reag- an gekkst undir sambærilega aðgerð árið 1967. Á síðasta ári var krabbameins- æxli fjarlægt úr ristli forsetans og kvaðst Larry Speakes ekki vita til þess að aðgerðin í janúar stæði í neinu sambandi við það. Hins vegar kvaðst hann gera ráð fyrir að Reag- an myndi fara í krabbameinsskoð- un. Reagan mun síðast hafa farið í læknisskoðun í ágústmánuði og reyndist þá allt vera með felldu. Forsetinn mun dveljast í þrjá til fjóra daga í sjúkrahúsi en sjálf að- gerðin mun tæpast taka lengri tíma en 30 til 40 mínútur. Að sögn lækna mun Reagan þurfa að hafa hægt Ronald Reagan um sig í tæpan mánuð eftir aðgerð- Sovétríkin - Albanía: Dregur úr 25 ára óvináttu? Frakkland: Skattur gegn skógareldum París, Reuter. YFIRVÖLD í Frakldandi hafa ákveðið að leggja sérstakan skatt á eldspýtur og kveikjara og verð- ur féð notað í baráttunni við skógarelda, sem árlega valda stórtjóni í suðurhluta landsins. Skatturinn verður um 13 aurar ísl. á hvern stokk en tvær krónur á kveikjara. Jacques Chirac, forsæt- isráðherra, segir, að með þessum hætti muni innheimtast 50 millj. franka, 308 millj. ísl. kr. Skógareldar valda miklum skaða í Suður-Frakklandi á hveiju sumri og sl. sumar geisuðu þeir mestu í 20 ár. Moskvu, Reuter, AP. HAFT var eftir áreiðanlegum heimildum í Moskvu í gær, að fyrir dyrum stæði tímamótafundur milli forystumanna albanskra kommún- ista og háttsettra sovézkra ráðamanna og að framundan væru jafnvel þáttaskil i samskiptum Sovétríkjanna og Albaníu. Þessi fundur á að fara fram í Hanoi, þar sem þing kommúnista- flokks Víetnams stendur yfír. Albanía og Sovétríkin hafa ekki haft neitt stjórnmálasamband sín í milli frá árinu 1961 eða í um 25 ár, en bæði hafa þau sent sendi- nefndir á flokksþingið í Víetnam nú. Yegor Ligachev, einn helzti hug- myndafræðingurinn í Kreml, er fyrir sovézku sendinefndinni, en formaður albönsku sendinefndar- innar er Xhemal Dymylia, einn mesti áhrifamaðurinn í miðstjóm albanska kommúnistaflokksins. Ekki er lengra síðan en á flokks- þingi albanskra kommúnista í Tirana í síðasta mánuði, að leiðtogi flokksins, Ramiz Alia, lýsti því yfír, að engin tengsl yrðu tekin upp við sovézka kommúnista svó lengi sem þeir héldu fast við „endurskoðunar- stefnu" sína. Þrátt fyrir þessi afdráttarlausu ummæli, hefur verið talið, að alb- anska stjómin hyggi á einhverja stefnubreytingu. Eftir dauða En- vers Hoxha, leiðtoga albanskra kommúnista, sem var staðfastur aðdáandi Jósefs Stalíns, hefur alb- anska stjórnin gripið til varfæmis- legra rýmkunaraðgerða í samskipt- unum við önnur lönd. Pravda, málgagn sovézka kommúnista- flokksins, sagði í síðasta mánuði, að óvinátta sú, sem einkennt hefði sambúð Albaníu og Sovétríkjanna í aldaifyórðung, væri mjög óeðlileg. Léttist um 193 kg Fyrir einu ári var Ron High 386 kg að þyngd, en hefur síðan létzt um 193 kg. Þó að hann sé því helmingi léttari nú, þá er ekki hægt að segja, áð hann sé þvengmjór þar sem hann vegur enn 193 kg. En breytingin er samt umtalsverð. Sem dæmi má nefna, að mittismál hans hefur minnkað um 86 cm og hálsmál- ið um 15 cm. Það var í desember í fyrra, sem High ákvað að fara á heilsuhæli á Bahama-eyjum til að grenna sig. Mynd þessi var svo tekin af honum nú i vikunni, er hann sneri aftur heim til New York. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings: Fimmtán manna þingnefnd á að rannsaka vopnasöluna Bretland: Þreföld ígræðsla Skiptu um hjarta, lifur og lungu í 35 ára gamalli konu Huntingdon, Englandi. AP. BRESKIR skurðlæknar fram- kvæmdu í gær þrefalda Iíffæraígræðslu, hina fyrstu í heiminum, er þeir skiptu um hjarta, lifur og lungu í 35 ára gamalli konu. Konunni, sem er frá Norður- Englandi, leið eftir atvikum vel eftir aðgerðina, en hún var sjö tíma á skurðarborðinu. Washington, Reuter, AP. FULLTRÚADEILD Bandaríkja- þings kaus í gær 15 manna þingnefnd til að rannsaka vopna- söluna til Irans. A nefndin, sem í eru er 9 demókratar og 6 repú- Tíu mikilvægristu fréttaefni ársins: Chemobyl-slysið í fyrsta sæti - Leiðtogafundurinn í Reykjavík númer tvö New York. AP. MESTA kjarnorkuslys sögunn- ar lenti í efsta sæti í skoðana- könnun, sem AP-fréttastofan gerði nýlega meðal fréttastofn- ana um heim allan, en spurt var, hvaða tíu fréttaefni þær teldu mikilvægust á árinu 1986. Númer tvö kom leiðtogafund- urinn, sem haldinn var í Reykjavík 10.—12. október. Kjamorkuslysið í Chemobyl í Sovétríkjunum 26. apríl sl. hlaut langflest stig, eða 953, og lenti í fyrsta sæti hjá 53 af 113 frétta- stofnunum — blöðum, útvarps- og sjónvarpsstöðvum og fréttarit- urum í 45 löndum í Evrópu, Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku, Ind- landi og Miðausturlöndum. Að öðru leyti var röð fréttaefn- anna þessi: 3) Challenger-slysið í Bandaríkjunum; 4) Stjómar- skiptin á Filippseyjum; 5) Vopna- sala Bandaríkjamanna til írans; 6) Árás Bandaríkjamanna á Líbýu; 7) Hryðjuverkastarfsemi; 8) Óeirðir í Suður-Afríku vegna aðskilnaðarstefnunnar og refsiað- gerðirnar; 9) Alnæmi; 10) OPEC og olíuverðslækkunin. blikanar, að hefja störf strax og þingið kemur aftur saman 6. jan- úar nk. Öldungadeildin kaus sams konar þingnefnd á þriðju- dag og eru í henni 11 menn. Talið er ólíklegt, að Bandaríkja- þing muni fallast á þau tilmæli Reagans forseta að veita tveimur fyrrverandi starfsmönnum Hvíta hússins, þeim John Poindexter og Oliver North, takmarkaða friðhelgi gegn því að þeir segi allt af létta um vopnasölumálið. I gær hafnaði leyniþjónustunefnd öldungadeildar- innar þessum tilmælum og leiðtogar demókrata og repúblikana í deild- inni tóku báðir undir andstöðu nefndarinnar. Larry Speakes, talsmaður Hvíta hússins, kvað Reagan forseta mjög óánægðan með þessi viðbrögð þingsins. „Markmið forsetans er að fá þá Poindexter og North til að segja allt, sem þeir vita, svo að unnt sé að ljúka málinu í eitt skipti fyrir öll og halda áfram öðrum stjórnarstörfum,“ sagði Speakes. Alls konar sögur voru á kreiki í tengslum við vopnasölumálið í gær. Þannig hélt blaðið Los Angeles Times því fram, að Oliver North hefði á sínum tíma gefið fyrirmæli um að ræna ættingjum háttsettra embættismanna í íran til að skipta á þeim og bandarískum gíslum í Líbanon. Speakes staðfesti, að North hefði eitt sinn skýrt vinnufélögum sínum frá þessu, en sagði jafnframt, að efnislega væri enginn fótur fyrir þessu og slík fyrirmæli hefðu aldrei verið gefín í reynd. Þá fullyrti blað eitt í Tel Aviv, að enn væri ekki vitað, hvað orðið hefði um allt það fé, sem fékkst fyrir vopnasöluna til írans og átti að hafa runnið til skæruliða í Nic- aragua. í gærkvöldi tilkynnti stjóm sandinista í Nicaragua, að Daniel Ortega forseti hefði óskað þess, að Bandaríkjamaðurinn Eugene Has- enfus yrði náðaður. Hann var á sínum tíma dæmdur í 30 ára fang- elsi fyrir að flytja vopn til skæruliða í Nicaragua.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.