Morgunblaðið - 18.12.1986, Side 6

Morgunblaðið - 18.12.1986, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986 Múrsteinar Síðastliðinn sunnudag birtist í Velvakanda bréf er bar yfir- skriftina: Opnið þessa eilífu þögn heymarskertra. Bréfið hefst á þess- um orðum: Kæru hrafnaklukkur sjónvarpsins. Mig langar til að tala til ykkar nokkur orð, benda með þeim á leið, er gæti orðið ykkur og lág- kúrulegri fomeskju þjóðarinnar til upphefðar ef þið sjálfír viljið svo vera láta. Textið allt íslenskt efni, bundið og óbundið í sjónvarpinu, opnið þessa eilífu þögn heymarskertra, sem annars ekkert kærleiksorð fær rofið. Hugleiðum orð bréfritara. Er vinn- andi vegur að texta þætti sem sendir eru út beint? En góðu heilli hefur hinum beinu útsendingum fjölgað mjög i stjómartíð Hrafns Gunnlaugs- sonar og félaga en þar skiptir náttúrlega miklu hinn nýi sjón- varpsbíll. Ég efast stórlega um að það sé mögulegt að texta slíka þætti nema þau atriði sem leikin eru af myndbandi. Persónulega er ég þeirrar skoðunar að hér sé verk að vinna handa Útvarpsráði og að það verði að leita allra ráða til að koma til móts við heymarskerta svo þeir fái notið sjónvarpsdagskrár til jafns við aðra afnotagjaldendur. Hvemig væri til dæmis að skjóta inn táknmáli í eitt skjáhomið eins og gert var þá saga Sigrúnar Eldjám af honum Kuggi var lesin í Stundinni okkar á sínum tíma. Dettur mér í hug hvort ekki mætti ráða Sigurð Skúlason leik- ara til þessa starfa en hann hefir náð mikilli leikni í beitingu táknmáls. Já, svo sannarlega veltir oft lítil þúfa stóru hlassi, einkum þegar í hlut eiga þeir einstaklingar er af ein- hveijum orsökum búa ekki við líkamlegt eða andlegt jafnræði í sam- félaginu. í fyrradag var ég staddur á ónefndri læknabiðstofu á þriðju hæð í öldnu húsi hér í bæ. Kona í hjóla- stól var nýkomin út frá lækninum. Hún fékk lánaðan síma og heyrðist mér hún hringja í ferðaþjónustu fatl- aðra. Líður nú og bíður, þá birtast tveir fílefldir lögregluþjónar. Ég hrökk satt að segja í kút en lögreglu- þjónamir voru hinir alúðlegustu og hjálpuðu konunni út af biðstofunni niður á neðstu hæðina þar sem pen- ingastofnanimar brosa til vegfar- enda. Ég veit til þess að lögreglan vinnur mikið og gott verk við að flytja fatlað fólk um öngstræti borgar vorrar en er við hæfi að fatlað fólk þurfi að ferðast hér í lögreglubílum? Væri ekki nær að ríki og borg gerðu samning við sendi-, greiða- og leigu- bílastöðvar borgarinnar um flutning á fotluðu fólki. Hinir fötluðu fengju sérstök skírteini líkt og „stjóramir" hjá ríki og borg er senda hér leigu- bíla um allar trissur með „áríðandi" skýrslur og bréf er náttúrlega mega ekki bíða andartak. Fatlaðar mann- verur mega hins vegar bíða eftir því að vera sóttar af löggæslumönnum eða ef svo vill verkast hinum ágætu starfsmönnum hinna örfáu sérhönn- uðu flutningabíla samtaka fatlaðra. Á tyllidögum er mikið rætt um nauðsyn þess að fatlaðir geti lifað sem eðlilegustu lífi en svo verða þeir að sætta sig við að aka um í sérmerkt- um bflum eða lögreglubflum. Er ekki sjálfsagt mál að hinir fötluðu eigi þess kost að ferðast líkt og aðrir borgarar lands vors í venjulegum bif- reiðum? Og nú er ég loksins kominn að kjama málsins, hugmynd er sló niður í kollinn þá ég horfði á konuna hjálparlausa á þriðju hæðinni að bíða eftir löggunni. Hvemig væri að klípa nokkra aura af þeim þunga sjóði er á að fleyta íslendingum til frægðar í sönglagakeppni Evrópusjónvarps- stöðvanna og nota þá til að skoða lífsaðstæður þeirra sem svo oft gleymast á voru kalda landi. Það er ekki nóg að gert að hlaupa með myndavélina upp og niður nokkrar tröppur. Einskis má láta ófreistað að ijúfa einangrun hinna fötluðu og þar geta fjölmiðlamir svo sannarlega hjálpað til við brúarsmíðina. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP/ SJÓNVARP Stöð tvö: Guðfaðirinn II ■■■■■ í kvöld verður 00 35 seinni mynd Francis Fords Coppola um Guðföður Cor- leone fjölskyldunnar. Michael Corleone hefur tryggt sér völd innan fjöl- skyldunnar og utan með því að fjarlægja flesta þá er stóðu í vegi fyrir honum, eftir að faðir hans lést. Hann heldur þeim áhrif- um þó ekki erfíðislaust og fljótlega kemur í ljós að hann á enn óvini, sem einskis svífast. Á hátindi valda sinna lifír hann naumlega af banatilræði og verður honum þá ljóst að baráttunni mun aldrei ljúka. Hefst þá mikil, löng og blóði drifin leit að þeim sem stóðu að baki árá- sinni. Verður Michael æ blóðþyrstari og hikar ekki við að láta koma vinum og ættingjum fyrir kattamef gruni hann þá um græsku. Þá em sýndir kaflar úr uppvexti Vito Corleone í New York og hvað varð til þess að hann leiddist á glapstigu glæpastarfsem- Með helstu hlutverk fara A1 Pacino, Robert De Niro, Diane Keaton og Robert Duvall. Þessi mynd, sem alls ekki er við hæfi bama, fékk alls sex Óskarsverð- laun árið 1974. Agústa Ágústsdóttir, sópransöngkona. Rás 1: Fimmtudags- leikrit og einsöngur ■■ Á dagskrá Rás- 90 oo ar eitt í kvöld er bæði fimmtu- dagsleikrit útvarpsins venju samkvæmt og ein- söngur í útvarpssal. Klukkan átta verður gamanleikritið „Flýgur fiskisagan" eftir Philip Johnson, í þýðingu Ingólfs Pámasonar endurflutt. Leikstjóri er Baldvin Hall- dórsson. Alfred Booker, bæjar- stjóri á austurströnd Englands, er önnum kafinn við undirbúning minning- arhátíðar um sjómanninn Jónas Pratt, en sá lést í fjarlægu landi til þess að bjarga heiðri þjóðfánans. Hátíðina hyggst bæjar- stjóri nota bænum til framdráttar, en margt fer öðravísi en ætlað er. Að leikritinu loknu verð- ur einsöngur í útvarpssal. Ágústa Ágústsdóttir sópr- ansöngkona syngur lög eftir Johannes Brahms og Jean Sibelius. David Know- les leikur undir á píanó. UTVARP FIMMTUDAGUR 18. desember 6.45 Veðurfregnir. Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin — Páll Benediktsson, Jón Baldvin Halldórsson og Lára Marteinsdóttir. Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og veöurfregnir kl. 8.15. Til- kynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. 7.20 Daglegt mál. Guðmund- ur Sæmundsson flytur þáttinn. 9.00 Fréttir. 9.03 Jólaalmanakiö. „Brúðan hans Borgþórs", saga fyrir börn á öllum aldri. Jónas Jónasson les sögu sína (14). Jólastúlkan, sem flettir al- manakinu, er Sigurlaug M. Jónasdóttir. 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. 9.35 Lesið úrforustugreinum dagblaðanna. ■ 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir 10.10 Veðurfregnir 10.30 Ég man þá tíð. Her- mann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Kvikmyndasöngleikir. Fimmti þáttur. Umsjón: Árni Blandon 12.00 Dagskrá. Tilkynn- ingar. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 f dagsins önn — Efri árin. Umsjón: Anna G. Magnúsdóttir og Guðjón S. Brjánsson. 14.00 Miödegissagan: „Graf- skrift hins gleymda'' eftir Jón Þorleifsson. Þorvarður Helgason les (3). 14.30 í textasmiðju Jóns Sig- urðssonar. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Frá svæðisútvarpi Reykjavíkur og nágrennis. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvajfjiþ. Stjórn- andi: Sigurlaug M. Jónas- dóttir. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónskáldatími. Leifur Þórarinsson kynnir. 17.40 Torgið — Menningar- mál. Umsjón: Óðinn Jóns- son. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.40 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá morgni sem Guömundur Sæmundsson flytur. 19.46 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni. 20.00 Leikrit: „Flýgur fiskisag- an'' eftir Philip Johnson. Þýðandi: Ingólfur Pálma- son. Leikstjóri: Baldvin Halldórsson. Leikendur: Þorsteinn Ö. Stephensen, Helga Valtýsdóttir, Bryndís Pétursdóttir, Valur Gisla- son, Guðrún Þ. Stephensen og Þóra Friðriksdóttir. (Áður útvarpaö i janúar 1964.) 21.00 Einsöngur í úvarpssal. SJÓNVARP áJt. FOSTUDAGUR 19. desember 17.30 Á döfinni Jólabækur kynntar. 18.00 Litlu Prúðuleikararnir (Muppet Babies). 22. þáttur. Teiknimyndaflokkur eftir Jim Henson. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 18.25 Stundin okkar Endursýndur þáttur frá 14. desember. 18.55 Skjáaugiýsingar og dag- skrá 19.00 Á döfinni 19.10 Þingsjá Umsjónarmaöur Ólafur Sig- urösson. 19.30 Spítalalif (M*A*S*H). Ellefti þáttur. Bandarískur gamanmynda- flokkur sem gerist á neyðar- sjúkrastöð bandaríska hersins í Kóreustríðinu. Að- alhlutverk: Alan Alda. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 19.26 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar 20.40 Unglingarnir í frumskóg- inum Þáttur um ungt fólk og áhugamál þess, svo sem svifflug, myndlist og kvik- myndagerð. Umsjónarmað- ur Sigurður Jónsson. 21.25 Sá gamli (Der Alte). 27. Áhugaljós- myndarinn. Þýskur sakamálamynda- flokkur. Aðalhlutverk Sieg- fried Lowitz. Þýðandi Þórhallur Eyþórsson. 22.30 Kastljós Þáttur um innlend málefni. 23.00 Seinni fréttir 23.10 Loftskipiö Hindenburg Bandarísk bíómynd frá 1975. Leikstjóri Robert Wise. Leikendur: George C. Scott, Anne Bancroft, Burgess Meredith, William Atherton, Roy Thinnes, Gig Voung, Charles Durning, Katherine Helmond og fleiri. Eitt minnisstæðasta stór- slys í sögu flugsins varð þegar þýska loftfariö Hind- enþurg fórst við lendingu i Bandaríkjunum árið 1937. I myndinni er fylgst með hinstu feröinni yfir Atlants- hafið og óhappið rakið til spellvirkja. Þýðandi Örn Ólafsson. 01.20 Dagskrárlok. 5TÖDTVÖ FIMMTUDAGUR 18. desember 17.00 Myndrokk. Sunnudags- bíó. Sýnt er úr nýjustu kvikmyndum og myndrokki við myndirnar.Stjórnandi er Súní. 17.55 Teiknimynd. Fyrstu jólin hans Jóga. 18.20 Knattspyrnæ Umsjónar- maður er Heimir Karlsson. 19.30 Fréttir. 19.55 Ljósbrot. Kynntir eru ýmsir dagskrárliðir á Stöð tvö ásamt því að stiklaö er á því sem er aö gerast í menningu og listum. Um- sjónarmaður er Valgeröur Matthíasdóttir. 20.10 Bjargvætturin (Equaliz- er). Draumaferðin til New York breytist i martröð þeg- ar Griffith-hjónin uppgötva hvarf dóttur sinnar. f ör- væntingu sinni hafa þau upp á McCall. 20.55 Slæmt minni (Re- membrance). Bresk sjón- varpskvikmynd með John Altman, Martin Barrass, David John og Peter Lee Wilson í aðalhlutverkum. Hópur ungra sjóliða úr breska sjóhernum eru að njóta siðasta dagsins i landi áður en haldiö er á sjó í sex mánaða siglingu. Óþekktur maöur verður fyrir því að hann lendir í útistöðum við útkastara eins af nætur- klúbbunum sem endar með því að maöurinn missir meðvitund. Enginn veit nein deili á manninum, en einn af sjóliðunum er staðráðinn í því að komast að því hver þessi maöur raunverulega er. 22.35 Guðfaöirinn II (Godfath- er II). Bandarísk kvikmynd frá 1974 með Al Pacino, Robert De Niro, Robert Duv- all, Diane Keaton, o.fl. í aðalhlutverkum. Myndin hefst þar sem fyrri myndin endar. Michael Corleone (Pacino) hefur tryggt sér þau völd sem faðir hans eftirlét honum. 01.45 Dagskrárlok. Ágústa Ágústsdóttir syngur lög eftir Johannes Brahms og Jean Sibelius. David Knoles leikur með á píanó. 21.25 Lestur úr nýjum barna- og unglingabókum. Um- sjón: Gunnvör Braga. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 „Hestar úr öðrum heimi", smásaga eftir Karen Blixen. Halldóra Jónsdóttir les þýðingu sína. 23.00 Túlkun í tónlist. Rögn- valdur Sigurjónsson sér um þáttinn. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. FIMMTUDAGUR 18. desember 9.00 Morgunþáttur I umsjá Kristjáns Sigurjónssonar og Siguröar Þórs Salvarssonar. Meðal efnis: Barnadagbók í umsjá Guðríðar Haralds- dóttur að loknum fréttum kl. 10.00, tónleikar helgar- innar, Matarhornið, tvennir tímar á vinsældalistanum og fjölmiðlarabb. 12.00 Hádegisútvarp með fréttum og léttri tónlist i umsjá Margrétar Blöndal. 13.00 Hingað og þangað um dægurheima með Inger Önnu Aikman. 15.00 Sólarmegin. Tómas Gunnarsson kynnir soul og fönktónlist. (Frá Akureyri) 16.00 Tilbrigði. Þáttur í umsjá Hönnu G. Siguröardóttur. 17.00 Hitt og þetta. Stjórn- andi: Andrea Guðmunds- dóttir. 989 mnmmi FIMMTUDAGUR 18. desember 07.00—09.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni. Létt tónlist með morgunkaffinu. Siguröur lítur yfir blöðin og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00 og 9.00. 09.00—12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Palli leikur uppáhaldslögin ykkar, gömul og ný. Tapaö fundið, opin lína, mataruppskrift og sitthvað fleira. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00—14.00 Á hádegismark- aði með Jóhönnu Haröar- dóttur. Fréttapakkinn, Jóhanna og fréttamenn Bylgjunnar fylgjast með því sem helst er í fréttum, segja frá og spjalla viö fólk. Flóamarkaöurinn er á dag- skrá eftir kl. 13.00. 18.00 Hlé. 20.00 Vinsældalisti rásar tvö. Gunnlaugur Helgason kynn- ir tíu vinsælustu lög vikunn- ar. 21.00 Gestagangur hjá Ragn- heiöi Davíðsdóttur. 22.00 Rökkurtónar. Stjórn- andi: Svavar Gests. 23.00 Jóladansleikur. Bein út- sending frá veitingahúsinu Evrópu þar sem margir kunnustu rokk- og dægur- lagasöngvarar landsins koma fram. Kynnir: Ásgeir Tómasson. 24.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 12.20, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVARP AKUREYRI SVÆÐISÚTVARP VIRKA DAGA VIKUNNAR 17.30- 18.30 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni - FM 90,1. 18.00-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni - FM 96,5. Má ég spyrja? Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugs- son. M.a. er leitaö svara við spurningum hlustenda og efnt til markaðar á Markaðs- torgi svæðisútvarpsins. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00—17.00 Pétur Steinn á róttri bylgjulengd. Péturspil- ar siðdegispoppið og spjall- ar við hlustendur og tónlistarmenn. Tónlistar- gagnrýnendur segja álit sitt á nýútkomnum plötum. Fréttir kl. 15.00, 16.00 og 17.00. 17.00-19.00 Hallgrimur Thorsteinsson í Reykjavík síðdegis. Þægileg tónlist hjá Hallgrími, hann lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólk ið sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00. 19.00—20.00 Tónlist með léttum.takti. 20.00—21.30 Jónína Leós dóttir á fimmtudegi. Jónína tekur á móti kaffigestum og spilar tónlist að þeirra smekk. 21.30— 23.00 Spurningaleikur Bylgjunnar. Bjarni O. Guð- mundsson stýrir verðlauna- getraun um popptónlist. 23.00—24.00 Vökulok. Frétta- tengt efni og þægileg tónlist í umsjá fréttmanna Bylgj- unnar. 24.00—07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist og upp- lýsingar um veður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.