Morgunblaðið - 18.12.1986, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986
19
Phyllis A. Whitney Joy Fielding
BLEKKINGAVEFUR HIN KONAN
Ung stúlka, dóttir frægs rithöfundar, er boðuð á fund föður síns sem
hún hefur ekki séð síðan hún var barn. Hún afræður að fara og kynnist
hálfsystrum sínum, sem höfðu ekki hugmynd um að hún væri til. En
óvæntir atburðir gerast sem ráða örlögum hennar. Dularfull, rómantísk
og spennandi frásögn.
Magnea Matthíasdóttir þýddi.
,,Ég ætla að giftast manninum þínum.“ Jill leit agndofa á ungu konuna
andspænis sér. Hún var minnst áratug yngri en hún sjálf, falleg — og eld-
klár að auki. Þessi óþægilega staðhæfing bergmálar í huga Jill, — sjálf
hafði hún eitt sinn verið ,,hin konan“ í lífi eiginmannsins! Þetta er saga
um nútímakonuna, skrifuð af ríkum skilningi og innsæi og jafnframt svo
spennandi að erfitt er að leggja hana frá sér.
Anna Ólafsdóttir Björnsson þýddi.
SHEIIA KITZINGER
Mary Stewart
ÁST INNAN MYRKRA MÚRA
PHYLLIS AWHITNEY
BLEKKINGA
VEFUR
Hin unga og nka Christy Mansel er í
skemmtiferð í miðausturlöndum og
heimsækir gamla frænku sína sem sest
hefur að i fornri höll, sem er að hruni
komin. Söguhetjunni finnst eins og hún
sé komin í ævintýraheim þúsund og
einnar nætur. Enn fyrr en varir eru
Christy og maðurinn sem hún ann
fangar hinna myrku múra. Þetta er
spennandi saga um ástir í dulúðugu um-
hverfi Arabalanda.
Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi.
KONAN
fKynreynsla
kvenna7
111
V
BRÆÐRABORGARSTÍG 16 • SÍMl 28555
Leo Buscaglia
AÐ ELSKA HVORT ANNAÐ
Þcssi bók fjallar um ást, væntumþykju, lífsgleði, afbrýðisemi, missætti
og fyrirgefningu. Hún fjallar með öðrum orðum um þá þætti í lífi okkar
sem mestu máli skipta. Höfundurinn, sem er alkunnur fyrir að fjalla um
mannleg samskipti á hlýjan og næman hátt, fjallar hér m. a. um listina
að tala saman, að geta sagt hvort öðru skoðanir sínar og hvernig við finn-
um til. Hann leitar svara við spurningunni hvers vegna mörg okkar fara
hjá sér þegar að því kemur að tjá öðrum ást eða væntumþykju.
Helga Agústsdóttir þýddi.
Sheila Kitzinger
KONAN,KYNREYNSLA KVENNA
Flestar bækur um kynlíf kvenna fjalla um konur, en byggja ekki á
reynslu kvennanna sjálfra. Höfundur bókarinnar KONAN,
KYNREYNSLA KVENNA hefur vísvitandi upprætt þær hugmyndir um
kynlíf og tilfinningar kvenna sem ekki koma heim við beina reynslu
þeirra sjálfra. KONAN, KYNREYNSLA KVENNA er tvímælalaust
athyglisverðasta verk sem út hefur koniið um kynlíf kvenna og reynslu-
heim þeirra.
Álfheiður Kjartansdóttir, Guðsteinn Þengilsson læknir og Áskell
Kárason sálfræðingur þýddu.