Morgunblaðið - 18.12.1986, Qupperneq 30
GOTT FÓLKI SÍA
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986
Jóhann Jónsson
Ljóð og
ritgerðir
eftir Jóhann
Jónsson
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs
hefur gefið út bókina Ljóð og
ritgerðir eftir Jóhann Jónsson
(1896-1932), en Einar Laxness
cand. mag. bjó hana til prentun-
ar. Fremst í bókinni eru þrír
þættir um höfundinn eftir Hall-
dór Laxness og einnig hefur
verið haft samráð við hann um
útgáfuna.
Texti ljóðanna í bók þessari er
að mestu samhljóða útgáfu Heims-
kringlu frá 1952 sem var í umsjón
Halldórs Laxness; það er eina út-
gáfan af kvæðum Jóhanns í
bókarformi þar til nú. í þessari
nýju útgáfu hefur verið aukið ljóð-
inu „Hafið dreymir" sem birtist í
blaðinu „Landinu“ 26. júlí 1918 og
Halldór Laxness vitnar sérstaklega
til í einum þættinum um höfundinn
sem hér er prentaður. Auk þess
hefur á tveimur stöðum verið vikið
við orðum í samræmi við frumtexta
Jóhanns („Vindur um nótt" og
„Haust“); röð ljóðanna hefur lítil-
lega verið hnikað til og efninu
skipað í bókarhluta. Þar sem ekki
er alfarið um endurprentun fyrri
kvæðabókar að ræða, þótti rétt að
hafa annað heiti á þessari bók.
Á kápu Ljóða og ritgerða segir:
„Þessi bók er gefín út í tilefni nítug-
asta afmælisdags höfundar, Jó-
hanns Jónssonar. Hann var fæddur
á Snæfellsnesi 12. september 1896
og lést í Leipzig í Þýskalandi 1.
september 1932. Jóhann tók stúd-
entspróf í Reykjavík 1920. Frá
hausti 1921 stundaði hann háskóla-
nám í Berlín og Leipzig um fjögurra
ára skeið. Hann kom ekki til ís-
lands síðan.
Á skólaárum sínum, hér og ytra,
birti Jóhann kvæði í blöðum og
tímaritum.
„Á Jóhanni Jónssyni höfðu vinir
hans og félagar meiri vonir festar
til skáldskaparafreka en á flestum
mönnum er í þann tíma óxu upp“,
segir vinur hans Halldór Laxness,
en hann ritar um höfundinn í þess-
ari bók. Halldór segir einnig, að
frægasta ljóð Jóhanns, „Söknuð",
megi telja „einn fegursta gimstein
í íslenskum ljóðakveðskap síðustu
áratuga“.“
Ljóð og ritgerðir eru 128 bls. að
stærð. Kápu gerði Margrét E. Lax-
ness, en bókin er unnin í Prent-
smiðju Hafnarfjarðar.
Sé SS merkið á jólasteikinni þinni getur þú verið viss um
gæðin, því allar jólasteikur Sláturfélagsins eru eingöngu
unnar úr nýju, fyrsta flokks hráefni.
SLATURFELAG
SUÐURLANDS
TJöfóar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!