Morgunblaðið - 18.12.1986, Page 46
Bylgjan sækir um
leyfi til endur-
varps á Akureyri
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Nauðsyn á útekt á
þróun landbúnaðar
nefndar, sagðist í samtali við
Morgunblaðið búast við að
umsóknin yrði tekin fyrir á
fundi nefndarinnar á föstu-
daginn. Einnig bjóst hann við
að umsókn Bylgjunnar um
aðra rás sunnanlands yrði tek-
in fyrir á fundinum.
Einar Sigurðsson, útvarps-
stjóri Bylgjunnar, sagði í samtali
við Morgunblaðið að ekkert væri
því til fyrirstöðu að útsendingar
hæfust á Akureyri fyrir jólahátí-
ðina ef Útvarpsréttamefnd
tækist að afgreiða málið á næsta
fundi sínum. „Við eigum sendinn
- við þurfum bara að koma honum
upp fyrir norðan." Einar sagði
að fyrst um sinn myndu útsend-
ingar Bylgjunnar fyrir norðan ná
eingöngu til Akureyrar og Eyja-
fjarðarsvæðisins, en hugmyndin
væri síðar að koma upp sterkari
sendi, til dæmis á Vaðlaheiði, sem
næði nærliggjandi byggðum.
„Við erum að stækka markaðs-
svæði Bylgjunnar með þessu og
væntum þess að það skili sér í
auglýsingum.“ Einar vildi ekki
tímasetja hvenær önnur rás sunn-
anlands færi „í loftið", en sagði
að hún yrði með allt öðm sniði
en Bylgjan er í dag og höfðaði
því til annars hlustendahóps.
Togararnir hafa
landað 605 tonnum
HARÐBAKUR landaði 103 tonnum af fiski hjá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa eftir helgina. Aflaverðmæti var samtals 2,7 milljónir króna.
Það sem af er desember hafa togarar félagsins landað samtals 605
tonnum og er samanlagt aflaverðmæti þess 14,8 milljónir króna.
Fyrsta dag desembermánaðar kola, 11 af ýsu og 10 af karfa.
landaði Harðbakur 89 tonnum og
verðmæti þess 2,1 milljón króna.
3. desember landaði Hrímbakur 98
tonnum að verðmæti 2,4 miiljóna,
þann fjórða landaði Kaldbakur 73
tonnum að verðmæti 1,8 milljón og
Svalbakur landaði svo 151 tonni
9. desember. Verðmæti þess afla
var 3,6 milljónir króna. Langmest
af þessum afla var þorskur. Mest
var aflinn blandaður í Svalbak —
hann var með 95 tonn af þorski,
15 tonn af ýsu og annað eins og
11. desember landaði Kaldbakur
55 tonnum að verðmæti 1,3 milljón-
ir króna, Hrímbakur kom með 36
tonn þann 12. að verðmæti 900
þúsund krónur og Harðbakur lan-
daði 103 tonnum í fyrradag eins
og áður sagði.
Að sögn Einars Óskarsson hefur
aflinn að undanförnu verið mjög
góður, sérstaklega í síðustu veiði-
ferðum. Meðalþyngd fisksins hefur
verið 2,5 kíló.
BYLGJAN hefur sótt um leyfi
til að setja upp endursendi á
Akureyri. Kjartan Gunnars-
son, formaður Útvarpsréttar-
Símamynd/Skapti Hallgrímsson
Norsku refirnir teknir úr Flug-
leiðaþotunni á Akureyrarflug-
velli í gær. Ragnar Sverrisson
refabóndi er til vinstri á mynd-
inni.
200 refir komu með Flug-
leiðaþotu til Akureyrar
- fluttir í nýtt refabú á Hyrnu í Skagafirði
TVÖ hundruð refir komu til
Akureyrar í gær með Heimfara,
einni þotu Flugleiða, frá Noregi.
Það er Ragnar Sverrisson, bóndi
á Hyrnu í Lýtingsstaðahreppi í
Skagafirði, sem kaupir refina.
Verðmæti farmsins er tæpar
þijár milljónir króna — og er
þetta verðmætasti refafarmur
sem komið hefur hingað til lands,
að sögn Ragnars.
Refímir eru frá Hamar í Noregi.
Þaðan voru þeir keyrðir til Fornebu
flugvallar í Osló þar sem þeir voru
settir í Flugleiðavélina. Flutninga-
bílar óku síðan með þá í lögreglu-
fylgd áleiðis til Skagafjarðar strax
eftir komuna til Akureyrar.
Refabóndinn, Ragnar Sverrisson,
er 25 ára. Hann stundaði nám í
loðdýrafræðum í 2 ár í Finnlandi
og sagðist titla sig loðdýratækni.
Hann er úr Biskupstungum en sett-
ist að á Hymu síðastliðið vor og
er nú að hefja búskap. Hann er þar
með 1.300 fermetra refahús. Ref-
irnir fara nú í sóttkví í 16 mánuði.
Þeir gjóta fyrst næsta vor og sagð-
ist Ragnar gera sér vonir um að
geta hafið sölu á skinnum strax að
16 mánuðum liðnum. Hann sagðist
ætla að reyna að selja afbrigði á
markað erlendis, en litaafbrigði á
hluta refanna sem komu í gær hafa
ekki verið til áður í landinu. Hann
nefndi Pearl, Fire and Ice, Glaeser
blátt og Pólar.
Einn rebbinn kíkir út úr búri sínu.
Ólafur Ásgeirsson yfirlögreglu-
þjónn á Akureyri stendur á vakt
við refavélina, með haglabyssu
undir hendinni, við öllu búinn ef
einhver skyldi sleppa.
STJÓRN Fjórðungssambands Norðlendinga samþykkti á fundi sinum
síðastliðinn föstudag ályktun vegna samdráttar i landbúnaði. Þar
er lagt til að á hveiju framleiðslusvæði á Norðurlandi verði hafnar
viðræður á milli sveitarstjórna þéttbýlisstaðanna, forráðamanna
vinnslustöðvanna og fulltrúa bændasamtakanna, um að gera á eigin
vegum úttekt á þróuninni frá byggðalegu sjónarmiði og benda um
leið á úrræði.
Karl Haraldsson
formaður KRA
Akureyrarmótið milli jóla og nýárs
í ályktun stjórnarinnar segir:
„Ljóst er að samdráttur í land-
búnaði raskar búsetu í sveitum og
hefur áhrif á atvinnu þeirra, sem á
þéttbýlisstöðum vinna að vinnslu
landbúnaðarafurða og annast við-
skipti eða þjónustu við íbúa sveit-
anna. Af þessum ástæðum má ekki
líta á samdrátt búvöruframleiðsl-
unnar, sem byggðamál sveitanna
einna, heldur alls viðkomandi
byggðasvæðis.
Ljóst er að samdráttur fram-
leiðslu er tilviljunarkenndur eftir
byggðalögum. Hann er oft án tillits
til gildis einstakra býla f því að
tryggja lágmark byggða á ákveðn-
um svæðum. Þannig verður
samdrátturinn misjafnlega djarf-
tækur eftir framleiðslusvæðum."
Með þetta í huga var fyrrnefnd
ályktun lögð fram. Fjórðungsstjórn
skoraði á Byggðastofnun og Rækt-
unarfélag Norðurlands að taka þátt
í þessu starfi, með leiðbeiningum
og sérfræðilegri aðstoð, m.a. til að
gæta samræmis í vinnubrögðum.
Fund þennan sátu auk fjórðungs-
stjómar Guðmundur Malmquist,
forstjóri Byggðastofnunar og Sig-
urður Guðmun lsson, forstöðumað-
ur þróunarsviðs þeirrar stofnunar,
ennfremur Egill Bjamason, formað-
ur Ræktunarfélags Norðurlands.
Upplýst var á fundinum að Byggða-
stofnun hefur átt aðild að ýmis
konar úttekt á stöðu landbúnaðar
í samvinnu við landbúnaðarráðu-
neytið og er að vænta jákvæðra
viðbragða forstöðumanna stofnun-
arinnar við slíkri úttekt. Egill
Bjamason, formaður ræktunarfé-
lagsins, upplýsti að á vegum þess
væri á lokastigi úttekt á stöðu bú-
jarða landbúnaðar á Norðurlandi.
Úrvinnslu verður lokið á útmánuð-
um og lýsti hann jákvæðum við-
horfum til þeirrar úttektar á
heildaráhrifum, sem stefnt er að.
Fjórðungssamband Norðlendinga
mun nú á næstunni hlutast til um
í samráði við vinnsluaðila, bænda-
samtök og sveitarstjómir þéttbýlis-
staða að undirbúningur verði hafinn
að heildarúttekt varðandi land-
búnaðinn og byggðaþróun á
Norðurlandi.
NÝTT Knattspyrnuráð Akur-
eyrar hefur tekið til starfa.
Hinn nýi formaður er Karl
Haraldsson, Páll Magnússon
er varaformaður, Sveinn
Björnsson gjaldkeri og Gest-
ur Davíðsson ritari.
Meðstjómendur í stjóm KRA
eru Páll Leósson, Ámi Arason,
Haukur Ásgeirsson og Davíð Jó-
hannesson. Varamenn em Kristj-
án Davíðsson, Jónas Hallgríms-
son, Níels Halldórsson og
Magnús Magnússon.
Því má bæta við að Akureyrar-
mótið í innanhússknattspyrnu
verður haldið á vegum KRA milli
jóla og nýárs. Nánar tiltekið verð-
ur það laugardaginn 27. og
sunnudaginn 28. desember. Fyrri
daginn hefst keppni kl. 13.15 og
síðari daginn kl. 12.30. Nú verð-
ur í fyrsta skipti keppt í 7. flokki
drengja og í 2. og 3. flokki
kvenna.