Morgunblaðið - 18.12.1986, Page 57

Morgunblaðið - 18.12.1986, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, FTMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986 57 Kristín Gunnarsdóttir afhendir sr. Sigurði Sigurðarsyni afraksturinn af tónleikahaldinu. Selfoss: 160 manns komu fram á jóla tónleikum í Selfosskirkju ^ Selfossi. ÁRLEGIR tónleikar á aðventu voru haldnir í Seifosskirkju sunnudaginn 14. desember. Á þessum tónleikum komu fram starfandi kórar á Selfossi og lúðrasveitir. Alls voru flytjend- ur 160 talsins. Tónleikamir voru haldnir til styrktar kirkjubyggingunni eins og jafnan áður. Alls söfnuðust rúmar 73 þúsund krónur á tvenn- um tónleikum. Þeir sem komu fram á tónleikunum voru Lúðra- sveit grunnskólans og Lúðrasveit Selfoss undir stjóm Asgeirs Sig- urðssonar, Samkór Selfoss undir stjóm Jóns Kristins Cortes, Kirkjukór Selfoss sem Ólafur Sig- uijónsson stjómaði, Kór Fjöl- brautaskólans undir stjóm Jóns Inga Sigurmundssonar og Karla- kór Selfoss undir stjóm Ásgeirs Sigurðssonar. í lok tónleikanna sungu allir kóramir saman og áður en horfið var á braut af- henti Kristfn Gunnarsdóttir, einn kórfélaganna, sr. Sigurði Sigurð- arsyni sóknarpresti ágóðann af tónleikunum. Sig. Jóns. í lok tónleikanna sungu flytjendur nokkur 18g í einum stórkór. Morgunbiaflið/Sigurflur Jónwon Strandasýsla: Bjarnfirðingar vilja samein- astHólmavík Laugarhóli, Bjarnarfirði. Að undanförnu hefir verið nokkuð um fundahöld og ákvarð- anatöku um framtíð byggðar í Bjamarfirði. Er þetta kannski í raun eftirmáli eftir sveitar- stjórnarkosningar í vor og hreppsnefndarfund, sem haldinn var á Drangsnesi síðari hluta nóvember. Allir íbúar Bjamarfjarðar og farið að lögum. Var svo næsti hreppsnefndarfundur, sá þriðji, boðaður með tilkynningu, m.a. á þingstað hreppsins á Laugarhóli. Meðal þeirra mála er þar vom á dagskrá, var að flytja þingstaðmn frá Laugarhóli á Drangsnes, en auk þess að leggja niður Klúkuskóla, sem er á sama stað. Auk ýmiss annars fyllti þetta bikarinn og nú Nemendur Klúkuskóla á sólskinsstund. Bassastaða f Kaldrananeshreppi hafa nú undirritað beiðni til félags- málaráðuneytisins um að sveitar- hluti hreppsins verði sameinaður Hólmavíkurhreppi. Um ýmsar ástæður er að ræða. Hrófbergshreppur sameinast Hólmavíkurhreppi nú um áramótin. Þá er landfræðileg lega sveitarhluta Kaldrananeshrepps í beinu fram- haldi. Þá er og tvfmælalaust mun heppilegra fyrir fbúana að vera í stóm og því mun sterkara sveitarfé- lagi. Við sveitarstjómarkosningar í vor sameinuðust íbúar Drangsness þ.e. þéttbýliskjama hreppsins um að kjósa eingöngu fólk þar í hrepps- nefnd. Fór það svo, að enginn úr sveitarhluta hlaut kosningu og er það í fyrsta skipti er svo fer. Hing- að til hefir sveitarhlutinn alltaf átt einn eða tvo fulltrúa í hreppsnefnd. Þegar svo hin nýja hreppsnefnd hélt tvo hreppsnefndarfundi, án þess að boða þá samkvæmt sveitar- stjómarlögum með dagskrá, þá bmgðust Bjamfirðingar við og kröfðust þess, að framvegis yrði komu Bjamfírðingar saman til að ráða ráðum sínum. Varð sú niður- staðan, að ekki væri annars kostur en leita eftir að hreppnum yrði nú skipt og sveitarhlutinn lagður til Hólmavíkurhrepps, þar sem eðlilegt væri í raun, að öll sveitarfélögin við Steingrímsfjörð yrðu eitt. Þá hefir lengi verið ríkjandi sú skoðun að Klúkuskóli hafi aðeins verið aukaskóli f hreppnum en þess vandlega gætt að hvergi komi fram, að hann þjónar einnig Hrófbergs- hreppi eða sveitinni frá Hólmavík norður í Kaldbak. Auk þess er hann hinn uppmnalegi skóli hreppsins, sem Drangsnes klauf sig út úr á sínum tíma, og hefír starfað frá því skömmu eftir aldamót. Hélt skólinja_ svo upp á 40 ára afmæli sem skóla- stofnun á Klúku á sl. vori, en Kaldrananesskólahverfí var stofnað árið 1907 og er því 70 ára eftir tvö ár. En nú er sem-sagt teningunum kastað. Sveitarhluti hreppsins hefir formlega óskað eftir skiptingu og inngöngu í Hólmavíkurhrepp. SHÞ Þorlákshöfn: ------ ^ » Kaupfélagið kaupir upp samkeppnisaðila Þorlákshöfn. KAUPFÉLAG Ámesinga, Þor- lákshöfn, hefur keypt verslunina Hildi og hyggst flytja starfsemi sína þangað og selja það hús- næði, sem þeir nota f dag. í Þorlákshöfn hafa verið reknar tvær matvömverslanir í á annan áratug, það em Kaupfélag Ámes- inga og verslunin Hiidur. Eigendur verslunarinnar Hildur em Hannes Sigurðsson og Þórhildur Olafsdóttir og hafa þau veitt Kaupfélaginu samkeppni á þessu sviði. í samtali við útibússtjóra Kaup- félagsins í Þorlákshöfn, Agnar Brynjólfsson, kom fram að aldrei hafi verið stefnt að því að kaupa upp annan samsvarandi rekstur, heldur hafí Kaupfélagið einfaldlega vantað nýtt og stærra húsnæði og því legið beint við að kaupa Hildi, þegar hún var auglýst til sölu. Þar er um að ræða 50% stærra hús- næði, mikið nýrra og á betri stað í þorpinu. Nú fram að áramótum verður Kaupfélagið með rekstur á báðum stöðum, með svipuðu sniði og verið hefur. Björg Óskarsdóttir verður versl- unarstjóri í Hildi (Kaupfél. 2) fram að áramótum. í janúar verður lokað f Hildi meðan unnið verður að breytingum og verður þá allur rekstur í Kaup- félaginu á meðan. Vonast er til að hægt verði að hefj'a starfsemi f nánast nýju og breyttu húsnæði f Hildi í byijun febrúar. Aðspurður sagði Hannes Sig- urðsson, fyrrverandi eigandi að Hildi að þau hefðu ekki selt vegna þess að reksturinn hefði gengið illa og ekki hefði heldur verið um §ár- Kaupfélag Ámesinga i Þorlákshöfn. Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson hagserfiðleika að ræða. Það skal tekið fram að Hannes rekur físk- verkun og gerir út vélbátinn Jóhönnu. Nokkrir viðskiptavinir í Hildi og KÁ sögðu aðspurðir að það væri full snemmt að dæma um afleiðing- ar þessara breytinga, gefa ætti Kaupfélaginu tækifæri, áður en hægt væri að dæma, þó væri það óneitanlega skref aftur á bak þegar möguieikinn til verslunar minnkaði, því ekki væri um allt of auðugan garð að gresja hér í Þorlákshöfn á því sviði. JHS ’

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.