Morgunblaðið - 18.12.1986, Síða 81

Morgunblaðið - 18.12.1986, Síða 81
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986 81 Snjóbill Flugbjörgunarsveitarinnar. Leitner LH 250 turbo. Svar til áhugamanns um Flugbj örgunar s veitina Ingvar Valdimarsson, formað- ur flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík, hafði samband vegna fyrirspurnar í Velvakanda 9. desember s.l. Ég vil byrja á því að þakka áhugamanni áhugann. í nefndum sjónvarpsþætti var viðtal við mig og Einar Gunnarsson, formann Landssambands flugbjörgunar- sveita, þar var og sýnd mynd sem sjónvarpið tók í og við félagsheimil- ið okkar í Nauthólsvík og brá þar fyrir Hauki Hallgrímssyni, málara- meistara, sem fyrirspyijandi spyrst fyrir um. Haukur var einnig í salnum sem þátturinn var tekinn upp í. Ég nefni Hauk sérstaklega þar sem hann er einn stofnfélaga sveitarinnar og annar tveggja heiðursfélaga og hef- ur starfað óslitið í nær 36 ár. I dag er Haukur formaður bílaflokks sveitarinnar og mætir í hverri viku til viðhalds og viðgerða á bflunum auk æfínga og útkalla. Haukur er sérstaklega áhugasamur og skemmtilegur félagi, sem við yngri félagamir lítum svo sannarlega upp til. Sveitin var stofnuð 27. nóvember 1950 af 28 áhugamönnum og hefur starfað óslitið síðan. Stofnfundur- inn var haldinn í matsal Sanitas sem var þá við Lindargötu í Reykjavík. Hvað varðar sögu sveitarinnar sem Andrés Kristjánsson hefur unnið að er það að segja að hann hefur samið drög að sögunni en talsvert vantar upp á að hún sé til- búin til prentunar. í ráði er að fá Andrés til að ljúka verkinu á næsta ári. Nokkuð hefur borið á því að undanfömu, eða eftir að við tókum að auglýsa nýtt happdrætti, sem dregið verður í nú í desember, að fólk hafí fundið miða frá því í fyrra og vilji nú vita hvort vinningur hafi fallið á þá. Að undanfömu höfum við birt vinningsnúmerin í Morgun- blaðinu og DV með auglýsingu um nýja happdrættið, en að auki má hringja í síma sveitarinnar, 25831, en þar er oftast einhver við á kvöld- in og einnig í mig beint í síma 82056. Loks vil ég þakka landsmönnum góðar viðtökur við happdrættið sem sýnir okkur að betur en nokkuð annað hversu margir kunna að meta starf okkar. Stórátak í happ- drætti SÁÁ SÁÁ félagi skrifar: Ég vil vekja athyglf á fram- kvæmd happdrættis SAÁ, sem nú er í gangi ogeingöngu dregið úr selduin miðum. I fyrsta sinn hefur happdrætti líknarfélags hér á landi rutt þeim fordómum úr vegi að vinningar renni til félagsins. í jólahappdrætti SAÁ er það kaupandi miðans með kvittun frá banka sem hefur vinningsmögulei- kann. Seljandi miðans, það er SAA, getur ekki eignað sér neinn vinning þar sem nafn kaupandans fylgir kvittun bankans. Þar sem þessi háttur er hafður á, má sjá að SÁÁ tekur hér vissu- lega mikla áhættu, en stuðningur þjóðarinnar hefur allt frá stofnun samtakanna verið styrkur þeirra. Srjórn Alþýduflokkrfaw^^^Sarn Ræðir afskipti fo mannshjónanna af1 próflg'örsbaráttunni j nrjóRN s AlMyUtAWÓUo Ui ír=Si=ii *•»“. *»r»borx»rfumrti ilR'rtnfc.hMWprif. MlWprtf. 1 *™ l~ t i tonan rf. áhnf á Yísa vikunnar Því er hann Hvati að kvarta, um kulda frá formannsins hjarta, þó hann sjái ekki eins vel, og hinn sæli Karvel, hversu fagurt er brosið hans bjarta? Hákur Víkverji skrifar Með morgunkaffinu r-J . .. að stunda með henni íþróttir. TM Reg. U.S. Pat. Otf.—all rights reserved °1984 Los Angeles Times Syndicate ntimer it 1127 Það má sjá á listaverkun- um vegna stílforms m.m. hver höfundurinn er, þekki maður á annað borð eitthvað til mynd- listar. 1120 POLIUX Slakaðu á, -vinur ... !7-t\ © 1984 Universal Press Syndicate að hefur mikið verið rætt um Borgarspítalann undanfamar vikur. Umræðumar hafa snúizt um eigendur, lækna og annað starfs- fólk, stjómskipulag, peninga og margt fleira. Lítið hefur farið fyrir einum hópi fólks, sem þetta mál snertir töluvert — sjúklingunum. Skiptir ekki mestu hvemig til tekst um þjónustu við þá? Sjúklingar og aðstandendur þeirra hafa hingað til getað valið um þijá spítala í Reykjavík. Þvf fer fjarri, að þeir hafí allir verið steypt- ir í sama mót. Landakotsspítali hefur haft sérstöðu m.a. af söguleg- um ástæðum. Spftalanum hefur tekizt að halda þeirri sérstöðu. Einn höfuðkostur við Landakotsspítala frá sjónarhóli sjúklings og aðstand- enda er sá, að þar ber einn læknir ábyrgð á viðkomandi sjúklingi, þótt fleiri læknar komi við sögu. Borg- arspítalinn hefur það umfram Landsspítalann að vera minni. Sjúklingar og aðstandendur standa ekki frammi fyrir því bákni, sem Landsspítalinn er. Samskipti við Borgarspítalann eru því þægilegri og auðveldari. Landsspítalinn hefur í sinni þjónustu marga frábæra starfsmenn en spítalinn er orðinn risastofnun á íslenzkan mælikvarða og áhrifín á þá, sem við hann eiga samskipti, em stundum þau að stjómkerfi hans hafí farið úr bönd- um — með fullri virðingu fyrir stjómamefndinni! Þau Þorsteinn, Ragnhildur og Davíð mega ekki gleyma þessum þætti málsins, þegar þau taka lokaákvarðanir í spítalamálunum næstu daga. XXX Utflutningsstarfsemi af ýmsu tagi hefur orðið faglegri seinni árin en áður var. Aðilar, sem með einum eða öðmm hætti vinna að útflutningi, hafa tekið upp ný vinnubrögð til þess að kynna út- flutningsvömr okkar öðmm þjóð- um. Fróður maður um þessi málefni hafði orð á því við Víkveija, að brotalöm sé í þessari starfsemi að einu leyti — nægileg þekking á tungumálum sé ekki til staðar hjá þeim, sem að þessu starfa. Við Is- lendingar tölum fyrst og fremst ensku í útlöndum sagði þessi við- mælandi Víkveija. Við kunnum varla lengur að tala skandinavisku. Á vömsýningu í Frakklandi fyrir skömmu, var enginn frönskumæl- andi maður í sýningarbás íslend- inga og upplýsingarit vom öll á ensku. Þetta em athyglisverðar upplýs- ingar. Fólk þarf ekki mikið að ferðast um Frakkland t.d. til þess að vita, að enska er ekki í hávegum höfð þar í landi. Sölustarfsemi þar, sem byggist á enskri tungu er fyrir- fram vonlaus. Við eigum stóran hóp af ungu fólki, sem hefur lært fjöl- mörg tungumál. Þetta fólk þarf að virkja í störf af þessu tagi. XXX 1* tilefni af nokkmm orðum, sem höfð vom í þessum dálki í fyrra- dag um flutning á Messíasi Hándels hefur athygli Víkveija verið vakin á því, að þetta mikla verk var flutt óstytt af kór Langholtskirkju á ár- inu 1982 og flutti kórinn það þrisvar sinnum. Þessu er hér með komið á framfæri til leiðréttingar. HÖGNI HREKKVÍSI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.