Morgunblaðið - 18.12.1986, Side 84
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1986
VEM) í LAUSASÖLU 50 KR.
ísfirsk lúða
fer til rann-
sóknar í Noregi
Flugvél bíður hennar á ísafjarðarflugvelli
_ ísafirði.
Á VEGUM fiskeldisfyrirtækisins
ÍSNÓ hf. hefur að undanförnu
verið safnað lúðu af línubátum á
ísafirði. Lúðurqar verða fluttar
lifandi til Noregs og notaðar við
tilraunir á lúðueldi í tilraunastöð
A/s Mowi i Bergen. í gær kom
flugvél að utan til að ná í þær
40 lúður sem þegar er búið að
safna, en gat ekki farið aftur I
gær vegna slæmra skilyrða á
flugvellinum.
A/s Mowi er stór hluthafi í ÍSNÓ
hf. Er fyrirtækið að gera tilraunir
með klak á lúðu i tilraunastöð sinni
í Bergen. Er verið að safna lúðunum
í þeim tilgangi að gera tilraunir
með eldi þeirra þannig að fyrirtæk-
ið verði betur undirbúið þegar
klakið fer að skila árangri. Erfíð-
leikar eru á veiðum á smálúðu við
Noreg og var því leitað hingað til
lands. Hraðfrystihúsið Norðurtang-
inn aðstoðaði við söfnunina á
ísafírði og tókst að ná 40 stykkjum
á tiltölulega stuttum tíma. Er físk-
urinn geymdur í kerum innandyra
hjá Norðurtanganum.
Ekki er vitað til að lifandi lúða
hafí áður verið flutt úr landi. Að
sögn forráðamanna ÍSNÓ er ekki
vitað um framhald málsins. Það
kemur því síðar í ljós hvort Norð-
mennimir vilja meira af lúðu í
tilraunir sínar.
ÍJlfar
Fyrsta síldin tíl Sovétríkjanna
Grindavík.
ÚTSKIPUN á fyrstu síldinni til Sovétríkjanna
hófst í Grindavík í gær. Alls voru lestaðar í
m/s Suðurland um 5.000 tunnur frá Grindavik,
Keflavík og Reykjavík. Næst fer skipið tií
Djúpavogs, en áætlað er að það fari frá landinu
áleiðis til Sovétríkjanna 23. desember með alls
um 19.000 tunnur.
Á sama tíma hófst útskipun um borð í Urriða-
foss á Seyðisfírði, en þaðan fer skipið til Fáskrúðs-
fjarðar og Eskifjarðar. Áætlað er að Urriðafoss
fari til Sovétríkjanna með sama magn, 19.000
tunnur, 21. desember. Áhafnir skipanna halda því
jólin hátíðleg á hafinu að þessu sinni. Um áramót-
in er áætlað að alls verði búið að skipa út 49.000
tunnum.
Kr.Ben.
Sænsk yfirvöld aftur-
kalla framsalskröfu
Suðurland lestar síld í Grindavik í gærdag.
Morgunblaðið/Kr.Ben
SÆNSK yfirvöld hafa afturkall- ríkisborgara, sem hefur dvalist
að kröfu um framsal bandarisks hér á landi að undanfömu.
Flugstöðin í
Kef lavík rýmd
vegna hættu á
gassprengingu
ALLT slökkvilið Keflavíkurflug-
vallar var kallað út vegna elds í
nýju flugstöðinni á Keflavikur-
flugvelli kl. 11 í gærmorgun.
Eldur var í gaskút og stóð eldur-
inn á súrkútinn sem var orðinn
mjög heitur. Var eldurinn slökkt-
ur með því að slökkviliðsmaður
skrúfaði fyrir kútinn. Af ótta við
að kúturinn spryngi var húsið
rýmt. Eftir að eldurinn hafði
verið slökktur var kúturinn lát-
inn kólna i eina klukkustund og
siðan fjarlægður.
Eins og skýrt hefur verið frá í
Morgunblaðinu óskuðu sænsk yfír-
völd eftir framsali mannsins, en
hann hefur starfað í Svíþjóð við
sölu á fínnskum bátum til Banda-
ríkjanna. í fyrradag komu fulltrúar
rannsóknarlögreglu og saksóknara
í Svíþjóð til landsins til að yfírheyra
manninn, en hann hafði þá verið
úrskurðaður í farbann. Eftir
skýrslutöku í gær ákváðu Svíamir
að falla frá kröfu um framsal. Töldu
þeir upplýsingar sem fengust við
yfírheyrslur yfír manninum, full-
nægjandi fyrir áframhald málsins.
Maðurinn hefur ekki verið
ákærður, eins og komið hefur fram
í fréttum, heldur aðeins kærður.
Ekki er vitað hvort kæra hefur ver-
ið dregin til baka.
Hækkanir á opinberri þjónustu umfram það sem stefnt var að:
Ríkisútvarp fær 20% hækkun
og Póstur og sími líklega 16%
Setur að manni ugg að heyra upptalningu af þessu tagi, segir Bjöm Bjömsson hagfræðingur ASÍ
Aðdragandi þessa var sá að suðu-
maður skildi við tæki með opið fyrir
kútana eftir notkun. Síðan komst
eldur í slönguna út frá neista og
barst í stút kútsins. Lítið tjón varð,
annað en á logsuðutækjunum, en
hins vegar hefði tjón getað orðið
mikið, hefði súrkúturinn sprungið.
ÞORSTEINN Pálsson telur ein-
sýnt að ekki takist að halda
gjaldskrárhækkunum opinberra
fyrirtækja á næsta ári innan
meðaltalshækkunar á verðlagi.
Ákveðið hefur verið að afnota-
gjöld útvarps og sjónvarps hækki
um 20% um áramót, en Ríkisút-
varpið sótti um 28% hækkun.
Jafnframt hefur Póstur og sími
sótt um 20% hækkun, en ekki er
talið liklegt að meiri hækkun en
16% verði leyfð.
Þá hefur stjóm Veitustofnana
samþykkt að leggja til við borgar-
stjóm Reykjavíkur að taxtar
Hitaveitu Reykjavíkur hækki á
næsta ári um 34,4%. Er þessi til-
laga í samræmi við ijárhags- og
framkvæmdaáætlun fyrirtækisins.
Þessi tillaga stjómar Veitustofnana
verður að líkindum tekin fyrir á
fundi borgarstjómar í dag.
Bjöm Bjömsson hagfræðingur
ASÍ sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að erfítt væri að svara
því með afgerandi hætti, hvort verð-
lagsforsendur þær sem gengið væri
út frá í nýgerðum kjarasamningum
væru að bresta. „Við beindum því
til ríkisstjómarinnar að verðhækk-
unum á þessum opinbera lið
framfærsluvisitölunnar yrði haldið
innan marka almennra verðlags-
breytinga, sem við gerðum ráð fyrir
að yrðu á bilinu 7%-8% á næsta
ári,“ sagði Bjöm. Hann sagði að
þá hefðu ekki verið skilgreind nein
mörk á hækkunum einstakra liða.
„Þegar ég heyri þessar tölur, þá
segi ég það með öllum fyrirvara
um heildaráhrifin af þessu, að það
hlýtur að setja að manni ugg. Mað-
ur hlýtur þá jafnframt að spyija
að því hvort stjómvöld hafí tekið
saman yfirlit yfír áhrif þessara
hækkana. Það er náttúrlega hörmu-
legt til þess að hugsa þegar menn
em að tala um að ná verðbólgu
niður á svipað stig og í nágranna-
iöndunum, að stjómvöld skuli
ganga á undan með því fordæmi
að leyfa umtalsverðar hækkanir,"
sagði Bjöm.
Þorsteinn Pálsson íjármálaráð-
herra sagði að 7,5% hækkun
Landsvirkjunar á gjaldskrá sinni
væri innan þeirra marka sem stefnt
væri að á næsta ári, „en við hefðum
auðvitað kosið að þeir þyrftu ekki
að hækka þetta mikið, þannig að
aðrar stofnanir hefðu meira svig-
rúm,“ sagði ráðherra.
Sjá einnig fréttir á bls. 2.