Morgunblaðið - 06.01.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.01.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987 Borgarspítalinn: Nefnd ræðir um breyttan rekstur RAGNHILDUR Helgadóttir, heilbrigðisráðherra, hefur skipað nefnd til að gera tillögur um fyrirkomulag á rekstri Borgarspítalans verði úr því, að ríkið taki við rekstri spítalans af Reykjavíkurborg. Nefnd- inni er falið að skila tillögum sínum áður en Alþingi kemur saman hinn 19. janúar næstkomandi. Ragnhildur Helgadóttir sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að nefndinni væri sérstaklega falið að gera tillögur um, með hvaða hætti heppilegast og hagkvæmast væri að auka samstarf Borgarspítalans og annarra spítala sem nú eru í rekstri ríkisins. Heilbrigðisráðherra sagði að í nefndina hefðu valist menn, sem mest hefðu með stjómun Borgarspítalans og Landspítalans að gera, en þeir eru Olafur Jons- son, formaður læknaráðs Borg- arspítalans, Jóhannes Pálmason framkvæmdastjóri Borgarspítalans, Davíð Ó. Gunnarsson forstjóri ríkisspítalanna og Ámi Bjömsson formaður læknaráðs Landspítalans. Auk þeirra skipar nefndina Friðrik Sophusson, alþingismaður, og er hann formaður nefndarinnar. VEÐUR „Nefndinni er ætlað að vinna hratt og skila tillögum sínum áður en Alþingi kemur saman, enda tel ég mjög mikilvægt að þær liggi fyrir þegar ríkisstjómin tekur á- kvörðun um heimild til fjárframlaga til að kaupa hluta borgarinnar í Borgarspítalanum að því marki sem um hefur verið rætt," sagði heil- brigðisráðherra. „Ég tel það einnig mikils virði að forráðamenn þessara spítala ræði saman fordómalaust um málið, eins og það blasir við. Ég hef haft af því töluverðar áhyggjur hvemig umræður hafa fallið um þetta mál að undanfömu, en þær hafa í mörgum tilfellum einkennst af misskilningi, tilfinn- ingasemi og tilhæfulausum ótta,“ sagði Ragnhildur Helgadóttir, heil- brigðisráðherra. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Beðið eftir að sjóprófin hefjist. Fremst á myndinni eru Kristján Jónsson fiugmaður hjá Landhelgis- gæslunni og Guðjón Armann Einarsson útgerðarstjóri Nesskips hf, en aftar eru Jón Snæbjörnsson 1. stýrimaður ms. Suðurlands og Júlíus Víðir Guðnason háseti. Sjópróf vegna ms. Suðurlands haldin í gær: Gífurleffur sjór reið undir skipið ENGAR öruggar vísbendingar komu fram við sjópróf um hvað fór úrskeiðis þegar ms. Suður- / DAG kl. 12.00: Heimild: Veðurstofa íslartds (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFUR í DAG: YFIRLIT á hádegi í gær: Skammt norður af Skotlandi er 983 milli- bara djúp lægð sem þokast suðaustur og grynninst, en hæðar- hryggur á Grænlandshafi hreyfist austur. Önnur lægð, 982 millibara djúp og vaxandi, er um 500 km norðnorðaustur af Nýfundnalandi og þokast norður. SPÁ: Útlit er fyrir vaxandi sunnanátt með súld eða rigningu sfðdeg- is á vestanveröu landinu. Um austanvert landið verður hæg breytileg átt og léttskýjaö. Smám saman hlýnar í veðri, fyrst vestan- lands. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: MIÐVIKUDAGUR: Allhvöss suðaustanátt og rigning um sunnan- og austanvert landið en úrkomulítið annars staðar. Hiti á bilinu 5 til 6 stig. FIMMTUDAGUR: Fremur hæg sunnan- og suövestanátt, víða skúr- ir eöa slydduél um sunnan- og vestanvert iandið en þurrt á noröaustur- og austurlandi. Kólnandi veður. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað m Skýjað Alskýjað y. Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. t r r r r r r Rigning r r r * r # r # r * r * r Siydda # # # *# * # Snjókoma 10° Hitastig: 10 gráður á Celsius V Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —|- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEÍM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri hiti 0 veöur alskýjað Reykjavík -4 léttskýjað Bergen -2 snjókoma Helsinki -26 léttskýjað Jan Mayen -2 léttskýjað Kaupmannah. 2 skýjað Narssarssuaq -13 skýjað Nuuk -9 léttskýjað Osló -10 snjókoma Stokkhólmur -5 snjókoma Þórshöfn 2 snjóél Algarve 14 léttskýjað Amsterdam 6 skúr Aþena 4 slydda Barcelona 11 heiðskírt Berlín 3 rignlng Chlcago -4 helðskírt Glasgow 6 skúr Feneyjar -2 þokumóða Frankfurt 4 rigning Hamborg 2 skúr Las Palmas 20 skýjað London 8 skýjað LosAngeles 10 skýjað Lúxemborg 3 súld Madrid S heiðskfrt Malaga 15 léttskýjað Mallorca 16 hélfskýjað Miami 13 léttskýjaö Montreal -7 skýjaö NewYork -3 léttskýjað París 7 rigning Róm 8 hélfskýjað Vln -2 snjókoma Washington -2 léttskýjað Winnipeg -8 skýjað land sökk á aðfangadagskvöld um 290 sjómilur norðaustur af Langanesi. Enginn þeirra skip- veija sem lifðu af slysið töldu sig verða vara við neitt óvenju- legt við hleðslu eða siglingu skipsins, og skipið hefði ekki oltið óeðlilega fyrr en „ríður gífurlegur sjór afturundir skip- ið og lyftir því upp að aftan, svo að framendinn fer í kaf aftur undir fremri krana og þannig veður skipið áfram með sjónum og snýst siðan til stjórnborða um 30-40 gráður og leggst sam- stundis á bakborðshlið,“ eins og Jón Snæbjörnsson 1. stýrimaður lýsir atburðum í skýrslu fyrir sjódómnum sem haldinn var í bæjarþingi Seltjarnarness i gær. Rúmum hálftíma eftir þetta var skipið komið á hvolf i sjónum. Suðurland lagði upp í síðustu ferð sína frá Grindavík klukkan 6 að morgni 18. desember, en þar hafði skipið lestað 4689 tunnur af saltsfld. Þegar skipið lagðist að bryggju í Grindavík tveimur dögum áður rakst það utan í bryggjuna og kom á það lítil dæld og 5-6 lang- bönd bognuðu aftantil í geymslu- lest bakborðsmegin. Ekki er þó talið að þetta hafí haft neitt að segja um það sem síðar gerðist. Skipið hélt suðurfyrir landið og lestaði saltsíld á 6 stöðum til við- bótar á Austfjörðum, alls 19.032 tunnur eða tæpar 3000 lestir. Fyr- ir sjódómnum sagði Stefán Björg- vinsson hleðslustjóri, sem fór með skipinu frá Grindavík til Reyðar- fjarðar, að hleðsla skipsins hefði í engu verið frábrugðin öðrum skipt- um sem skipið og systurskip þess sigldu með síld til Sovétríkjanna sömu leið, en það er alls 11 sinnum. Stefán sagði að skipið væri vel fallið til þess að flytja tunnur og hlaðið væri í lestamar þannig að tunnumar liggi þétt að hliðum og fremra skilrúmi. Stefán sagði að tunnumar í þessum farmi hefðu verið trétunnur, nýteknar út af ríkismatinu. Hefðu þær verið mjög sterkar og til marks um það sagði Stefán að aðeins tvær tunnur hefðu brotnað í lestuninni. Skipið lagði af stað frá Reyðar- fírði klukkan 16.30 á þorláks- messu. Skipið fékk strax á sig ágjöf og veður sem ágerðist og um nóttina var fært í dagbót að sjó tæki yfír lúgu og bakka. Klukkan 21 á aðfangadagskvöld vom komin 9-10 vindstig að sunnan og sam- svarandi mikill sjór með einstökum brotum. Skipið stjórnlausl I skýrslu Jóns Snæbjömssonar 1. stýrimanns, sem lögð var fyrir dóminn, og framburði hans fyrir réttinum, segir að klukkan 21.10 hafí verið slegið af ferð og haldið upp í sjó og vind meðan gengið var frá landgangshliði sem hafði opn- ast. Skipstjóri var þá kvaddur upp í brú og klukkan 21.25 var skipinu snúið á fyrri stefnu en ferðin var minnkuð úr 11,5 sjómílum í 8 sjómílur. í skýrslu Jóns segir síðan að skömmu eftir eftir kl. 23.09 hafí ólagið riðið á. Skipstjóri og 1. stýri- maður vom tveir einir í brúnni þegar þetta gerðist, en háseti kom á stjómpall í sömu mund. Skipstjór- inn setti strax handstýri á og minnkaði ferð skipsins og beygði hart í bakborða og reyndi að slá skipinu undan sjó og vindi. Þrátt fyrir þetta beygði skipið ekki. Minnist Jón þess að skipstjóri hafi kallað að skipið stýrði ekki. Skipið lá stöðugt undir ááföllum og var nú með slagsíðu upp á 15-20 gráð- ur. Vindur og sjór svo til þvert á stjómborða. Skipstjóri sendi háseta (Júlíus Guðnason) niður til að safna áhöfninhi saman. Samkvæmt skýrslunni var ekkert óvenjulegt var að sjá á lúgum og krönum, en skipið var þungt í sjó að framan og augljóst að það lá fram. Sjór gekk stöðugt yfír framhluta lestarl- úgu og bakka. Skipið á hvolf hálftíma síðar Aðeins leið rúmur hálftími frá því ólagið reið á skipinu þar til áhöfnin var komin í sjóinn og skip- ið á hvolf. Annar gúmbátur skipsins losnaði frá af sjálfsdáðum og var annaðhvort ekki bundinn við skipið eða festitaugin slitnaði. Áhöfnin sjósetti hinn bátinn en hann skemmdist af því að slást utan í skipið. Þeim atburðum sem gerðust á eftir hefur verið lýst áður í Morg- unblaðinu í viðtölum við skipveij- ana. Jón Snæbjömsson sagðist að- spurður fyrir dómnum ekki geta gert sér neina grein fyrir því hvað hefði valdið því að skipið fékk á sig þessa slagsíðu óg þyngsli að framan. Einnig voru yfírheyrðir Halldór Gunnarsson 1. vélstjóri, Anton Sigþórsson viðgerðarmaður, Júlíus Víðir Guðnason háseti og Kristinn Harðarson háseti en ekk- ert kom fram sem varpað gæti ljósi á ástæður slyssins. Talsvert fjölmenni var viðstatt sjóprófín, þar á meðal fulltrúar útgerðar skipsins, tryggingarfé- laga þess, Stýrimanna- og vél- stjórafélagsins, Siglingamálastofn- unar, Sjómannafélags Reykjavíkur, Farmanna og fískimannasam- bandsins og Sjóslysanefndar. Hlutverk Sjóslysanefndar var útvíkkað af Alþingi í sumar og mun nefndin rannsaka slysið áfram og senda frá sér skýrslu um það og hugsanlegar orsakir. Sjóprófunum lauk hinsvegar í gærkvöldi. Þeim stjómaði Guðmundur L. Jóhannes- son hérðaðsdómari en meðdómend- ur voru Viðar Þórðarson skipstjóri og Hans Linnet vélstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.