Morgunblaðið - 06.01.1987, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987
Dansiballið
A
IVelvakanda síðastliðinn sunnu-
dag birtust tvö bréf er viku all
harkalega að nýársleikriti ríkissjón-
varpsins, Líf til einhvers. Þannig
segir ónefndur faðir: Jóla- og nýárs-
hátíðin er sá tími ársins sem fólk
sér sér helst fært að setjast niður
saman og njóta fjölskyldulífsins án
þess að þurfa að vera með áhyggj-
ur af vinnu, námi og öðru þvf sem
það fæst við dags daglega. Það er
líka staðreynd að fólk notar mikið
af þessum frítíma sem gefst yfir
hátíðimar saman fyrir framan sjón-
varpið.
Eg rek ekki frekar ummæli föð-
urins er ég tel vel ígrunduð því
vissulega er laukrétt að á stórhátíð-
um safnast fjölskyldan fyrir framan
sjónvarpið og það er vart hægt að
ætlast til þess að menn geti horft
á jafn ágengt og bersögult verk og
Líf til einhvers í faðmi afans og
ömmunnar eða bamanna. Verk sem
þetta ber að sýna síðla kvelds þá
börnin eru komin í draumalandið,
þá geta hinir fullorðnu notið þess
að skoða þann hráslagalega veru-
leika er Kristín lýsti í myndinni og
máski krufið hugsun verksins í
kyrrð nætur.
Oft hef ég minnst á það hér í
þætti hversu mikilvægt er að haga
dagskrá Ijósvakafjölmiðlanna í
samræmi við ytri aðstæður. Sumar
sjónvarpskvikmyndir eru þess eðlis
að þær eiga ekki heima í stofu á
stórhátíðum og hljóta á slíkum
stundum að kalla eld og brennistein
yfir höfundinn en samt tel ég að
verk á borð við Líf til einhvers eigi
fullt erindi við fullþroska fólk. Mér
finnst raunar ofur eðlilegt að lýsa
tilfinningalífi fólks með þeim hætti
sem gert var í nýársmynd sjón-
varpsins en sú lýsing kann að
afskræmast í huga áhorfandans þá
hann situr í hlýjum faðmi fjölskyld-
unnar. Ég er innilega sammála
föðumum um það að á slíkum
stundum verður að bera fram . . .
dagskrá sem sé við hæfi venjulegra
fjölskyldna.
SkaupiÖ
Áramótaskaupið var bara nokk-
uð broslegt að mínu mati, til dæmis
var kostulegt að fylgjast með Gor-
basjev og Raisu á labbinu um
Keflavíkurveginn í leit að strætó.
Villtist ég satt að segja á Gísla
Halldórssyni og félga Gorbasjev.
Moldryk hafði þyrlast upp útaf út-
setningu lagsins: Hjálpum þeim.
Persónulega fannst mér sá söngur
bráðfyndinn þótt hann særði vissu-
lega velsæmistaugamar en er nú
ekki Skaupinu ætlað að tæta sund-
ur og saman máttarstólpa sam-
félagsins?
Dansinn
En þótt umsjónarmenn Skaups-
ins hafí skriðið á prófinu og vel það
þá er ekki hægt að segja hið sama
um umsjónarmenn áramótadans-
leiksins. Valgeir Stuðmaður bauð
til veislunnar með þeim orðum að
hann óskaði þess að sjónvarpsáhorf-
endur gætu . . . slegist í hóp
dansgesta í Broadway. Undirritað-
ur þakkaði sínum sæla fyrir að
þurfa ekki að kúra þama í hálftóm-
um salnum undir slætti Glen
Millerbandsins og svo voru náttúr-
lega „skjólstæðingar" fjölmiðla-
stjómendanna fengnir til að hita
gestum í hamsi með frumsömdum
engilsaxneskum slögurum. Þungu
fargi létti af undirrituðum er Diddú
sté fram á sviðið en sú dýrð stóð
ekki lengi og fyrr en varði var
áhorfandinn horfínn aftur í faðm
hinnar engilsaxnesku stórhljóm-
sveitar. Hefði ekki verið nær að
kveðja til íslenska hljómsveitar-
menn, hvað til dæmis um Léttsveit
ríkisútvarpsins? Ekki er að efa að
rýmra verður um áramótadansleiki
ríkissjónvarpsins þá höllin á Foss-
vogshæðum opnar sali og þá verður
vonandi Ieitað til íslenskra tónlistar-
manna um flutning tónlistarinnar.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/ SJÓNVARP
Stöð tvö
Besta vændishúsið
í öllu Texasi
■I Á dagskrá
30 Stöðvar tvö í
—" kvöld er m.a.
bandaríska kvikmyndin
The Best Little Whore-
house in Texas, eða „Besta
litla hóruhúsið í Texas“,
eins og það nefnist á því
ylhýra.
Þetta er söngva- og
gleðimynd, sem gerist í litl-
um bæ í Texas. Þar er
vændishús eitt og er það
hin víðáttubarmfagra Dolly
Parton, sem ríkjum ræður.
íbúar bæjarins eru hinir
umburðarlyndustu, enda er
hórukassinn búinn að vera
þama í eina og hálfa öld,
engum til ama, en flestum
til ánægju og yndisauka.
Jafnvel lögreglustjórinn á
staðnum, Burt Reynolds,
H
hefur engan áhuga á að
fangelsa léttúðardrósimar,
þó svo að hann hafí meira
en lítinn áhuga á maddö-
munni.
Fljótt á litið er því ekki
annað að sjá en að allt sé
í lukkunnar velstandi. Það
verður þeim þá til ógæfu
að utanaðkomandi aðilar
komast að því hvemig
málum er farið í bænum
og þá er friðurinn úti.
Auk þeirra Dollýar og
Burts leika Dom De Luise
og Charles Durning í aðal-
hlutverkum. Kvikmynda-
handbókin hermir að
myndin sé þess virði að
horfa á og gefur henni
þijár og hálfa stjömu af
fímm mögulegum.
Vítt og breitt
Hi Frá klukkan
00 fjögur til sex í
— dag ráða gömul
og góð dægurlög ríkjum á
Rás 2.
Þá sjá þeir Bertram
Möller og Guðmundur Ingi
Kristjánsson um þátt, sem
nefnist „Vítt og breitt" og
eins og nafnið gefur til
kynna leita þeir félagar
víða fanga. Rokkaðdáend-
ur munu fá sinn skammt,
sem og unnendur tónlistar
sjöunda áratugarins, en að
sjálfsögðu verða mörkin
ekki mjög skýr.
Meðal flytjenda, sem
tíðum koma við sögu í
þættinum verða stórstirni
á borð við Elvis Presley,
Bítlana og Shadows, en
sem fyrr segir er megin-
áherslan lögð á fjölbreytn-
ina.
ÚTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
6. janúar
6.4B Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin
— Jón Baldvin Halldórsson,
Sturla Sigurjónsson og
Guömundur Benediktsson.
Fréttir eru sagðar kl. 7.30
og 8.00 og veöurfregnir kl.
8.15. Tilkynningar eru lesn-
ar kl. 7.25, 7.55 og 8.25.
7.20 Daglegt mál. Guömund-
ur Sæmundsson flytur
þáttinn.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Hanna Dóra" eftir
Stefán Jónsson. Ragnheiöur
Gyöa Jónsdóttir les (2).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.36 Lesið úrforustugreinum
dagblaðanna. Tónleikar.
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.30 Ég man þá tíö. Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fróttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Þórarinn Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn — Heilsu-
vernd. Umsjón: Anna G.
Magnúsdóttir og Berglind
Gunnarsdóttir.
14.00 Miðdegissagan:
„Menningarvitarnir" eftir
Fritz Leiter. Þorsteinn Ant-
onsson les þýðingu sína (3).
14.30 Tónlistarmaður vikunn-
ar. Ragnar Bjarnason.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
16.20 Landpósturinn. Frá
Suöurlandi. Umsjón: Hilmar
Þór Hafsteinsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veöurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Stjórn-
endur: Vernharður Linnet
og Sigurlaug M. Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Síödegistónleikar.
a. „Suöureyjar", forleikur eftir
Felix Mendelssohn. Sin-
fóníuhljómsveitin í (srael
leikur.
b. Hugleiðing op. 42 nr. 1 eftir
Pjotr Tsjafkovskí. Itzhak
Perlman leikur á fiölu
meö Sinfóníuhljómsveit-
inni í l’srael; Zubin Mehta
stjórnar.
c. Tilbrigöi úr „Malarastúlk-
unni fögru" eftir Franz
Schubert. James Galway
og Philip Moll leika á
flautu og píanó.
17.40 Torgiö — Samfélags-
mál. Umsjón: Bjarni Sig-
tryggsson.
Tilkynningar.
18.46 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá morgni sem Guö-
mundur Sæmundsson
flytur.
19.35 Úr kýrhausnum. Flórinn
mokaöur á elleftu stundu
við áramót í útvarpssal.
Endurtekin dagskrá frá
gamlárskvöldi. Höfundur
efnis: Jón Hjartarson. Flytj-
endur: Jóhann Sigurðarson,
Aðalsteinn Bergdal, Karl
Guömundsson, Jón Hjartar-
SJÓNVARP
ÞRIÐJUDAGUR
6. janúar
18.00 Dagfinnur dýralæknir
(Dr. Dolittle) — Tólfti þáttur.
Teiknimyndaflokkur geröur
eftir vinsælum barnabókum
eftir Hugh Lofting.
Þýöandi Rannveig Tryggva-
dóttir.
18.20 Fiörildaeyjan
(Butterfly Island)
Sjötti þáttur.
Ástralskur myndaflokkur í
átta þáttum fyrir börn og
unglinga um ævintýri á Suö-
urhafseyju.
Þýöandi Gunnar Þorsteins-
son.
18.40 Poppkorn — Upprifjun II
Litiö um öxl til síöasta árs
meö Gísla Snæ Erlingssyni
og Ævari Erni Jósepssyni.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Sómafólk
(George and Mildrid)
9. Fjölskyldubönd.
Breskur gamanmyndaflokk-
ur.
Þýöandi Ólöf Pétursdóttir.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar
20.35 Falin myndavél
Brot úr áöur sýndum þátt-
um. Kynnir Elisabet Sveins-
dóttir.
Umsjón og stjórn upptöku:
Tage Ammendrup.
21.10 Fröken Marple
2. Líkiö í bókastofunni
Breskur sakamálamynda-
flokkur í tíu þáttum um eina
vinsælustu söguhetju
Agöthu Christie. Aöalhlut-
verk: Joan Hickson. Þýðandi
Veturliöi Guðnason.
22.00 I brúöuheimi
(The World of Puppetry)
Annar þáttur
Breskur myndaflokkur I sex
þáttum.
Jim Henson, sem skóp
Prúöuleikarana góðkunnu,
kynnir sex snjalla brúöuleik-
húsmenn í ýmsum löndum
og list þeirra.
Þýðandi Hallveig Thorla-
cius.
23.00 Fréttir í dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
6. janúar
17.00 Myndrokk. Nýbylgjutón-
list. Stjórnandi er Timmy.
18.00 Þrettándinn. Barnatími.
Kynnir er Hólmfríöur Karls-
dóttir (fv. Ungfrú alheimur.)
í þættinum er leikþáttur fyrir
börnin og ýmis skemmtiat-
riöi. Umsjonarmaöur er
Sverrir Guöjónsson.
19.00 Teiknimynd. Gúmmí-
birnirnir (Gummi Bears.)
19.30 Fréttir.
19.55 Klassapíur. Þáttur um
fjórar konur komnar af létt-
asta skeiöi, sem eru komnar
til Flórida aö eyða ævikvöld-
inu á........................
20.30 Besta litla hóruhúsið í
Texas (Best Little Whore-
house in Texas.) Bandarísk
kvikmynd með Burt Reyn-
olds, Dolly Parton bg Dom
Deluise í aöalhlutverkum.
í nágrenni bæjar nokkurs í
Texas hefur veriö rekiö
vændishús I eina og hálfa
öld meö vitund og samþykki
bæjarbúa. Allt gengur sinn
vanagang þar til sjónvarpiö
kemst í málið.
22.10 Zarzuela
Spænskur söngleikur meö
Placido Domingo I aöal-
hlutverki. Zarzuela lýsir
betur en nokkuö annað verk
þjóðlegri hefö í spænskri
tónlist.
23.15 Guö getur beöiö (Heav-
en Can Wait.)
Bandarísk kvikmynd meö
Warren Beatty og Julie
Cristie í aöalhlutverkum. Joe
Pendleton liösstjóri fótbolta-
liðsins í Los Angeles er
kallaður á vit feöra sinna
fyrir mistök skrifkera nokk-
urs í Himnaríki. Pendelton
er þó skilað aftur til jarðar,
en í likama annars.
00.50 Dagskrárlok.
son, Soffía Jakobsdóttir og
Saga Jónsdóttir. Gunnar
Gunnarsson leikur á píanó
og Hreinn Valdimarsson á
munnhörpu. Stjórnandi:
Ásdís Skúladóttir.
20.26 Erick Friedman leikur
fiölulög eftir Dinicu, Kreisler,
Wieniawski o.f'. Brooks
Smitj leikur með á píanó.
20.40 Iþróttaþártur. Umsjón:
Ingólfur Hannesson og
Samúel örn Erlingsson.
ÞRIÐJUDAGUR
6. janúar
9.00 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Sigurðar Þórs Salvarssonar.
Meðal efnis: Barnadagbók
i umsjá Guöríöur Haralds-
dóttur aö loknum fréttum
kl. 10, Matarhorniö og get-
raun.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist í
umsjá Margrétar Blöndal.
13.00-Skammtaö úr hnefa.
Stjórnandi: Jónatan Garö-
arsson.
16.00 l’ gegnum tíöina. Þáttur
um íslensk dægurlög í um-
sjá Vignis Sveinssonar.
17.00 (hringnum. Gunnlaugur
Helgason kynnir lög frá átt-
unda og níunda áratugnum.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30-18.30 Svæöisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1
18.00-19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Trönur. Umsjón: Finnur
Magnús Gunnlaugsson.
Fjallaö um menningarlíf og
mannlíf almennt á Akureyri
og í nærsveitum.
/7m98-9
Ifmsaam
W ÞRIÐJUDAGUR
6. janúar
07.00—09.00 Á fætur meö
Sigurði G. Tómassyni. Létt
21.00 Perlur. Platters og Mills
bræður.
21.30 Útvarpssagan: „( túninu
heima" eftir Halldór Lax-
ness. Höfundur les (3).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orö kvöldsins.
22.16 Veðurfregnir.
22.20 Lúöraþytur. Umsjón
Skarphéðinn H. Einarsson.
23.00 Danslög. Jólin dönsuö
út.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
tónlist meö morgunkaffinu.
Sigurður litur yfir blöðin og
spjallar viö hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00
og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur öll uppáhaldslögin,
afmæliskveðjur, matarupp-
skriftir og spjall til hádegis.
Símin er 611111. Fréttir kl.
10.00, 11.00 og 12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aöi meö Jóhönnu Haröar-
dóttur. Fréttapakkinn,
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fygljast meö því
sem helst er í fréttum,
spjalla við fólk og segja frá.
Flóamarkaðurinn er á dag-
skrá eftir kl. 13.00. Fréttir
kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil-
ar síödegispoppiö og spjall-
ar viö hlustendur og
tónlistarmenn. Fréttir kl.
15.00, 16.00 og 17.00.
17.00—19.00 Hallgrimur
Thorsteinsson í Reykjavík
síödegis. Hallgrimur leikur
tónlist, lítur yfir fréttirnar og
spjallar viö fólkiö sem kemur
við sögu. Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Tónlist meö
léttum takti.
20.00—21.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson kynnir 10 vinsæl-
ustu lög vikunnar.
21.00-23.00 Vilborg Hall-
dórsdóttir. Vilborg sníður
dagskrána viö hæfi ungl-
inga á öllum aldri, tónlistin
er í góöu lagi og gestirnir
líka.
23.00—24.00 Vökulok. Þægi-
leg tónlist og fréttatengt efni
í umsjá fréttamanna Bylgj-
unnar.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp-
lýsingar um veöur.
ALFA
Krlstileg útvsrpsstM.
FM 102,9
ÞRIÐJUDAGUR
6. janúar
13.00-16.00 Hitt og þetta f
umsjón John Hansen.