Morgunblaðið - 06.01.1987, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987
7
Takmarkanir á gjaldskrárhækkunum hins opinbera:
Fyrirtækin verða
af háum upphæðum
ÁGREININGUR ríkisstjórnar-
innar við nokkrar opinberar
stofnanir um gjaldskrár þeirra
snýst um háar upphæðir, þegar
á heildina er litið. Ef Lands-
virkjun og Hitaveita Reykjavík-
ur hefðu takmarkað hækkanir
sínar við 4% annars vegar og
10% hins vegar hefðu þær feng-
ið um 140 milljón króna lægri
tekjur en þær fá að óbreyttu.
Af sömu ástæðum verða
Ríkisútvarpið og Póstur og simi
liklega af tekjum, sem samtals
nema um 190 milljónum króna.
Heildarupphæðin, sem hér er
um að tefla, er því varla lægri
en 330 milljónir króna.
Gjaldskrá Landsvirkjunar
hækkar um áramótin um 7,5%,
en ríkisstjómin hafði óskað eftir
því að hækkunin yrði ekki meiri
en 4%. Að sögn Halldórs Jóna-
tanssonar, forstjóra fyrirtækisins,
hefði það kostað Landsvirkjun um
74 milljónir króna, ef tilmælum
ríkisstjórnarinnar hefði verið
sinnt.
Borgarráð hefur samþykkt, að
hækka gjaldskrá Hitaveitu
Reykjavíkur um 15% frá og með
áramótum, en málið á eftir að
fara fyrir borgarstjóm. Upphaf-
lega var áformað að hækka
gjaldskrána um 33,4% en frá því
var horfíð í framhaldi af tilmælum
ríkisstjórnarinnar um að sveitar-
félög hækkuðu einstakar gjald-
skrár sínar ekki um meira en
10%. Jóhannes Zöega, hitaveitu-
stjóri, segir, að þessi lækkun niður
í 15% kosti hitaveituna um 200
milljónir króna. Ef hækkunin
hefði aðeins orðið 10% hefði tapið
numið 60-70 milljónum króna til
viðbótar.
Á fundi ríkisstjórnarinnar 22.
desember s.l. var ákveðið, að
heimila aðeins 10% hækkun á
gjaldskrám Pósts og síma og
Ríkisútvarpsins. Póstur og sími
hafði farið fram á 16% hækkun
og að sögn Guðmundar Bjöms-
sonar, fjármálastjóra stofnunar-
innar, hefur þetta í för með sér
að Póstur og sími missir af um
150 milljóna króna tekjum. Kvað
hann stofnunina væntanlega
þurfa að afla þess fjár með láni.
Ríkisútvarpið hafði farið fram
á 20-30% hækkun á afnotagjöld-
um. Fallist hafði verið á 20%
hækkun, en síðan var tekin
ákvörðun um helmings lækkun.
Guðrún Óðinsdóttir í ijármála-
deild Ríkisútvarpsins segir, að
tekjumissir vegna þessa nemi um
9-10 milljónum króna á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs. Verði ekki
um frekari hækkanir afnotagjalda
á árinu gæti því tekjumissirinn
numið allt að 40 milljónum króna.
Borgarráð:
Fræðslumynd um fíkniefni kostar 3,5 millj
SAMKOMULAG hefur náðst
milli Reykjavíkurborgar og Tákn
sf. um að kostnaður við gerð
fræðslukvikmyndar um fíkni-
efnamál verði 3 milljónir og 500
þúsund. Upphafleg kostnaðará-
ætlun hljóðaði upp á 1 milljón
750 þús. fyrir 30 mínútna kvik-
mynd, en þegar ákvörðun var
tekin um að stöðva frekari kvik-
myndun var áætlaður kostnaður
um 4 milljónir fyrir einnar
klukkustundar mynd.
I samkomulaginu er gert ráð fyr-
ir að myndinni verði skipt niður í
fjóra 15 mínútna þætti sem saman
myndi eina heild. „Myndin er orðin
allt önnur heldur en lá fyrir í upp-
hafí í drögum að handriti og
upplýsingum um hvernig ætti að
gera myndina," sagði Ómar Einars-
son framkvæmdasstjóri íþrótta og
æskulýðsráðs borgarinnar. „Því var
síðan breytt án samráðs við borg-
ina.“ Samið hefur verið við Mennta-
málaráðuneytið og Ríkisútvarpið-
sjónvarp um kaup á sýningarétti í
sjónvarpi og í skólum fyrir 1 milljón
króna.
Að sögn Ómars hafa fulltrúar
Reykjavíkurborgar séð kvikmynd-
ina og lýst yfir ánægju með það
efni sem fest hefur verið á filmu.
Vinna við klippingu er hafín og
stendur til að myndin verði tilbúin
til sýningar 15. febrúar eins og að
var stefnt.
Húsavík:
*
Afengisútsölu hafnað
Húsavík
HÚSVÍKINGAR höfnuðu hug-
myndinni um opnun áfengisút-
sölu í atkvæðagreiðslu síðast-
liðinn laugardag.
Áður hefur tvívegis verið kann-
aður hugur Húsvíkinga til þessa
máls og í bæði skiptin verið fellt
við atkvæðagreiðslu. Nú vildu
áhugamenn um útsölu hafa sér-
staka atkvæðagreiðslu um málið
og vildu ekki bíða kosninganna í
vor. Úrslitin urðu þau sömu og
áður, að meirihlusti Húsvíkinga
vill ekki áfengisútsölu á staðinn.
Á kjörskrá voru 1698 og atkvæði
greiddu 1211 eða 71,3%. Já sögðu
546, nei 652. Auðir og ógildir
seðlar voru 13.
Fréttaritari
ULLORÐINSFRÆÐSLA
Verzlunarskóla
ÍSLANDS
ÖLDUIMGADEILD:
Kennsla hefst 19. janúar.
Eftirtaldar námsgreinar verða kenndar: Bókfærsla,
enska, hagfræði, íslenska, efnafræði, stærðfræði,
stjórnun, vélritun, þýska.
STARFSNÁM:
Kennsla hefst 26. janúar.
BÓKHALDSBRAUT:
Verslunarreikningur, bókfærsla I, rekstrarhag-
fræði, tölvunotkun, bókfærsla II, bókfærsla lll,
tölvubókhald, kostnaðarbókhald.
SKRIFSTOFUBRAUT:
Vélritun I, bókfærsla I, verslunarreikningur,
íslenska, vélritun II, ritvinnsla, lögfræði, skjala-
varsla og stjórnun, enska.
Innritun er hafin. Ekki komast fleiri en 25 á hvert
námskeið.
Umsóknareyðublöö fást á skrifstofu Verztunarskói-
ans að Ofanleiti 1, 108 Reykjavík.
Lesefni í stórum skömmtum!