Morgunblaðið - 06.01.1987, Síða 9

Morgunblaðið - 06.01.1987, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987 9 MUSIKLEIKFIMIN HEFST 15. JANÚAR Styrkjandi og liökandi œfingar fyrir konur á öllum aldri. Byrjenda- og framhaldstimar. Kennsla fer fram í Melaskóla. Kennari: Gigja Hermannsdóttir. Uppl. og Innritun f sfma 13022 um helgar. Virka daga eftir kl. 5. ____________________________________________s T^íQamaikaðuzinn s^iaitisyötu 12-18 Opið laugardag 10-5 Toyota Tercel 1987 Nýr bíll 4x4. verð 560 þús. Toyota Twin Cam 1985 6 þ.km. Grésans. Sportfelgur, litaö gler o.m.fl. Verö 545 þús. Suzuki Fox 1985 Hvitur m/háu þaki, stærri vélin. Ekinn 34 þ.km. Útvarp + segulband o.fl. Verö 420 þús. B.M.W 316 1982 Fallegur bfll, ekinn 30 þ.km. Verð 350 þús. Honda Prelude '84 40 þ.km. Grásans. V. 560 þ. MMC L 300 '84 33 þ.km. Hvitur. V. 390 þ. Subaru 4x4 station '84 Sjálfsk., rafm. í rúðum. Citroén CX Familiale '85 29 þ.km. Oiesel station. V. 980 þ. Nissan Bluebird LX ’86 5 þ.km. 5 gira. V. 540 þ. Lancia (skutla) '86 11 þ.km. Ragm. í rúöum o.fl. Daihatsu Charade '84 27 þ.km. 5 dyra V. 250 þ. Citroen Axel ’86 hvítur, 13 þ.km. v. 240 þ. Escort 1100 ’86 18 þ.km. V. 395 þ. Mazda 929 station '84 49 þ.km. Toppþíll. V. 450 þ. 10-20 mán. greiðslukjör: Fiat 131 79 Mjög gott eintak. V. 125 þ. Toyota Cressida 78 Góöur bill. V. 165 þ. Mazda 323 1300 '82 Grásans., 3 dyra. V. 215 þ. A.M.C. Concord 2 dyra 78 78 þ.km. sjálfsk. m/öllu. V. 175 þ. Mazda 626 (1.6) '80 Ekinn 59 þ.km. V. 175 þ. Datsun Diesel 77 Uppt. vól o.fl. V. 115 þ. Þingflokkur Alþýðuflokksins. (Ljósm. Mbl. ÓI.K.M.) Hvað rekur sig á annars horn! Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Al- þýðuflokksins, og Ámundi Ámundason, „hugmyndafræðingur" flokksins, leggja nú atkvæðanet sín sem mest þeir mega á öllum kjósendamiðum landsins. Þeir róa á öll skoða- namið og sérhanna ögn fyrir alla skoðana- hópa. Þessvegna rekur sig hvað á annars horn í málflutingi þeirra. Staksteinar staldra við dæmi af þessu tagi, hvar sjónarmið stang- ast á, í áramótahugleiðingu flokksformanns- ins í Alþýðublaðinu á gamlársdag. Lengi lifi sam- keppnin! Til skamms tíma var einkaframtak og sam- keppni í atvinnurekstri ekki forgangshugsjón hjá Alþýðuflokknum. Á kosningaári sakar hins- vegar ekki að egna fyrir þá, er telja aðhald sam- keppninnar nauðsynlegt í nútima þjóðfélagi. Þannig segir Jón Baldvin Hannibalsson f áramóta- hugleiðingu: „Ágreiningurinn er ekki heldur um sam- keppni á markaði. Ekkert getur komið i stað persónulegs frum- kvæðis einstaklinga f framleiðslustarfi. Ekkert þjóðfélag er til án mark- aðar. Og samkeppni einstaklinga á markaði, öfugt við einokun, skilar heildinni lægra vöru- verði og bættri þjónustu. Ef persónulegt frum- kvæði og samkeppni er afnumið með valdbeit- ingu lamast þjóðfélagið. Samkeppni á markaði getur þvf stuðlað að bættri nýtingu fram- leiðsluþátta og þar með auknum hagvexti og betri Ufskjörum almenn- ings en ella. En fjár- magnseigendur styðja sjaldnast samkeppni í verki. Fjármagnid leitar ævinlega eftir einokun- araðstöðu og reyndar forréttinum i skjóli rikis- valdsins." Meginefni þessa pistils gæti verið tekið beint úr landsfundarsamþykkt Sjálfstæðisflokksins, enda er hér gert út á sömu hugsjóna- og skoðanamið. En Adam var ekki lengi i Paradís, enda grunnt á gamla kratismanum, samanber það sem hér verður á eftir rakið. Lengi lifi mið- stýríngin! Eftir að flokksformað- urinn hefur lagt net sin á hugsjónamið persónu- legs frumkvæðis og samkeppni i þjóðarbú- skapnum heldur hann á heimamið fomra hug- sjóna Alþýðuflokksins um miðstýringu, hvar valdhafar og kerfiskarl- ar hafa vit fyrir sauðs- vörtum almúganum. Þá segir flokksformaðurinn orðrétt um hlutverk Al- þýðuflokksins: „Að breyta þeirri eigna- og tekjuskiptiugu, sem hlýzt af óheftum markaðsbúskap, í att tíl aukins jafnaðar, en það er sjálf forsenda þess að lýðræðislegt stjómarfar getí þrifizt. Jafnaðar- menn boða þess vegna fyrirbyggjandi þjóðfé- lagslegar umbætur... Eitt meginviðfangsefni jafnaðarmanna á okkar tímum í efnahagsmálum er stjómun markaðarins í hveiju þjóðfélagi fyrir sig og i alþjóðaviðskipt- um. Vegna þess að hin mannlega og siðf erðilega krafa um félagslegt rétt- lætí er markaðskerfinu framandi. Þess vegna er hugsjónin um frelsi, jafn- réttí og bræðralag enn i fullu gildi“. Allt er þetta nú gott og blessað svo langt sem það nær. Gallinn er hins- vegar sá að lofsöngurinn um persónulegt frum- kvæði og samkeppni markaðarins, sem skili heimilum og einstakling- um „lægra vömverði og betri þjónustu", „auknum hagvextí og betri lífskjörum", stangast á við það sem siðar er sagt um kratíska „stjómun markaðarins", sem vera á í höndum pólitískra valdhafa og kerfiskarla. Forsendau framandi sjálfri sér! Amiarsvegar segir flokksformaðurinn (og hefur þar greinilega hlið- sjón af stefnumiðum Sjálfstæðisflokks), að persónulegt frumkvæði einstaklinga og sam- keppni á markaði skili heildinni meiri hagvextí, betri lifskjörum, bættri þjónustu og lægra vöm- verði (en hin miðstýrða sldpulagshyggja). Hann gengur svo langt að full- yrða, sem rétt er, að „ef persónulegt frumkvæði og samkeppni er afnum- ið með valdbeitíngu lamist þjóðfélagið"!. Hinsvegar segir hann að hið mannlega og sið- ferðilega (sem góð almenn lífskjör, góð al- hliða þjónusta og hag- stætt vömverð hljóta að vera hlutí af) séu „mark- aðskerfinu framandi". Markaðskerfið er sum sé forsenda velferðar, en velferðin, sem er skilget- ið afkvæmi þess, er þvi hinsvegar framandi! Þessvegna verði Alþýðu- flokkurinn að leggja á það fjötra miðstýringar og haftabúskapar. „Fyrr má nú aldeilis fyrr vera,“ eins og karlinn sagði. Það em mótsagnir af þessu tagi í áróðri Al- þýðuflokksins, sem úir og grúir af, er vekja van- trú, enda liggja rætur flokksins í miðstýrðri skipulagshyggju og opin- bem stjómlyndi. Það er hinsvegar af hinu góða að menn geri sér glögga grein fyrir því að öll efnaleg velmegun og félagsleg þjónusta sækir kostnaðarlega undirstöðu til verðmæta- sköpunar í þjóðarbú- skapnum, sem er þeim mun meiri sem meira fijálsræði ríkir í atvinn- ulifinu. INNLAUSNARVERÐ V.AXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS í 1. FL. B 1985 Hinn 10. janúar 1987 er fjóröi fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 1. fl. B 1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 4 verður frá og með 10. janúar n.k. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 5.000 kr. skírteini kr. 256,70 Vaxtamiðimeð 10.000 kr. skírteini kr. 513,40 ______Vaxtamiðimeð 100.000 kr. skírteini_kr. 5.134,00__ Ofangreindarfjárhæðireru vextir af höfuðstól spariskírteinannafyrirtímabilið 10.júlí 1986 til 10.janúar1987 að viðbættum verðbótum sem fylgjahækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1006 hinn 1. janúar 1985 til 1565 hinn 1. janúar 1987. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr.4 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík, og hefst hinn 10. janúarr 1987. Reykjavík, 29. desember 1986 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.