Morgunblaðið - 06.01.1987, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987
13
Ríkisendurskoðun á
vegum Alþingis:
Merkur at-
burður í
stjómsýslu
landsins
segir forseti Sam-
einaðs þings
Fyrsta janúar síðastliðinn tóku
gildi lög nr. 12/1986 sem kveða
á um að ríksendurskoðun skuli
starfa á vegum Alþingis. Þessi
breyting á sér lagan aðdraganda.
Asgeir Pétursson, bæjarfógeti,
setti fram rökstuðning fyrir
þessari breytingu í grein í tíma-
ritinu Úlfljóti þegar árið 1954.
Hann átti og sæti í stjórnskipaðri
nefnd sem samdi frumvarp að
þeim lögum, sem hér um ræðir,
og nú hafa tekið gildi.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
forseti Sameinaðs þings, sagði m.a.
í boði, sem Alþingi hélt starfsfólki
Ríkisendurskoðunar af þessu tilefni:
„Um þessi áramót er að ske
merkur viðburður í stjórnsýslu
landsins... Með lögum þessum er
gerð grundvallarbreyting á ríkis-
endurskoðuninni. Ákveðið er að
ríkisendurskoðun starfi á vegum
Alþingis. Fram til þessa hefur ríkis-
endurskoðun heyrt undir fjármála-
ráðuneytið og ríkisendurskoðandi
verið ráðinn af fjármálaráðherra.
Nú er ríkisendurskoðun gerð óháð
framkvæmdavaldinu. Þetta er
stjómskipunarlega séð veigamesta
breytingin. Og með þessu hætti
fetum við íslendingar í fótspor
ýmissa annarra þjóða, sem fært
hafa ríkisendurskoðanir sinna landa
frá framkvæmdavaldi til löggjafar-
valds. Má þar nefna t.d. lög sem
tóku gildi í Bretlandi 1984, í
Kanada 1977 ogDanmörku 1976“
Fram kom í máli þingforseta að
Ríkisendurskoðun á vegum Alþingis
skuli hafa eftirlit með framkvæmd
fjárlaga og vera þingnefndum til
aðstoðar við störf er varða fjár-
hagsverkefni.
Ólafsvík:
Besta ára-
mótaveðrið
í mörg ár
ólafsvik.
HÁTÍÐAHÖLD um jól og áramót
voru hér með hefðbundnum
hætti og óphappa- og slysalaus.
Eftir rysjótta tíð i haust var gott
veður jóladagana og áramóta-
veðrið var það besta um margra
ára skeið, logn, heiðrikja og
froststillur.
Á miðnætti stafaði bjarma af
blysum og flugeldum langt upp í
fjalishlíð en yfir höfninni blasti við
upplýst ártal sem Lions-menn gera
árlega. Bærinn er mikið skreyttur.
Samkomuhald var rólegt. Fólk er
bjartsýnt en þó ber skugga á vegna
óvissu um hvenær róðrar hefjast
vegna kjaradeilu sjómanna og út-
vegsmanna.
Helgi
Leiðrétting
í Morgunblaðinu sunnudaginn
4. janúar er frásögn um Eureka-
áætlunina. Er í henni ekki alls
kostar rétt skýrt frá hverjir sóttu
af íslenskri hálfu ráðherrafund
Eureka í Stokkhólmi 17. desember
sl., en í sendinefnd íslands voru:
Knútur Hallsson ráðuneytisstjóri,
sem jafnframt var formaður nefnd-
arinnar, Vilhjálmur Lúðvíksson
framkvæmdastjóri og Berglind Ás-
geirsdóttir sendifulltrúi.
ANIMÁLL 1986
Eróbikk
Mánudagurog
Priðjudagurog
Föstudagur
Laugardagur
12 KENNARAR STÖRFUÐU VIÐ SKOLANN A ÁRINU
Á myndinni eru: Anna Ólafs-
dóttir, Ágústa Johnson, Sigrún
Arnar, Sigríður Valdimarsdótt-
ir, Þuríður Hreiðarsdóttir,
Jónína Benediktsdóttir, Kristín
Gísladóttir og Mark Wilson. Á
myndina vantar: Ágústu Kristj-
ánsdóttur, Hildigunni Johnson,
Norwell Robinson og Önnu
Borg.
Sunnudagur
Innritun í síma 29191
milli klukkan 10 og 22
alla daga.
09.30-10.30* Morguntimi: * ★ 09.30-10.30* Morguntími: * ★
12.07-12.55* Hádegisþrek’ ★ 12.07-12.55* Hédegisþrek * ★ 11.30-13.00* Púltími * ★ 12.00-13.10* Þrektfmi * ★
16.20-17.20 Byrjendat. 16.20-17.20 Framhaldst. 16.20-17.20* Byrjendat. * ★ 13.00-14.00* , Framhaldst. * ★
17.20-18.20 Framhaldst. 17.20-18.20 Byrjendat. 17.20-18.30* Þrektimi * ★ 14.00—15.00* Byrjendat. * «
18.20-19.40 Púltími 18.20-19.30 Þrektími
19.40-20.40 Byrjendatimi 19.30-20.30 Framhaldstimi
20.40-21.40* , Bamshafandi * * 20.30-21.30* Byrjendatimi * ★
21.40-22.40* „Old Boys“ * ★
Þessi stundaskrá gengur i gildi 5. janúar 1987. Stjörnumerktir tímar eru frjálsir tímar.
JfírwírtiÆ sigiísti*
Borgartúni 31. S: 29191.
„Low Impact'
Minna álag á fætur.
Eróbikk er fyrir þá
sem vilja ná árangri jafnframt
því að hafa gaman af
Eróbikkstúdíó Jónínu og Ágústu var opnað 15. mars og hefur
mikill sviti runnið til sjávar síðan.
Aðsóknin segir sína sögu og hafi einhver minnst á magn en
ekki gæði hvað Eróbikk varðar, þá teljum við fólkið, sem hefur
mætt í mörg ár reglulega, bestu dómarana hvað það snertir.
Því teljum við kennsluna hjá okkur miðast við getu nemendanna
og þá þekkingu sem nýjust er hvað varðar öryggi.
Öryggi er aðalsmerki þeirra sem fylgjast með og á árinu sem
leið höfum við sent kennarana út um allan heim til þess að
kynna sér sem best nýjasta nýtt í Eróbikk.
Ágústa Johnson sótti námskeið í Colorado, Chicago og núna
nýverið í Los Angeles.
Jónína Ben. fór og kynnti sér Eróbikk í Danmörku.
Ágústa Kristjánsdóttir fórtil Colorado.
Mark Wilson fór til Kanada á námskeið.
Kristín Gísladóttir er nýkomin frá Los Angeles.
Anna Borg var líka í Los Angeles.
Anna Ólafsdóttir stundar nám í Eróbikk í San Fransiskó.
Þessu verður haldið áfram á nýju ári.
Námskeið var haldið á vegum Jónínu og Ágústu með aðstoð
sjúkraþjálfara, læknis og læknanema auk þess sem kennararnir
aðstoðuðu. Þetta tókst vel og var þátttakan mjög góð. 25 nem-
endur tóku þátt í námskeiðinu sem stóð yfir í 5 vikur. Við töldum
tímabært að einhverjirfaglærðir stæðu fyrirfræðslu um Eróbikk
almennt, þar sem augljóst er að einhver sú gagnrýni sem við
heyrum stafar af því að fólk, sem telur sig vera að kenna Eró-
bikk, veit varla hvað það er. Námskeiðið gefur að sjálfsögðu
engin kennararéttindi heldur er um að ræða viðurkenningu fyrir u
þátttöku í námskeiði undirritað af Jónínu og Ágústu.
Annað slíkt námskeið verður haldið með vorinu.
Ráðstefna á Hótel Esju fyrir nemendur í Eróbikk var sérlega
vel sótt og virtist fólk hafa endalaust úthald, enda allir í góðu
formi. Fjallað var um helstu þætti hreyfingar, næringar og svo
forvarna í líkamsrækt. Margirfyrirlesarar voru og vonandi voru
allir vel upplýstir og saddir af heilsufæði eftir þann skemmtilega
dag.
Norwell Robinson kom sem gestakennari og væntum við komu
hans að nýju með vorinu.
Annál lýkur.