Morgunblaðið - 06.01.1987, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987
Heimilisiðnaðarskóli íslands:
Kennt en
Rætt við Sigríði Halldórs-
dóttur skólastjóra
Ymiskonar handavinna hefur að nýju rutt sér mjög til rúms, og nú
þykir ekki lengur „púkó“ að klæðast heimasaumuðum fatnaði og
handprjónuðum peysum. Mörgum finnst gaman að lita garn og
pijóna síðan úr því og einnig eru þeir ófáir sem hafa gaman af því
að þrykkja eigin munstur á efni og sníða síðan og sauma fjölbreyti-
legan fatnað. Heimilisiðnaðarfélag íslands rekur skóla á Laufásvegi
2 í Reykjavík þar sem haldin eru fjöldamörg námskeið í hinum
ýmsu heimilisiðnaðargreinum. Það sem kannski er athyglisverðast
við þennan skóla er að þar eru kenndar greinar sem margar hveij-
ar er hvergi annars staðar hægt að læra, svo sem þjóðbúningasaumur,
tóvinna, spjaldvefnaður, jurtalitun, baldýring, knipl og tréskurður.
Allt eru þetta gamlar íslenskar handíðagreinar sem smám saman
eru að hverfa. Okkur lék forvitni á að vita hvemig skólinn starfar
og hvaða námskeið hann býður upp á í vetur. Við bmgðum því
undir okkur betri fætinum og litum inn á Laufásvegi 2 þar sem við
ræddum við Sigríði Halldórsdóttur
„Við bjóðum fyrst og fremst upp
á kvöldnámskeið," segir Sigríður
aðspurð um kennslufyrirkomulagið.
„í flestum tilfellum byijum við
klukkan 20 og erum til klukkan 23.
Þó eru nokkur námskeið sem hefj-
ast klukkan 17. Nemendur mæta
einu sinni til þrisvar sinnum í viku
og við leggjum megináherslu á að
miðla undirstöðuþekkingu í hverri
námsgrein. Í upphafi hvers nám-
skeiðs eru helstu undirstöðuatriði
kennd á sýnishornum. Þá er hafist
handa við að gera eitt stórt verk-
efni. Fólk lærir meira á að gera
sýnishornin fyrst og við leggjum
metnað okkar frekar í að kenna en
framleiða."
Sign'ður segir að á síðasta ári
hafí 35 námskeið verið haldin og
nemendur hafi verið 270 talsins.
„Hámarksfjöldi nemenda á hverju
námskeiðí er 10 manns. Við viljum
að nemendur hafí vinnupláss og
einnig að kennarinn geti leiðbeint
hveijum og einum. I þjóðbúninga-
saum eru til dæmis ekki fleiri en
sex nemendur í einu.“
Hvaða námskeið eru í boði i
vetur og hvernig eru þau byggð
upp?
„I jurtalitun er stuttlega farið í
sög^u greinarinnar og helstu litunar-
jurtir kynntar. Einnig eru hjálpar-
efni og áhöld kynnt og þátttakendur
lita með ýmsum aðferðum og vinna
vinnubók með uppskriftum og sýn-
ishomum. Þessi námskeið eru 36
kennslustunda löng og kennt er á
mánudags- og fímmtudagskvöld-
um. Fyrsta námskeiðið í þessari
grein hefst 9. febrúar næstkom-
andi.
Knipl
Við verðum með námskeið í knipli
sem hefst 7. febrúar næstkomandi.
Listin að knipla hefur lengi verið
til á íslandi, þó hún hafi kannski
aldrei verið mjög almenn. A byijun-
amámskeiðum okkar vinna nem-
endur nokkur sýnishom með
undirstöðuatriðum knipls. Knipllist-
in er sérstök blúndugerð, mjög
gamalt handverk.
Tauþrykk
Á tauþrykknámskeiðunum em
helstu aðferðir I tauþrykki kenndar.
Fyrst em unnin sýnishom með mis-
munandi aðferðum, síðan heil verk
eftir því sem tími vinnst til, en þessi
námskeið em í 27 kennslustundir.
Nemendur fá tækifæri til að útbúa
eigin ramma fyrir rammaþrykk.
Næsta námskeið í tauþrykki hefst
3. mars á næsta ári.
Tréskurður
Við emm með eitt tréskurðar-
námskeið í gangi núna, en verðum
alls með sex námskeið á þessu
starfsári. Næsta námskeið hefst 7.
janúar og eftir það verða tvö nám-
skeið í tréskurði. Tréskurður hefur
verið alþýðulist hér á landi um alda-
skeið, um það vitnar mikill fjöldi
gripa á minjasöfnum landsins.
Námskeiðin hjá okkur byggja á
þessari gömlu hefð. Nemendur
byija á fremur einföldu verkefni og
skólastjóra.
Morgunblaðið/Þorkell
Sigríður Halldórsdóttir skóla-
stjóri _ Heimilisiðnaðarskóla
íslands. „í skólanum er leitast
við að varðveita gömul íslensk
vinnubrögð og jafnframt að
finna þeim stað í nútímanum."
æfa rétt handtök og beitingu járn-
anna. Þá er tekið til við stærri
verkefni. Hentugustu viðartegundir
til tréskurðar em kynntar og einnig
sérkenni hverrar um sig. Þetta
námskeið er í 40 kennslustundir
tvisvar sinnum í viku.
Tóvinna
Á tóvinnunámskeiðunum leggj-
um við áherslu á að leiðbeina
samkvæmt sömu aðferðum og not-
aðar vom fyrrum á íslandi. í því
feist að taka ofan af, hæra, kemba
og spinna, bæði á halasnældu og
rokk. Spunnið er þel og tog og
notaðir viðeigandi kambar. Gömul
heiti og orðatiltæki um áhöld, ull
og spuna em útskýrð. Jafnframt
því sem jafnt band er spunnið á
hefðbundinn hátt, em gerðar til-
raunir með misgróft band og
samkembur. Við verðum eingöngu
með eitt námskeið í tóvinnu í ár
og það hefst 2. febrúar.
Leðursmíði
Á leðursmíðinámskeiðunum em
eiginleikar leðursins kynntir og
mismunandi notagildi eftir gerð og
útliti. Fyrst em unnin eitt eða tvö
ákveðin verkefni, þar sem helstu
tækniatriðin koma fyrir. Seinna
verkefnaval er fijálst í samráði við
kennara. Næsta námskeið í leð-
ursmíði hefst 7. febrúar.
Ýmislegft varðandi
vefnað
Við emm með sérstök bamanám-
skeið í vefnaði þar sem nemendur
em á aldrinum sjö til þrettán ára.
Ofíð er á borðvefstóla með tveimur
sköftum. Kennari annast uppsetn-
ingu að mestu, en nemendur fá að
leika sér með liti og ívaf og ákveða
ekki framleitt
Heimilisiðnaðarfélagið er í þessu fallega húsi við Laufásveginn. Myndin er tekin frá Lækjargötu.
sjálfir hvað þeir vefa. Þeir fá einnig
að handfjatla bandhespur, vinda
hnykla, spóla og nota viðeigandi
áhöld. Næsta bamanámskeið hefst
7. febrúar og verður kennt í 24
kennslustundir á laugardagsmorgn-
um.
Þijú námskeið em áætluð í
myndvefnaði í ár og er hvert þeirra
45 kennslustundir. Næsta námskeið
hefst 3. mars næstkomandi. Á
þéssu námskeiði eins og raunar
flestum námskeiðum okkar, er byij-
að á því að kenna undirstöðuatriði
myndvefnaðarins. Nemendum er
sýnt hvemig á að stækka munstur
og þeir fá aðstoð kennara við að
stækka eigin munstur. Kennsla fer
fram á þriðjudagskvöldum frá
klukkan 20 til 23.
Sérstök byijendanámskeið í vefn-
aði em skipulögð og hefst næsta
námskeið 19. janúar. Þessi nám-
skeið eru einnig hugsuð fyrir þá sem
eitthvað hafa ofíð áður og vilja rifja
upp. Lögð er áhersa á að kenna
uppsetningu á fjögur sköft, útreikn-
ing í einfaldan vef, lestur uppskrifta
og hægust handtök. Jafnframt er
leitast við að kynna fyrir nemendum
ýmsar vefnaðargerðir og mismun-
andi vefjaefni. Á vissum tímum er
nemendum gefinn kostur á að vefa
utan kennslustunda. í vor verðum
við með sérstakt námskeið fyrir þá
sem hafa verið á þessum byijenda-
námskeiðum. Þetta em löng
námskeið, alls 99 kennslustundir
og kennt er þrisvar sinnum í viku.
Spjaldvefnaður er ævafom vefn-
aðartækni og við verðum með eitt
slíkt námskeið sem hefst 5. febrú-
ar. Talið er að þessi tækni hafí
borist til íslands með landnáms-
mönnum og þróast hér á sérstæðan
hátt. Nemendur vinna sýnishom og
heil bönd, belti og axlabönd, tösku-
bönd og fleira með nokkmm
mismunandi aðferðum. Sérstök
áhersla er lögð á tvöfaldan spjald-
vefnað eins og hann hefur verið
unninn hér á landi. Kennt verður
einu sinni í viku í alls 27 kennslu-
stundir.
Næsta námskeið í vefnaðarfræði
hefst 19. janúar. Námskeiðið er
hugsað fyrst og fremst fyrir þá sem
hafa ofið áður. Þetta er bóklegt nám
og ætlað þeim sem vilja gera sér
betur grein fyrir því hvemig nýta
má vefstólinn og hvemig hægt er
að undirbúa vef á pappír áður en
kemur til hins verklega þáttar.
Helstu námsþættir em bindifræði,
útreikningar og áhaldafræði.
Prjón
Pijónanámskeiðin em mismun-
andi. Við emm til dæmis með
sérstakt námskeið í sokka- og vettl-
mgapijóni þar sem miðað er við þá
sem vantar undirstöðuvitneslcju um
Tuskubrúður sem gerðar hafa verið á námskeiðum Heimilisiðnaðar-
skólans.
Hér sjást íslenskir þjóðbúningar, en skólinn heldur sérstök námskeið
i gerð þeirra. Myndin var tekin á sýningu skólans á Kjarvalsstöðum
haustið 1982.