Morgunblaðið - 06.01.1987, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 06.01.1987, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987 23 Hallgrímskirkja: „Kveð ekki upp allsherjar- dóm yfir hljómburðinum“ - segir Hörður Áskelsson söngsljóri „Eg treysti mér ekki til að kveða upp neinn allsheijardóm yfir hljómburðinum í Hallgrímskirkju, en ég hef mjög jákvæða tilfinn- ingfu fyrir þessu húsi,“ sagði Hörður Askelsson söngstjóri kirkj- unnar er hann var spurður hvað hann vildi segja um þá gagnrýni sem fram hefur komið á hljómburð i kirkjunni. Hörður sagðist hafa haft sam- band við fjölmarga sem hafa verið á tónleikum í kirkjunni, flestir væru ánægðir með hljómburðinn, en einnig mætti heyra nokkrar óánægjuraddir. „Sumir hafa jafn- vel haldið því fram að húsið væri gjörsamlega glatað. En menn heyra auðvitað misvel eftir því hvar þeir sitja, hvar tónlistarfólk og söngvarar er staðsett í kirkj- unni og auk þess hefur fjöldi áheyrenda áhrif á hljómburðinn, það er t.d. mjög erfítt að æfa í kirkjunni þegar hún er tóm, því þá er mjög langur eftirhljómur, en ég geri ráð fyrir að reynt verði að lagfæra það. Kirkjan er ekki fullbúin, það á t.d. eftir að inn- rétta loft yfir hliðargöngum, en ákveðið var að láta það bíða þar til mælingar höfðu farið fram á Hörður Áskelsson hljómburðinum í kirkjunni og koma ýmsir möguleikar til greina í sambandi við loftið. Þá á eftir að ganga frá götum við kirkjuioft- ið og í raun á eftir að prófa mjög margt í sámbandi við hvemig hljómburður verður bestur í kirkj- unni, svo sem hvemig best er að staðsetja hljóðfæri og söngvara. Auk þess á alveg eftir að leysa það vandamál hvemig best er að koma hinu talaða máli til skila, en til þess þarf gott talkerfi. Þá eigum við eftir að athuga hvar best er að hafa orgelið í kirkj- unni, það er það stórt að það kemur til með að hafa mikil áhrif á hljómburðinn. “ Hörður sagði að flestir væm mjög ánægðir með þá tónleika sem hefðu verið haldnir í kirkj- unni um jólin, „kórsöngur án undirleiks hefur t.d. heyrst mjög vel í kirkjunni. Framundan hjá okkur em fyrstu orgeltónleikam- ir, þann 18. janúar og ég er sannfærður um að það á eftir að heyrast mjög vel í orgelinu hér.“ Tónleikar í Áskirkju ÞRIR ungir strengjaleikarar, Auður Hafsteinsdóttir, fiðlu- leikari, Bryndís Pálsdóttir, fiðluleikari og Svava Bern- harðsdóttir, lágfiðluleikari, efna til tónleika, í Áskirkju í Reykjavík, miðvikudaginn 7. janúar klukkan 20.30. Þær stöllur em allar við tónlist- arnám í Bandaríkjunum, Auður stundar nám við New England Conservatory í Boston og mun ljúka þaðan BM prófi á vori kom- anda, en þær Bryndís og Svava em við nám í Juilliard skólanum í New York. Bryndís lýkur BM prófí í vor en Svava er í doktors- námi. Á tónleikunum á miðvikudags- kvöld munu þær flytja dúetta eftir Mozart og Martinu og tríó eftir Dvorak og Kodaly. V ör uskiptaj öfnuðurinn óhagstæður í nóvember Hagstæður um tæpa 4,3 milljarða fyrstu 11 mánuði ársins í NÓVEMBER 1986 voru fluttar út vörur fyrir rúma 3 milljarða króna en inn fyrir rúma 3,3 millj- arða miðað við fob-verð. Vöru- skiptajöfnuðurinn í nóvember var því óhagstæður um 323 millj- ónir króna en í nóvembermánuði 1985 var halli á vöruskiptajöfn- uðinum sem nam 224 milljónum króna á sama gengi. Fyrstu 11 mánuði ársins 1986 voru fluttar út vörur fyrir rúma 40 milljarða króna en inn fyrir rúma 35,8 milljarða fob. Vöruskiptajöfn- uðurinn fyrstu 11 mánuði ársins var því hagstæður um tæpa 4,2 milljarða en á sama tíma 1985 var hann óhagstæður um 760 milljónir króna á sama gengi. Fyrstu 11 mánuði ársins 1986 var verðmæti vöruútflutningsins 16% meira á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjávarafurðir voru rö- skir þrír fjórðu hlutar alls útflutn- ingsins og voru 20% meiri en á sama tíma 1985. Útflutningur á áli var 5% meiri en 1985, útflutningur kísiljáms var 6% minni og útflutn- ingsverðmæti annarrar vöru var 4% meira en á sama tíma 1985, reikn- að á föstu gengi. Verðmæti vöruinnflutningsins fyrstu 11 mánuði ársins 1986 var 2% meira en á sama tíma 1985, reiknað á föstu gengi á viðskipta- vog. Hér skiptir miklu, að rekstrar- vöruinnflutningur álverksmiðjunn- ar var mun minni en á sama tíma 1985. (Ur fréttatilkynningu frá Hag- stofu Islands) A Þröstur Olafsson: Gefur ekki kost á sér ÞRÖSTUR Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Dagsbrúnar, sem hlaut 6. sætið í forvali Alþýðu- bandalagsins i Reykjavík vegna komandi alþingiskosninga hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á f ramboðslistanum. „Ég hef aldrei sóst eftir þessu sæti og hefði aldrei farið í þetta sæti, ef mér hefði verið boðið það, án prófkjörs," sagði Þröstur í sam- tali við Morgunblaðið. Hann sagði að þetta þýddi engan veginn það að hann væri að draga sig út úr pólitík - hann ætlaði einfaldlega ekki að taka þátt í þessum kosningum með setu á þessum lista. Leiðrétting á grein um Brunabótafélagið NOKKRAR villur voru í grein um Brunabótafélag íslands sem birt- ist á blaðsíðum 70 og 71 í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag í tilefni af 70 ára af- mæli félagsins. í myndatexta er farið rangt með nafn Guðnýjar Lynge Jóhannsdóttur sem starfað hefur hjá Brunabótafé- laginu í 66 ár. Rangt var farið með föðumafn Jónasar Hallgrímssonar forseta bæj- arstjórnar á Seyðisfirði og vara- manns í stjórn Brunabótafélagsins í texta með mynd af stjóm félagsins, varastjórn og forstjórum. í texta með mynd sem tekin var 1. janúar 1985 þegar fyrirtækið BÍ- líftrygging var stofnað var sagt að myndin væri af stjóm BÍ-líftrygging- ar. Þetta er rangt því stjóm fyrirtæk- isins er skipuð sömu mönnum og stjóm Brunabótafélagsins, það er þeim Stefáni Reykjalín (formaður), Friðjóni Þórðarsyni (varaformaður) og Guðmundi Oddssyni (ritari). Á myndinni em aftur á móti Tore Melgaard forstjóri endurtrygginga- félags BÍ, Storebrand í Noregi, Ingi R. Helgason forstjóri BÍ og BI- líftryggingar, Jostein Sörvaal aðstoð- arforstjóri Storebrand og Stefán Reykjalín formaður stjómar BI og BÍ-líftryggingar. Í myndatextanum var einnig farið rangt með nafn for- stjóra Storebrand. Mynd frá bmnavamarátaki 1986 var skorin þannig að einn þeirra manna sem frá greindi í mynda- texta, Baldur Baldursson, var ekki á myndinni. Þá féll nafn Búnaðarbanka íslands niður í texta þar sem sagt var frá fjármögnunarleigu sem Bmnabóta- félagið hefur stofnað til í samvinnu við aðra aðila. Morgunblaðið biður viðkomandi aðila og lesendur sína velvirðingar á þessum mistökum. í UPPHAFI SKYLDI ENDINN SKOÐA!! Um leið og við óskum landsmönnum farsældar og gleði á nýju ári og þökkum það liðna, hvetjum við alla til hreyfings og heilsuræktar. Við í Kramhúsinu erum þekkt fyrir allt annað en lognmollu og slen. Hér eru tveir rúmgóðir salir, fjallhressir kennarar, sem vita hvað þeir eru að gera, og námskeið og tímar við allra hæfi. Hvort sem þú ert ungur eða fullorðinn, karlkyns eða kvenkyns, kyrr- setumaður eða listdansari - eða sækist einfaldlega eftir dulúð og spennu suðrænna dansa eins og Tangó, Samba, Steppdans og Afríkudans - þá er það allt hér, í Kramhúsinu. ------------------------------- / Kramhúsinu getur þú valið um: Gömlu, góðu leikfimina • Músik leikfimi • Sjúkraleikfimi • Jass- dans • Moderndans • Steppdans • Afríkudans • Brasilíusamba • Dansspuna • Klassískan ballett. ---------------- Fyrir unglinga: Jassdans • Steppdans • Leiklist. ------------ Fyrir börn: Leiklist • Leikir • Dans og spuni. Vekjum sérstaka athygli á gestakennara okkar frá New York — NANETTE NELMS, sem kennir Jassdans, Stepp, Ballett og Modern dans. Athugið sérstaka hádegistíma alla virka daga: Fyrir konur kl. 12:05 - 12:50 Fyrir karla kl. 12:30 - 13:00 7 vikna nýársnámskeið hefst 7. janúar. Innritun og afhending skýrteina hefst 5. janúar. Símar: 15103 og 17860

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.