Morgunblaðið - 06.01.1987, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987
25
Hótelbruninn á Puerto Rico:
Eldurinn staf-
aði af íkveikiu
Cntl Tiinn DamM^n Dinn A U Dmitnn
San Juan, Puerto Rico, AP, Reuter.
RANNSÓKNARMENN hafa
komist að þeirri niðurstöðu, að
hótelbruninn, sem varð í San
Juan á Puerto Rico á gamlárs-
Noregur:
Umferð-
arslysum
fjölgar
Oslói AP.
463 létust í umferðarslysum í
Noregi á síðasta ári og hefur
tala látinna ekki verið svo há
síðan árið 1976, að sögn sam-
takanna Oruggur akstur,
(Trygg Trafikk).
Fjöldi þeirra sem slasast í um-
ferðinni hefur einnig aukist mjög.
Árið 1986 slösuðust 12.250
manns, en 11.900 árið 1985.
Norsk yfirvöld segja umferða-
þunga á norskum vegum hafa
vaxið um 9% á síðasta ári og þá
hafí bifreiðir í einkaeign verið 1.5
milljónir, en voru um ein milljón
árið 1976.
kvöld, hafi stafað af íkveikju. 96
menn eru nú látnir og er hótel-
bruninn sá annar mannskæðasti
í sögunni.
Hector Rivera Cruz, dómsmála-
ráðherra á Puerto Rico, skýrði frá
því á sunnudag á fréttamannafundi
fyrir utan hótelið, að allt benti til,
að um íkveikju hefði verið að ræða
þótt ekki hefðu enn fundist nein
ummerki um íkveikjusprengju eða
annan sprengibúnað. Beinist rann-
sókn lögreglunnar nú að því að
kanna hvers konar efni voru notuð
við íkveikjuna og einnig að því
hverjir kunni að hafa valdið henni.
Starfsmenn hótelsins og eigendur
þess áttu í harðvítugri launadeilu
og leikur mönnum grunur á, að þar
sé ástæðunnar fyrir ódæðinu að
leita.
Bandaríska blaðið The New York
Times hafði það í gær eftir einum
hótelgestanna, lögfræðingi að nafni
Guerry Thomton, sem bar fyrir sig
lögreglumenn f San Juan, að tveim-
ur sprengjum hefði verið komið
fyrir í hótelinu og báðar sprungið.
Um helgina skýrði lögreglan svo
frá, að á gamlársdag hefði verið
hringt og hún vöruð við sprengingu
í hótelinu þá um kvöldið. Hefðu þá
nokkrir menn verið sendir á vett-
vang en starfsmenn hótelsins rekið
þá burt. Framkvæmdastjóri hótels-
ins hefur vísað þeirri fullyrðingu á
bug.
Afganistan:
Najibullah ræðir við
sovéska ráðamenn
Islamabad, Reuter.
EDUARD Shervardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
og fleiri háttsettir sovéskir emb-
ættismenn komu til Kabúl,
höfuðborgar Afganistan, i gær
og áttu viðræður við þarlenda
ráðamenn. Búist er við að vopna-
hléstillögur Najibullahs, leiðtoga
Afganistan, hafi verið helsta
umræðuefnið.
Shervardnadze og Anatoly Do-
brynin, fyrrum sendiherra Sov-
étríkjanna í Washington, ræddu
síðdegis í gær við Najibullah, leið-
Pakistan:
Óeirðir
brjótast
útáný
Karachi, Reuter.
EINN maður var stunginn
til bana og átta særðust, er
óeirðir brutust út milli
manna af mismunandi ætt-
bálkum í Karachi, höfuð-
borg Pakistan, sl. sunnudag.
í síðasta mánuði létust 186
manns í slíkum átökum í
borginni.
Óeirðimar hófust í einu af
úthverfum Karachi, er hópur
ungra manna drápu ökumann
strætisvagns og breiddust þær
síðan út til þriggja annarra
úthverfa. Hersveitir voru
sendar á vettvang og dreifðu
þær æstum múgnum með
táragasi. Ekki var sett á út-
göngubann, en hermenn sáust
víða á verði, í hverfum þar sem
til átaka hafði komið.
Tarkovskyjarðsunginn íParís
Sovéski kvikmyndaleikstjórinn Andrei Tarkovsky var
borinn til grafar í gær. Eftirlifandi eiginkona hans,
Larissa, er önnur frá vinstri á myndinni og henni
til beggja handa synir þeirra hjóna, Andrei og Ars-
em.
Næst þeim stendur Olga, systir Tarkovskys.
Otförin fór fram frá dómkirkju heilags Alexanders
Nevski, sem er rússnesk rétttrúnaðarkirkja í París.
Chad:
Líbýumenn búast
til frekari átaka
toga Afganistan, og fleiri afganska
embættismenn. Útvarpið í Kabúl
sagði viðræðumar hafa einkennst
af vinsemd og virðingu en lét ekk-
ert uppi um efni þeirra.
í síðustu viku tilkynnti Najibulah
að vopnahlé myndi taka gildi þann
15 þessa mánaðar en kommúnista-
stjóm hans hefur síðustu átta ár
átt í harðvítugum bardögum við
frelsissveitir Afgana. Najibullah fór
ásamt fleiri embættismönnum til
Moskvu fyrir rúmum þremur vikum
til viðræðna við Mikhail S. Gorbac-
hev, leiðtoga Sovétríkjanna.
Leiðtogar frelsissveitanna, sem
halda til í Pakistan, hafa hafnað
vopnahléstillögum Kabúlstjómar-
innar og sagt þær vísvitandi fals
og blekkingar.
Vaxandi þrýstingnr á Frakklandsstj órn
N’Djamena, Reuter.
MOUMINE Hamidi, upplýsingamálaráðherra stjómarinnar i Chad,
sagði í gær að Libýumenn hefðu undanfarin sólarhring flutt fjölda
flugvéla til flugvalla i norðurhluta landsins. Dagblaðið Le Monde
hvatti frönsku ríkisstjórnina í gær til þess að aðstoða stjómvöld í
Chad.
Moammar Gaddafi Líbýuteiðtogi
sagði í viðtalið við franska blaðið
Liberation sem birtist í gær að
Líbýustjóm hefði sent nokkur
hundruð hermenn til Chad til að
frelsa tæknifræðinga sem þar væru
í haldi. Hingað til hefur Gaddafi
borið til baka fréttir um að líbýskir
hermenn séu í Chad og hefur hann
sagt átökin í landinu vera á milli
stjómvalda og skæruliða í norður-
hluta landsins.
í síðustu viku skýrði stjómin í
Chad frá þvi að hermenn hennar
hefðu náð borginni Fada af Líbýu-
mönnum eftir heiftarlega bardaga.
Ennfremur hefur verið skýrt frá
hörðum bardögum í Tibesti-fjöllum
í norð-vesturhluta landsins milli
hersveita sem eru hliðhollar Gouko-
uni Oueddei, fyirum skæruliðaleið-
toga, sem styður nú stjóm landsins,
cg líbýskra hermanna.
Ráðherrann sagði að sovéskar
flugvélar af gerðinni MiG, Tupolev
og Chad stendur m.a. um yfirráð
yfir því. Frakkar gerðu loftárásir á
Ouadi Doum í febrúar á síðasta ári
eftir að Hissene Habre, forseti
Chad, hafði farið fram á hemaðar-
aðstoð. Franskar herþotur eru enn
til staðar í Chad en franska ríkis-
stjómin hefur enn ekki viljað beita
þeim í bardögunum sem geisað
hafa að undanfömu. Franska ríkis-
stjórnin hefur enn ekki ákveðið
hvernig bregðast skuli við loftárás-
um Líbýustjómar á sunnudag. Þá
vörpuðu líbýskar herþotur sprengj-
um á borgina Arada sem er um 120
kílómetra sunnan „Rauðu línunnar"
svonefndu sem skiptir landinu upp
í yfirráðasvæði Líbýumanna og
stjómarinnar í Chad. Dagblaðið Le
Monde hvatti þá Mitterand Frakk-
landsforseta og Chirac forsætisráð-
herra til að bregðast hart við og
aðstoða stjómina í Chad við að veij-
ast árásum Líbýumanna.
og Sukhoi hefðu verið fluttar til
flugvalla í Ouadi Doum og Aouzou
á Aouzou-svæðinu en deila Líbýu
Filippseyjar:
Lögregla hindrar
fjölmenn mótmæli
Manilu, AP.
5000 félagar í stærsta verkalýðsfélagi Filippseyja hugðust í gær
mótmæla því að Corazon Aquino hefur vikið atvinnumálaráðherra
stjórnar sinnar úr embætti. Lögreglumenn og vopnaðar öryggissveit-
ir komu í veg fyrir mótmæli fyrir framan skrifstofubyggingu
stjórnarinnar í Manilu.
Augusto Sanchez sagði af sér
að beiðni forsetans nú um áramót-
in og tók fyrmm aðstoðarmaður
hans, Franklin M. Drilon, við starfi
hans. Félagar í „1. maí-hreyfing-
unni“, sem er stærsta verkalýðs-
félag Filippseyja, boðuðu til fundar
við skrifstofur atvinnumálaráðu-
neytisins og héldu um 5000 félagar
í átt að skrifstofu forsetans í mið-
borg Manilu. Lögreglumenn og
vopnaðir öryggisverðir stöðvuðu
göngumenn á brú einni nærri skrif-
stofu forsetans. Ekki er vitað til
þess að átök hafi brotist út.
Ráðamenn innan hersins og
kaupsýslumenn höfðu krafist af-
sagnar Sanchez og sagt hann
óhæfan. Talsmenn verkalýðsfé-
lagsins segja að Sanchez hafi verið
vikið úr embætti sökum stjóm-
málaskoðana og að stjórn Corazon
Aquino hafi færst mjög til hægri
að undanförnu. í tilkynningu frá
verkalýðshreyfingunni sagði að
Sanchez hefði ávallt starfað að
hagsmunamálum verkamanna af
einstökum heilindum. Eftirmanni
hans voru hins vegar ekki vandað-
ar kveðjumar og var hann sagður
handbendi auðmanna og óvinur
alþýðunnar.
Gengi
gjaldmiðla
London, AP, Reuter.
GENGI dollarsins hækkaði all-
nokkuð í gær gagnvart helstu
gjaldmiðlum i Evrópu. Áttu mik-
il dollarakaup vestur-þýska
seðlabankans mestan þátt í þvi.
Gullið féll niður fyrir 400 dollar-
ar únsan.
Gjaldeyriskaupmenn sögðu, að bú-
ast hefði mátt við nokkurri gengis-
hækkun dollarans eftir stöðugt fall
að undanfömu. Þegar nýja árið
gekk í garð hafði dollarinn ekki
verið lægri gagnvart þýska markinu
og svissneska frankanum um sex
ára skeið og í fimm ár ekki lægri
gagnvart hollenska gyllininu og
franska frankanum. Mikil dollara-
kaup vestur-þýska seðlabankans,
þau fyrstu síðan um miðjan októb-
er, urðu hins vegar til þess, að hann
rétti nokkuð úr kútnum.
í gærkvöld fengust fyrir sterl-
ingspundið 1,4725 dollarar en
1,4925 sl. föstudag. Gagnvart öðr-
um gjaldmiðlum var staðan þessi:
1,9315 v-þýsk mörk (1,9165).
1,6280 sv. frankar (1,6070).
6,3900 fr. frankar (6,3550).
2,1815 holl. gyll. (2,1670).
1.345,00 ít. lír. (1.337,25).
1,3773 kan. doll. (1,3787).
Gullið féll í 399 dollarar únsan
en var í 403,50 á föstudag.