Morgunblaðið - 06.01.1987, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANUAR 1987
V estur-Þýskaland:
Kohi vill ekki bóka sigur
og varar við sofandahættí
Lokaþáttur kosningabaráttunnar haf inn
Dortmund, Reuter, AP.
LOKAKAFLI kosningabarátt-
unnar í Vestur-Þýskalandi er
nú hafinn. Helmut Kohl kansl-
ari hélt á sunnudag ræðu í
borginni Dortmund og brýndi
fyrir stuðningsmönnum sínum
að hvert atkvæði skipti máli í
kosningunum 25. janúar.
Kohl hélt ræðu sína á fundi, sem
helst líktist kjötkveðjuhátíð. Hann
sagði að kosningunum væri ekki
lokið fyrr en atkvæði hefðu verið
greidd, þrátt fyrir að samsteypu-
stjóminni hefði verið spáð örugg-
um meirihluta í skoðanakönnun-
um.
„Við berjumst fyrir hveiju at-
kvæði,“ sagði Kohl við áheyrendur,
sem starfsmenn kristilegra demó-
krata töldu að hefðu verið um
60.000.
Hann varaði við sofandahætti
og sagði: „Óvinir okkar, sérstak-
lega í fjölmiðlum, reyna að telja
okkur trú um að úrslitin séu þegar
ljós.“ '
Kohl sagði að ekki væri um
annan kost að ræða en samsteypu-
stjóm flokks kristilegra demókrata
(CDU), bróðurflokks hans í Bæj-
aralandi (CSU) og flokks frjálsra
demókrata (FDP). Stjóm Kohls
hefur verið við völd síðan 1982.
Keppinautur Kohls um kansl-
araembættið, Johannes Rau, hélt
á laugardagskvöld kosningafund í
borginni Kassel. Þar skoraði hann
á 6.000 stuðningsmenn að varpa
frá sér efasemdum og „leggja hart
að sér í þijár vikur til að uppskera
fjögur góð ár“.
„25. janúar fær fólkið að kveða
upp úrskurð sinn, ekki þeir sem
gera skoðanakannanir," sagði
Rau.
Hann sakaði stjómina um að
hafa mistekist að minnka atvinnu-
leysi og vanrækt þjóðarhag í
samskiptum við Bandaríkjamenn
og afvopnunarmálum.
„Hér vantar stjóm, sem ekki
leggst svo lágt að gegna hlutverki
hlaupatíkur hvaða stjómar sem er
við völd í Bandaríkjunum. Við þurf-
um á stjóm að halda, sem hefur
sjálfstraust og má treysta í Atl-
antshafsbandalaginu," sagði Rau.
Samkvæmt skoðanakönnunum
nýtíir samsteypustjórnin nú 56
prósent fylgis, minna en 38 pró-
sent kjósenda styðja flokk jafnað-
armanna (SPD) og 8 til 11 prósent
styðja flokk græningja.
Ræða Kohls í Dortmund var
kappsfull. Hann fordæmdi stjóm
Austur-Þýskalands fyrir að setja
pólitíska fanga í þrælkunarbúðir
og lagði áherslu á sameiningu
Austur- og Vestur-Þýskalands.
Hann sagði að Vestur-Þjóðveijar
ættu að hafa hugfast hvað fólkið
í Austur-Þýskalandi væri reiðubúið
til að leggja af mörkum til að fá
að kjósa einu sinni lýðræðislega
og leynilega.
Kohl kvað stjóm sína hafa hug
á að ræða sameiginlega hagsmuni
við kommúnistastjóm Austur-
Þýskalands hvenær sem væri. „Þó
má ekki gleymast við hveija við
eigum hér í höggi: stjóm, sem
ekki hefur verið kjörin lýðræðis-
lega og hefur sett rúmlega 2.000
pólitíska fagna í þrælkunarbúðir.“
Kohl hefur aldrei farið jafn hörðum
orðum um austur-þýsk stjómvöld
síðan hann komst til valda.
Kanslarinn sagði aftur á móti
að hann væri enn staðráðinn í að
bæta samskiptin við Austur-
Þýskaland og Sovétríkin. Sam-
skipti Vestur-Þjóðveija við
Sovétmenn hafa verið stirð síðan
Kohl líkti Mikhail Gorbachev, leið-
toga Sovétríkjanna, við Göbbels í
viðtali við tímaritið Newsweek.
Kohl minntist á sameiningu
Austur- og Vestur-Þýskalands.
„Ég er raunsær og veit að þetta
mál er ekki á dagskrá nú. En við
getum ekki vænst þess að heimur-
inn taki ákall um sameiningu
alvarlega ef við látum málið niður
falla.“
í formálsorðum að vestur-þýsku
Johannes Rau, kanslaraefni
jafnaðarmanna.
Helmut Kohl kanslari.
stjómarskránni er kveðið á um að
stefnt skuli að sameiningu þýsku
ríkjanna. Aftur á móti hafa ýmsir
vinstri sinnaðir stjómmálamenn og
þá einkum græningjar hvatt til
þess að sú grein verði felld niður.
Heiner Geissler, formaður CDU,
sakaði jafnaðarmenn um að hafa
einnig í hyggju að strika baráttu
fyrir sameiningu þýsku ríkjanna
út af stefnuskrá sinni.
Jerúsalem:
Skipt um
mergí
Shirman
Mjög tvísýnt þyk-
ir um líf hans
Jerúsalem, AP, Reuter.
LÆKNAR við Hadassah-sjúkra-
húsið i Jerúsalem skiptu á
sunnudag um merg í sovéska
útlaganum og hvitblæðissjúkl-
ingnum Mikhail Shirman. Fékk
hann merg frá systur sinni en
læknarnir óttast, að aðgerðin
hafi dregist allt of lengi.
Mikhail Shirman kom til ísraels
frá Sovétríkjunum árið 1980 en
fyrir tveimur árum kom í ljós, að
hann var með hvítblæði. Sögðu
læknar, að aðeins mergur úr systur
hans í Sovétríkjunum, Inessu Fle-
urov, gæti orðið honum til bjargar
en sovésk stjómvöld tregðuðust
lengi við að leyfa henni og fjöl-
skyldu hennar að fara úr landi. Þau
Fleurov-hjónin efndu til mótmæla í
Moskvu og Shirman sjálfur kom til
íslands meðan fundur þeirra Reag-
ans og Gorbachevs stóð til að vekja
athygli á máli sínu. Skömmu síðar
var systur hans leyft að fara til
Israels.
í nóvember töldu læknar, að
Shirman væri of veikur til að gang-
ast undir aðgerðina og hann var
mjög illa haldinn á sunnudaginn
þegar hún var loksins gerð. Var
ekki talið unnt að bíða með hana
lengur þar sem um líf og dauða
væri að tefla.
Nemendur mæti eftir stundaskrá.
Kennslukerfi: ROYAL ACADEMY OF DANCIHG
ROSSIAN METHOD
SKÚLAGÖTU 32-34 <><►<►
Kennsla hefst miðvikudaginn 7. janúar.
Byijendur (yngst 5 ára) og framhaldsnemendur.
Innritun og upplýsingar í
síma 72154.
Félag íslenskra listdansara.
BRLLET5KÓLISIGRÍORR RRÍÍlfim
Sjö OPEC-ríki
hækka olíuverð
Nicosíu, AP.
SJÖ aðildaríki OPEC, samtaka
olíuframleiðsluríkja, hafa tilkynnt
viðskiptavinum sínum að verð á
olíu muni hækka þann 1. febrúar,
að því er segir í nýjasta hefti H&g-
tíðinda Mið-Austurlanda, sem út
kom í gær.
í frétt tímaritsins, sem nýtur mikill-
ar virðingar, sagði að ríkin sjö væru
Saudi-Arabía, Iran, írak, Kuwait,
Sameinuðu arabísku furstadæmin,
NANETTE
NELMS
a-M
Nígería og Alsír. Oman hefur einnig
tilkynnt um verðhækkun á olíu þó svo
ríkið eigi ekki aðild að samtökunum.
í síðasta mánuði samþykktu
OPEC-ríkin að hækka verð á oliu i
18 dollara fatið eða því sem næst.
Að auki hafa Saudi-Arabar tilkynnt
að þeir muni minnka olíuframleiðslu
sína um 10 prósent í þessum mánuði
í samræmi við þann framleiðslukvóta
sem þeim var úthlutað á síðasta þingi
samtakanna.
TTniSj)
NANETTE
NELMS
frá NEW YORK JUBILATIONS