Morgunblaðið - 06.01.1987, Side 28

Morgunblaðið - 06.01.1987, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórai Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakiö. Stjórnvöld o g gjaldskrárhækkanir Itengslum við gerð kjarasamninga í byijun desember á síðasta ári sendu aðilar vinnumarkaðarins ríkisstjórninni minnisblað, þar sem orðrétt sagði m.a.: „Stjómvöld ábyrgist, að „opinberir liðir“ vísitölu framfærslukostnaðar og ný skatt- lagning leiði ekki í heild til hækkana umfram almenna verðlagsviðmið- un.“ í svarbréfi, sem forsætisráð- herra ritaði af þessu tilefni, sagði hann m.a. orðrétt: „Stjómvöld munu í verðlagningu á opinberri þjónustu og skattlagningu fylgja þeirri stefnu, að hækkanir verði í heild ekki úmfram almenna verðlags- þróun.“ Jafnframt sagði í bréfinu: „Ríkisstjómin mun einnig beina því til sveitarfélaga, að takmarka hækkanir á gjaldskrám fyrirtækja sinna og stofnana á sama hátt.“ í svari forsætisráðherra er ekki talað um, að ríkisstjómin „ábyrgist" takmarkanir á gjaldskrárhækkun- um opinberra fyrirtækja eins og aðilar vinnumarkaðarins báðu um, heldur aðeins talað um að stjómin muni fylgja slíkri stefnu. Þetta stafar af því, að ríkisstjómin hefur ekki vald til að ákveða gjaldskrár sveitarfélaga og fyrirtækja eins og Landsvirkjunar. Þessir aðilar hafa lögbundið sjálfræði um gjaldskrár sínar. Þessu frelsi fylgir hins vegar hörð krafa frá almenningi um fyllstu hagsýni í rekstri. Það er hlutverk og skylda fulltrúa í stjómum þess- ara fýrirtækja, sem kjömir em af Alþingi og sveitarstjómum, að veita stjómendum þeirra það aðhald. A verðstöðvunarámnum vom hins vegar sett sérstök lög sem ógiltu þetta sjálfstæði um tíma, en slík lög em ekki lengur í gildi. Nú hefur sú staða komið upp, að sveitarfélög og fyrirtæki eins og Landsvirkjun treysta sér ekki til að verða við ýtmstu óskum ríkisstjóm- arinnar í gjaldskrármálum í fram- haldi af yflrlýsingum hennar við gerð kjarasamninganna. Ríkis- stjómin verður að sætta sig við þessa stöðu, nema hún kjósi sér- staka lagasetningu til að koma fram vilja sínum. Af því tilefni vakna að sjálfsögðu ýmsar spumingar; hin þýðingarmesta er kannski sú, hvort þessi takmörkun á valdi ríkisstjóm- ar sé eðlileg, óviðunandi eða óhjá- kvæmileg í ljósi reynslunnar. Eitt þeirra opinbem fyrirtækja, sem ekki treysta sér til að sinna ýtmstu óskum ríkisstjómarínnar um að taka mið af yfírlýsingum við gerð kjarasamninganna, er Lands- virkjun. Ríkisstjómin beindi þeim tilmælum til stjómar fyrirtækisins, að hækkun á gjaldskrá þess yrði ekki meiri en 4%. Stjómin hefur hins vegar ákveðið að hækka gjald- skrána um 7,5% frá og með áramótum og réttlætir þá ákvörðun með tilvísun til rekstrar- og skulda- stöðu fyrirtækisins, sem ekki leyfí minni hækkun. Forsætisráðherra dregur þessar skýringar í efa og hefur lýst því yfír, að Landsvirkjun hafí mun meira svigrúm en stjóm fyrirtækisins vilji vera láta. Rifja ber hins vegar upp, að upphaflega áformaði Landsvirkjun að hækka gjaldskrá sína um 10-16,4% en með hliðsjón af kjarasamningunum var ákveðið að hækkunin yrði ekki meiri en 7,5%. Á það er að minna, að deilur af því tagi, sem nú em uppi á milli ríkisstjórnarinnar og Landsvirkjun- ar, em ekki nýlunda. Á undanföm- um einum og hálfum áratug gengu vinstri stjómir mjög langt í því, að takmarka gjaldskrárhækkanir opin- berra fyrirtækja — ekki síst orku- og veitufyrirtækja — og afleiðingin var sú, að rekstri þeirra og upp- byggingu var stefnt í bráðan háska. Að baki bjó án vafa umhyggja fyrir hinum almennu gjaldendum, en málið var sýnilega ekki hugsað til enda. Staðreyndin er sú, að van- ræksla á þróunar- og uppbyggingar- starfí og kæruleysi um erlendar skuldir kemur okkur í koll á endan- um. Þá em það skattgreiðendur sem borga brúsann, oftar en ekki marg- faldar skuldir, miðað við það ef eðlilegri gjaldskrárhækkunarþörf hefði verið sinnt. Stjómmálamenn hneigjast því miður — starfs síns vegna — oftlega til meiri ábyrgðar- leysis um opinber fjármál en embættismenn eða stjómskipaðir fulltrúar. Svo virðist, sem aðilar vinnu- markaðarins hafí gengið að því vísu, að orð forsætisráðherra í desember- byijun væm lög; þeir hafi treyst því að opinber fyrirtæki hlýddu tilmæl- um ríkisstjómarinnar — kannski ekki möglunarlaust — en yrðu við þeim engu að síður. Forseti Al- þýðusambandsins virðist t.d. koma af fjöllum vegna þeirrar stöðu, sem upp er komin, og hefur hvatt ríkis- stjómina til að setja bráðabirgðalög svo tilmælum hennar verði sinnt. Ólíklegt verður að telja, að ríkis- stjómin grípi til svo róttækra gagnráðstafana enda hlaut bæði ríkisstjóm og aðilum vinnumarkað- ar að vera ljóst, að hún hefði ekki skipunarvald í þessum efnum. En staða ríkisstjómar í þessum málum hlýtur að sönnu að veikja hana gagnvart verkalýðshreyfíngu og vinnuveitendum. Ef aðilar vinnu- markaðarins komast að þeirri niðurstöðu, að ríkisstjómin hafí ein- faldlega ekki vald til þess að knýja fram þau málalok, sem eftir er leit- að, vaknar hjá þeim sú spuming, hvort samtöl við ríkisstjóm um önn- ur mál en þau, sem hún hefur beinlínis á valdi sínu, þjóni nokkmm tilgangi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í stjómarandstöðu gagnrýnt ríkis- stjómir fyrir að svipta Landsvirkjun og sveitarstjórnir sjálfræði í gjald- skrármálum. Nú virðist, sem a.m.k. ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafí skipt um skoðun. Ekki hefur annað komið fram en ríkisstjómin standi í heild að því ásamt forystumönnum launþega og atvinnurekenda að knýja fram annað verð á opinberri þjónustu en stjómendur þeirra telja nauðsynlegt. Það er þó naumast gæfulegt fyrir efnahagslífíð í landinu, að reka bæði ríkissjóð og opinber fyrirtæki með halla. Spum- ingin er sú, hvort ekki sé farið út á ystu nöf, ef- slíkt á að vera gmnd- völlur vinnufriðs í landinu. í för með eldhuga ________Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir Leikhúsið í kirkjunni sýnir í Hallgrímskirkju leikritið um Kaj Munk í leikgerð Guðrúnar Ás- mundsdóttur Þýðendur: Sigurbjörn Einarsson, Helgi Hálfdanarson, Karl Guð- mundsson, Þorsteinn O. Step- hensen Búningar: Alda Sigurðardóttir Tónlist: Þorkell Sigurbjömsson Dans og hreyfingar:Birgitta Hellerstadt Lýsing: Láras Bjarnason Tónlistarflytjendur: Hörður Áskelsson og Inga Rós Ingólfs- dóttir Aðstoðarleikstjóri: Margrét Guð- mundsdóttir Leikstjóri: Guðrún Ásmunds- dóttir Guðrún Ásmundsdóttir velur þá leið í leikgerð sinni um Kaj Munk að leggja alla áherzlu á kennimann- inn, prédikarann og eldhugann.og baráttumanninn gegn nazistum þegar Danmörk er hemumin. Hins vegar verður ekki að neinu ráði dregin sú ályktun þegar horft er á verkið, og þó kannski umfram allt hlustað, að Kaj Munk hafi einnig verið skáld. Að minnsta kosti er takmörkuð áherzla lögð á það, en það þarf ekki að skaða, þar sem Guðrún er sjálfri sér samkvæm hvað þetta snertir. Og hún sannfær- ir okkur léttilega um að víst eigi orð Kaj Munks erindi við okkur nútímafólk og henni tekst að koma til skila í leikgerðinni andríki og eldmóði Kaj Munks. Með öðmm orðum: Guðrún hefur valið leið að áhorfanda, sem heppnast og það má vera sljór maður sem hrífst ekki af mælsku og andríki Kaj Munks. Það er hnýsilegt að fínna, að prédikanir Kaj Munks eiga ekki síður erindi við okkur nú en þegar hann var að flytja þær. Hann fítjar upp á mörgum málum í ræðum sínum, sem kirkjunnar menn eru enn að ræða og af ekki minni hita en þá. Á kirkjan að taka pólitíska afstöðu; og hvað felst í hugtakinu. Að skipa sér í flokkssveit er ekki það sem fyrir Kaj Munk vakir og hann leiðir rök fyrir þvíí einni af prédikunum sínum, sem þarna er farið með brot úr. En kirkjan verð- ur að taka afstöðu og axla ábyrgð, eins og Jesús Kristur krafðist af lærisveinum sínum.Kirkjan verður ekki lifandi og raunverulegt afl í lífi fólksins, nema taka fyrir þau mál, sem fólkið er að hugsa um. Orðið hefur það víðtæka skírskotun, Sviðsmynd úr leikritínu um Kaj Munk Edda Guðmundsdóttir og fvar Öm Sverrisson í hlutverkum Kaj á barasaldri og Trínu ömmu Auglýsingastofa Kristínar: Hörniunarverðlaun Tetra Pak 1985 HINAR blómum skreyttu mjólkurumbúðir sem settar voru á markað á 50 ára af- mæli Mjólkursamsölunnar hafa vakið athygli og nú hefur Auglýsingastof a Kristínar fengið viðurkenn- ingu erlendis frá fyrir hönnun umbúða. Þrír af hönnuðum stofunnar, Kristín Þorkelsdóttir, Stephen Fairbaim og Tryggvi T. Tryggvason unnu saman að verkinu. Það eru Tetra Pak verk- smiðjumar í Svíðþjóð sem veita þessa viðurkenningu. Tetra Pak verksmiðjumar framleiða um- búðir fyrir stórfyrirtæki í öllum heimsálfum og að sögn Kristínar Þorkelsdóttur er það mikil viður- kenning fyrir AUK hf að vera Verðlaunaumbúðirnar. einn af þremur verlaunahöfum fyrir umbúðir hannaðar árið 1985. Dæmt var á milli 450 umbúða, alls staðar að úr heim- inum. Kristín sagði ennfremur að þetta væri í fyrsta skipti sem stofa hennar hlyti erlenda viður- kenningu, en á 20 ára starfsferli hefur hún unnið u.þ.b. 50 viður- kenningar fyrir umbúðahönnun í umbúðasamkeppnum Félags Islenskra iðnrekenda. Auglýsingastofa Kristínar flutti nýlega í 840 fermetra hús- næði í Skipholti. A stofunni eru rúmlega 20 starfsmenn, þar af starfa 11 við hönnun, 3 við textagerð og 3 við verkefnaum- sjón, markaðsmál og fjölmiðla- kaup.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.