Morgunblaðið - 06.01.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987
33
Vöruhús KEA:
Leikfélag
Akureyrar:
Rúllustiginn rifinn
VINSÆLASTI stigi á Akureri, að minnsta kosti hjá yngstu kyn-
slóðinni, er allur. Stiginn sem hér um ræðir er rúllustiginn í
Vöruhúsi KEA við göngugötuna. Tvö þrep í honum brotnuðu
með miklum gauragangi í jólaösinni og var unnið við að fjar-
lægja stigann og setja upp trétröppur til bráðabirgða um helgina.
Rúllustiginn er sá fyrsti og eini á föstudagsmorgun til klukkan tíu
á Akureyri og var orðinn 22 ára,
er hann gaf sig endanlega. Að
sögn Alfreðs Almarssonar vöru-
hússtjóra sáu framleiðendur
rúllustigans ástæðu til að óska
KEA til hamingju með endingu
hans, þegar falast var eftir vara-
hlutum árið 1982. Stiginn hefur
ekki verið í gangi um nokkurt
skeið og þegar hann brotnaði nú,
var ekki talið borga sig að gera
við hann á ný.
Alfreð sagði, að þrepin hefðu
brotnað með miklum hávaða og
gauragangi, en enginn hefði verið
í stiganum, þegar það gerðist. Sjö
manns voru frá því klukkan átta
á sunnudagskvöld að logskera og
saga stigann í sundur en samtals
vóg hann með fylgihlutum ellefu
og hálft tonn.
Hætt er við, að margir sakni
rúllustigans góða, sérstaklega úr
hópi yngri kynslóðarinnar. Alfreð
var spurður, hvort fyrirhugað
væri að kaupa nýjan rúllustiga.
Hann sagði, að ekkert hefði verið
ákveðið endanlega um það. Að-
spurður um kaupverð slíks stiga
sagði hann, að þegar spurst hefði
verið um það árið 1982 hefði hann
kostað um hundrað þúsund þýsk
mörk.
Rauðhærði riddarinn
frumsýndur á föstudag
HVENÆR kemurðu aftur rauð-
hærði riddari? er heiti á leikriti
sem frumsýnt verður á föstudag
hjá Leikfélagi Akureyrar. Höf-
undur leikritsins er Mark
Medoff, sem að sögn Péturs Ein-
arssonar leikhússtjóra komst á
bekk með þekktustu leikskáldum
Bandaríkjanna eftir samningn
þessa verks.
Leikritið gerist á litlum veitinga-
stað syðst í Nýju Mexíkó, svonefnd-
um skyndibitastað í lok sjöunda
áratugarins. Fjallar það að sögn
Péturs Einarssonar um þá sem ve-
rið höfðu í Viet-Nam stríðinu. í
verkinu er togast á milli draums
og veruleika og kynntar eru persón-
ur og atburðir, án þess að verkið
sé hefðbundið vandamála-leikrit,
eins og Pétur orðaði það. Hann
sagði verkið ekki ætlað bömum,
þó það sé ekki bannað.
Leikritið er í þýðingu Stefáns
Baldurssonar, leikstjóri er Pétur
Einarsson. Lýsingu annast Ingvar
Bjömsson. Leikmynd gerði Öm Ingi
Gíslason, búninga Freygerður
Magnúsdóttir. Leikarar eru: Skúli
Gautason, Inga Hildur Haralds-
dóttir, Marinó Þorsteinsson, Þráinn
Karlsson, María Ámadóttir, Einar
Jón Briem, Guðjón Pedersen og
Guðrún Marinósdóttir.
Þetta er fjórða leikverk Leik-
félagsins á þessum vetri. Rauð-
Þrettánda-
gleði Þórs
er í kvöld
HIN árlega þrettándagleði
íþróttafélagsins Þórs verður
haldin á svæði félagsins við
Glerárskóla f kvöld og hefst
kl. 20.
Skemmtunin verður með hefð-
bundnu sniði, álfakóngur og
drottning mæta með hirð sína,
stiginn verður álfadans og að sálf-
sögðu verður brennan á sínum
stað.
Páll Johannesson syngur, jóla-
sveinar verða á svæðinu og Bjössi
bolla skemmtir bömunum. Hjálp-
arsveit skáta verður svo með
flugeldasýningu í lokin eins og
undanfarin ár.
Skemmtunin hefst kl. 20 og er
aðgangseyrir 250 krónur.
hærði riddarinn var sýndur af
Nemendaleikhúsinu í fýrravor og
fékk þá góðar viðtökur að sögn
Péturs Einarssonar. Tveir leikar-
anna í sýningunni á Akureyri léku
í uppsetningu Nemendaleikhússins.
Morgunblaðið/Fríða Proppe
Smiðir vinna við að setja upp tréstiga, sem kemur í stað rúllustig-
ans.
Hitaveitu Akureyrar:
Gjaldskrá hækkar um 13,6%
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í dag verður að öllum líkindum
samþykkt að hækka gjaldskrá Hitaveitu Akureyrar um 13,6%
en þá fer fram síðari umræða um gjaldskrárbreytingu veitunn-
ar.
í tillögu stjómar veitustofnana
er lagt til að gjaldskránni verði
breytt í samræmi við breytingar
á byggingavísitölu, úr 258 stigum
í 293 stig.
Það voru fulltrúar allra flokka
Morgunblaðið/
FVíða Proppé
T.
AfmæliskaffihjáBrunabót
í tilefni af 70 ára afmæli Brunabótafélags íslands var boðið upp
á kaffi og meðlæti á öllum umboðsskrifstofum félagsins. A
Akureyrarskrifstofunni nutu þessir heiðursmenn veitinganna á
meðan starfsmaður umboðsins, Gísli Pálsson, sinnti erindum
þeirra.
Bæjarráð:
Æfing-ar að
hejast á .
Kabarett
NÚ ERU að hefjast æfingar á
söngleiknum Kabarett hjá Leik-
félagi Akureyrar en það verður
fimmta og síðasta verkið sem LA
sýnir í vetur.
Talsvert verður af leikumm i
sýningunni sem ekki hafa tekið
þátt í öðmm sýningum LA í vetur.
Gestur Einar Jónasson stígur nú á
fjalimar á nýjan leik eftir alllangt
hlé, en hann mun fara með hlut-
verk siðameistarans í Kabarett. Það
er eitt af aðalhlutverkum verksins.
Ása Svavarsdóttir fer með hlutverk
Sallyar Bowles - sem Liza Minelli
gerði frægt í kvikmynd sem gerð
var eftir verkinu. Ása hefur leikið
í Þjóðleikhúsinu, Iðnó og Alþýðu-
leikhúsinu.
Guðbjörg Thoroddsen tekur þátt
í þessari sýningu LA - en Akur-
eyringar muna eflaust eftir því er
hún fór með hlutverk Jómfrú Ragn-
heiðar biskupsdóttur í samnefndri
leikgerð Bríetar Héðinsdóttur á
Skálholti Kambans hjá LA veturinn
1981-82. Guðbjörg leikur eina af
stelpunum í klúbbnum. Þá má nefna
Ólöfu Sverrisdóttur, nýútskrifaðan
leikara, og Guðjón Pedersen, sem
einnig tekur þátt í Rauðhærða ridd-
aranum, sem fmmsýndur verður á
föstudaginn.
Leikmynd í Kabarett gerir Karl
Aspelund, Bretinn Ken Oldfield
semur dansana og Bríet Héðins-
dóttir leikstýrir verkinu.
sem samþykktu tillögu þessa í
stjóm veitustofnana, en fulltrúi
Alþýðubandalagsins, Páll Hlöð-
versson, lagði fram eftirfarandi
bókun: „Ég hef í engu breytt af-
stöðu minni um verðlag á gjald-
skrá Hitaveitu Akureyrar frá þvi
1. október 1986, og vísa ég því
til þeirrar bókunar. Þar sem ríkis-
stjómin hefur að engu leyti staðið
við orðagjálfur sitt sé ég mér ekki
fært að standa gegn hækkun
þessari."
Sjónvarp
Akureyri
DAGSKRA Sjónvarps Akur-
eyrar verður sem hér segir í
kvöld:
20.30 Gúmmíbirnir, teikni-
mynd
20.55 Handknattleikur,
Víkingur-Arhus KFUM
21.50 Klassapíur
22.15 Gjöf ástarinnar (The
Gift Of Love), fyrri hluti.
23.15 Dagskrárlok.
Stefnt að viðbygg-
ingu við ráðhúsið
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt að stefna að viðbyggingu við húsnæði
bæjarins í Geislagötu, ráðhúsið. Húsnæðisskortur er mikill og er
starfsemi bæjarkerfisins staðsett víðs vegar í bænum.
Talsvert hefur verið rætt um það
að undanfömu að byggja við húsið
í Geislagötu en annar möguleiki
sem ræddur hefur verið er að kaupa
hús annars staðar í bænum. Norð-
urverk hf. hefur boðið bænum til
kaups húseignina Glerárgötu 26,
en þeim möguleika hefur nú verið
hafnað eftir því sem best verður séð.
Framtíðarskipan skrifstofuhús-
næðis hjá Akureyrarbæ verður því
í Geislagötunni. Starfshópi sem
unnið hefur að tillögugerð í þessu
máli hefur verið falið að vinna að
frekari útfærslu hugmyndar um
viðbyggingu við ráðhúsið og leggja
fyrir bæjarráð við gerð íjárhagsá-
ætlunar fyrir nýhafíð ár.
Blaðbera vantar
Blaðbera vantar í Innbæ, Vanabyggð og
Víðilund. Upplýsingar í síma 23905.
Hafnarstræti 85.