Morgunblaðið - 06.01.1987, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 06.01.1987, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987 Minning: Sigurður Guðmunds- son ljósmyndari Fæddur 14. ágúst 1900 Dáinn 24. desember 1986 Tengdafaðir minn Sigurður Guð- mundsson ljósmyndari er allur, hann lést í Landakotsspítala að morgni aðfangadags, eftir nokkuð langa sjúkdómslegu. Þegar horft er til baka, til þess tíma er hann lagðist inn í sjúkrahús, sem var nú ekki aldeilis það sem hann héldi sig nokkru sinni þurfa, sýndi hann þvílíkt æðruleysi ró og þakklæti til þeirra sem sinntu honum að ótrú- legt er, og er vert að þakka hjúkr- unarfóíki Landakotsspítala frábæra hjúkrun. Hér er ekki meiningin að fara nákvæmlega yfír lífshlaup Sig- urðar, það yrði of langt og viðamik- ið verkefni, þess í stað langar mig að riija upp ýmislegt sem kemur upp í hugann þegar hann er ekki iengur meðal okkar. Sigurður fæddist í Reykjavík, og elur allan sinn aldur þar, lengst af sinni ævi býr hann á Sólbakka v/ Laugalæk, ásamt konu sinni Elín- borgu Guðbjamadóttur. Mikilli sómakonu sem öllum vildi vera hin mesta hjálparhella, glaðsinna, og hógvær yfír verkum sínum. Elín- borg lést á gamlársdag 1984. Þau eignuðust tvær dætur, Guðnýju og Sigríði. En af fyrr hjónabandi átti Sigurður eina dóttir Svanlaugu. Er ég kem fyrst á Sólbakka verð ég fljótlega var við hina höfðinglegu gestrisni þeirra hjóna. Það voru tíðar gestakomur vina og vanda- mann, fundir með Sjálfsbjargarfé- lögum, og gleðskapur sem eftirminnilegur er. Fljótlega náðum við Sigurður afar vel saman, og var hann mér afskaplega ráðagóður, enda voru ráð hans ekki skipanir heldur ábendingar sagðar af reynslu og mýkt til manns sem er að hefja lífsbaráttuna, hann dró ekki úr manni kjarkinn þótt ekki ætti maður annað en rúmlega það sem maður stóð í, bílskrjóð út á hlaði og væri í námi. Nú Sólbakki varð heimili okkar í nær tvö ár og var það ómetanleg hjálp fýrir okk- ur, þar sem við höfðum fest kaup í íbúð. Á þessum árum var Ijós- myndastarfíð í algleymingi og var Sigurður oft að föndra við ýmsa dularfulla vökva á síðkvöldum, einnig að framkalla. Þetta var nýr heimur fyrir mig og heillandi, ljós- myndaferðalög voru farin til hinna og þessara staða út um land og var æði mikið umstang kringum það þá var ákaflega skemmtilegt að heyra hann segja frá ferðum vítt og breitt um landið á árum áður, var þá farið ýmist akandi eða á sjó með fyrirferðamikinn útbúnað. Hann hafði mikinn áhuga á útilífi og landinu yfírleitt. Við fórum oft um helgar í ferðir út úr bænum, Þingvellir voru í sérstöku upp- áhaldi, áttum við þar ógleymanleg- ar stundir saman, ekki sízt á áttræðisafmæli hans. Ég var oft undrandi á hversu vel hann þekkti ömefni, og nú á síðari árum metur maður enn betur að hafa notið leið- sagnar og þekkingar hans. Einu sinni sem oftar var hann að fara í ljósmyndaferð norður í land, og við að hefja sumarleyfi, stakk Sigurður upp á að farið yrði yfír Kjöl, og varð það úr, sú ferð hefði ekki orðið jafn skemmtileg ef Sigurður hefði ekki lýst fýrir okkur ýmsu því sem gerst hafði á þeirri leið á árum áður. Þá voru ár óbrúaðar, og að hans tilmælum voru allar ár vaðnar áður en ekið var út í, nema í eitt skipti sem ég fékk að ráða, bfll tengdaföður míns saup kveljur og stoppaði í djúpum hyl Seiðisár á Kili, af slíkum upp- ákomum hafði hann alltaf gaman. Þessi ferð var ein af mörgum eftir- minnilegum. Fyrir rúmu ári var hann enn að bollaleggja ferðalög þó ekki hafí heilsan leyft það. Sigurður hafði fastar og ákveðn- ar skoðanir á þjóðmálum, og fann maður fljótt að þar var engu um að breyta, var þá siglt milli skers og báru, þegar slfld bar á góma. Þessi fátæklegu orð segja ekki margt, en við slík tímamót hrann- ast minningarnar upp í hugann, og maður fínnur sig knúinn til að koma einhveiju af þeim á blað. Sigurður var um margt sérstæð- ur persónuleiki sem maður leit upp til. Hann var ávallt tilbúinn að rétta hjálparhönd þegar þess þurfti með. Hann var frábær afí, og munu böm okkar minnast hans með miklum hlýhug. Hafi hann þökk. Hilmar Hjartarson Kveðja frá Sjálfsbjörg, fé- lagi fatlaðra í Reykjavík og nágrenni. Sigurður Guðmundsson, ljós- myndari, andaðist í Landakotsspít- alnum í Reykjavík að morgni aðfangadags, miðvikudaginn 24. desember sl. Sigurður fæddist í Reykjavík 14. ágúst árið 1900 í Tobbukoti, litlu steinhúsi er stóð þar sem nú er hús Sparisjóðs Reykjavíkur. Foreldrar hans voru hjónin Svanlaug Bened- iktsdóttir og Guðmundur Sigurðs- son, klæðskeri, og var Sigurður einn af 10 systkinum. Sigurður ólst upp í Reykjavík og hefur búið og starf- að þar alla sína ævi. Lengst af bjó hann með fjölskyldu sinni að Sól- bakka við Laugalæk, en það hús er nú horfíð. Síðustu árin bjó hann í Sjálfsbjargarhúsinu, ásamt eigin- konu sinni, Elínborgu Guðbjamard- óttur, sem látin er fyrir fáum árum. Sigurður var mikill félagsmála- maður og vel þekktur af þeim störfum sínum. Formaður Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra í Reykjavík og nágrenni, var hann kosinn í sept- ember 1962 og var formaður félagsins til ársins 1977, eða í 15 ár og varaformaður var hann frá 1977-1980. I formannstíð Sigurðar vex og dafnar starfsemi félagsins undir öruggri stjóm hans. Fljótlega er keypt 130 fermetra jarðhæð að Marargötu 2 í Reykjavík og með smá breytingum utanhúss er hús- næðið gert aðgengilegt fyrir fatl- aða. Húsnæðið er strax tekið í notkun fyrir starfsemi félagsins, sem hófst með föndurnámskeiði, sem vom vinsæl á þessum tíma, og var byijun á vikulegum föndur- kvöldum hjá félaginu, sem síðan hafa verið mjög virkur þáttur í starfsemi félagsins og er enn. Á þessum tíma hefst einnig und- irbúningur að rekstri vinnustofu á vegum félagsins. Rekstur vinnu- stofu Sjálfsbjargar í Reykjavík hófst svo í nóvember 1965 og störf- uðu á vinnustofunni mest 13 manns. Vinnustofan, sem fram- leiddi karlmannsnærföt, var rekin til ársloka 1967, en um þetta leyti átti íslenskur iðnaður erfítt upp- dráttar, a.m.k. vissar greinar hans. Þegar vinnustofan tók til starfa var keypt annað húsnæði fyrir fönd- ur og aðra starfsemi félagsins, en um tíma fór föndurvinnan fram á heimili eins félagsmanns. Félagið varð strax aðili að bygg- ingu Sjálfsbjargarhússins í Reykjavík og áttu tveir fulltrúar félagsins sæti í byggingamefnd hússins, sem sá um allar þær fram- kvæmdir. Um áramótin 1974 flytur félagið í eigið félagsheimili í Sjálfsbjargar- húsinu og hefur rekið félagsheimili þar síðan. Var þetta hinn merkasti áfangi í sögu félagsins og er kjöl- festa í starfí þess. í formannstíð Sigurðar var starf- semi Sjálfsbjargar í Reykjavík mjög Geirlaug Guðmunds dóttir - Minning Fædd 2. nóvember 1900 Dáin 21. desember 1986 Geirlaug Guðmundsdóttir hús- freyja á Hlíðarvegi 30a í Kópavogi er látin. Mér þykir hlýða að minnast þeirrar heiðurskonu með nokkrum orðum við leiðarlok og þakka henni indælt nágrenni í Kópavogi í mörg ár og órofa tryggð og vináttu henn- ar og fjölskyldu hennar allt frá bemsku minni. Fyrir 1950 var Kópavogur ákaf- lega sérkennileg byggð. Mestallur Kópavogshálsinn og nesið var reit- aður niður í stórar lóðir og á flestum þeirra stóðu lítil hús sem upphaf- lega vom sumarbústaðir Reyk- víkinga. En smám saman voru þessir bústaðir teknir til ársdvalar þótt framan af skorti flest nútíma- þægindi, svo sem vatnsleiðslu og hoiræsakerfi. Flestir „landnemar“ Kópavogs vom efnalitlir og þurftu ekki að hugsa til þess að keppa um íbúðir eða hús á fasteignamarkaði Reykjavíkur. Á hinn bóginn vom skipulagsyfírvöld ekki ströng í Kópavogi og menn gátu búið um sig eftir því hvernig áraði. Við þess- ar fmmbýlisaðstæður veitti ekki af að fólk stæði saman enda einkenndi samheldni og hjálpsemi byggðar- Iagið. Árið 1948 bmgðu bændahjónin á Hofi á Kjalamesi búi og keyptu lítið hús á Hlíðarvegi 20 (síðar 30a). Þau Daníel Magnússon (f. 1890, d. 1963) og Geirlaug vom enn á góðum starfsaldri og bmgðu á það ráð að starfa við landbúnað að nokkm leyti þótt svo ætti að heita að nú væm þau flutt á mölina. Þau reistu lítið hænsnabú og ráku það um árabil og höfðu jafnvel eina kú í fjósi fyrst eftir að þau fluttu úr sveitinni. Nágrannamir fundu fljótt að Daníel og Geirlaug vom góðir gestir. Þau hjónin bæði bám með sér reisn og höfðingsskap hið ytra og kynni staðfestu að hér vom val- menni á ferð, gestrisin og alúðleg og bæði sérlega bamgóð. Þótt þau væm komin í „þéttbýlið" ánetjuðust þau aldrei stressi og hamagangi nútímans og því vöndu margir kom- ur sínar til þeirra. Þar var gott að sitja yfir kaffibolla í ömggu trausti þess að vera einmitt sá gestur sem best væri velkominn. Mér er kunn- ugt um að ýmsir nágrannar þeirra hjóna litu á þau sem aldavini sína. Ég sem þetta rita hrósa happi yfír því að kynnast Geirlaugu og Daníel og börnum þeirra. Þegar þau fluttu í Kópavog vom þrír synir þeirra uppkomnir en dóttirin Lilja lítið eitt eldri en ég og þar með kjörinn leikfélagi. Ég var aðeins 5 ára gamall og strax inni á gafli á Hlíðarvegi 20 og þær minningar bernsku minnar og æsku sem tengj- ast heimilinu þar em eins og perlur á bandi. Magnús sonur þeirra rak smiðshöggið á að kenna guttanum að telja. Það var merkur áfangi að komast yfir tugina og þurfa ekki lengur að segja tuttugu og tíu. Fyrsti vinnuveitandinn var Daníel og borgaði okkur Lilju fyrir að selja húsfreyjum í Kópavogi egg. Skák við húsbóndann og ég hélt honum fram þegar ég fór halloka í íþrótt- inni fyrir móður minni: „Daníel er miklu betri skákmaður en þú.“ Sælar stundir við eldhúsborðið hjá Geirlaugu og bakkelsið hafði áreið- anlega ekki misst neitt af þeirri vegsemd sem víða tíðkast í sveitum. Og fyrstu skrefín í alvöru-launa- vinnu: aðstoðarmaður hjá Daníel í byggingarvinnu. Þegar búið er að setja vatn út í geilina í pússningar- hræm er mátulegt að taka jafnlangt hlé og það tekur að fá sér í nefið. Hræran jafnast á meðan. Og fyrir ekki mörgum ámm sannspurði ég að orðstír minn hafí eitt sinn verið í nokkurri hættu á Hlíðarvegi 20. Húsbóndinn stóð við gluggann, þeg- ar undirritaður fór eins og víghnött- ur um hverfíð, og sagði: „Ætli verði nokkurn tíma maður úr honum Bjama?" Þá átti ég mér hauk í homi þar sem Geirlaug var og hún mun hafa sett ofan í við bónda sinn og sagt að drengurinn væri ekkert óefnilegri en aðrir. Fleira mætti telja en hvort sem talið er lengur eða skemur stendur það eftir að þau hjónin taldi ég til vina minna og þótti það dálítið skrýtið á ungl- ingsámnum þegar orðið „vinur" gat helst ekkert þýtt nema leikfélagi og um hálf öld var á milli okkar. Geirlaug fæddist í Stykkishólmi 2. nóvember árið 1900, dóttir hjón- anna Charlottu Maríu Jónsdóttur og Guðmundar Halldórssonar skip- stjóra. Hún ólst þar upp til 18 ára aldurs en fór þá í vist til Reykjavík- ur. Síðar fór hún í kaupavinnu að Lykkju á Kjalamesi og kynntist þar Daníel sem þar var fæddur og upp- alinn. Þau hófu búskap á Tindstöð- um á Kjalamesi 1923 þar sem þau bjuggu til 1942 en þá fluttu þau að Hofí í sömu sveit þar sem þau bjuggu þar til þau hættu búskap 1948. Það hef ég sannspurt að þau hafi ekki síður verið vel séð af sveit- ungum sínum á Kjalarnesi en nágrönnum í Kópavogi. Geirlaug og Daníel áttu saman fjögur börn, sem öll em á lífi, synina Magnús, Guðmund og Þórólf og dótturina Lilju sem áður er getið. Daníel átti dóttur frá því fyrir hjónaband, Huldu, en hún er látin fyrir nokkr- um ámm. Geirlaug Guðmundsdóttir var fríð sýnum og bar sig vel eins og áður er tekið fram. Ég held að orðið „myndarskapur" lýsi henni vel og þá ekki útlitinu einu heldur líka verkum hennar og heimili. Á æskuámm hennar var Stykkis- hólmur hefðarbær í gömlum stíl og hún kynntist rótgróinni borgara- stétt Reykjavíkur þegar hún kom fyrst suður. Þetta hvort tveggja hafði áreiðanlega mikil áhrif á hana. Ég býst við að hún hafi aldr- ei skilið Hólminn að öllu leyti við góð og átti sinn þátt í árangri sam- takanna í hagsmunamálum þeirra. Á fjölmennum hátíðafundi í til- efni 25 ára afmælis félagsins 1983 var Sigurður kjörinn heiðurfélagi Sjálfsbjargar í Reykjavík og er sá eini sem hlotið hefur þá viðurkenn- ingu. Hann átti sæti í stjórn Sjálfs- bjargar, landssambands fatlaðra, frá 1965 til 1977. Sigurður starfaði mikið í félagi ljósmyndara og var formaður þess félags í tæp 30 ár. Þá tók hann mikinn þátt í starfsemi Góðtempl- arareglunnar og var m.a. einn af fomstumönnum þeirra í landnámi templara að Jaðri og vakti sú starf- semi þjóðarathygli á sínum tíma. Eg vona að þeir sem þekkja störf Sigurðar á þessum vettvangi, betur en ég, geri þeim skil. Sigurður var ákaflega ljúfur í allri framkomu, léttur í lund og hinn skemmtilegasti félagi í leik og starfí. Með honum var gott að starfa og nutu féiagið og samtökin reynslu hans í félagsmálum. Við Sjálfsbjargarfélagar þökkum Sigurði samfylgdina. Ég votta dætmm hans og öðmm nánum ættingjum hans okkar innilegustu samúð. Minningin um góðan dreng og félaga lifir. Trausti Sigurlaugsson Formaður Sjálfsbjargar, fé- lags fatlaðra, í Reykjavík og nágrenni. Kveðja frá Ljósmyndafélagi íslands í upphafí jóla, að morgni að- fangadags, lést Sigurður Guð- mundsson ljósmyndari, fyrrverandi formaður félagsins og heiðursfélagi vor. í dag, síðasta dag jóla, verður hann til moldar borinn. Hann hafði átt við mikla van- heilsu að stríða, sérstaklega þessa síðustu haustdaga og þar til hann lést. Sigurður var einn af stofnendum Ljósmyndarafélags íslands í janúar 1926 og reiknast mér til að hann hafí verið einn af yngstu stofnend- um félagsins, þá 25 ára. Samt er það strax árið 1930 að hann er fyrst kosinn formaður fé- sig. Einhver fáguð tign fylgdi henni hvar sem hún fór. Geirlaug var einörð í skoðunum og sagði meiningu sína hiklaust en þó var vandalaust að ræða við hana og halda fram öðmm málstað. En hún gat hneykslast ákaflega djúpt ef hún þóttist greina yfírdrengskap og ómerkilegheit af einhveiju tagi og ekki hefði ég kosið mér að verða fyrir þótta hennar því að þá held ég að ég hefði hlotið að eiga hann skilið. Hún dreifði ekki um sig boð- um eða bönnum en ég trúi ekki að þar sem hún stjómaði hafí hún þurft að ítreka tilmæli, a.m.k. datt okkur bömunum ekki í hug að hafa uppi efasemdir. Geirlaug var glað- lynd og hressileg. Þegar móðir mín sagði mér látið hennar hætti hún við: „Mér bregður við að missa hana því að ef mér leiddist heim- sótti ég Geirlaugu." Geirlaug var tvímælalaust gæfu- manneskja. I minningu minni er mikil heiðríkja yfir sambandi þeirra Daníels. Hún var mikil fjölskyldu- kona og ef greina mátti að hún léti vel yfir sér, eins og sagt er, var það vegna þess að henni fannst hún eiga góð böm og afkomendur. Að sínu leyti studdu bömin hana til að halda sjálfstæði sínu og heimili til hinstu stundar. Skömmu áður en hún lést lét hún í ljós að henni fyndist meira en kominn tími til að fara heim og undirbúa jólin. Að lokum þakka ég Geirlaugu samfylgdina og mæli líka fyrir hönd foreldra minna og systra. Við og fleiri nágrannar hugsum hlýtt til hennar þegar hún er nú farin yfir móðuna miklu. í mínum huga búa þau alltaf bæði í senn Geirlaug og Daníel og nú fínnst mér með vissum hætti settur punktur aftan við kafla æ.vi minnar, kafla sem bregður yfír birtu og fegurð. Bjarni Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.