Morgunblaðið - 06.01.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987
45
til að aðstoða þá er til hennar leit-
uðu. Allir hlutir voru sjálfsagðir.
Ég hef engan þekkt, sem hafði
yfir eins mikilli starfsorku að búa
og hún. Kraftur og baráttuvilji ein-
kenndu hana og kom það best í ljós
í erfíðum veikindum hennar, að
gefast ekki upp, jafnvel þegar fokið
var í öll skjól.
Með þessum fátæklegu orðum
flyt ég dóttur hennar, Ásgerði
Hrönn, aldraðri móður, Sigríði, og
systkinum mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Sigríður Jónsdóttir
Skólasystir okkar og kær vin-
kona, Sigurlaug Eggertsdóttir, er
látin, langt um aldur fram. Hún
lést á Landspítalanum að morgni
Þorláksmessu eftir erfið veikindi.
Haustið 1950 hófum við 16 ný-
nemar nám í Hússtjórnarkennara-
skóla íslands undir stjórn frk. Helgu
Sigurðardóttur. Við komum víðs-
vegar að af landinu, vorum ólíkar
um margt bæði hvað aldur snerti
og af mismunandi manngerðum
eins og gengur, en áttum allar það
sameiginlegt að vera fullar bjart-
sýni, með trú á það lífsstarf sem
við höfðum valið okkur. Ein okkar
var Sigurlaug, sem kom norðan úr
Skagafírði, og brátt kom í ljós að
hún öðlaðist traust okkar og virð-
ingu. Skólastarfíð byggðist mikið á
samvinnu nemendanna og féll Sig-
urlaug þar vel inn í. Hún var
samviskusöm, hjálpsöm og framúr-
skarandi duglegur nemandi.
Á skólaárunum tókst með okkur
trygg vinátta og samheldni sem
haldist hefur æ síðan og verið okk-
ur gleðigjafi öll þessi ár. Við höfum
komið saman hver hjá annarri og
víst er að Sigurlaug var sálin í hópn-
um, glæddi hann lífí og lét málefni
okkar hinna sig miklu skipta. Oft-
ast varð Sigurlaug fyrst til að kalla
hópinn saman á haustin, hana vant-
aði aldrei og ekki taldi hún eftir sér
að hafa „aukasaumaklúbb", þótt
röðin væri ekki komin að henni.
Ekki má gleyma bílnum hennar sem
alltaf var til reiðu og ósjaldan flutti
okkur lengri og skemmri vega-
lengdir.
Á meðan Sigurlaug og móðir
hennar, Sigríður Ásgeirsdóttir, áttu
heimili saman nutum við ekki siður
gestrisni Sigríðar, sem við þökkum
nú af alhug.
Sigurlaug var minnug á afmælis-
og tyllidaga okkar skólasystranna
og fjölskyldna okkar og átti oftast
frumkvæði að blóma- og gjafakaup-
um þegar tilefni gafst.
Margar ljúfar samverustundir
koma upp í hugann eftir 35 ára
kynni. Ein þeirra vermir okkur öll-
um og gleymist ekki. Veturinn 1981
var ein skólasystir okkar, Erla
Kristinsdóttir, sem búsett er í
Bandaríkjunum, stödd hér á landi
á fimmtugsafmæli sínu. Þá opnaði
Sigurlaug heimili sitt af sinni al-
kunnu greiðasemi og hjartahlýju
og annaðist ásamt okkur skóla-
systrunum framkvæmd mannfagn-
aðar þar sem afmælisbarnið fékk
tækifæri til að gleðjast með vinum
sínum og ættingjum.
Lífsstarf Sigurlaugar hófst strax
að námi loknu, vorið 1952. Hún
starfaði óslitið að þeim verkefnum
sem voru á hennar sérsviði og komu
þá best í ljós hæfileikar hennar og
dugnaður. í tvo áratugi var kennsla
hennar aðalstarf, henni lét það vel
og hún var eftirsótt. Mörg sumur
veitti hún forstöðu sumarhótelum,
fyrst að Löngumýri í Skagafírði,
síðan í Kvennaskólanum á Blöndu-
ósi og á Húnavöllum á Reykjabraut.
í hótelstörfunum naut Sigurlaug
sín sérstaklega vel. Hún var alla
tíð höfðingi heim að sækja, veitul
og örlát.
Sigurlaug var sannur Skagfirð-
ingur, félagslynd, hress og söngvís,
enda félagi í Skagfírsku söngsveit-
inni um árabil. Hún var glæsileg í
klæðaburði, hrókur alls fagnaðar á
gleðistundum, hrifnæm stemmn-
ingarmanneskja, skilningsgóð og
hlý. Heimili Sigurlaugar og dóttur
hennar, Ásgerðar Hrannar, var hlý-
legt og fagurt, þangað var alltaf
gott að koma.
Við skólasysturnar úr HKÍ vorum
í upphafí 16, nú erum við 14 éftir.
Fyrir tuttugu árum lést í blóma
lífsins Guðbjörg Hafstað frá Vík í
Skagafirði, öllum harmdauði er
hana þekktu. Tvö skörð eru nú
höggvin í hópinn okkar, sem ekki
er hægt að fylla.
Innilegar samúðarkveðjur senda
heim tvær skólasystur okkar, Erla
Kristinsdóttir og Olafía Rafnsdóttir,
sem dvelur nú í Noregi.
Við vottum Ásgerði Hrönn,
Sigríði, systur Sigurlaugar, Mar-
gréti og dætrum hennar ásamt
öðrum vandamönnum dýpstu sam-
úð.
Minningin um góða skólasystur
og félaga sem vildi rækta vináttu
og samheldni verður okkur hvöt til
að halda áfram á sömu braut.
Góð kona og hugfólgin er horfin
okkur. Blessuð sé minning hennar.
Skólasystur
Þú, sem eldinn átt í hjarta,
óhikandi djarfur gengur
út í myrkrið ægisvarta
eins og hetja og góður drengur.
Alltaf leggur bjarmann bjarta
af brautryðjandans helgu glóð.
Orð þín loga allt þitt blóð;
á undan ferð og treður slóð.
Þeir þurfa ekki um kulda að kvarta,
sem kunna öll sin sólarljóð.
Davíð Stefánsson.
Ég minnist þess á fyrstu árum
kórsins okkar, er við sungum þetta
gullfallega ljóð Davíðs, að þessi
söngsystir okkar, er við kveðjum
nú í dag, lét þau orð falla, að þetta
væri svo fagurt, að hún vildi láta
syngja það yfir sér látinni. Ekki
hvarflaði það að okkur þá, að árin
yrðu ekki fleiri, sem henni væru
ætluð hér meðal okkar. En nú þeg-
ar jólahátíðin var um það bil að
ganga í garð, á Þorláksmessu, lést
hún — Sigurlaug Eggertsdóttir frá
Fossi á Skaga, eða Dílla eins og
við kölluðum hana flest, gömlu fé-
lagamir í kórnum.
Sjálf kynntist ég Díllu fyrst er
við ásamt öðru góðu fólki vorum
stofnendur Skagfírsku söngsveitar-
innar. Ekki vomm við alltaf
sammála enda báðar fastar fyrir
og skapmiklar en virtum hvor aðra
og áttum gott samstarf. í félags-
starfi var hún afburða dugleg og
nutum við í kómurn okkar góðs af
oftar en ekki. Skagfírska söngsveit-
in hefur misst einn sinn dyggasta
liðsmann. Ég hygg þær hafi ekki
verið margar æfíngarnar, sem Sig-
urlaugu vantaði á öll þau ár, sem
hún starfaði með kórnum.
Við minnumst hennar þar, á öll-
um okkar ferðalögum innanlands
og utan og síðast en ekki síst í
Drangey, félagsheimilinu okkar, við
störf fyrir kórinn. Fyrir hönd Skag-
firsku söngsveitarinnar flyt ég
henni kærar þakkir fyrir allt hennar
starf, félagsanda og vináttu um
leið og við sendum einkadóttur
hennar, Ásgerði, aldraðri móður,
Sigríði, og henni Möggu okkar inni-
legar samúðarkveðjur. Megi guð
gefa ykkur og öllum öðmm ástvin-
um styrk og trú á þessum dimmu
skammdegisdögum.
Þú, sem eldinn átt í hjarta,
yljar, lýsir þó þú deyir.
Vald þitt eykst og vonir skarta,
verk þín tala, þótt þú þegir.
Alltaf sjá menn bjarmann bjarta
blika gegnum húmsins tjöld.
Eldurinn hefur æðstu völd,
uppskera hans er þúsundfóld.
Mannssálin og myrkrið svarta
mundu án hans dauðaköld.
Davíð Stefánsson.
Steinunn Ingimarsdóttir (Denna)
Þorláksmessa er einn erilssam-
asti dagur ársins við undirbúning
jólahátíðar. En ekki ganga allir
jafnt til leiks. Þeir sem em I sjúkra-
húsum heyja sína baráttu fyrir
endurkomu út í þjóðfélagið. Þeirra
á meðal var Sigurlaug Eggerts-
dóttir. Á Þorláksmessu var barátt-
unni lokið.
Sigurlaug fæddist á Fossi í Skef-
ilsstaðahreppi, Skagafirði. Foreldr-
ar hennar vom Eggert Arnórsson
síðar skrifstofustjóri í prentsmiðj-
unni Gutenberg, og kona hans
Sigríður Ásgeirsdóttir, ljósmóðir.
Húsmæðrakennarapróf tók Sig-
urlaug 1952 og lengst af starfaði
hún við kennslu. Á sumrin tók við
annað starf. Lengi rak hún sumar-
hótel á kvennaskólanum á Blöndu-
ósi og síðar stjórnaði hún
Edduhótelinu á Húnavöllum. Hún
bjó þessa staði hlýlega og tók vel
og glaðlega á móti gestum sínum.
Haustið 1971 er lokið byggingu
Breiðholtsskóla. Var þá komin þar
mjög góð aðstaða fyrir heimilis-
fræðikennslu. Til þeirra starfa vom
ráðnir kennararnir Sigurlaug Egg-
ertsdóttur og Aðalfríður Pálsdóttir.
í þeirra hlut kom að móta kennsl-
una og útbúa kennslueldhúsið, en
Breiðholtsskóli var á þessum tíma
fjölmennasti skóli borgarinnar.
Ékki bjuggu allir skólar þá svo vel
að hafa skólaeldhús. Var því al-
gengt að námshópar annars staðar
frá kæmu til okkar eftir því sem
pláss leyfði, enda kennt til kl. 18 á
daginn í mörg ár. Kom sér þá vel
að hafa fengið góða kennara. í eld-
húsinu var reglusemi í heiðri höfð.
Hver hlutur átti sinn ákveðna stað
í skápum og skúffum og gengið var
eftir að nemendur ynnu vel.
Allan sl. vetur var Sigurlaug frá
kennslu vegna veikinda. í haust
kom hún til starfa bjartsýn um að
hafa yfirannið sjúkdóm sinn. Eftir
mánuð í starfi fór hún aftur í
sjúkrahús. Annað áfall bættist við
og undan varð að láta.
Sigurlaug var starfsöm og kraft-
mikil kona. Margir munu minnast
hennar frá kennslunni, hótelrekstr-
inum og úr kórstarfi Skagfirsku
söngsveitarinnar.
Við í Breiðholtsskóla þökkum
gott samstarf og sendum aldraðri
móður og eínkadótturinni, Ásgerði
Hrönn Sveinsdóttur, samúðarkveðj-
ur.
Þorvaldur Óskarsson
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
t Elskulegur faöir minn, tengdafaðir, afi og langafi, HALLGRÍMUR ÞÓRARINN KRISTJÁNSSON, fyrrverandi bryti, Skipasundi 85, sem andaðist 23. desember, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni 7. janúar kl. 1 3.30. Disa Dóra Hallgrimsdóttir, Roger Cummings, Vigdís Blöndal Gunnarsdóttir, Hallgrimur Blöndal Gunnarsson, Elsa Blöndal Sigfúsdóttir.
t Minningarathöfn um móðurbróður minn, JAKOB ÓLAFSSON frá Urriðavatni, Álfheimum 50, sem andaðist á öldrunardeild Landspítaians 1. janúar, verður í Fossvogskapellu fimmtudaginn 8. janúar kl. 15.00. Jarösett verð- ur i heimagrafreit að Urriðavatni, Fellahreppi, laugardaginn 10. janúar kl. 14.00. Oddný Pétursdóttir.
t Útför bróður míns og fööurbróöur okkar, SNORRA HJARTARSONAR, skálds, fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 7. janúar kl. 15.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hans láti liknar- eða menningarsjóði njóta þess. Torfi Hjartarson, Hjörtur Torfason, Snorri Ásgeirsson, Ragnheiður Torfadóttir, Ragnheiður Ásgeirsdóttir, Sigrún Torfadóttir, Halldór Ásgeirsson, Helga S. Torfadóttir.
t Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og tengdasonur, STEFÁN HARALDSSON járnsmiður, Skeljagranda 1, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju miövikudaginn 7. janúar kl. 15.00. Guðrún Sigurðardóttir, Haraldur Sigurðsson, Þóra Stefánsdóttir, Þóra Steingrfmsdóttir, Haraldur Arnar Stefánsson, Slgurður Þorgrfmsson.
t Þökkum samúð og vinarhug við andlát og útför HARALDAR ZOPHONÍASSONAR, Karisbraut 27, Dalvfk. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki á H-deild Fjórð- ungssjúkrahúss Akureyrar fyrir góða umönnun. Þurfður Magnúsdóttir, Hildur Hansen, Þórir Stefánsson, Þóranna Hansen, Aðalsteinn Grfmsson, Hildur Aöalsteinsdóttir, Ólafur Baldursson, Aðalsteinn Ólafsson, Þórhildur Þórisdóttir, Ingvar Jóhannsson, Katrín Sif Ingvarsdóttir. -
t
Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og jarðarför
JÓHÖNNU GUÐJÓNSDÓTTUR,
Álftamýri 18,
sem lést 23. desember sl.
Magnús Þórðarson,
Sigríður Presker, Bill Presker,
Kristinn E. Guðmundsson, Geira Kristjánsdóttir,
Jörgen M. Berndsen, Erna Ágústsdóttir,
Guðrún Ögmundsdóttir, Gísli A. Vikingsson.
t
Þökkum inniiega auðsýnda samúð vegna fráfalls
TRYGGVA SIGTRYGGSSONAR,
Laugabóli.
Unnur Sigurjónsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
Lokað
Skrifstofur vorar verða lokaðar í dag frá kl. 10.00-12.00
vegna jarðarfarar EINARS E. HAFBERG.
Olíufélagið hf.