Morgunblaðið - 06.01.1987, Side 52

Morgunblaðið - 06.01.1987, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987 + „FLugfélagib t^ndí ■Farangnnum mínum éina. ferzSirtcc enn.." Með morgunkaffinu Hvað klukkan er. — Ertu að sjóða ást er — . . . að geta ekki gleymt honum augnablik. TM Reg. U.S. Pat. Off.-all rights reserved 01986 Los Angeles Times Syndicate HÖGNI HREKKVISI /,EKKI FLEIRI FROSKA OG SNAKA ' " Bréfritari telur fréttir RÚV vera á undanhaldi þar sem þær komi sem eins konar seinni fréttir, fólk sé, eftir að hafa horft á fréttir Stöðvar 2, búið að kynna sér hvað sé á döfinni og gerir frekar eitt- hvað annað en að horfa á einn fréttatíma til viðbótar. Sj ónvarpsfréttir RÚV á undanhaldi Hræsnimarx- istanna er ómælanleg Húsmóðir skrifar: Hann var stór hvalrekinn sem núna rak á fjörur sumra frétta- manna á útvarpinu og strax er kominn Suður-Víetnamtónninn í þá. Svona hvalreka eins og Iransmál- ið hefur Sea-Shepherdklíkan ekkert við að athuga, enda hræsnin aldrei risið hærra en í Víetnamstríðinu. Hvaða blessun færði stuðningurinn við Víet-Cong þjóðinni? Flóttafólkið þaðan og verkamennimir sem stjómvöldin senda til Síberíu, til að greiða fyrir vopnin frá Rússum, og fá þar af leiðandi bara 40% af kaup- inu, em skýmstu dæmin um ástandið í ríkinu því, að ógleymdum árásunum á Kampucheu. Hræsni marxistanna er ómælan- leg. Þeir þykjast vera verndarar verkalýðsins, láta dólgslega í vinnu- deilum og vilja láta nota verkfalls- réttinn óspart, en finnst svo sjálfsagt að enginn verkfallsréttur sé viðurkenndur í kommúnistaríkj- unum. Þar má kúga verkalýðinn eftir nótum og hljóðfæri. Engir mega nota vopn nema kommúnistar og allir eiga að falla óhelgir fyrir þeim. Afghanir og frelsisöfl í hvaða ríki sem er eiga berhentir að mæta kúgunaröflunum. Þeim sem dirfíst að senda vopn til Angóla, Mosambique og núna Nicaragua, þar sem morðsveitum Castro er beitt á landsmenn, þá dæma marx- istarnir, kirkjan og vinstri pressan. Þessi söfnuður þykist vera að beijast fyrir friði. Alið er á ótta fólks við atómvopn, en bæði Gorbachev og Reagan hafa lýst því yfir að hvorugur ætlar að nota slík vopn. Það má trúa þeim, því að þeir hafa annað að gera. Sá rúss- neski er að beijast við að koma marxismanum allsstaðar til valda, en Reagan er að reyna að koma á mannréttindum og lýðræði allsstað- ar. Þegar mannkynið er útdautt er ekkert hægt að gera en á meðan maðurinn býr hér á jörðinni eiga allir að hafa tjáningarfrelsi, ferða- frelsi og verkfallsrétt, annars er maðurinn ekki betur settur en ómálga búsmali. Áhorfandi skrifar: Eftir að skrípaleiknum um breyttan fréttatíma sjónvarpsstöðv- anna lauk, endanlega — væntan- lega? — þá fer ekki á milli mála, að RÚV hefur tapað leiknum. Þessu hafði Ingvi Hrafn fréttastjóri spáð og hvatti hann formann útvarps- ráðs, að því er manni skilst, til að halda fréttatímanum óbreyttum, kl. 19.30. Hann færði þau rök fyrir sinni skoðun, að sá aðili sem fyrstur sýndi aðalfréttir kvöldsins héldi áhorfend- um sínum enn um stund og kannski það sem eftir væri kvöldsins. Þetta reynist rétt, hvað sem líður könnun- um og línuritum. Annað er það, að megnið af frétt- unum, svona almennt séð, eru þær sömu á báðum rásunum. Allt er- lenda efnið er það sama og er bara tímasóun að horfa á það tvisvar. Innlendu fréttimar eru einnig mikið til þær sömu og alla vega þær sem mestu máli skipta, t.d. ef um er að ræða stórfréttir og það helsta úr stjórnmála- eða atvinnulífi. Þá ræður það úrslitum hjá mörg- um, að efnið, sem kemur á eftir fréttunum, afþreyingarefni og ann- að, sem fólk sækist hvað mest eftir, er mun meira á Stöð 2 en hjá RÚV og heldur því fólki fremur við skerminn frá nýju stöðinni. En það voru meiriháttar mistök hjá ráðamönnum RÚV að færa fréttirnar aftur til kl. 20. Auðvitað átti að láta fréttastjóra ráða þessu. Hann var sá sem hafði þekkinguna en ekki hinar opinberu, sjálfskipuðu strengjabrúður, sem gjarnan fara eftir öflugum en oft fáliðuðum þrýstihópi, eins og ég held, að hér hafí ráðið, nefnilega fólki á dreif- býlinu, og kannski helst fólki á bóndabæjum, sem á erfitt með að ná báðum fréttatímunum í sjón- varpi, sem eðlilegt er. En á að fara fremur eftir minni- hlutanum en meirihlutanum, bara af því að minnihlutinn stendur höll- um fæti, miðað við sérstakar aðstæður, þótt vitað sé, að meiri- hluti fólks hafi fremur óskað eftir, eins og í þessu tilfelli, að fréttir RÚV héldust kl. 19.30? En nú þýðir lítt að sakast, sjón- varpsfréttir RÚV eru á undanhaldi í vinsældum, vegna þess að þær koma sem eins konar seinni fréttir og fólk er búið að kynna sér hvað er á döfinni og getur þess vegna farið að heiman, á fundi eða annað, a.m.k. þeir sem ekki hafa áhuga á öðru en fréttum. Víkverji skrifar Ihugleiðingu sinni hér í Morgun- blaðinu um áramótin kvað Birgir Þorgilsson, ferðamálastjóri, fast að orði um framgöngu á helstu ferða- mannastöðum. Hann sagði meðal annars: „Við förum nú þegar ráns- hendi um flesta þá staði sem nauðsynlegt þykir að sýna erlend- um gestum. Rányrkja og örtröð blasir við augum og víða hefur landinu okkar verið veitt sár sem seint munu gróa. . . Við höfum áður leikið þennan hættulega leik hvað viðkemur fiskstofnum við landið og ferðaútvegurinn virðist stefna hratt í sömu ógæfuna. Það' er ekki ofsögum sagt af því hvað við íslendingar seilumst oft djúpt og hratt eftir fljótfengnum gróða.“ Birgir segir, að í þessu yfirliti yfir liðið ár, gefist sér ekki tæki- færi til að fjalla í einstökum atriðum um lausn á þessum vanda. Hann segir þó, að ef til vill þurfi að „tak- marka aðgang á vissum tímum árs.“ Þá þurfí að skipuleggja ferðir til fleiri staða en nú er gert. Og þá segir: „Mér er fyllilega ljóst, að aðgerðir þær, sem grípa verður til án frekari tafa, muni þykja harka- legar og mæta mótspyrnu. Þær munu kosta mikla Qármuni og ekki óeðlilegt að neytendur taki nokkum þátt í þessu átaki, en við skulum hafa hugfast að við eigum engra kosta völ.“ XXX Eins og sjá má er ferðamála- stjóra mikið niðri fýrir. Skal ekki dregið í efa, að ástæða sé til þess að hafa áhyggjur af umgengni ferðamanna á mörgum stöðum. Víkveija þætti á hinn bóginn vænt um, ef lesendum Morgunblaðsins yrðu sem fyrst kynntar þær aðgerð- ir, ’ sem ferðamálamenn telja nauðsynlegt, að gripið verði til. Þær ná hvort eð er aldrei fram að ganga nema með stuðningi og skilningi almennings. Sú spurning vaknar, hvort úrbæ- turnar hljóti ekki fýrst og fremst að snerta þá, sem vilja seilast „djúpt og hratt eftir fljótfengnum gróða" af ferðamönnum. Þeir verði að fara sér hægar fremur en ferðamaður- inn, hvort heldur hann er innlendur eða erlendur. xxx Nú sem fýrr er erfítt að átta sig á því, hvort þeir, sem hafa með höndum stjórn og samræmingu á sviði ferðamála, eru að velta því fyrir sér, að setja einhveijar reglur um það til hvaða staða menn mega fara í landinu, hvenær og hvernig. Ferðafrelsi er talið til mannréttinda í okkar landi eins og annars staðar í lýðfijálsum ríkjum. í nágranna- löndum okkar verða menn að sætta sig við, að reglur um öryggi her- stöðva og annarra slíkra mann- virkja takmarka rétt þeirra til að skoða ýmsa staði. Fróðlegt væri að fá af því fréttir, hvort ferðafrelsi sé þar takmarkað vegna of mikillar ásóknar ferðamanna. A hinn bóginn er séð til þess á vinsælum ferða- mannastöðum, að aðstaða öll sé með þeim hætti, að menn sýni umhverfinu sem mesta virðingu. Þarf ekki að leita út fyrir landstein- ana til að fá staðfestingu á því, að menn fýlgja góðu fordæmi í þessu efni sem öðrum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.