Morgunblaðið - 06.01.1987, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.01.1987, Blaðsíða 56
"^^uglýsinga- síminn er 2 24 80 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANÚAR 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Systir 2. stýrimanns á Synetu: Leitar upplýs- inga um afdrif bróður síns Kraf ist opinberrar rannsóknar í Bretlandi ÆTTINGJAR skipverjanna á flutningaskipinu Syneta sem strand- aði I mynni Fáskrúðsfjarðar á jóladag hafa enn ekki fengið afhent lík þeirra sem fórust. John Taylor, forstjóri fyrirtækis í Liverpool, sem mannaði skipið fyrir hönd útgerðar þess á Gíbralt- ar, hefur neitað að skýra frá nöfnum skipverja og hvar lík þeirra sem flutt voru til Reykjavíkur 27. desember eru. í gær kom til landsins Heather - Gamble, systir Mark Brooks ann- ars stýrimanns á Synetu, og eru fyrmefndar upplýsingar byggðar á frásögn hennar. Hún hyggst leita vitneskju sem kynni að varpa ljósi á ástæður slyssins. Hún sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins að þingmaður, sem situr í skuggaráðuneyti breska Verka- mannaflokksins myndi í þessari viku fára fram á það að ríkis- stjóm Margaretar Tatcher léti fara fram opinbera rannsókn á »sjóslysinu. „Ættingjar skipveija hafa ekki fengið neina útskýringu á slysinu og sú leynd sem hvflir yfír afdrifum áhafnarinnar hefur vakið mikinn ugg í bijóstum okk- ar. Þetta mál er vægast sagt orðið einkennilegt," sagði Gamble sem er sjálf yfírmaður á flutninga- skipi, sem gert er út frá Hong Kong. Gamble sagði að fjölskyldu hennar hefði verið tilkynnt um slysið að morgni annars í jólum, þegar lögreglumaður barði að dyrum á heimili hennar. „Okkur var sagt að Syneta hefði strandað við ísland og bróðir minn væri talinn af,“ sagði hún. „Segja má að þetta séu einu opinberu upplýs- ingamar sem við höfum fengið um afdrif Marks. Allar aðrar fregnir höfum við haft úr fjölmiðl- Morgunblaðið/Einar Falur Heather Gamble skoðar kort af slysstaðnum í húsi Slysavamarfé- lags íslands í gærkvöldi. um.“ Hún sagði að bróðir hennar hefði skráð sig á skipið tveimur dögum áður en það lét úr höfn í Láverpool. Svo virtist sem flestir í áhöfninni hafí verið lausamenn í sinni fyrstu ferð með Synetu. Frú Gamble heldur til Eski- fjarðar í dag. „Þar ætla ég að tala við þá sem tóku þátt í björg- unaraðgerðum, þakka þeim og leita upplýsinga." Verkfall háseta á farskipum hófst á miðnætti í nótt: Krafa um 85 þúsund króna lágmarkslaun VERKFALL háseta á farskipum hófst á miðnætti í nótt. Samn- ingafundur í deilu þeirra og viðsemjenda hófst klukkan hálf Fjármálaráðherra sagði að þessi ákvörðun hefði það í för með sér að mánaðarleg álagning fyrrihluta árs yrði 11,4% af álögðum gjöldum í fyrra. Á síðastliðnu ári hefði hún til að byija með verið 13% af gjöld- iiíli_ársins á undan, en síðan eftir níu í gærkveldi og þar lagði Sjó- mannafélag Reykjavíkur fram kröfur til viðbótar þeim sem það hafði uppi á síðastliðnu vori er lækkun 11,67%. Að meðaltali hefði fyrirframgreiðslan í fyrra verið 12,1% á mánuði af gjöldum ársins 1985. Þorsteinn sagði að breyttar að- stæður gerðu það að verkum að hægt væri að ákveða þessa lækkun. ríkisvaldið greip inn í kjaradeilu þess og útgerðarmanna. Meg- inkröfur háseta eru þær að lágmarkslaun hækki í 35 þúsund Tekjuskattur lækkaði og síðan væri stuðst við spár um launaþróun á þessu ári, þannig að því sem næst helmingurinn af fyrirframgreiddum gjöldum innheimtist á fyrrihluta ársins. „Þessi ákvörðun er alfarið tekin út frá tekjuskattsálagningunni, en er byggð á mati íjóðhagsstofnunar og tillögum hennar, en hún sagði jafnframt, að því er varðar útsvör- in, að þetta hlutfall hefði þurft að vera 67%,“ sagði fjármálaráðherra. krónur á samningstímanum og álag á yfirvinnu verði 80%. Fund- ur stóð enn um miðnættið og óljóst hvort haldið yrði áfram eða fundi frestað til morguns. Guðmundur Hallvarðsson, for- maður Sjómannafélags Reykjavík- ur, kvað kröfumar ekki háar með tilliti til þeirra lágmarkslauna sem um hefði verið samið nú nýlega í landi. „Það hefur nú gerst að það er kominn grundvöllur til þess að ræða samning til næsta árs, þar sem kröfur háseta em fram komnar. Kröfur þeirra eru feykiháar í pró- sentum talið, en það verður að láta reyna á það til þrautar hvort ekki er hægt að jafna ágreininginn," sagði Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ í gærkveldi. Hann sagði að margt í samningun- um gæfí tilefni til endurmats og þetta endurmat gæti gefíð aðilum möguleika á að nálgast samkomu- lag. „Það verður látið á það reyna næstu daga, hvort ekki er hægt að ná saman samning til ársloka," sagði Þórarinn. Strandferðaskipin stöðvast fyrst vegna verkfallsins, strax og þau koma til hafnar, en farskipin stöðv- ast eitt af öðru fram eftir mánuðin- um er þau koma til hafnar hér á landi. Forsætisráðherra: Lýsir yf ir furðu sinni ávinnu- brögðum Finns Keflavík. Á FUNDI hjá Kiwanisklúbbnum Keili í Keflavík, sem haldinn var í gærkvöldi, lýsti Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, furðu sinni á vinnubrögðum Finns Ingólfssonar, fulltrúa Framsóknarflokksins í viðræðu- nefnd um námslánafrumvarpið. Kvaðst forsætisráðherra myndu kalla Finn á sinn fund í dag og krefja hann nánari skýringa á gjörðum sínum. Forsætisráðherra flutti erindi á fundinum og svaraði að því loknu fyrirspumum fundarmanna. Þar var hann meðal annars spurður álits á tillögum Finns Ingólfssonar varð- andi námslánafrumvarpið. Stein- grímur kvaðst ekki hafa kynnt sér tillögur Finns og mætti vel vera að í þeim væri eitthvað nýtilegt og gott. Hins vegar lýsti hann furðu sinni á þeim vinnubrögðum sem Finnur hefði viðhaft í málinu og kvaðst Steingrímur myndu kalla Finn á sinn fund í dag, áður en ríkisstjómarfundur hæfist, til að fá nánari skýringar. - BB Sjá nánar bls. 32. Bolungarvík: Vinnustöðv- un samþykkt Bolungarvík. Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur hélt félagsfund um samningamálin í gærkvöldi. Fundurinn samþykkti að heimila stjóm og trúnaðarmannaráði að boða vinnustöðvun bæði hjá sjó- mönnum og landverkafólki. Var þessum aðilum falið að ákveða nán- ar hvenær vinnustöðvunin kæmi til framkvæmda í samráði við önnur félög innan Alþýðusambands Vest- §arða. Tillaga um að ákveða dagsetningu verkfalls sjómanna var borin upp á þessum fundi en felld. Gunnar 35 skip hafa bókað land- anir erlendis 35 fiskiskip hafa fengið skráða löndunardaga erlendis í þessari viku og tveimur næstu. Það er meiri fjöldi en almennt á þessum tíma og stafar meðal annars af verkfalli sjómanna og því, að enginn útflutningur i gámum er fyrirsjáanlegur á næstunni. Því verður framboð minna en ella þrátt fyrir aukinn fjölda land- ana. Fyrirf ramálagrnng skatta: Ákveðin 5 7% af gjöldum liðins árs Var á síðastliðnu ári um 61% af gjöldum ársins á undan FYRIRFRAMÁLAGNING skatta á þessu ári hefur verið ákveðin 57% af gjöldum liðins árs, samkvæmt upplýsingum Þorsteins Pálssonar fjármálaráðherra. Á síðastliðnu ári var ákveðið að fyrirframálsign- inerin yrði 65% af gjöldum ársins 1985, en síðar á árinu var álagning- ’r'lprósentan lækkuð þannig að hún var að meðaltali 61%.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.