Morgunblaðið - 22.02.1987, Síða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1987
STALLOIME SKIPTIR
UM AKREIN
GREIN OG VIÐTÖL: SVEINBJÖRN I. BALDVINSSON
Á Century Plaza
Mér líður dálítið eins og Arna
frá Geitastekk, eða Steini undir
Steinahlíðum. Eg renni bílnum upp
að dyrum á þessu gríðarstóra hót-
eli og er að velta fyrir mér hvar
eip að finna bílastæði, þegar ung-
ur piltur í grímubúningi, eða
endurfæddur varðmaður Richelieu
kardínála, kemur askvaðandi með
bréfmiða í hendinni. Ég spyr hann
hvert ég eigi að fara með bílinn.
Afdalamennskan allsráðandi.
Hann brosir pent og kemur mér í
skilning um að ég eigi bara að
yfirgefa bílinn þarna fyrir framan
dyrnar, hann muni sjá um að koma
honum fyrir og svo eigi ég að
framvísa þessum miða til að fá
hann afhentan aftur.
Ég reyni að láta líta svo út sem
ég hafi svo ógurlega mikið á minni
könnu að ég geti aldrei munað
hvernig þetta sé nú á þessu hótel-
inu eða hinu. Svo labba ég inn í
afar mikið anddyri þar sem er
hátt til lofts og vítt til veggja.
Listaverk upp um alla veggi. Allt
frummyndir, auðvitað. Og ég ekki
einu sinni með hross að gefa, eða
kistil með sniðugum lás.
Ég er snemma í því. Eftir dálít-
ið labb svona til að skoða og leyfa
tímanum að líða svolítið í friði,
spyr ég til vegar í svítu númer
2805 og fæ þær ofursjálfsögðu
upplýsingar að hún sé á tuttug-
ustu og áttundu hæð í Century
Plaza-turninum. Ég er á leið í
blaðaviðtal fyrir Morgunblaðið.
Þetta er liður i kynningarátaki
Cannon-kvikmyndafyrirtækisins
fyrir nýjustu mynd sína, „Over the
Top“ og ég á að hitta þama stór-
stirnið Sylvester Stallone, leik-
stjórann Menahem Golan,
táningastjörnuna David Medenhall
og ef til vill eitthvert fleira fólk.
Ég svipast um eftir fleiri blaða-
mönnum en þeir eru líkast til
ókomnir eða þegar farnir að tína
til penna og blöð og upptökutæki
Sjá bls.
10,11 og
12 B
einni af svítunum á
tuttugustu og áttundu
hæðinni í Century
Plaza-hótelinu. Hann
er að tala um nýjustu
bíómynd sína, „Over
the Top“, sem brátt
verður sýnd á Islandi.
Röddin er djúp og
talandinn gersamlega
ólíkur því vélræna
tauti og griðungslega
umli sem hann
bregður jafnan fyrir
sig á hvíta tjaldinu.
Hann er hress í bragði
og ákaflega
íþróttalegur, sólbrúnn
og stæltur. Það kemur
auðvitað engum á
óvart, því hann er
búinn að vera að leika
boxara og
ofbeldishetjur í
samf leytt um níu ár.
Það kemur mér hins
vegar í opna skjöldu
að hann er glettinn og
kemur vel fyrir sig
orði.
Los Angeles, febrúar 1987.
„ Já, mér f innst þessi
mynd vissulega marka
nokkur tímamót á
ferli mínum. Kannski
má segja að í vissum
skilningi sé þetta
hlutverk dálítið
afturhvarf til
upphafsins, til fyrstu
Rocky-myndarinnar. “
Mega-stjarnan,
Sylvester Stallone,
situr í djúpum sófa í
Sylvester Stallone og
Sveinbjörn I.
Baldvinsson.
Faðir og sonur í „Over
theTop".
TM