Morgunblaðið - 22.02.1987, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1987
B 3
s
að forðast afa sinn sem stundum
tókst og stundum ekki. En í hvert
sinn sem afí hennar komst í færi
hélt hann uppteknum hætti.
Loks komst telpan á fermingar-
aldur og hætti að fara í sveit. En
þá var svo komið fyrir henni að
hún sem hafði verið glatt og ánægt
barn var orðinn döpur og innilok-
uð, gekk illa í skóla, þrátt fyrir
góðar gáfur og átti fáa kunningja.
Hún svaf illa, fékk martraðir og
var hrædd og tortryggin í sam-
skiptum sínum við fólk.
Eftir því sem hún varð eldri óx
með henni sú tilfinning að hún
væri lítils virði sem manneskja.
Heilbrigt sjálfsálit hennar brotnaði
smám saman niður vegna sektar-
kenndar sem afbrot afa hennar
hafði valdið henni. Hún, sem var
saklaus, mátti líða fyrir ljótar gerð-
ir hans.
Gat hún þá ekkert gert segjum
við?
Þegar stúlkan var um tvítugt
og amma hennar dáin ákvað hún
að segja foreldrum sínum frá þeim
hörmungum sem hún hafði búið
við sem bam. Hún gerði það og
þau töluðu við afa hennar en hann
neitaði þverlega. Svo undarlegt
| sem það er þá trúðu þau honum
en ekki henni, kannski af því að
þau treystu sér ekki til að horfast
í augu við svo sársaukafullan hlut.
Þá stóð hún ein uppi í hörðum
heimi og fannst hún engan eiga að.
Hvert leitar fólk sem þannig er
komið fyrir? Sumir leita til guðs,
sökkva sér niður í trúarlífið, aðrir
reyna í örvæntingu að finna sér
maka, taka oft þann fyrsta og
besta. Enn aðrir leita á vit vímu-
gjafa, leggjast í veruleikaflótta.
Okkar stúlka valdi tvo síðari
kostina. Hún er núna 40 ára göm-
ul og á að baki þrjú misheppnuð
hjónabönd. Þegar hún stóð í skiln-
aði í þriðja sinn lagðist afi hennar
banaleguna og þá gerði hann þá
játningu fyrir bömum sínum að
hann hefði brotið gegn þessari litlu
telpu sem honum var trúað fyrir í
mörg ár. Loks þá trúðu foreldrar
hennar henni og nú er hún einstæð
móðir með tvö hálfuppkomin börn
og er að byija að takast á við lífið
á nýjan leik.
Afbrot afa hennar hefur valdið
henni næstum óbætanlegu tjóni og
í ljósi þess að afínn játaði brot sitt
á banasænginni skulum við ætla
að hann hafi átt erfiða daga stund-
um vegna þess sem hann gerði.
Þessi saga sem hér hefur verið
sögð er í rauninni til í mörgum
myndum. Telpumar geta verið á
ýmsum aldri og afbrotamaðurinn
getur verið pabbi, stjúpi, bróðir,
frændi eða náinn fjöldskylduvinur.
Allir þeir sem hafa aðstöðu til að
vera treyst fyrir litlu barni.
Þið böm sem hafið lent í að
vera misnotuð kynferðislega. Hafið
hugfast að þið emð saklaus. Þið
hafíð ekkert til að skammast ykkar
fyrir. Það er afbrotamaðurinn sem
á að skammast sín, hann hefur
fyllstu ástæðu til þess. Minnist
þess að þið hafið rétt til að segja
nei við öllum þeim atlotum sem
ykkur finnst ógeðfelld. Segið ein-
hverri manneskju sem þið treystið
frá því sem fyrir ykkur hefur kom-
ið.
Þið sem hafíð á samviskunni
sifjaspellsbrot gegn barni, þið skul-
uð ekki gleyma því að það er
ekkert það til sem getur afsakað
slíkan glæp. Minnist þess að Það
fylgir því ábyrgð að vera fullorðinn
maður.
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
FRAMHALDSNÁM í
SÉRKENNSLUFRÆÐUM VIÐ
KENNARAHÁSKÓLA
ÍSLANDS
Kennaraháskóli íslands býður fram eftir-
farandi framhaldsnám til B.A. prófs í
sérkennslufræðum sem hefst haustið
1987:
1. áfangi (30 einingar), hlutanám.
2. áfangi (30 einingar), hlutanám.
Hvor áfangi tekur tvö ár í hlutanámi þannig að
unnt er að stunda það samhliða kennslu.
Kennarar sem Ijúka báðum áföngum ásamt verk-
legu námi (15 ein.) hljóta B.A. gráðu í kennslu
barna með sérþarfir.
Til að hefja fyrsta áfanga námsins þurfa umsækj-
endur að hafa full kennararéttindi (skv. lögum
48/1986) og a.m.k. tveggja ára kennslureynslu.
Umsækjendur um annan áfanga skulu auk þess
hafa lokið fyrsta áfanga eða samsvarandi viður-
kenndu námi í sérkennslufræðum (30 ein.)
Kennaraháskóli íslands áskilur sér rétt til að
velja úr hópi umsækjenda á grundveili skriflegra
umsókna, meðmæla og viðtala.
Nánari upplýsingar um nám þetta, ásamt umsókn-
argögnum, fást á skrifstofu Kennaraháskóla
íslands, Stakkahlíð, 105 Reykjavík. (Sími 688700).
Umsóknarfrestur er til 15. mars 1987.
Rektor.
spira^c
sarco
gufustjómtæki
gufugildrur
FALKIN N
SUOURLANDSBRAUT 8. SIMI 84670
Markviss aðstoð fyrir hjón og sambýlisfólk.
Tilgangurinn er að gera fólki kleift að skoða,
endurmeta og taka afstöðu og ákvörðun um
samband sitt. Einkatímar fyrir hvert par einu
sinni í viku í alls 6 vikur.
Upplýsingar í sfma 688160 milli kl. 14.00 og
17.00 daglega.
Guðrún Einarsdóttir,
Hörður Þorgilsson,
sálfræðingar.
Lækninga- og sálfræðistofunni,
Skipholti 50C.
Orðsending
frá Permu
í tilefni hárvikunnar bjóðum við upp á frían
hárþvott næstu viku og sérstaka kynningu
á hárþvottar- og næringarefnum.
Perma, Iðnaðarhúsinu,
Perma, Eiðistorgi,
Rakarastofan Eiðistorgi.
ULLORÐINSFRÆÐSLA
TÖLVUNAM
Verzlunarskóla
ÍSLANDS
DBASE
Kennsla hefst 3. mars
kl. 17.00—19.00 og fer kennsla fram á
þriðjudögum og fimmtudögum. Kennt
verður að nota gagnagrunninn og hvern-
ig forrit eru búin til.
MULTIPLAN
Kennsla hefst 2. mars
kl. 17.00—19.00 og fer kennsla fram á
kl. 17.00—19.00 og fer kennsla fram á
mánudögum og miðvikudögum.
Kennt verður hvernig hægt er að nota
töflureikninn við algenga en tímafreka
útreikninga svo sem gerð greiðsluáætl-
ana, tilboða o.fl.
Hvort námskeiðið um sig er 20 kennslu-
stundir.
Innritun fer fram á skrifstofu skólans að
Ofanleiti 1, 103 Reykjavík, kl. 13.00—17.00.
Starfsmenntunarsjóðir ríkisstarfsmanna Reykjaví-
kurborgar og VR styrkja félagsmenn sína til
þátttöku á námskeiðunum.