Morgunblaðið - 22.02.1987, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1987
Mildred Cumming, „Little Miss Cornshucks", gerði út á útlitið
ekki síður en vælandi röddina.
Stökkblús
Blús
Árni Matthíasson
Á árunum eftir seinni
heimsstyrjöldina var almenn
bjartsýni ríkjandi í Banda-
rikjunum þótt spennu hafi
gætt undir niðri. Ekki var
það síst meðal svertingja í
stórborgum. Þeir eygðu nú
það að eiga einhverntímann
eftir að taka sér sess meðal
hvítra. Þessi bjartsýni kom
ekki síst fram í blúsnum, til
varð biús sem kailaðist
jump“-blús.
Jump-blúsinn átti uprunann
að rekja til stórsveitasveiflunn-
ar í jassinum, þar sem Big Joe
Tumer og Jimmy Rushing,
m.a., mótuðu hlutverk söngvar-
ans sem varð að hafa sterka
rödd til að ná í gegn um blásara-
sveitina. Söngvarar í slíkum
sveitum voru gjaman kallaðir
blús „shouters“ og er það ekki
fjarri því að lýsa söngstflnum
að nokkru leyti: Varla þarf að
geta þess að tónlistin var hugs-
uð sem danshljómlist fyrst og
fremst.
Jimmy Rushing starfaði allt-
af innan jassins þótt blúsaður
væri en Big Joe söng mest-
megnis blús.
Ace hljómplötufyrirtækið
hefur gefíð út plötur sem bera
einfaldlega heitið Jumpin’ the
Blues. Þar er reynt að gefa
góða mynd af jump-blúsnum í
Bandaríkjunum á ámnum frá
1945 til 1955. Að vísu er þar
ekki að fínna upptökur með ris-
um jump-blúsins eins og Louis
Jordan, en þó er gnótt af góðu
efni á plötunum. A meðal þeirra
frægari sem lög eiga á plötun-
um þremur sem komnar eru í
flokknum eru Willie Brown og
Buddy Johnson, sem kom fast
á hæla Louis Jordan í vinsæld-
um. Konumar tóku líka þátt í
sveiflunni og Tiny Davis leiddi
kvennasveit þar sem systir
hennar lék á saxofón, en saxo-
fónninn var aðal einleikshljóð-
færið í jump-blúsnum. Þær eiga
lögin Race Horse og How Abo-
ut That Jive á fyrstu plötunni
í seríunni, dæmigerð jump-lög
með tvíræðum textum.
Fyrstu plötumar tvær em
nokkuð keimlíkar en sú þriðja
er einna best heppnuð. Þar rísa
hæst lögin Tiy a Little Tender-
ness og Papa Tree Top Blues
með Little Miss Comshucks,
afbragðs vel sungin, og People
Don’t Understand Me og Korea
Blues með Willie Brown. Það
er líka gaman að heyra í gítar-
leikaranum Jesse Allen, sem er
undir merkjanlegum áhrifum
frá Guitar Slim og Clarence
Gatemouth Brown.
Á umslagi þriðju plötunnar,
sem út kom 1986, segir að sú
fjórða sé í undirbúningi og
óhætt er að líta fram til hennar
með nokkurri ertirvæntingu.
Gerir þú kröfur?
Vilt þú ráða því hvaða myndir þú horfir á í sjónvarpinu?
Vilt þú ráða hvenær þú horffir á þær myndir sem þig
langar að horfa á?
Ertþútilíað bíða í meira en eitt ár eftir að geta séð
góðar myndir í sjónvarpinu?
Öll myndbönd sem eru gefin út af Há-
skólabíói eru með sjónvarpsvernd í
a.m.k. eitt ár. Það þýðir einfaldlega það
að þær myndir sem gefnar eru út á
myndböndum verða ekki sýndar í sjón-
varpsstöðvum fyrr en í fyrsta lagi einu
ári eftir að myndin er gefin út á mynd-
band.
Þessi mynd verður gefin út á mynd-
band seint í haust. Þessa mynd getur
þú í fyrsta lagi séð í lokaðri sjónvarps-
stöð eftir 2 ár. Vilt þú bíða?
Myndbönd eru betri kostur - Vertu þinn eigin herra
UTSALA
Joggingallar m/hettu
Verð áður 1.485.-
Verð nú 990.-
Dolomite fullorðins-
skíðaskór
Verð áður 4.345,-
VerA nú 3.295.-
Lotto gallar
mikið úrval.
Barna- og fulloröinsstæröir.
Verð frá 1.595,-
Henson gallar
ýmsar gerðir
Verð frá 1.995,-
Don Cano vattúlpur full-
orðins
Verð áður 5.680.-
VerA nú 2.990.-
Don Cano vattúlpur
barna
Verð áður 3.490,-
Verð nú 2.490.-
Danskin samfestingar
Verð áður 2.420.-
Verð nú 1.750.-
Skíðapakkar barna
Skíöi — bindingar — stafir
90-110 cm
Verð áður 3.385,-
Verð nú 2.395.-
Dolomite skíðaskór
Verð áður 2.750.-
Verð nú 1.996.-
Dubin skíðasamfestingar
Verð áður 8.408.-
Verð nú 5.990.-