Morgunblaðið - 22.02.1987, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1987
"fe °Í3
Reykholtsdalur:
Amerískjr vélsleða-
menn til Islands
Kleppjárnsreykjum.
Ferðaskrifstofan Urval og frekar lítill ferðamanna- og frá. Jón Kristleifsson á
Flugleiðir hafa unnið að kynn- straumur og er þetta góð Húsafelli hefur tekið þátt í
ingu á snjósleðaferðum til hugmynd til nýtingar á þeirri undirbúningi fyrir komu þess-
íslands. Á þessum árstima er aðstöðu og ferðum til landsins ara erlendu ferðamanna og
Vélsleðarnir teknir af bílnum við Augastaði í Hálsasveit.
Morgunblaðið/Bemhard
Eitt af húsunum sem búið er að smíða í Húsafelli.
smiðað 5 bústaði til að hýsa
gesti.
Matthías Kjartansson hjá
Ferðaskrifstofunni Úrval sagði
að í hveijum hóp væru um 15
aðilar enn sem komið væri en
það réðist nokkuð af sleðafjölda,
en Flugleiðir og ferðaskrifstofan
Úrval ættu sleðana. Nú þegar
hafa 2 hópar komið, voru þeir í
Bláfjöllum og á Hellisheiði. Þó
er frekar lítill snjór sunnanlands
víðast hvar. Sleðarnir komu
hingað á sunnudaginn og voru
teknir af við bæinn Augastaði í
Hálsasveit en þaðan er ágætt
að komast á Ok og inn á Kalda-
dal. Þetta svæði er fulllangt frá
byggð ef slys ber að höndum
sagði Matthías Kjartansson og
kvað svæðið nær Reykjavík
henta betur til þessarar starf-
semi að því leyti. Ferðin kostar
með flugi, gistingu og hálfu
fæði 36.000 kr., innifalið er svo
3 dagar á sleða og allur ferða-
kostnaður innanlands.
Nokkuð hefur verið spurt um
hvort sleðamir verða til leigu
fyrir íslendinga en svo verður
ekki, aftur á móti em húsin í
Húsafelli laus um helgar og
kostar 400 kr. á mann gisting.
Fyrir nokkmm áram var
stofnað félag um sleðaferðir á
Langjökli og hafði félagið að-
stöðu í Húsafelli. Ekki gekk
þetta vel og lagðist félagið útaf
eftir um það bil árs starfrækslu.
— Bernhard
Benidorm sumaráætlunin 1987 er komin. Pantaðu tímanlega því s.l.
sumar komust færri með en vildu á Hvítu ströndina á Spáni. Benidorm
býður upp á góða gistingu, frábæra matsölu og skemmtistaði. Aðstaða
til íþróttaiðkunar er einstök, skemmtigarðar og tívolí af bestu gerð.
Auðvitað er líka hægt að njóta lífsins í ró og næði á ströndinni og fara
í skoðunarferðir um nágrennið með fararstjórum Ferðamiðstöðvar-
innar. Benidorm er einn sólríkasti staðurinn á suðurströnd Spánar,
það mælast 306 sólardagar á ári.
Páskaferð — 2 vikur 15. apríl — Verð frá kr. 27.200.-
SUMARAÆTLUN 1987
■
APRÍL 15 APRÍL 29 MAÍ 26 — JÚNÍ 2 J 1 ÚNÍ 6 JÚNÍ 23 JÚLÍ 7 1 JÚLÍ 4 JÚLÍ 28
ÁGÚST 4 ÁGÚST 18 ÁGÚST 25 SEPTEMBER 8 SEPTEMBER 15 SEPTEMBER 29 OKTÓBER 6 OKTÓBER 20 OKTÓBER 27
Pantaðu strax, dagsetningarnar á brottfarardögunum eru hér í auglýs-
ingunni. Við lánum þér myndband um Benidorm endurgjaldslaust.
FERÐA.. Ce+ttxal
MIÐSTOÐIINl Tcaud
AÐALSTRÆTI 9 - REYKJAVÍK - S. 2 8 1 3 3
m