Morgunblaðið - 08.03.1987, Page 44

Morgunblaðið - 08.03.1987, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1987 Minning: Gísli Andrésson hreppstjóri, Hálsi Fæddur 14. nóvember 1917 Dáinn 1. mars 1987 Eftir meira en aldarfjórðungs samstarf kveð ég vin minn Gísla Andrésson bónda á Neðra-Hálsi í Kjósarhreppi, sem svo skyndilega hefur kvatt. Við höfum enn einu sinni verið minnt á hversu skammt er milli lífs og dauða. . í Kjósinni hefur ætíð búið afar traust og dugmikið fólk. Þar hefur Neðri-Háls verið eitt af stórbýlun- um eins og allir þeir sem fram hjá hafa farið hafa séð. í forystu sveitarfélagsins hafa Neðra-Hálsbændur verið um langan aldur, traustir menn og ósérhlífnir. Hreppstjórastörfum og sýslu- nefndarstörfum gegndi Gísli Andrésson um langa hríð og bændasamtökin leituðu starfs- krafta hans til forystu í Sláturfélagi Suðurlands og Stéttarsambandi bænda. Þjóðmálin voru ekki höfð afskipt og í forystu sjálfstæðismanna í Kjósinni var Gísli traustur til bar- áttu fyrir einstaklingsfrelsi og ævinlega með góð ráð til þeirra sem hann hafði valið til forystu. Við Gísli áttum viðræður fyrir skömmu um áhugamál okkar og sveitunga hans. Til stóð að spjalla betur saman þá um hagstæð mála- lok. Til þeirra viðræðna kemur Gísli vinur minn ekki. Hann hefur verið kallaður á fund Drottins síns og bið ég honum Guðs blessunar í landi lifenda. Eiginkonu Gísla, frú Ingibjörgu Jónsdóttur, og fjölskyldu sendum við Sigrún samúðarkveðjur. Matthías Á. Mathiesen Gísli fæddist að Bæ í Kjós 14. nóvember 1917. Hann fórst í bílslysi 1. mars 1987. Hann var sonur Andrésar Ólafs- sonar hreppstjóra þar og Ólafar Gestsdóttur, konu hans. Fimm ára flutti hann með foreldrum sínum Bridsdeild Sjálfs- bjargar Sveit Péturs Þorsteinssonar sigr- aði í sveitakeppninni scm lauk sl. mánudag. 7 sveitir tóku þátt í keppninni. Með Pétri spiluðu Páll Siguijóns- .son, Magnús Sigtryggsson og Rafn Benediktsson. Röð sveitanna: Pétur Þorsteinsson 147 Sigríður Sigurðardóttir 127 Meyvant Meyvantsson 123 Hlaðgerður Snæbjörnsdóttir 120 Sigurrós Siguijónsdóttir 80 Nk. mánudag hefst þriggja kvölda tvímenningur. Spilamennska hefst kl. 19. Bridsdeild Skagfirðinga Þriðjudaginn 3. mars var fram haldið barometcr-keppni félagsins, spilaðar voru 6 umferðir. . Efstu skor kvöldsins hlutu: Hjálmar Pálsson — Jörundur Þórðarson 141 Jakob Ragnarsson — GunnarKarl 140 Bernódus Kristinsson — Þórður Bjarnason 128 Esther Jakobsdóttir — Þorfinnur Karlsson 110 Guðmundur Theódórsson — Óskar Ólafsson 107 Guðmundur Kr. Sigurðsson — Þorleifur Þórarinsson 99 Brynjólfur Jónsson — Ingimar Valdimarsson 90 Bragi Björnsson — Þórður Sigfússon 77 Baldur Ásgeirsson — Magnús Halldórsson 67 Birgir Þoivaldsson — Högni Torfason 49 Efstir að stigum eru þá eftir 24 umferðir: Þórður Sigfússon 295 Guðrún Hinriksdóttir — Haukur Hannesson 281 Friðgeir Guðnason — J akob Ragnarsson 278 Kristinn Sölvason — Victor Björnsson 273 Sigmar Jónsson — VilhjálmurEinarsson 208 Baldur Ásgeirsson — Magnús Halldórsson 193 Hjálmar Pálsson — Jörundur Þórðarson 172 Ármann .1. Lárusson — Óli M. Andreasson 167 Matthías G. Þorvaldsson — Ólafur Björnsson 166 Spilað er í Drangey, Síðumúla 35. Bridsdeild Breiðfirð- ingafélagsins Lokið er 31 umferð af 49 í 50 para barometer-tvímenningi og er staða efstu para þessi: Stig Baldur Ásgeirsson — Magnús Halldórsson 447 Magnús Torfason — Sigtryggur Sigurðsson 413 Jóhann Jóhannsson — Kristján Sigurgeirsson 407 Sveinn Þorvaldsson — Hreinn Hreinsson 381 Cyrus Hjartarson — Hjörtur Cyrusson 370 Helgi Samúelsson — Sigurbjörn Samúelsson 342 Ragnar Hermansson — Hjálmtýr Baldursson 321 Helgi Nielsen — Marinó Kristinsson 270 Halldór Jóhannesson — Ingvi Guðjónsson 264 Sigríður Ingibergsdóttir — Jóhann Guðlaugsson 248 Næstu umferðir verða spilaðar nk. fímmtudag kl. 19.30 í hinu nýja húsnæði Bridssambandsins. að Hálsi og þar átti hann heima alla tíð eftir það. Gísli var ungur bráðger, stór og karlmannlegur. Hann ólst upp í stórum systkinahópi á menningar- heimili. Þau systkinin voru þrettán talsins. Systkinin á Hálsi voru fé- lagslynd og söngvin. Þau urðu mjög virk í ungmennafélagsstarfi sveitar- innar og einnig í söngstarfi strax á unga aldri. Bræðumir voru radd- menn góðir og voru lengi virkir kórfélagar í Karlakór Kjósveija og síðar Karlakór Kjósarsýslu. Ungmennafélagið „Drengur“ var mjög athafnasamt félag. Það stóð fyrir íþróttamótum fyrr en mörg önnur ungmennafélög og það var eitt af fyrstu ungmennafélögunum til að reisa stórt félagsheimili „Fé- lagsgarð". Gísli vann mikið í ungmennafélaginu „Dreng“ strax á unga aldri og var virkur félagi alla tíð. Hann hafði ríkan íþróttaáhuga og það varð til þess að hann fór til náms í íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar f Haukadal veturinn 1936. Eftir heimkomuna vann hann mikið í ungmennasambandi Kjalar- nessþings. Árið 1943 var hann kosinn í stjóm UMFÍ og átti sæti í henni í 14 ár, sem varasambands- stjóri. Fyrir þau störf _var hann sæmdur gullmerki UMFÍ 1973. Haustið 1937 fór hann til náms í búfræði á bændaskólann á Hvann- eyri. Runólfur Sveinsson var þá skólastjóri þar. Runólfur hafði eld- legan áhuga á umbótum í íslenskum landbúnaði og hafði mikil áhrif á nemendur sína. Einnig voru þar aðrir góðir og áhrifaríkir kennarar, svo sem Guðmundur Jónsson, síðar skólastjóri, og Haukur Jörundsson frá Skálholti. Gísli var ágætur námsmaður og honum nýttist nám- ið vel. Hann var mjög virkur í félagsstarfi skólans. M.a. söng hann í tvöföldum kvartett, sem kom fram á mörgum skólaskemmtunum og söng reyndar einnig utan skólans. Ungur tók Gísli þátt í búskapnum á Hálsi með móður sinni og systkin- um. Faðir hans dó á fermingarári Gísla. Formlega tók hann, ásamt Oddi bróður sínum, við búi á Hálsi árið 1948. Þeir ráku búið saman um mörg ár, en seinna var því skipt í tvö félagsbú, þegar synir þeirra komust til þroska. Síðustu árin hafa þeir Gísli og Jón, sonur hans, átt saman félagsbú á öðrum hluta jarð- arinnar, en Kristján Oddsson á hinum hlutanum. Búskapur á Hálsi hefur verið með myndarbrag. Ræktun er mikil og húsakostur góður. Ferðamenn hafa oft tekið eftir hve snemma grös vaxa þar á vorin, heyskapur er snemma á ferðinni og honum er fljótt lokið. Þar hefur farið saman fijósamt land í skjóli sunnan undir hálsinum og góð ræktun og ná- kvæmni í umhirðu og umgengni. Gísli var kosinn í stjórn Sláturfé- lags Suðurlands árið 1964 og hann var formaður í 18 ár. Á formanns- tíma Gísla hefur félagið staðið í ýmsum stórframkvæmdum svo sem á Hvolsvelli, hér í Reykjavík og víðar. Gísli var kosinn í stjórn Stéttar- sambands bænda árið 1979 og Framleiðsluráð landbúnaðarins sama ár. Einnig var hann þá kosinn í stjórn Grænmetisverslunar land- búnaðarins og sat í henni þar til verslunin var lögð niður haustið 1985. Gísli átti sæti í mörgum nefndum á vegum Stéttarsambands bænda og Framleiðsluráðs. Hann var einn fulltrúa framleiðenda í sexmanna- nefnd. Hann var í framkvæmda- nefnd þess í sex ár og í búmarksnefndinni frá upphafi. Gísli var mjög röskur í starfi, fljótur að átta sig á aðalatriðum mála og skoðanafastur og taldi ekki eftir sér að veija miklu af tíma sínum til félagsstarfanna. í heimasveit var hann hreppstjóri og lengi sýslunefndarmaður. Hér að framan hefur ýmislegt verið talið upp af félagsmálastörf- um Gísla en það er þó engan veginn tæmandi upptalning og munu aðrir bæta þar um. Ég kynntist Gísla er við vorum saman við nám á Hvanneyri og alla tíð síðan höfum við átt samstarf um fjölmörg málefni landbúnaðar- ins. Það samstarf hefur einkennst af einlægni og trausti og góðum vilja til að gera hlut landbúnaðarins og bændastéttarinnar sem mestan og bestan. Aldrei hefur borið neinn skugga á það samstarf. Gísli var hinn hollráði og trausti maður, sem alltaf lagði gott til lausnar í máli hveiju. Gísli átti um skeið við mikla van- heilsu að stríða og var oft langdvöl- um í sjúkrahúsum. Merkilegt er hve miklu hann gat afkastað á ævinni miðað við þær aðstæður. Gísla var veittur riddarakross Fálkaorðunnar í viðurkenningarskyni fyrir félags- málastörfin. Gísli kvæntist árið 1950 Ingi- björgu Jónsdóttur, ljósmóður, frá Gemlufalli við Dýrafjörð. Ingibjörg er mjög myndarleg húsmóðir og bjó manni sínum gott heimili. Börn þeirra eru: Guðmundur, f. 1950, starfar hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins, kvæntur Nínu Bjömsdóttur, hjúkrunarfræðingi; Jón, f. 1951, bóndi á Hálsi í Kjós, kvæntur Sólrúnu Þórarinsdóttur; Halldór, f. 1954, bóndi á Ketilsstöð- um í Hjaltastaðaþinghá, kvæntur Vilborgu Sigurðardóttur; Guðrún, f. 1956, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, gift Sigurði Runólfssyni; Ágústa, f. 1958, matvælafræðing- ur, starfar hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins; Sigríður Kristín, f. 1959, fóstra á ísafirði; Gísli Örn, f. 1961, búfræðingur á Hálsi í Kjós, Andrés, f. 1962, húsasmiður í Reykjavík, kvæntur Ingu Gunnars- dóttur; Hjörtur, f. 1964, rafvirki í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu Ingadóttur. Á heimilinu dvöldust mörg sumur systurnar Hrafnhildur og Kolbrún Guðmundsdætur, frænkur Ingi- bjargar. Þorvaldur Gestsson, f. 1943, bóndi að Krossi í Ós- landshlíð, Skagafirði, var og til heimilis á Neðra-Hálsi til 18 ára aldurs, frá því að foreldrar hans dmkknuðu í Meðalfellsvatni 1947. Með Gísla er fallinn einn af at- kvæðamestu félagsmálamönnum sem starfað hefur fyrir bændastétt- ina síðustu áratugina. Hann hvarf snöggt af sviðinu og skarð hans er vandfyllt. Margir sakna vinar í stað. Tveim- ur kvöldum fyrir slysið hringdi hann til mín og bað afsökunar á að hafa ekki kvatt mig er hann þá skildi við mig. Þá fannst mér eins og fyrir- boði væri í kveðju hans og gmnur minn er sá að hann hafi fundið á sér að hvetju drægi. Þetta var okk- ar síðasta samtal. Ég þakka þessum einlæga vini mínum drengileg samskipti og margar ánægjulegar stundir fyrr og síðar. Bændur munu kveðja hann með þakklæti. Jafnframt votta ég Ingibjörgu og börnum hennar, sem og öllum vandamönnum, innilega samúð okkar hjóna. Gunnar Guðbjartsson Á skammri stundu skipast veður í lofti, er þekkt íslenskt orðalag og getur átt við fleira en veðrið ein- göngu. Gísli Andrésson, hreppstjóri Kjósarhrepps, gekk úr húsi sínu á miðjum degi þann 1. mars sl. og skömmu seinna var hann allur. Þessi tíðipdi vom snögg og mis- kunnarlaus en úr engu varð bætt. Maðurinn með ljáinn brá honum skyndilega að þessu sinni. Gísli Andrésson var fæddur að Bæ í Kjós, sonur hjónanna Ólafar Gestsdóttur og Andrésar Ólafsson- ar er þá bjuggu þar. Andrés var hreppstjóri og bjó frá árinu 1922 að Neðra-Hálsi í Kjós. Þar ólst Gísli upp frá fimm ára aldri í hópi hinna mörgu og mannvænlegu systkina. Sporaslóðir okkar Gísla lágu saman snemma á fjórða áratugnum í tengslum við samskipti ung- mennafélaganna í Kjós og Mosfells- sveit. Um langt árabil háðu þessi félög keppni í íþróttum svo sem frægt er. I félagsmálum og íþrótt- um höfum við Gísli marga hildi háð með því kjörorði að enginn er ann- ars bróðir í leik. En minningamar em góðar nú um þessi samskipti, þó hann gæfí hvergi eftir, því ávallt sýndi hann drengskap í keppni eða kappræðu, en var hlýr og góður félagi er leikjum lauk. Ungur að ámm valdist Gísli til mannaforráða, og við fráfall Gests bróður hans var hann kosinn til þess að gegna hreppstjórastörfum árið 1948. Á þessari stundu vil ég þakka Gísla gott samstarf í ung- mennafélagshrejrfíngunni, í búnað- arfélagsskapnum og í söngkómm héraðsins, en hann var jafnvígur á þessum sviðum. Nú seinni árin, frá 1979, valdist hann til forystu fyrir héraðið í stóm Stéttarsambands bænda og í stjóm Sláturfélags Suð- urlands frá 1964, en formennsku gegndi hann þar frá 1969 og til dauðadags. Þegar Gísli tók sæti í stjóm Stéttarsambandsins árið 1979 hlóðust á hann margvísleg störf sem fóm vaxandi, því maður- inn var hygginn og gaumgæfinn og skilaði öllu með prýði sem honum var trúað fyrir. Mörg fleiri störf má nefna, svo sem formennsku jarðanefndar Kjósarsýslu frá setn- ingu laganna 1976 og til dauða- dags. Gísli var sæmdur gullmerki Ungmennafélags íslands árið 1973 og riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf að félagsmál- um. Á miðjum aldri átti Gísli nokkuð við heilsuleysi að stríða en náði góðri heilsu aftur og gat notið henn- ar til þess að leysa af hendi hin margvíslegustu störf fyrir bænda- stéttina í landinu. Þá gegndi Gísli ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Sjálf- stæðisflokkinn, einkum í búnaðar- málum, og naut þar mikils trausts stéttar sinnar og annarra flokks- manna. Gísli kvæntist Ingibjörgu Jóns- dóttur, ljósmóður, árið 1950, en hún er frá Gemlufalli við Dýrafjörð, og varð þeim níu barna auðið. Eru þau öll vel gerð og hið mesta myndar- og efnisfólk. Elstur er Guðmundur, fæddur 1950, en kona hans er Nína Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur; þá Jón, bóndi á Hálsi, kvæntur Sólrúnu Þórarinsdóttur; Halldór er bóndi á Ketilsstöðum í Hjaltastaða- þinghá, en kona hans er Vilborg Sigurðardóttir; næst í röðinni er Guðrún, hjúkrunarfræðingur, en hennar maki er Sigurður Runólfs- son; Ágústa, matvælafræðingur, starfar hjá Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins; og Sigríður Kristín, fóstra, er búsett á ísafirði; Gísli Öm, búfræðingur, býr á Hálsi; Andrés er húsasmiður í Reykjavík, maki hans er Inga Gunnarsdóttir, en yngstur er Hjörtur, rafvirki, fæddur 1964, en kona hans er Guðrún Ingadóttir.' Þá dvöldust frænkur húsfreyjunnar meira og minna á heimilinu, þær Hrafnhildur og Kolbrún Guðmundsdætur. Þor- valdur Gestsson fæddur 1943, bóndi að Krossi í Óslandshlíð í Skagafirði, var til heimilis að Neðra-Hálsi eftir að foreldrar hans létust af slysförum árið 1947, og til átján ára aldurs. Frá 1948 var Gísli bóndi að Hálsi í Kjós og átti gott bú og afburðam- ikið búfé. Hann naut trausts og vinsælda heima fyrir og einnig vítt og breitt um landið, ekki aðeins meðal stéttarbræðra sinna heldur einnig meðal fjölda annarra sem fylgdust með lífsferli hans og fjöl- skyldu hans. Gísli bar sig ávallt vel og hafði glæsilega framkomu, var fjaðurmagnaður og léttur í spori og bar keim af ströngum íþróttaæf- ingum fyrri ára. Við vinir hans og samheijar vilj- um heiðra minningu hans og þakka nú að leiðarlokum mikið og fórn- fúst starf sem hann innti af hendi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.