Morgunblaðið - 08.03.1987, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 08.03.1987, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MARZ 1987 Friedrich Diirrenmatt: „ Allt í einu minnti hann mig á Mússólíni“ — svissneski rithöfundurinn segir frá Gorbachev, friðarráðstefnu og Moskvu eftir tuttugu ára fjarveru Eftir Önnu Bjarnadóttur „ ÞÖGN!“ skipaði Friedrich Diirrenmatt hvössum rómi ný- lega á heimili sínu. Charlotte Kerr, hin þýska eiginkona hans, var að segja frá ferð þeirra á friðarráðstefnuna í Moskvu í fe- brúar en þagnaði strax. Sviss- neski rithöfundurinn var í símanum að svara spurningum um leikritið „Die Physiker" í beinni útvarpsútsendingu i Rerlín. „Ég hef aldrei talið að list gaeti breytt neinu,“ sagði hann, þurr á manninn. „Það eru 25 ár síðan Eðlisfræðingarnir voru frumsýndir. Kjarnorkuvopn í heiminum hafa margfaldast síðan þá. Listamenn geta ekki breytt neinu, þeir geta í mesta lagi vakið fólk til umhugsunar. Ástandið í heiminum verður æ fáránlegra. Ég líki því við að maður sé um borð í járnbrautar- lest sem æðir áfram i vitlausa ^fehtt og hinir örfáu farþegar sem taka eftir því grípa til þess ráðs að hlaupa aftast i lestina." Diirrenmatt er þekktur fyrir hijúfa framkomu. Hann baðst þó afsökunar á að hafa þaggað niður í konu sinni. Hún er tæplega sextug en lítur út fyrir að vera 15 árum yngri. Þau giftust fyrir fjórum árum þegar hún var að gera sjónvarps- mynd um líf hans og starf. Þau hafa síðan skrifað eina bók saman, „Rollenspiele", og hún hefur lokið við mynd um Melina Mercouri, en Kjarnorkusprengjan hlæjandi sem DUrrenmatt teiknaði á meðan hann hlýddi á ræðu Mikhails Gorbachevs i Moskvu. sagðist þó ekki koma nógu miklu í verk. „Það tekur óhemju tíma að búa með Diirrenmatt,“ sagði hún. „Hann hefur svo margt að segja og það er svo gaman að hlusta á hann.“ Þau búa í tveimur samliggjandi húsum í íjallinu fyrir ofan Neuchat- el með útsýni yfir vatnið. Dúrren- matt er 66 ára og ber aldurinn með sér. Hann hefur tvisvar fengið fyrir hjartað og þjáist af sykursýki. „Farðu þér hægt,“ kallaði Kerr, umhyggjusöm, þegar hann kom stynjandi upp í efra húsið. En hann er andlega hress og hefur sínar meiningar. Hann afþakkaði til dæmis boð á mannréttinda- og frið- arráðstefnu í París fyrir nokkrum árum af því að hann taldi Frakk- land ekki rétta staðinn til að halda slíka ráðstefnu. Hann benti Jack Lang, fv. menningarmálaráðherra, á að Frakkar stórgræddu á vopna- útflutningi og stuðluðu þar með ekki að friði. En hann bætti við að það myndi reynast erfitt að fínna réttan stað fyrir friðarráðstefnu og líklega þyrfti að fara til annars sólkerfis til þess. Islam er tímasprengja óskynseminnar Einskær forvitni rak hann til að þiggja boð Mikhails Gorbachevs á ráðstefnuna í Moskvu. Hann hafði ekki verið í Sovétríkjunum í tuttugu ár. „Ég var þar síðast í júní 1967 þegar ísraelar og Egyptar háðu sex-daga stríðið. Rússar fylgdust fullir áhuga með sigri Egypta — sem svo varð ekki af. Gyðingahatur setti svip á þennan óhemju áhuga. Það fór í taugamar á mér og ég flýtti för minni til Póllands. Þar ríkti allt önnur stemmning. Pólveijar glöddust innilega yfir áigri ísraela. Það var eins og þeir hefðu sjálfir sigrað stríðið — gegn Rússum. Rússar réðust inn í Tékkóslóv- akíu ári seinna. Það og ástandið í Póllandi réði því að ég fór ekki aft- ur til Sovétríkjanna. Innrásin í Afghanistan hafði hins vegar ekk- ert með það að gera. Ég hef dálítið aðra skoðun á Afghanistan en flest- ir aðrir,“ sagði Dúrrenmatt, og hafði gaman af að segja eitthvað sem heyrist ekki á hveijum degi. „Flestir álíta að Rússar hafi ráðist á litla, hættulausa þjóð í Afghanist- an. Þeir gleyma því að stór, ofstækisfull múhameðstrúarhreyf- CETUR DUANHENNAR VERID?^^^H Hún er alltaf laus og bvöurþér — - $ } ★ Háa vexti frá fyrsta innborgunardegi ★ Vexti sem færðir eru á höfuðstól tvisvar á ári | ÍJÍil ★ Hávaxtaauka reynist verðtryggð kjör betri r 1 HAVA>OA BÓK Betri kjor bjödast varla MVINNUBANKI ársAvöxtun 20.4% 0 SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.