Morgunblaðið - 29.03.1987, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987
29
Blaðamannaf élag
íslands:
Fordæmir
atvikið á
Hótel Borg
STJÓRN Blaðamannafélags ís-
lands hefur sent frá sér eftirfar-
andi ályktun:
Stjóm Blaðamannafélags íslands
fordæmir þann atburð er gerðist á
Hótel Borg sl. fimmtudag er Albert
Guðmundsson fráfarandi iðnaðar-
ráðherra veittist að Einari Ólasyni
ljósmyndara Þjóðviljans, með þeim
afleiðingum að Einar hlaut af slæm
meiðsl.
Stjórn Blaðamannafélagsins
krefst þess að starfsréttur íjöl-
miðlafólks sé virtur. Jafnframt
bendir stjóm félagsins á að starfs-
vettvangur fréttamanna er þar sem
eldurinn brennur heitast hverju
sinni og því hljóta þeir sem em í
eldlínunni að gera ráð fyrir miklum
samskiptum við fréttamenn.
Stjómin lítur atburðinn á Hótel
Borg alvarlegum augum og vonar
að til slíks komi ekki aftur.
Guðni Franzson klarinettu-
leikari og Þorsteinn Gauti
Sigurðsson píanóleikari
halda tónleika í Norræna
húsinu nk. þriðjudag.
Tónleikar
í Norræna
húsinu
GUÐNI Franzson klari-
nettuleikari og Þorsteinn
Gauti Sigurðsson píanóleik-
ari halda tónleika í Norræna
húsinu þriðjudaginn 31.
mars.
Efnisskrá tónleikanna verð-
ur tvíþætt. Annars vegar verk
fyrir einleiksklarinett eftir þijú
af virtustu tónskáldum sam-
tímans; Sequenza IXa eftir
ítalska tónskáldið Luciano
Berio, Amicizia eftir svíann
Ingvar Lidholm og Sonata eft-
ir Hollendinginn Rudolf
Escher.
Á síðari hluta tónleikanna
verða flutt verk eftir Claude
Debussy, Premiére Rhapsodie
og Sonata op. 120 nr. 1 eftir
Johannes Brahms fyrir klar-
inett og píanó.
Tónleikarnir verða eins og
áður segir í Norræna húsinu
og heíjast kl. 20.30.
Félagsfundur
hjá JC NES
JC NES heldur sinn sjötta félags-
fund á starfsárinu í Nýjabæ við
Sefgarða mánudaginn 30. mars.
Gestur JC NES verður að þessu
sinni Magnús Ingi Óskarsson frá
Stjórnunarfélagi Islands.
Gódandaginn!
S-P'Á'N • N
COSTA
D E L S O L
^ *****
Costa del Sol er sannkallaður sælu-
staður. Veðrið yndislegt, umhverfið stór-
fenglegt og öll aðstaða til að láta sér líða
vel er hreint út sagt frábær. Og svo er
fjörið aldrei langt undan.
Á Costa del Sol eru glæsilegar bað-
strendur, þar sem kroppar af öllum
stærðum og gerðum spígspora um sand-
inn eða liggja og láta sólina baka sig. Við
hótelin eru skemmtilegar sundlaugar,
veitingastaðir og verslanir á hverju strái,
skemmtistaðir, tívolí og ótal margt fleira.
Ekki má gleyma öllum þeim stórkostlegu
skoðunarferðum sem jjér standa til boða.
Costa del Sol er óskastaður allrar fjöl-
skyldunnar ekki síður en einstaklinga í
ævintýraleit.
Komdu með Terru til Costa del Sol.
VerðfráKr. 24.000
pr. mann í 3 vikur.
Verðið miðast við 2 fullor' na og 2 börn yngri en 12 ára.
ELDRIBORGARAR ATHUGIÐ;
Terra býður þeim sem eru 60 ára og
eldri 5% afslátt í allar ferðir sumarsins.
Að auki býðurTerra 5.000kr.afslátt af ferð-
unum 27. apríl og 22. september. Hjúkr-
unarfræðingar verða með í öllum ferðum.
BROTTFARARDAGAR
Mánuðir dags. tími
Apríl 14. 13 dagar
Apríl 27. 29 dagar
Mai 26. 14 dagar
Júní 9. 3 vikur
Júní 30. 3 vikur
Júlí 21. 3 vikur
Ágúst 11. 3 vikur
September 1. 3 vikur
September 22. 3 vikur
GÓÐA FERÐ!