Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 9

Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVJKUDAGUR 29. APRÍL 1987 9 Fræðslu- fundur Fundarefni: Ferðalög á hestum. Framsöguerindi: Kristján Guðmunds- son og Gísli B. Björnsson lýsa ferð um Fjallabaksleið syðri og sýna myndir úr henni. Þeir svara síðan fyrirspurnum um ferðatilhögun og fleira. Fræðslunefndin. Við flytjum og verðum að rýma lager- inn. í dag bendum við sérstaklega á: OFN - HELLUBORÐ - VIFTU Litir: Brúnn og rauður VEGGOFN BO 1230. Blástur, grill, yfir/undirhiti. Verð áður kr. 28.525,- Nú kr. 22.750,- HELLUBORÐ m/rofum KP 1244 Verð áður kr. 13.380,- Nú kr. 9.950,- VIFTA (gufugleypir) E 601. Verð kr. 10.190,- Nú kr. 7.600,- Samtals áður kr. 52.095,- Nú kr. 40.300,- Útborgun 5.000,- Eftirst. á 10 mánuðum. -zrför* | Rað er geysilegt úrval af Blom- l\-V.-r^ÍT berg-heimilistækjum á útsölunni. \<m^\ Eitthvað fyrir alla. Við flytjum og rýmum lagerinn okkar EF EINAR FARESTVEIT 4, CO. HF. BERGSTADASTRÆTI I0A - SlMI t699S Hvað segja dagblöðin um kosningaúrslitin? Dagblöðin í höfuðborginni hafa sitthvað að segja um kosningaúrslitin, sem vænta mátti. Staksteinar bera í dag á borð fyrir lesendur sína fáeinar klausur úr forystu- greinum annarra dagblaða en Morgun- blaðsins. 0 Abyrgð á herðar Kvennalistans Þjóðviljinn segir m.a. i forystugrein í gær: „Með kosningasigrin- um hefur staða Kvenna- listans breytzt. Hingað til hefur listinn staðið utan við tiinn hefðbundna straum þingstjómmál- anna, en verður nú að axla ábyrgð. Það er ekki hægt að túlka útkomu Kvennalistans öðru vísi en sem kröfu um að að- standendur hans takist nú á herðar það erfiða verkefni sem felst í þátt- töku í landsstjóm- inni . . .“ Þjóðviljinn hefur þetta að segja um Borgara- flokldnn: „Á vissan hátt endur- speglar styrkur flokksins sömu staðreynd og vax- andi fylgi Kvennalistans: rnikla óánægju með alla gömlu flokkana. Framtið Borgaraflokksins veltur hinsvegar fyrst og fremst á því, hvort hon- um tekst að komast ■ ríkisstjóm eða ekki.“ Skýringin á tapi Al- þýðubandalags vefst heldur ekki fyrir Þjóð- viljanum: „Hitt er ljóst, að kjara- málin vom flokknum afar erfið í kosningabar- áttunni. Og hvemig sem menn vilja annars túlka útkomu Alþýðubanda- lagsins, þá er einsýnt, að þau em ótvíræð krafa um gagngerar breyting- ar.“ Óskastjórn Al- þýðuflokksins Alþýðublaðið segir í forystugrein um kosn- ingaúrslitin: „Sigurvegarar kosn- inganna, ef hægt er að tala um sigurvegara í þessum mislitu og óvissu úrslitum, em Alþýðu- flokkurinn og Kvenna- listinn, sem hefur aðallega tekið fylgi frá Alþýðubandalaginu og notið góðs af upplausnar- ástandi i öðrum stjóm- málaflokkum ... En með auknu fylgi Kvenna- listans eykst einnig ábyrgð flokksins, og mjög sennilega kemur sú staða upp að Kvennalist- anum verði boðin þátt- taka i ríkisstjómarmynd- un . . . Sjálfstæðisflokkurinn er enn sterkasti flokkur landsins, og Alþýðu- flokkurinn og Kvenna- listinn sigurvegarar kosninganna. Farsæl stjóm þessara þriggja flokka er ábyrg svörun við óskum kjósenda." Framboðs- mergð og stjórnar- myndun Tíminn segir í leiðara: „Framboðsmergðin einkenndi kosningamar og afleiðingar þess láta ekki á sér standa, þ.e.a.s. fjölgun flokka sem tefur fyrir myndun starfhæfr- ar ríkisstjórnar. Fram- gangur Borgaraflokks- ins og fylgisaukning Samtaka um kvennalista verður sízt til að bæta stjómarfarið, heldur mun það auka vandann við að mynda samhenta rikisstjóm eftir að núver- andi ríkisstjóm hefur misst meirihluta á Al- þingi vegna ósigurs Sjálfstæðisflokksins. Framsóknarflokkur- inn á nú aftur þingmenn i öllum kjördæmum. Hann er stærstd flokkur fjögurra kjördæma og næststærstur í þremur. Kona var nú kjörin á þing fyrir Framsóknarflokk- inn i fyrsta sinn í rúm 30 ár, Valgerður Sverris- dóttir úr Norðurlands- kjördæmi vestra." „Úrslitin skapamikil vandamál“ Forystugrein DV í fyrradag lýkur með þess- um orðum: „Úrslitin skapa mikil vandamál, svo sem við stjómarmyndun. Fjölgun nokkuð stórra flokka er ekki æskilegur kostur i sjálfu sér. Nú ríður á, að stjómmálaforingjar hætti persónulegu hnútukasti og vindi sér í það, sem mestu skiptir, að varðveita stöðugleika í efnahagsmálum. Bæta þarf um betur viða. Efna- haguriim verður að sitja í fyrirrúmi fyrir öðrum málum. Við getum ekki dæmt um þessi kosningaúrslit til fulls, fyrr en séð verð- ur, hvemig fer um þessi mál. Úrslitin gætu orðið til hins verra að öðrum kosti." Hef urðu heyrt um skammtímaskuldabréf Veðdeildar Iðnaðarbankans? Þau eru verðtryggð og bera 9,3% ávöxtun. Avöxtun umfram verðbólgu 9,3% 9,3% 9,3% Gjalddagi 1. ágúst 1987 1. október 1987 1.desember1987 Gjalddagar skammtímaskulda- bréfanna eru frá 1. ágúst 1987 og síðan á tveggja mánaða fresti eftir það (sjá töflu). Hvert skuldabréf greiðist upp með einni greiðslu á gjalddaga. Skammtimabréfin eru þannig sniðin að þörfum þeirra sem vilja njóta öruggrar ávöxtunar á verðbréfamarkaði en geta ekki bundið fé sitt lengi. Greiðslustaður 1. febrúar 1988 9,3% 1. apríl 1988 9,3% 1. júní 1988 9,3% 1. ágúst 1988 9,3% 1. október 1988 9,3% 1. desember 1988 9,3% 1. tebrúar 1989 9,3% 1. apríl 1989 9,3% = Verdbréfamarkaöur = Iðnaðarbankans hf. bréfanna er í afgreiðslum Iðnaðar- banka íslands hf. Skammtímaskuldabréfin eru full- verðtryggðm.v. lánskjaravfsitöluog bera 9,3% ávöxtun umfram verð- bólgu. Síðustu þrjá mánuði hefur ávöxtun þeirra því jafngilt 32,8% vöxtum af bankabók. Allar nánari uþplýsingar í Ármúla 7 og síminn er 68-10-40. HRINGDU! Með einu símtali er hægt að breyta inn- heimtuaðferðinni. Eftir það verða áskriftar- gjöldin skuldfærð á viðkomandi greiðslu kortareikning manaðarlega. CS SÍMINN ER 691140 691141

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.