Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 18

Morgunblaðið - 29.04.1987, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 Gáleysisleg leiðsögn landskj örstj órnar eftirJón G. Tómasson Fyrirsögnin er sótt í afsagnarbréf fjögurra fulltrúa í yfirkjörstjóm Ve stfj arðakj ö rd æ m i s, sem þeir sendu í kjölfar umdeilds úrskurðar landskjörstjómar 31. mars sl. um gildi framboðs Borgaraflokksins í Vestfjarðakjördæmi. Þegar framboðsfresti lauk á mið- nætti 27. mars höfðu yfirkjörstjórn- inni borist 6 meðmæli með lista Borgaraflokksins. Eftir 27. gr. kosningalaganna skal fylgja skrif- leg yfirlýsing eigi færri en 50 kjósenda í kjördæmi utan Reykjavíkur um stuðning við fram- boðslista. Landskjörstjóm kemst að þeirri niðurstöðu að veita hafí átt frest til að bæta úr þessum ágalla. Bygg- ir hún annars vegar á túlkun á „Úrskurður landskjör- stjórnar virðist gefa kost á, að framvegis verði framboðslistum skilað undir lok fram- boðsfrests, en síðan gengið til þess að safna meömælendum. Þetta er augljóslega ekki í samræmi við grundvall- arreglur kosningaiag- anna.“ ákvæði í kosningalögum, en hins vegar á upplýsingum um veðurfar. Röng túlkun Eftir 38. gr. gildandi kosninga- laga skal yfirkjörstjórn halda fund á næsta virka degi eftir að fram- boðsfrestur er liðinn. „Finnist þá gallar á framboðslista, skal hlutað- eigandi umboðsmönnum gefinn kostur á að leiðrétta þá, og má veita frest í því skyni, eftir því sem tími og atvik leyfa.“ Við túlkun á þessu ákvæði vísar landskjörstjórn til þess, sem hún nefnir „samsvarandi" ákvæðis í eldri lögum, einkum 43. gr. laga nr. 80/1942, svohljóðandi: „Séu gallar á framboði, þar á meðal ef vantar yfirlýsingar samkvæmt 27. gr., sem ætla má, að hefðu átt að fylgja framboði, skal tilkynna það hlutaðeigandi frambjóðanda og gefa honum kost á að leiðrétta þá, í samræmi við það, sem fyrir er mælt um galla á listum.“ Frá þessu Hollandspistill/ Eggert H. Kjartansson Bommel (Zaltbommel). Málverk eftir Hendrik Tavenier, málað 1786. Myndlistasýningar í Hollandi Mars og apríl eru þeir mánuðir sem listasöfn Hollands springa út og opna dyr sínar með nýjum sýningum. Helstu söfn landsins, svo sem Kröller-Muller safnið hjá Otterlo, Ríkislistasafnið í Amst- erdam, Boymans-van Beuningen í Rotterdam, Púðurhúsið í s- Hertogenbosch og borgárlistasafn Amhem, er vert er að heimsækja ef menn eiga leið hjá. Borgarlistasaf nið í Arnheim í borgarlistasafni Amhem var opnuð sýning á málverkum frá sautjándu, átjándu og nítjándu öld. Þar eru sýnd landslagsmál- verk, sem máluð voru í sýslunni Gelderland, er lengi vel hefur þótt með fegurstu sýslum Hollands. Verkum eftir þekkta málara frá þessum tíma hefur verið komið fyrir í safninu, í björtum sal með útsýni yfir Rínarfljótið. Sýningin gefur góða mynd af þróuninni sem átti sér stað í lands- lagsmyndlist á þessum þrem öldum. í Hollandi náði landslags- málun hápunkti sínum í kringum 1630. í ákveðnum tegundum mál- aralistar þessa tíma var lögð áhersla á heildarmynd verksins og allir hlutir í myndinni þjónuðu þeim tilgangi að styðja og draga fram heildaráhrif. Dæmi um slíkan málara er Jan van Goyen, sem uppi var á fyrrihluta sautj- ándu aldar. Verkin á sýningunni gefa góða hugmynd um landslag, lifnaðar- hætti og starf íbúa Gelderland- sýslunnar á þessum árum. Þannig sjáum við á myndinni Bommel (Zaltbommel) fiskimenn og fetju- menn að störfum á Rínarfljóti. Fyrr á tímum var mikil laxveiði í Rín og allt fram á þennan dag þykir það verðug eign að eiga laxveiðiréttindi í fljótinu þrátt fyr- ir litla veiði og engan lax. Á sýningunni er unnt að fylgja nokkuð vel þeirri þróun sem átti sér stað í málaralistinni frá sautj- ándu og fram á nítjándu öldina. Við sjáum hvemig nýjar stefnur ná æ meir yfirhöndinni og ró- mantíkin heldur innreið sína í byrjun nítjándu aldarinnar, með fagurlega máluðum kastalar- ústum og sveitasælu. Fyrirtækjastyrkir Allt frá því að fyrsta ríkisstjórn Lubbers tók við völdum 1982 hef- ur verið unnið markvisst að því að auka hlut fyrirtækja og ein- staklinga í kostnaði við sýningar- hald. Astæðan er, að rétt eins og allar aðrar ríkisreknar stofnanir hér, hafa söfn orðið að draga úr útgjöldum eða finna sér aðrar leið- ir til fjármögnunar sýninga að öllu leyti eða að hluta til. Það sýndi sig fljótlega að hagsmunir fyrirtækja og listasafna fóru að mörgu leyti saman. Þannig hefur t.d. BSAF-stórfyrirtækið greiddi að mestu kostnað við sýninguna í Arnhem. Enn eru þó fyrirtækin og safnstjórnimar að þreifa fyrir sér varðandi möguleika slíkrar samvinnu, enda skiptar skoðanir um ágæti þess fyrirkomulags að þurfa að leita á náðir fyrirtækja varðandi rekstrarfjármagn safn- anna. Málverk málað á sautjándu öldinni og sýnir umhverfi Arnhem á þeim tíma. Höfundur er óþekktur. Jón G. Tómasson „grundvallarsjónarmiði" telur landskjörstjórn ekki hafa verið horf- ið við endurskoðun kosningalaga. Ákvæði þetta kemur fyrst inn í kosningalögin frá 1934 og átti ein- göngu við um framboð í kjördæm- um, þar sem kosið var óhlutbundn- um kosningum (ekki listakosning- ar). Um framboð við hlutbundnar kosningar (Reykjavík) og landslista giltu hins vegar ákvæði, sem voru „samsvarandi" ákvæðum 38. gr. núgildandi laga. Við meðferð frumvarpsins á Al- þingi 1933, þegar umrætt ákvæði í 43. gr. kom inn við 2. umræðu í síðari þingdeild, skýrði framsögu- maður stjómarskrámefndar, Jón Þorláksson, efni ákvæðisins og sagði m.a.: „Nefndinni þótti trygg- ara að setja ákvæði um það í frumvarpið, ef það færist fyrir, að yfirlýsing fylgdi framboði um, hvaða flokki það tilheyrði.“ (Alþt. 1933, A-bls. 321, B-bls. 177.) Tilgangurinn með lagaákvæðinu var því að heimila leiðréttingu, ef yfirlýsingu vantaði um, hvaða flokki framboð tilheyrði — ekki að búa til meðmælendaskrár eftir að framboðsfresti var lokið. Þessi niðurstaða er einnig augljós af orðalagi 43. gr.: „vantar yfirlýs- ingar . . . sem ætla má að hefðu átt að fylgja framboði . . . “, sbr. hins vegar ákvæði kosningalaga allt frá 1903 um, að framboðslista „skal fylgja“ yfírlýsing frá til- greindum fyölda meðmælenda. Ef yfirlýsingu vantaði um, hvaða flokki framboð tilheyrði, taldist það utan flokka. Slík yfirlýsing var því ekki nauðsynleg. Yfirlýsing um með- mæli hefur hins vegar alltaf verið nauðsynleg. Enn má benda á, að umrætt ákvæði, sem landskjörstjórn byggir aðallega á, var fellt úr kosningalög- unum 1959, þegar óhlutbundnar kosningar voru afnumdar og með þeirri skýringu, að ákvæðið hafi aðeins varðað óhlutbundnar kosningar. (Alþt. 1959 - I, A-bls. 35.) Það „grundvallarsjónarmið", sem landskjörstjórn vísar aðallega til, er þannig röng túlkun á laga- ákvæði, sem tók ekki til listakosn- inga og fellt var úr gildi fyrir 28 árum. SIGUR eftirHuldu Bjarnadóttur Hin mikla stund rann upp þegar talið hafði verið upp úr kössunum á kosninganóttina og í ljós kom að Kvennalistinn er hinn óumdeilanlegi sigurvegari kosninganna. Ég er þess fullviss að þessi einstæði árangur Kvennalistans á eftir að berast víða um heim og verða hvatning til kvenna í öðrum löndum að betjast sjálfar fyrir málum sínum. Frá aldaöðli hefir karlapólitík verið rekin hér á landi, sem hefir fyrst og fremst einbeitt sér að því að halda meira en helmingi þjóðar- innar í fátæktarfjötrum. Karlaveld- ið var búið að gera það að eins konar náttúrulögmáli að konur, böm þeirra og aðstandendur skyldu búa við sultarkjör. Það er eftirtekt- arvert að í meira en 30 ár hefir ekkert miðað áleiðis við að bæta kjör þessa fólks. Þrátt fyrir febrúarsamningana illræmdu, jólaföstusamningana eða hvað þeir heita nú allir þessir samn- ingar bæði fyrr og síðar, sem gerðir hafa verið, hefir allt staðið í stað. Og þjóðarsáttin hans Þorsteins Pálssonar, sem hann er búinn að tönnlast á í tíma og ótíma var eitt stórt plat til þess ætlað að slá ryki í augu þjóðarinnar. „Farið varlega með orð,“ sagði skáldið. Þetta fal- lega og innihaldsríka orð „þjóðar- sátt“ er orðið að eins konar skrípyrði fyrir tilstuðlan Þorsteins Pálssonar. í eldhúsdagsumræðun- um í sjónvarpinu staglaðist hann á þjóðarsáttinni sinni í síbylju. Karlremban er alltaf söm við sig, eins og kom í ljós þegar Jón Bald- vin fór að bera víumar utan í Kvennalistakonumar með vanga- veltum um stjómarmyndun eftir kosningar. Hann var ekki að hafa fyrir því að beina spumingum til þeirra sjálfra, heldur talaði eins og sá sem valdið hefir út og suður eins og hann hefði allt þeirra ráð í hendi sér. Þetta var í meira lagi ósmekk- legt svo ekki sé meira sagt. En það skal sagt hér og nú, að Kvennalistakonur þurfa ekki að lúta Hulda Bjarnadóttir „Hin mikla stund rann upp þegar talið hafði verið upp úr kössunum á kosninganóttina og í ljós kom að Kvennalist- inn er hinn óumdeilan- legi sigurvegari kosninganna. Ég er þess fullviss að þessi einstæði árangur Kvennalistans á eftir að berast víða um heim og verða hvatning til kvenna í öðrum löndum að berjast sjálfar fyrir málum sínum.“ neinum afarkostum, og taki þær sæti í næstu ríkisstjórn ætti það að vera undir forsæti þeirra sjálfra. Það verður að segjast eins og er,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.