Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987
19
Veðurfar
„Samgöngur í Vestfjarðakjör-
dæmi höfðu truflast vegna illviðr-
is . . segir í úrskurði landskjör-
stjómar og við þær aðstæður telur
hún að veita hafi átt hæfílegan frest
til að bæta úr ágöllum á meðmæ-
lendalistum.
Yfirkjörstjómarmenn staðfesta
hins vegar í afsagnarbréfinu, að
umboðsmenn framboðslista hafi
ekki óskað eftir fresti af þessum
sökum. Veður mun hafa verið gott
á Vestfjörðum sem annars staðar á
landinu, þegar framboðsfresti lauk,
og færð var góð miðað við árstíma.
Telur yfirkjörstjómin, að hér sé um
tilfundnar ástæður að ræða.
Fordæmi
Úrskurður landskjörstjómar virðist
gefa kost á, að framvegis verði
framboðslistum skilað undir lok
framboðsfrests, en síðan gengið til
þess að safna meðmælendum. Þetta
er augljóslega ekki í samræmi við
grundvallarreglur kosningalag-
anna. í Vestfjarðakjördæmi var
ekki um að ræða galla á framboðs-
lista, heldur var framboðið einfald-
lega ekki tilbúið á réttum tíma
samkv. 27. gr. kosningalaga, sbr.
26. gr. sömu laga. Er illa farið, ef
þessi úrskurður, sem byggir í aðal-
atriðum á röngum forsendum,
verður talinn hafa fordæmisgildi.
Höfundur er borgarritari og
formaður yfirkjörstjómar
Reykjavíkur.
að þessi frábæri árangur, sem
Kvennalistinn hefir náð á ekki
lengri tíma en 4 árum, hefði aldrei
náðst innan gömlu flokkanna. Þeir
hafa haft nægan tíma til þess að
koma þessum málum áleiðis, en
allt hefir staðið í stað áratugum
saman. Það er miður farið, þegar
konur hinna ýmsu stjórnmálaflokka
eru að hnýta í Kvennalistakonur
og senda þeim tóninn. Þær virðast
ekki bera hag kvenna fyrir brjósti.
Ég veit ekki hvort um er að kenna
öfundsýki af lægstu gráðu eða
hvað? Þessi lágkúra er fyrir neðan
allar hellur. Þær ættu heldur að
verá í þakkarskuld við Kvennalist-
ann, þvi fyrir tilkomu hans hafa
fleiri konur en nokkru sinni fyrr
fengið tækifæri til að láta ljós sitt
skína á stjómmálavettvanginum.
Og það er það söguleg staðreynd.
Kvennapólitík er orðin staðrejmd
á íslandi. Öðruvísi gat það ekki
gerst. Konumar urðu sjálfar að
taka málin í sínar eigin hendur til
þess að sá langþráði draumur gæti
ræst. Þær hafa sýnt það og sannað
að þær hafa komið boðskap sínum
til þjóðarinnar án allra bellibragða
og fyrirgangs. Og við skulum ekki
gleyma því að Kvennalistinn er eina
stjómmálaaflið á Alþingi íslend-
inga, sem er flekklaust. Þær hafa
rekið stjómmálabaráttu sína á heið-
arlegan hátt, þar sem hvergi sést
gróm á. Þær hafa hvorki þurft að
skreyta sig með lánsfjöðrum né slá
um sig með skmmi og smjaðri eða
velt milljónum til að auglýsa ágæti
sitt, enda fátækastar allra. En þær
hafa náð eyrum þjóðarinnar. Þær
hafa náð inn í þjóðardjúpið.
Og að lokum þetta. Fyrir alllöngu
las ég einhvers staðar bollalegging-
ar um að Kvennalistinn væri búinn
að ná takmarki sínu og gæti nú
lagt upp laupana, eða eitthvað í
þeim dúr. Hvílík skammsýni, hvílík
rökvilla. Hvers vegna ætti Kvenna-
listinn að hætta í miðjum klíðum.
Kvennalistinn hefir verk að vinna
næstu 30—40 árin eða jafnvel leng-
ur. Það þarf að ala upp heila kynslóð
við nýtt gildismat, breytt viðhorf,
þannig að það síist inn í hana með
móðurmjólkinni, ef maður getur
orðað það svo, hvað kvennapólitík
er og sá lífsstíll sem henni fylgir.
Höfundur hélt erindi og skrifaði
ýmsar greinar um kvenréttinda-
mái, sérstaklega á árunum
1956-1969 oghefuralla tíð látið
réttindamál kvenna tilsín taka.
n. pnffiJS ttHfifrifeí
Metsölublaóá hverjum degi!
Öllum þeim ruer og jjœr sem glöddu mig og
heiÖruÖu á 70 ára afmceli mínu 15. apríl sl.
meÖ nœrveru sinni, höföinglegum gjöjum, hlýj-
um óskum eÖa á annan hátt, þakka ég hjartan-
lega. ÞiÖ gerÖuÖ mér daginn ejtirminnilegan
um ókomin ár.
Ég biÖ ykkur öllum GuÖsblessunar, ársogfriöar.
Valgarður Kristjánsson,
Hvammabraut 12,
Hafnarfirði. ,
1ÆMBJ