Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 26

Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRIL 1987 Ítalía: Mínmhlutastjórnin fallin eftir tíu daga Róm, Reuter. MINNIHLUTASTJÓRN Ítalíu féll í gær eftir að hafa setið tíu daga við völd. Þingið felldi traustsyfirlýsingu á stjórnina. Nú er talið útilokað annað en gengið verði til kosninga í júní. í fulltrúa deild ítalska þingsins greiddu 240 þingmenn atkvæði gegn stjórninni, 131 var henni fylgjandi og 193 sátu hjá. Búist var við að forsætisráð- herrann, kristilegi demókratinn Amintore Fanfani, myndi afhenda Francesco Cossiga forseta afsagn- arbeiðni fyrir hönd stjórnar sinnar og gæti hann þá leyst upp þing og boðað til kosninga. í stjórninni sátu kristilegir demókratar og embættismenn, sem ekki eru úr flokknum. Stjóm- inni var ætlað að undirbúa jarð- veginn undir kosningar, sem kristilegir demókratar telja að séu nauðsynlegar og óhjákvæmilegar að haldnar verði sem fyrst. Flestir þingmenn kristilegra demókrata sátu hjá þegar atkvæði voru greidd um stjórnina til að tryggja fall hennar. Aftur á móti greiddu þingmenn ýmissa flokka, þ.á m. sósíalistaflokkur Bettinos Craxis, forsætisráðherra síðustu stjórnar, atkvæði með stjórninni, þótt þeir væru henni andvígir. Þessir flokkar vilja ekki kosningar nú. En örlög stjórnarinnar voru ljós þegar kommúnistar, næst stærsti flokkur Ítalíu, greiddi atkvæði gegn henni. Reuter Amintore Fanfani, forsætisráðherra Ítalíu, svarar fyrirspurn þegar greidd voru atkvæði um stuðningsyfirlýsingu við stjórn hans á ít- alska þinginu. Stjórn Fanfanis var felld og getur nú fátt komið í veg fyrir að gengið verði til kosninga i júní. SSjuqq/icbqmii 2 mol * lAÍ 5 • LÆGSTU VERÐ Á ÍSLANDI • Frítt flugfar til London • Yeitingar Þegar keypt er ásamt þessum fylgihlutum Gulur Herkules skjár Litaskjár 360k diskadrif 20 Mb harður diskur 384k aukaminni 384k aukaminni Prentaratengi Prentaratengi Kr. 19.990 Kr. 55.990 Þegar keypt er ásamt þessum fylgihlutum Gulur Herkules skjár 20 Mb harður diskur Prentaratengi Kr. 38.290 Litaskjár 20 Mb harður diskur Prentaratengi Kr. 78.290 • Viðgerðaþjónusta /NÝTTV • Tölvurnar eru sérfræðinga [ 15 ) settar saman í USA • Aðstoð og kennsla 1 z_ • Tölvunet, prentarar, fáanleg hugbúnaður, I MANAÐA ABYRGÐ ■ aukabúnaður mQQíHIS LÁGMÚLI 5 • SÍMI 689420 HF. SÖLUAÐILIFYRIR: Fountain, Toshiba, Novell, Microsoft, Lotus, dBase. IBM* skrásett vörutnerkl Tilboð cndar 15. maí 1987 Kína: Segjast hafa fundið tvær beina- hnútur úr líkama Búddha Peking. Reuter. TVÆR Iitlar beinahnútur, sem fundust í steinskríni fyrir utan Peking, eru sagðar vera úr líkama Búddha. Talið er, að 1371 ár sé liðið, síðan skrinið var graf- ið, að sögn kínverskra trúmála- yfirvalda. Zhao Puchu, formaður Búddha- safnaðarins í Kína, sagði á blaða- mannafundi, að beinin hefðu fundist í helli í grennd við Yunju-musterið suðvestur af Peking 1981. Hann sagði, að ekki hefði þótt tímabært að segja frá þessu fyrr en nú, vegna þess að yfirvöld hefðu viljað fá tíma til að undirbúa málið. Haft var eftir kínverskum emb- ættismanni, að beinin yrðu sýnd í aðalstöðvum búddhasafnaðarins í Peking í næsta mánuði. Aletranir á steinskríninu benda til, að því hafí verið komið fyrir í hellinum árið 616. Yunju-musterið er frægt fyrir safn búddískra helgirita, sem rist eru á yfir 14.000 steinhellur. Gengi gjaldmiðla London, Reuter. GENGI Bandaríkjadollars hækk- aði litillega i gær gagnvart helstu gjaldmiðlum Evrópu. Sterlings- pundið kostaði 1,6610 dollara í London á hádegi i gær. Gengi annarra helstu gjaldmiðla var á þann veg að dollarinn kostaði: 1,3350 kanadíska dollara, 1,7900 vestur-þýsk mörk, 2,0200 gyllini, 1,4610 svissneska franka, 37,14 belgíska franka, 5,9775 franska franka, 1.280 (talskar lírur, 139,40 japönsk jen, 6,2490, sænskar krónur, 6,6575 norskar krónur, 6,7450 danskar krónur. Gullúnsan kostaði 454,50 doll- ara.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.