Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 28

Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freystéinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið. Flóknar viðræður hefjast Ríkisstjóm Steingríms Her- mannssonar baðst lausnar í gær. Lausnarbeiðnin var óhjá- kvæmileg afleiðing kosning- anna. Stjórnarflokkamir misstu meirihluta sinn. Við blasir að ekki er unnt að mynda nýja meirihlutastjóm nema þrír flokkar taki höndum saman, ef Sjálfstæðisflokkurinn er einn þeirra, annars þurfa fjórir flokk- ar að standa að baki stjóminni. Á meðan þetta skýrist situr ríkisstjóm Steingríms Her- mannssonar áfram sem starfs- stjóm eins og það er kallað. Ráðherrar í slíkum stjómum geta framkvæmt öll embættis- verk en þær takast ekki á við pólitísk stórverkefni. Það hlutverk bíður nú stjóm- málaforingja að ræða saman og kanna, hvort þeir geti brætt saman stefnu flokka sinna með þeim hætti, að úr verði stjómar- sáttmáli. Viðræðumar em formlegar með þeim hætti, að forseti Islands veitir einhverjum einum umboð til að reyna stjóm- armyndun. Frá skrifstofu forsetans berast þær fréttir, að engum verði veitt slíkt umboð í þessari viku. Er greinilegt að forseti telur sig þurfa tíma til að kanna stöðuna með óform- legum hætti. Svo kann að fara, að stjómmálamenn nái sam- komulagi um að benda á einhvem einn úr sínum hópi, er hafi tök á að mynda meiri- hlutastjóm. Væri þá eðlilegt að forseti tæki tillit til slíkrar til- lögu, þótt forseta sé það ekki skylt enda með óbundnar hend- ur. Eins og mál horfa nú er ekki líklegt, að stjómmálamenn úr ólíkum flokkum leggi ein- hverja slíka tillögu fyrir forseta íslands. Fyrir kosningar vakti Jón Baldvin Hannibalsson, formað- ur Alþýðuflokksins, máls á því, að mynda ætti stjóm síns flokks, Kvennalista og Sjálf- stæðisflokks að kosningum loknum fengist til þess stuðn- ingur kjósenda. Eftir að atkvæði hafa verið talin er ljóst, að þess- ir þrír flokkar hafa meirihluta í báðum þingdeildum. Jón Bald- vin hefur fylgt tillögu sinni eftir nú að kosningum loknum og fengið grænt ljós hjá Sjálfstæð- isflokki til að kanna undirtektir Kvennalista. Konurnar segjast hins vegar þurfa tíma til að átta sig á þeim málefnum, sem þær vilja setja á oddinn við gerð stjórnarsáttmála. Segjast þær ekki munu segja neitt um af- stöðu sína, fyrr en forseti íslands hefur veitt einhverjum stjómmálamanni umboð. Þótt Kvennalistinn haldi þannig að sér höndum og bíði formlegra ákvarðana Vigdísar Finnbogadóttur, er alls ekki þar með sagt, að stjómmálamenn eigi að bíða og láta undir höfuð leggjast að kanna viðhorf hver annars. Af Tímanum málgagni Steingríms Hermannssonar, eina flokksforingjans sem bauð sig beinlínis fram til að vera forsætisráðherra að kosningum loknum, má ráða, að framsókn- armönnum hugnast ekki framganga formanns Alþýðu- flokksins. „Jón Baldvin æfir menúett“ og „Jón Baldvin hefur tekið forskot á sæluna“, segir á forsíðu Tímans í gær. Fer ekki fram hjá neinum, að fram- sóknarmenn telja einsýnt að beðið sé eftir því að Steingrímur Hermannsson fái umboð til stjómarmyndunar. Og Steingrímur segir sjálfur um frumkvæði Jóns Baldvins: „Ég held að þetta séu mjög sérkenni- leg vinnubrögð og óábyrg. En vonandi kemst hann niður á jörðina." Kosningabaráttan snerist að verulegu leyti um menn frekar en málefni og hið sama er að segja um stjórnarmyndunina. Þar ’reynir á það, hvaða menn geta starfað saman. Órökstudd gagnrýni framsóknarmanna og nart í Jón Baldvin nú á fyrstu dögum stjórnarkreppunnar bendir ekki til mikilla kærleika. Um stöðu Borgaraflokksins sagði Steingrímur Hermanns- son í Tímanum: „Ef Borgara- flokkurinn lendir utan ríkis- stjómar sem mér fínnst allar líkur benda til, Sjálfstæðisflokk- urinn mun aldrei samþykkja hann, þá fínnst mér hann nú vera málefnalega á flæðiskeri staddur." Hvað felst í þessum orðum Steingríms? Að hann vilji stjóm með Sjálfstæðisflokki og Kvennalista eða Sjálfstæðis- flokki og Alþýðubandalagi? Kosningaúrslitin kalla á óvissu. Ef til vill reynist ekki unnt að mynda meirihlutastjóm. Kannski kemur í ljós að það þarf að kjósa aftur í haust. Hver sem niðurstaðan verður er nauðsynlegt að stjómmála- foringjar gefí sér þann tíma, sem þeir telja sig þurfa til að kanna allar leiðir. Að sjálfsögðu hafa þeir fulla heimild til að ræða meirihlutasamstarf án þess að forseti íslands veiti þeim umboð. Stjómmálaforingjar em að því leyti jafn óbundnir og forsetinn. Siglingamálastofnun: Reg’lur um björgun- aræfingar um borð í fiskiskipum hertar Siglingamálastofnun hefur ákveðið að leggja meiri aherzlu en verið hefur á að haldnar verði björgunar- og eldvarnaræfingar um borð í íslenzkum fiskiskipum. Þrátt fyrir ákvæði reglna þar um og alþjóða samþykktir, sem Islendingar hafa staðfest, hafa slíkar æfing- ar verið afar fátíðar. í nánustu haffærniskírteini hafi reglum um fylgt. Vegna þessarar ákvörðunar hef- ur Siglingamálastofnun nú sent út sérstök bréf til eigenda allra fiski- skipa, sem eru stærri en 24 metrar á lengd. í bréfinu er eigendunum bent á stefnu Siglingamálastofnun- ar í þessu máli, reglur um æfíngar og viðurlög við brotum á þeim. Einnig er þar yfirlit yfir helztu at- riði, sem huga ber að yið fram- kvæmd þessara æfinga. í bréfinu er lögð á það áherzla yfirlitið sé á engan hátt tæmandi né bindandi, heldur fyrst og fremst til leiðbein- ingar. í ákvæðum alþjóðasamnings um öryggi fiskiskipa, sem ísland hefur nýlega staðfest, er að í fiskiskipum 24 metrar að lengd og stærri sé gert ráð fyrir mánaðarlegum æfing- framtíð munu fiskiskip ekki fá þessar æfingar ekki verið fram- um. Æfingar skuli einnig ávallt halda innan sólarhrings frá brott- för, ef fjórðungur áhafnar eða meira sé nýskráður á skipið. Sigl- ingamálastofnun hefur ákveðið í framhaldi af gerð leiðbeininga á þessu sviði, að fylgja því eftir að björgunar- og eldvarnaræfingar verði hafnar og því markmiði, sem reglurnar setja, verði náð á næstu tveimur árum. Eftir 1. júlí 1987 munu skoðunar- menn ekki endumýja haffæmiskír- teini fyrir fiskiskip stærri en 300 brúttólestir, hafi ekki verið haldin björgunar- eða eldvarnaræfing síðustu 6 mánuði þar á undan, fyrr en að undangenginni æfíngu allrar áhafnarinnar að viðstöddum skipa- skoðunarmanni. Eftir 1. janúar Skipstjórar í Grindavík: „Þorskstofn- inn hruninn“ Grindavík.^ AFLABRÖGÐ Grindavíkurbáta eftir páska hafa verið svo léleg að reyndir skipstjórar fullyrða að þorskstofninn sé hruninn og ekki sé furða þó lítill fiskur komi til hrygningar þar sem hann sé ekki til. Erfitt tíðarfar hefur hamlað minni bátunum að stunda róðra eftir páska en stærri bátarnir kom- ust á sjó en fiskurinn lét ekki sjá sig. Aflahæstur yfír vikuna sem leið var Skarfur GK með 25 tonn í 3 róðrum, Hafberg GK var með 22 tonn í 2 róðmm og Vörður ÞH með 20 tonn í 3 róðrum, aðrir minna og jafnvel ekki neitt. Trollbátar hafa aðeins komist á sjó einu sinni eftir páskana vegna brælu og fékk Már GK 6 tonn en Faxavíkin GK tæp 5 tonn yfir daginn og aðrir trollbátar minna. Nokkrir af stóru bátunum eru þegar famir í útilegu og aðrir að fylgja dæmi þeirra enda virðist frekar vera veiðivon á öðrum miðum en hér út af Grindavík eins og afla- tölur bera með sér. Þeir skipstjórar sem ekki ráða yfir stærri bátum og hafa litla möguleika á útilegu tala jafnvel um að hætta á netum. Ljóst er að með þessu áframhaldi líður vertíðin sjálfkrafa undir lok. — Kr.Ben. Greiðsluþjónusta Verslunarbankans í BYRJUN apríl kynnti Verslun- arbankinn nýjung á sviði banka- þjónustu hér á landi, sem nefnd er Greiðsluþjónusta. Greiðslu- þjónustan felur í sér að viðskipta- vinir bankans, sem gerast aðilar að þjónustunni, fela Verslunar- bankanum það ómak sem óneit- anlega fylgir því að greiða reikninga, segir í frétt frá bank- anum. Þjónustan gengur þannig fyrir sig að viðskiptavinir bankans óska eftir því að reikningar þeirra verði sendir beint til Greiðsluþjónustunn- ar, sem síðan annast greiðslu þeirra með því að skuldfæra reikning við- komandi viðskiptavinar í bankan- um. Greiðsluþjónustan sendir viðskiptavinum reikningana greidda og stimplaða heim. Greiðsluþjónustan annast einnig greiðslu fastra greiðslna án reikn- inga, s.s. húsaleigu, barnagæslu og þess háttar. 1988 munu sömu reglur gilda fyrir öll fiskiskip stærri en 24 metra. Eftir 1. júlí 1988 skulu hafa verið haldnar að minnsta kosti fjórar æfingar frá síðustu aðalskoðun. Frekari tímamörk um aðlögun að mánaðarlegum æfíngum verða ákveðin eigi síðar en 1. janúar 1988. Magnús Jóhannesson, siglinga- málastjóri, var spurður hvers vegna tekið væri á þessu máli nú. Hann sagði að í fyrsta lagi hefði æfingum um borð, sem þekkust hér áður fyrr, fækkað verulega. Síðustu tvö ár hefðu verið haldin námskeið fyr- ir sjómenn á vegum SVFÍ um meðferð björgunar og öryggis- búnaðar. „Við teljum að nú séu það margir sjómenn búnir að fá þessa fræðslu að grundvöllur sé til þess að koma á reglulegum björgunar- æfíngum um borð í skipunum sjálfum. Þessi mál verða aldrei í fullkomnu lagi nema reglulegar æfíngar verði haldnar um borð. Námskeið á landi koma aldrei í stað æfinga um borð, þó góð séu, þar sem hvert skip hefur sína sérstöðu. Mikilvægi æflnga hefur aukizt líka vegna mikillar hreyfingar manna milli fiskiskipa. Við væntum þess að með þessum æfingum muni sjó- menn verða betur meðvitaðir um búnað skipsins og menn muni hugsa meira um eigið öryggi en þeir hafa gert. Þetta er aðeins einn þáttur af mörgum, sem varðar öryggi skipa. Það verður aldrei nógsam- lega undirstrikað, að það er alltaf skipið sjálft, sem verður bezta björgunartækið, sé það í lagi,“ sagði siglingamálastjóri. Hann lagði auk þess áherzlu á það, að sjómenn gengju eftir því, að fá þessi bréf frá eigendum skipanna til að hafa þau um borð. Með því móti gætu þeir bezt kynnt sér innihaldið og fylgzt með því að farið yrði að regl- um. Af hvei verðaa eftir Karl Popper Þessi stutta grein, sem nér er þýdd, birtist í The Times 11. apríl sl. í henni reifar Karl Popper, vísindaheimspekingur og stjórn- spekingur, ýmis rök sem hníga til þess að Vesturlöndum beri að halda í kjarnorkusprengjuna. í 2. hefti Frelsisins 1985 átti dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson ítarlegt viðtal við Popper og nefnir hann merkasta heimspeking okkar daga. Þetta er hluti úr fyrirlestri, sem hann hélt í Vínarborg nýlega. Karl Popper er 84 ára gamall. * • Ég er sennilega elzti friðarsinninn sem nú er á lífí. Ég var friðarsinni fyrir fyrri heimsstyijöldina og þegar hún hófst hafði það einungis þau áhrif á mig, að ég samdi ljóð sem nefndist „Friedensfest" eða friðarhátíð. Þetta var fyrir 73 árum og ég hef verið frið- arsinni æ síðan. En ég veit líka að friðarhreyfing, eins og allar aðrar samfélagshreyfingar, getur haft þver- öfug áhrif við þau sem henni er ætlað. Það er staðreynd að brezka ríkis- stjórnin og þjóðin vildu láta leiðast út í hvoruga heimsstyrjöldina; það er líka staðreynd, að friðsamleg afstaða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.