Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 29

Morgunblaðið - 29.04.1987, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 1987 29 ■ .. y/X.* 7 Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson VORVERKIN VORIÐ boðar komu sína með ýmsum hætti. I á myndinni mun líklega fljótlega kljúfa bárur Ttjágróðurinn byrjar að lifna og minni fley fiski- I hafsins og eigandi hennar færa björg í bú lands- skipastólsins eru endurnýjuð og skreytt. Trillan | manna. Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna: -----------------7------K Þrettán nemend- ur frá sex löndum FRÁ ÞVÍ að jarðhitaskólinn var stofnaður, árið 1979, hefur skólinn útskrifað 57 jarðvísindamenn og verkfræðinga frá 14 þróunarlönd- um. Að auki hafa aðrir 20 erlendir nemendur og fræðimenn tekið þátt í starfi skólans. Jarðhitaskólinn er rekinn af Orkustofnun í samvinnu við Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Skólaár jarðhitaskólans eru sex strangir mánuðir, frá sumardegin- um fyrsta til sumarloka. Starfsemi skólans miðar að því að gefa nem- endum fyrst innsýn í flesta þætti jarðvísinda og verkfræði jarðhita, og síðan sérhæfða þjálfun í einstök- um afmörkuðum greinum jarðhita- fræða undir handleiðslu íslenskra sérfræðinga. Ennfremur býður skólinn upp á þjálfun í skemmri tíma fyrir jarðvísindamenn og verk- fræðinga sem vilja kynna sér ákveðna þætti jarðhitamála. Slík þjálfun tekur yfirleitt tvo til þrjá mánuði. Níunda starfsár jarðhitaskólans er nú að hefjast. Skólinn var settur af Jakobi Björnssyni, orkumála- stjóra, mánudaginn 27. apríl. Þrettán nemendur frá sex löndum verða við skólann í.ár. Þar á meðal eru tveir verkfræðingar frá Tíbet, sem koma vegna samvinnu Islend- inga og Kínvérja á sviði jarðhita- rannsókna. Þá kemur einn Kínverji frá Tianjin-borg, en þar eru fyrrver- andi nemendur jarðhitaskólans nú að byggja hitaveitu að hætti íslend- inga. Aðrir nemendur skólans í ár eru jarðvísindamenn og verkfræð- ingar frá Kenýa, Eþíópíu, Thailandi, Filippseyjum og Indónesíu. Starfsemi jarðhitaskólans hefur gengið vel frá upphafi. Skólinn er hluti af aðstoð íslendinga við þróun- arlöndin. Jarðhitaskólinn nýtur þess að vera vel studdur af íslenskum stjórnvöldum og Sameinuðu þjóðun- um, enda mikil þörf fyrir upp- byggingu og þjálfun á sviði jarðhitatækni og jarðhitafræða í fjölda þróunarlanda. Kennarar við skólann eru aðal- lega sérfræðingar á jarðhitadeild Orkustofnunar, en prófessorar við Háskóla íslands og sérfræðingar hjá hitaveitum og verkfræðistofum taka einnig þátt í kennslunni með ýmsum hætti. Nemendur vinna gjarnan að verkefnum, sem tengj- ast framkvæmdum hitaveitna og rannsóknum á einstökum jarðhita- w svæðum og koma sumir nemenda með verkefni frá heimalandi sínu. Náminu lýkur með ritgerð, sem skólinn gefur út og dreifir til þróun- arlanda og víðar. Kostnaður við rekstur jarðhita- skólans skiptist á milli íslands (60%) og Sameinuðu þjóðanna (40%), samtals um 16 milljónir króna á þessu ári. Fyrir liggur að framlengja samning Orkustofnunar við Háskóla Sameinuðu þjóðanna til þriggja ára. Forstöðumaður jarðhitaskólans er dr. Jón Steinar Guðmundsson, verkfræðingnr. Umferðar- ljós skemmd með grjóti MIKLAR skemmdir voru unnar um helgina á búnaði sem stjórnar umferðarljósum á mótum Vífils- staðavegar og Hafnarfjarðar- vegar í Garðabæ. Að sögn lögreglunnar voru skemmdirnar unnar aðfaranótt laugardagsins. Einhveijir hafa látið stóra gijóthnullunga dynja á kass- anum, sem í er flókinn búnaður til að stjórna ljósunum. Ljósin eru nú óvirk og verður kostnaðarsamt að koma þeim í gagnið aftur. Ef vegfa- rendur hafa séð til skemmdarvarg- ■anna eru þeir beðnir um að hafa samband við rannsóknarlögregluna í Hafnarfirði. rju Vesturlönd ð halda í sprengjuna Breta hvatti ríkisstjórn keisarans og ríkisstjóm Hitlers til að framkvæma vel undirbúna árásarstefnu sína í þeirri von að Bretar berðust ekki. I ljósi þessarar reynslu er það mun betra til að halda friðinn, að vestræn lýðræð- isríki geri það öllum ljóst, að þau muni beijast, ef nauðsynlegt reynist. Jafnvel atómsprengjan á sínar góðu hliðar. Hreyfing fyrir einhliða af- vopnun hlýtur að hvetja aðra til hugsanlegrar árásar. Venjulega svarið við þessu er, að hreyfing fyrir einhiða afvopnun, sem nær takmarki sínu, geti einungis þýtt innrás og hemám árásarríkis, en hún þýði líka að atómsprengjur verði ekki notaðar. En þetta er röng skoðun. Það em tveir möguleikar; annaðhvort ná afvopnunarsinnar völdum í Bretlandi, Frakklandi og Bandaríkjunum á sama tíma, sem er svo ólíklegt að það er nánast útilokað, eða þeir ná völdum í einungis einu ríki, til dæmis í Bret- landi, sem er miklu líklegra. Verkamanaflokkurinn brezki er klofinn í afstöðunni til einhliða af- vopnunar, en eins og sakir standa er hún enn hluti af kosningastefnuskrá hans. Ég held ekki, að Verkamanna- flokkurinn geti unnið kosningar með slíka stefnuskrá. En ef hann gerði það hljótum við að gera ráð fyrir því að hann muni þegar í stað hefjast handa um að losa sig við öll kjarnorkuvopn skilyrðislaust. Venjulegur fylgismaður einhliða afvopnunar trúir því, að afvopnist land hans væri það mikill sigur fyrir frið og einnig að það tryggði landið gegn kjamorkuárás. En svo er ekki í pott- inn búið; slík aðgerð myndi valda mestu og hættulegustu alþjóðlegu kreppu frá seinni heimsstyijöldinni, því hún raskaði valdajafnvægi Banda- ríkjanna og Ráðstjómarríkjanna. Hún skapaði gífurleg vandræði fyr- ir þau Evrópuríki, sem enn em í Atlantshafsbandalaginu. Bandaríkin myndu ekki einungis líta á hana sem svik Breta heldur sem skyndilega valdaaukningu Ráðstjórnarríkjanna — í rauninni sem mikinn sigur Ráðstjórn- arríkjanna. Af þessu leiðir að ný heimsstytjöld gæti skollið á: stjórn- málamenn beggja vegna járntjaldsins gætu ekki ráðið við þessar nýju og hættulegu kringumstæður. Ef á hinn bóginn öll vestrænu lýð- ræðisríkin ákvæðu að afvopnast á sama tíma, þá blasti mjög óstöðugt og brigðult ástand við Sovétmönnum — það krefðist hernaðaraðgerða þegar í stað til að það breyttist ekki í fyrra horf. Það gæfi þeim afsökun til að sýna með notkun atómsprengjunnar að þau leyfðu engum á Vesturlöndum að breyta ástandinu aftur í fyrra horf. Eins og ég segjst vera betri friðar- sinni en flestir félagar í friðarhreyfing- unni tel ég mig vera betri náttúm- verndarmann en flestir Græningjar. Ég tek náttúmna fram yfir tæknina, sérstaklega þá tækni, sem framleiðir eiturgufur eða iðnað, sem hvetur til tóbaksreykinga. Ég er hliðhollur náttúmnni og styð vemdun hennar. En ég styð líka vísindin. Frá því sjónarmiði að varðveizla náttúmnnar sé mikilvæg, þá er hugmyndafræðileg andúð á vísindum viðurstyggileg. Það er enginn vafi á því að við höfum misnotað vísindin og tæknina, en þau hafa líka hjálpað okkur til að bæta fyrir skaðann; vísindi og tækni byggð á vísindum hafa bjargað mikilfengleg- um stöðuvötnum eins og í Michigan- vatninu í Bandaríkjunum og Zúrich-vatninu í Sviss. Einungis vísindi og tækni geta aðstoðað okkur við að koma á jafnvægi í náttúmnni. En það er líka ljóst að hvorki tækni né vísindi geta leitt okkur áleiðis. Einungis fólk með góða dómgreind getur gert það; vísindi og tækni )já okkur tækin til þess. Það verður að velja leiðina; og valið getur ekki byggst á kennivaldi vísindanna. Það sem meira er, það verða alltaf margar Karl Popper „Við á Vesturlöndum lifum við beztu aðstæður, sem hafa þekkzt fram til þessa. Það er ekki einungis færra fólk, sem er hungrað, hús- næðislaust og án læknis- hjálpar, heldur eru tækifærin, bæði andleg og efnisleg, fyrir hendi fyrir þá, sem vilja grípa þau.“ leiðir, og þeir sem segjast þekkja einu réttu leiðina em alltaf grunsamlegir. Það gengur ekki að krefjast með vitsmunahroka meira lítillætis af mönnum vísinda og tækni og þeir eigi betur að sjá fyrir hættur. Það eru margar hættur. En hættulegastir em þeir leiðtogar, sem vilja stjóma mönn- um tækninnar, og fórna jafnvel lýðræðinu og segja að frelsið komi síðar í ljós. Við á Vesturlöndum lifum við beztu aðstæður, sem hafa þekkzt fram til þessa. Það er ekki einungis færra fólk, sem er hungrað, húsnæðislaust og án læknishjálpar, heldur em tækifærin, bæði andleg og efnisleg, fyrir hendi fyrir þá sem vilja grípa þau. Ég trúi því, að við lifum í undursamlegum heimi, og að þakka beri vísindum og tækni, sem stöðugt em rægð, og jafn- vel iðnaði fyrir það sem þau hafa gert fyrir okkur. Okkar samfélag er það réttlátasta, sem nokkm sinni hef- ur verið til. Auðvitað em margir agnúar á því. En það er líka ákaft í að bæta sig. Stærsta böl þess er sjálfskipað klerkaveldi, sem prédikar stöðugt að við lifum í Helvíti. Þessi boðskapur er næstum alls staðar viðtekinn; og klerkaveldi fjölmiðlanna trúir honum auðvitað af einlægni. Stöðugur áróður gerir marga fylgismenn, sérstaklega ungt fólk, vansæla. Þeir trúa því raun- vemlega, að þeir lifi í slæmu, óréttlátu samfélagi og þjást mikið vegna þess- arar útbreiddu skoðunar. En sannleikurinn sigrar á endanum, ef til vill. Kannski brýtur hann sér leið inn í höfðuðkúpur okkar andlegu leiðtoga, svo að það flökri að þeim að þeim hafi orðið á mistök og að við getum og eigum að vera hamingjusöm og þakklát og vinna að þvi að bæta okkur fögm plánetu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.